Víkurfréttir - 18.05.2017, Side 19
19fimmtudagur 18. maí 2017 VÍKURFRÉTTIR
Ný og stórglæsileg Saga Lounge setustofa Icel-
andair var opnuð sl. fimmtudag. Nýja setustofan
er á þriðju hæð í suður-byggingu flugstöðvar-
innar og er 1350 fermetrar að flatarmáli, um tvö-
falt stærri en Saga Lounge stofan á neðstu hæð.
Hönnuðir eru þeir Eggert Ketilsson og Stígur
Steinþórsson. Íslensk náttúra og menning eru
í hávegum höfð í nýju setustofunni þar sem
áhersla er lögð á þægindi, gæði og gestrisni.
Þaðan er líka stórbrotið útsýni, nærri því allan
hringinn yfir Reykjanes, Faxaflóa og allt vestur
til Snæfellsjökuls á heiðskírum degi. Ekki er
ólíklegt að fleiri muni nú gleyma fluginu sínu því
hægt er að eiga góðar stundir í skemmtilegum
legubekkjum og hægindastólum eða við arineld.
Suðurnesjamenn eiga mest allan heiðurinn af
sjálfri uppsetninga- og smíðavinnunni í nýju
stofunni. Þar fóru fremstir starfsmenn og eig-
endur Trésmíðaverkstæðis Stefáns og Ara, en
þeir bræður hafa komið að vinnu við síðustu
fjórar setustofur Icelandair í flugstöðinni.
Yfirmaður nýju setustofunnar er Jenný Walters-
dóttir og hún sagðist afar ánægð með útkomuna.
„Þetta er örugglega ein glæsilegasta setustofa
flugstöðva í heiminum,“ sagði Jenný og brosti
sínu blíðasta en hún sagði að fjögur önnur flug-
félög myndu fá aðgang að setustofu Icelandair.
Birgir Holm, forstjóri Icelandair, og Hlynur
Sigurðsson, framkvæmdastjóri Keflavíkurflug-
vallar, vígðu nýju setustofuna og lofuðu þeir
báðir vinnuna við hönnun og uppsetningu stof-
unnar.
Íslensk náttúra og magnað útsýni í nýjum Saga Lounge
Birgir Holm, forstjóri Icelandair, og
Hlynur Sigurðsson, framkvæmda-
stjóri Keflavíkurflugvallar, vígðu
nýju setustofuna. VF-myndir/pket.
Jenný Waltersdóttir með samstarfskonum sínum í nýja Saga Lounge-inum.
Stefán og Ari Einarssynir, smíðaverktakar, hafa komið að vinnu við
síðustu setustofur Icelandair. Þeir voru ánægðir með árangurinn.