Víkurfréttir - 18.05.2017, Page 2
2 fimmtudagur 18. maí 2017VÍKURFRÉTTIR
ALLTAF PLÁSS
Í B Í L N U M
FINNDU OKKUR Á FACEBOOK
DAGLEGAR FERÐIR ALLA VIRKA DAGA, TVISVAR Á DAG.
S U Ð U R N E S - R E Y K J A V Í K
SÍMI: 845 0900
Hringbraut 99 - 577 1150
Opnunartími: Virka daga frá kl. 9:00 - 19:00 og laugardaga frá kl. 14:00 - 18:00.
Apótek Suðurnesja leggur metnað í að bjóða viðskiptavinum sínum lyf á lágmarks-
verði, þar sem fagmennska, heiðarleiki og nærgætni við viðskiptavini er í fyrirrúmi.
APÓTEK SUÐURNESJA
KYNNIR NÝJAR HÚÐVÖRUR
FRÁ BIO MIRACLE
30% KYNNINGARAFSLÁTTUR
Framkvæmdir
við gatnagerð í
Vogum hafnar
●● Forseti●bæjarstjórnar●tók●
fyrstu●skóflustunguna
Hafnar eru framkvæmdir við gatna-
gerð á miðbæjarsvæðinu í Vogum,
en samið var við Jón og Margeir
ehf. í Grindavík. Mörg ár eru síðan
síðast var unnið að gatnagerð nýs
hverfis í Vogunum.
Ingþór Guðmundsson, forseti bæjar-
stjórnar, tók fyrstu skóflustunguna.
Að henni lokinni tók hann einn-
ig fyrstu skóflustunguna í gröfu, en
Ingþór hefur meðal annars réttindi á
stórvirkum vinnuvélum.
Verklokin verða seint í sumar og
lóðum undir einbýlishús, parhús og
fjölbýlishús úthlutað.
Fjórar nýjar götur á svokölluðu mið-
bæjarsvæði í Vogum hafa fengið
nöfn. Göturnar munu bera nöfnin
Skyggnisholt, Breiðuholt, Lyngholt og
Keilisholt. Umhverfis- og skipulags-
nefnd Voga hefur samþykkt tillögu
Oktavíu Ragnarsdóttur um nöfnin.
Gatnagerðin í nýju hverfi
í Vogum er hafin. Myndin
var teknin sl. mánudag
með flygildi. VF-mynd:
Hilmar Bragi
Skólamatur ehf. mun áfram sjá um hádegismat í grunnskólum Reykjanesbæjar
Í vikunni var undirritaður samn-
ingur á milli Reykjanesbæjar og
Skólamatar ehf. um framleiðslu og
framreiðslu á skólamat fyrir grunn-
skóla Reykjanesbæjar að undan-
gengnu útboði sem Ríkiskaup hafði
umsjón með. Undirritunin fór fram
í Njarðvíkurskóla á matmálstíma.
Tvö tilboð bárust, annað frá ISS Ís-
land ehf. að upphæð kr. 624.832.598.-
og hitt frá Skólamat ehf. að upphæð
kr. 567.171.765. Kostnaðaráætlun
Reykjanesbæjar var kr. 658.148.291.
Samningurinn er til 3 ára með mögu-
leika á framlengingu 2 x 1 ár eða að
hámarki til 5 ára.
Ávinningur af þessu útboði miðað við
3 ára samning er því kr. 90.976.526.-
eða um 14%. Bæði tilboðin voru
undir kostnaðaráætlun.
Skólamatur ehf. var með eldri samn-
inginn og mun því áfram sinna
grunnskólum í Reykjanesbæ og hefur
samstarfið gengið mjög vel á undan-
förnum árum.
Höfnuðu 320 milljóna
króna tilboði í Ramma
●● áður●komið●tilboð●upp●á●340●milljónir●
sem●ekki●tókst●að●fjármagna
Bæjarráð Reykjanesbæjar hefur hafnað kauptilboði í Seylubraut 1 í
Innri Njarðvík. Um er að ræða húsnæði sem kennt er við Ramma og
hýsir í dag safngeymslur Byggðasafns Reykjaness og slökkviliðsminja-
safn. Brunabótamat hússins er 444,6 milljónir króna en fasteignamatið
175 milljónir króna.
Tilboðið hljóðaði upp á 320
milljónir með skilyrðum. Því var
hafnað, m.a. á grundvelli skilyrða,
segir í svari Reykjanesbæjar við
fyrirspurn blaðsins. Fyrr hafði til-
boð upp á 340 milljónir borist í
eignina, en kaupin náðu ekki í gegn
vegna erfiðleika við fjármögnun.
Fjórir aðilar hafa sýnt eigninni
áhuga, sem nú er til sölu hjá öllum
fasteignasölum í Reykjanesbæ.
Heildarstærð hússins er liðlega
4000 fermetrar. Húsið er í þremur
fastanúmerum sem eru iðnaðar-
hús upp á 1044,5m², iðnaðar-
hús og sérhæfð bygging samtals
2879,1m², þar af 260m² milliloft.
Skrifstofa samtals 168m². Húsið
verður selt sem ein fasteign. Húsið
er á 14.490m2 leigulóð á frábærum
stað við Reykjanesbrautina. Í aug-
lýsingu fyrir fasteignina er sagt:
„Húnæðið er tilvalið fyrir m.a.
stórmarkað, byggingavöruverslun
eða bílaleigu. Staðsetningin er með
besta auglýsingagildi sem hægt
er að fá í Reykjanesbæ, allir sem
koma og fara úr landinu aka fram
hjá húsinu“.
Frá undirritun og handsali samningsins í Njarðvíkurskóla. F.v. Helgi Arnarson
sviðsstjóri Fræðslusviðs, Kjartan Már Kjartansson bæjarstjóri, Jón Axelsson
framkvæmdastjóri Skólamatar (standandi), Axel Jónsson eigandi Skólamatar,
Fanney Axelsdóttir mannauðs- og samskiptastjóri Skólamatar, ásamt nemendum
í Njarðvíkurskóla.
Seinkun á tölvu-
leikjanámi Keilis
●● Menntamálaráðuneytið●ekki●
áhugasamt
Ekki stendur lengur til að bjóða upp
á nám á tölvuleikjabraut hjá Keili á
Ásbrú í haust. Stefnt hafði verið að
opnun tölvuleikjabrautarinnar undan-
farna mánuði, en um er að ræða
þriggja ára nám til stúdentsprófs með
áherslu á tölvuleikjagerð og átti námið
að hefjast í haust. Arnbjörn Ólafsson,
markaðsstjóri Keilis, sagði í samtali við
Morgunblaðið að menntamálaráðu-
neytið hefði ekki verið jafn áhugasamt
um námsbrautina og atvinnulífið og
væntanlegir nemendur. Þá segir hann
einnig að um 40 manns hafi lýst yfir
áhuga á því að hefja nám við náms-
brautina, en að óvíst sé nú á hvaða mið
það fólk rói, en þetta nám er ekki í boði
í öðrum framhaldsskólum landsins.
Til að bregðast við eftirspurn fyrirtækja
um menntað fólk innan geirans, sem og
áhuga ungs fólks á náminu, höfðu starfs-
menn Keilis, í samstarfi við CCP og aðra
tölvuleikjaframleiðendur á Íslandi, ásamt
Samtökum leikjaframleiðenda og alþjóð-
legum skólum í tölvuleikjagerð unnið
að þróun námsins. Arnbjörn segir það
áhyggjuefni að kerfið þurfi að taka sér
langan tíma til að svara erindum, einn-
ig að starfsemi tölvuleikjafyrirtækja sé
mjög vaxandi atvinnugrein en þau vanti
hins vegar starfsfólk, sem nú komi í vax-
andi mæli frá útlöndum. „Atvinnulífið
er í stöðugri framþróun og verður sífellt
kvikara. Á meðan virðist kerfið enn vera
svifaseint og lengi að bregðast við nýjum
kröfum og þörfum atvinnulífsins.“
Fimmtudagskvöld kl. 20:00
Seylubraut 1, gamli Rammi, er
fremst á myndinni. „Staðsetningin
er með besta auglýsingagildi sem
hægt er að fá í Reykjanesbæ,“ segir
í fasteignaauglýsingu. VF-mynd:
Hilmar Bragi