Víkurfréttir


Víkurfréttir - 18.05.2017, Blaðsíða 19

Víkurfréttir - 18.05.2017, Blaðsíða 19
19fimmtudagur 18. maí 2017 VÍKURFRÉTTIR Ný og stórglæsileg Saga Lounge setustofa Icel- andair var opnuð sl. fimmtudag. Nýja setustofan er á þriðju hæð í suður-byggingu flugstöðvar- innar og er 1350 fermetrar að flatarmáli, um tvö- falt stærri en Saga Lounge stofan á neðstu hæð. Hönnuðir eru þeir Eggert Ketilsson og Stígur Steinþórsson. Íslensk náttúra og menning eru í hávegum höfð í nýju setustofunni þar sem áhersla er lögð á þægindi, gæði og gestrisni. Þaðan er líka stórbrotið útsýni, nærri því allan hringinn yfir Reykjanes, Faxaflóa og allt vestur til Snæfellsjökuls á heiðskírum degi. Ekki er ólíklegt að fleiri muni nú gleyma fluginu sínu því hægt er að eiga góðar stundir í skemmtilegum legubekkjum og hægindastólum eða við arineld. Suðurnesjamenn eiga mest allan heiðurinn af sjálfri uppsetninga- og smíðavinnunni í nýju stofunni. Þar fóru fremstir starfsmenn og eig- endur Trésmíðaverkstæðis Stefáns og Ara, en þeir bræður hafa komið að vinnu við síðustu fjórar setustofur Icelandair í flugstöðinni. Yfirmaður nýju setustofunnar er Jenný Walters- dóttir og hún sagðist afar ánægð með útkomuna. „Þetta er örugglega ein glæsilegasta setustofa flugstöðva í heiminum,“ sagði Jenný og brosti sínu blíðasta en hún sagði að fjögur önnur flug- félög myndu fá aðgang að setustofu Icelandair. Birgir Holm, forstjóri Icelandair, og Hlynur Sigurðsson, framkvæmdastjóri Keflavíkurflug- vallar, vígðu nýju setustofuna og lofuðu þeir báðir vinnuna við hönnun og uppsetningu stof- unnar. Íslensk náttúra og magnað útsýni í nýjum Saga Lounge Birgir Holm, forstjóri Icelandair, og Hlynur Sigurðsson, framkvæmda- stjóri Keflavíkurflugvallar, vígðu nýju setustofuna. VF-myndir/pket. Jenný Waltersdóttir með samstarfskonum sínum í nýja Saga Lounge-inum. Stefán og Ari Einarssynir, smíðaverktakar, hafa komið að vinnu við síðustu setustofur Icelandair. Þeir voru ánægðir með árangurinn.

x

Víkurfréttir

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Víkurfréttir
https://timarit.is/publication/1102

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.