Víkurfréttir - 18.05.2017, Page 6
6 fimmtudagur 18. maí 2017VÍKURFRÉTTIR
Hollendingurinn fljúgandi er heimsfrægt verk eftir ópe-
ruskáldið Wagner, en það verður sýnt í Hljómahöll annað
kvöld. Æfingar hafa staðið yfir í langan tíma en í ansi kröftugu
verkinu má heyra mismunandi tegund tónlistar.
„Þegar við Bylgja Dís fengum þessa
hugmynd þá vildum við gera eitthvað
nýtt. Wagner er rokkarinn í óperunni
og við veltum því fyrir okkur af hverju
við tækjum ekki bara rokk-Wagner.
Það er það sem þetta er að enda í og er
rosalega gaman,“ segir Jóhann Smári
Sævarsson í samtali við Víkurfréttir,
en hann er söngvari í verkinu sam-
hliða því að stjórna hljómsveitinni.
„Við erum bara með gæsahúð á æfing-
unum því þetta kemur svo vel út. Við
hlökkum til að syngja og spila fyrir,
vonandi, fullum Stapa.“
Aðrir söngvarar verksins eru þau Egill
Árni Pálsson og Bylgja Dís Gunnars-
dóttir. Hljómsveitina skipa þeir Sævar
Helgi Jóhannsson, Sveinbjörn Ólafs-
son og bræðurnir Arnar og Valur Ing-
ólfssynir.
„Þetta er mikið drama og drauga-
saga. Venjulega er þetta verk tveir og
hálfur tími en við erum búin að stytta
það og ætlum að flytja það besta úr
því. Við höfum ekki efni á að vera
með sinfóníuhljómsveit með okkur
svo við fengum rokkhljómsveit í stað-
inn,“ segir Jóhann Smári. Sonur hans,
Sævar Helgi, sem spilar á píanó, segir
þetta vera mikið tilraunaverkefni.
„Við erum að bæta jazz, hip hop og
funk í þetta. Við erum að koma fólki
dálítið mikið á óvart.“
Miðasala tónleikanna er á hljoma
holl.is og við innganginn.
■ Uppselt var á tónleika Arnars
Dórs „Hittu mig í draumi“ sem
haldnir voru í Berginu í Hljóma
höll síðastliðinn fimmtudag. Tón
leikarnir voru fyrstu sólótónleikar
Arnars en hann hefur lengi verið
viðloðandi tónlist og lenti meðal
annars í öðru sæti í söngkeppninni
Voice Ísland.
„Það var ótrúlega góð stemning og
gekk vonum framar. Það var meira en
uppselt og liggur við setið á sviðinu.
Eftirspurnin var engu lík og fær starfs-
fólk Hljómahallar hrós fyrir mikla
fagmennsku,“ segir Arnar í samtali
við Víkurfréttir, en hann segist einnig
ætla halda jólatónleika í vetur. „Það
kom mér svakalega á óvart að það
hafi verið uppselt á mínum fyrstu
tónleikum. Ég er í skýjunum yfir því
hversu góð viðbrögð ég fékk.“
Víkurfréttir fylgdust með tónleik-
unum.
Lokum í Krossmóa 23. maí.
30%
afslá
ttur
15 -
23. m
aí Komið og gerið
góð kaup.
Opnum svo 1. júní
á Hafnargötu 25.
VIÐ FLYTJUM
Krossmói 4 - 230 Reykjanesbæ - Sími 421 5121
Opið mánudag - föstudag kl 10:00 - 18:00
laugardag kl. 11:00 - 16:00
„Við erum með gæsahúð á æfingunum,“
segir Jóhann Smári Sævarsson
Hollendingurinn
fljúgandi
rokkaður í Hljómahöll
„Sævar
Helgi leikur
á píanó.“
„Jóhann Smári fer með tvö hlut-
verk í óperunni samhliða því að
stjórna hljómsveitinni.“
„Hópurinn í heild sinni í Tónlistar
skóla Reykjanesbæjar.“
Uppselt í
Hljómahöll
Arnar Dór í skýjunum
með sína fyrstu tónleika
Leysa húsnæðismál tónlistarskóla í Garði
■ Bæjarráð Sveitarfélagsins Garðs
hefur falið bæjarstjóra að undirrita
kaupsamning vegna kaupa sveitar
félagsins á fasteigninni Heiðartún
2d í Garði. Félagsmiðstöð unglinga
verður flutt í húsnæðið.
Þar með hafa húsnæðismál Tónlist-
arskólans í Garði verið leyst en tón-
listarskólinn og félagsmiðstöðin hafa
deilt húsnæði í Sæborg við Garðbraut
undanfarin ár.
Kaupverð Heiðartúns 2d er 21 milljón
króna. Í Heiðartúni 2a, b og c er fé-
lagsstarf eldri borgara í Garði.
Lýðræði, jafnrétti og börn á alþjóð-
legri ráðstefnu í Reykjanesbæ
■ Norræna félagið á Íslandi býður
til alþjóðlegrar ráðstefnu á Hótel
Park Inn í Reykjanesbæ dagana
18.19. maí í tilefni af formennsku
Íslands í Eystrasaltsráði frjálsra fé
lagasamtaka, Baltic Sea NGO Net
work, en Norræna félagið er fulltrúi
Íslands í þeim samtökum. Efni ráð
stefnunnar sem er lýðræði, jafnrétti
og börn er samhljóma áherslum Ís
lands í Eystrasaltsráðinu. Aðildar
ríki samtakanna eru Norðurlöndin
og Eystrasaltsríkin ásamt Póllandi,
Rússlandi og Þýskalandi. Samtökin
voru stofnuð árið 2001 í þeim til
gangi að gefa grasrótinni vettvang til
að láta í sér heyra og fyrir skoðana
skipti þvert á landamæri.
Búist er við um 50 erlendum gestum
frá öllum aðildarríkjum sambandsins
og munu þeir gista á Hótel Park Inn
meðan á ráðstefnunni stendur. Setn-
ing ráðstefnunnar fer fram í Duus-
húsum á fimmtudagskvöldið í boði
Reykjanesbæjar og þar mun Kjartan
Már Kjartansson, bæjarstjóri, bjóða
ráðstefnugesti velkomna til bæjar-
ins. Bogi Ágústsson, formaður Nor-
ræna félagsins, mun setja ráðstefn-
una og meðal annarra ræðumanna
við setningarathöfnina eru Unnur
Brá Konráðsdóttir, forseti Alþingis,
Guðmundur Árni Stefánsson, sendi-
herra, og Þorsteinn Víglundsson ráð-
herra. Norræna félagið hefur notið
stuðnings utanríkisráðuneytisins við
skipulagningu og framkvæmd ráð-
stefnunnar og þar að auki styrkir Kon-
rad-Adenauer sjóðurinn ráðstefnuna.
Fór í sturtu og var rændur
■ Íbúi í Reykjanesbæ, sem brá sér í sturtu að
næturlagi um helgina, var tveimur armbands
úrum, allmörgum áfengisflöskum og einni
rafrettu fátækari þegar sturtuferðinni lauk.
Hann hafði heyrt umgang í íbúðinni en taldi
að þar væri sambýlingur sinn á ferð. Svo var
þó ekki því hinn síðarnefndi svaf svefni hinna
réttlátu í rúmi sínu þegar að var gáð. Ljóst var
að óboðinn gestur hafði farið um ránshendi
meðan á sturtuferðinni stóð.
Þá var brotist inn í verkstæði í umdæmi Lög-
reglunnar á Suðurnesjum og tveimur verkfæ-
rakistum stolið úr bifreið sem þar var inni.
Borgaraleg handtaka í Njarðvík
■ Ökumaður sem ók aftan á
kyrrstæða bifreið í Njarðvík
í síðustu viku ætlaði að aka
í burtu enda grunaður um
ölvun við akstur. Eigandi
kyrrstæðu bifreiðarinnar
horfði á atvikið og ræddi
við ökumanninn. Hann
vildi sem minnst tjá sig og
lá greinilega á að komast í
burtu.
Af því varð þó ekki því tveir
nærstaddir menn komu eig-
andanum til aðstoðar, tóku
ökumanninn út úr bílnum og
héldu honum þar til lögreglu-
menn á Suðurnesjum komu á
vettvang. Þeir handtóku öku-
þórinn og færðu hann á lög-
reglustöð.
Þá voru skráningarnúmer
fjarlægð af bíl hans því hann
var ótryggður.
Útgefandi: Víkurfréttir ehf., kt. 710183-0319 // Afgreiðsla og ritstjórn: Krossmóa 4a, 4. hæð, 260 Reykjanesbæ, sími 421 0000 // Ritstjóri og ábm.: Páll Ketilsson, sími
421 0004, pket@vf.is // Fréttastjóri: Hilmar Bragi Bárðarson, sími 421 0002, hilmar@vf.is // Blaðamenn: Óskar Birgisson, sími 421 0002, oskar@vf.is // Sólborg Guð-
brandsdóttir, sími 421 0002, solborg@vf.is // Auglýsingastjóri: Sigfús Aðalsteinsson, sími 421 0001, fusi@vf.is // Umbrot: Jóhann Páll Kristbjörnsson, johann@vf.is //
Afgreiðsla: Aldís Jónsdóttir, sími 421 0000, aldis@vf.is, Dóróthea Jónsdóttir, dora@vf.is // Prentun: Landsprent // Upplag: 9000 eintök // Dreifing: Íslandspóstur //
Dagleg stafræn útgáfa: www.vf.is og kylfingur.is
Tekið er á móti auglýsingum á póstfangið fusi@vf.is. Auglýsingar berist fyrir kl. 17:00 á þriðjudegi fyrir útgáfudag, sem er almennt á fimmtudögum. Móttaka smáauglýsinga
er á vf.is. Smáauglýsingar berist fyrir kl. 15:00 á þriðjudögum. Sé fimmtudagur frídagur þá kemur blaðið út á miðvikudögum og skilafrestur auglýsinga færist fram um einn
sólarhring. Dreifing blaðsins tekur að jafnaði tvo daga. Blað sem kemur út á fimmtudegi er dreift á þeim degi og föstudegi inn á öll heimili á Suðurnesjum.
Efni til Víkurfrétta skal berast á póstfangið vf@vf.is. Aðsendar greinar birtast á vef Víkurfrétta, vf.is. Það er mat ritstjórnar hvaða greinar birtast í prentaðri útgáfu Víkurfrétta.
Ekki er greitt fyrir aðsent efni, texta eða myndir, hvort sem það birtist í blaðinu eða á vefsíðum Víkurfrétta.