Víkurfréttir - 18.05.2017, Síða 8
8 fimmtudagur 18. maí 2017VÍKURFRÉTTIR
REYKJANESBÆR
Miðasala við innganginn og á hljomaholl.is
Vilja ná til ungra vélhjólakappa
■ Bifhjólaklúbburinn Ernir stendur
fyrir forvarnardegi við félagsheim-
ili sitt á Ásbrú nk. laugardag kl. 10.
Markmið dagsins er að vera með for-
varnir og fræðslu um öryggismál.
„Nú eru hjólin að koma út á göturnar
eftir veturinn og því skiptir það miklu
máli að vera með fræðslu um for-
varnir á þessum tímapunkti,“ sagði
Óskar Húnfjörð formaður Arna. „Við
leggjum mikla áherslu á að ná til ungl-
inga og þeirra sem eru á minni hjól-
unum og benda þeim á að búnaður-
inn skiptir máli. Allir eru velkomnir
sem áhuga hafa á mótorhjólum og ég
vil hvetja þá til að taka félaga sína með
sér,“ sagði Óskar.
Lögreglan á Suðurnesjum og Bruna-
varnir Suðurnesja taka þátt í deginum.
Þá styðja VÍS, Íslandsbanki, og Inn-
ness viðburðinn. Víkurfréttir er sam-
starfsaðili klúbbsins á Forvarnardeg-
inum.
Klúbburinn hefur það markmið að
auka öryggi hjólafólks og vilja klúbb-
meðlimir sýna gott fordæmi og reyna
að ná til yngri hópanna sem vafalaust
verða hjólamenn framtíðarinnar.
Sjúkraflutningamenn sýna viðbrögð
við komu að slysi bifhjólamanns og
sett verður upp æfingabraut þar sem
hægt er að æfa akstur á hjólunum.
Sýnt verður nýjasta öryggisvestið fyrir
hjólamenn.
Í hádeginu verður boðið upp á grill-
aðar pylsur og gos í boði Atlantsolíu.
„Þetta verður skemmtilegt og fræð-
andi fyrir alla sem vilja koma til
okkar á laugardaginn sagði,“ Óskar
að lokum.
Háskólalestin í Sandgerði
●● Nemendur●Grunnskólans●í●Sandgerði●sóttu●meðal●
annars●námskeið●í●japönsku●og●vindmyllusmíði
Háskólalestin staldraði við í Grunn-
skólanum í Sandgerði síðasta föstudag.
Þar var boðið upp á ýmis námskeið í
Háskóla unga fólksins fyrir nemendur
í elstu bekkjum. Í boði voru námskeið
í blaða- og fréttamennsku, eðlisfræði,
efnafræði, japönsku, jarðfræði, leik
að hljóði, leyndardómum miðalda-
handrita, stjörnufræði, tómstunda- og
félagsmálafræði og vindmyllusmíði.
Vísindaveislu var slegið upp í skól-
anum á laugardag þar sem allir voru
velkomnir. Rannsóknasetur Há-
skóla Íslands í Sandgerði tók þátt í
veislunni en gestir gátu skoðað kynja-
verjur úr hafdjúpunum, spreytt sig á
alls kyns þrautum, tækjum og tólum,
kynnt sér japanska tungu, ferðast
um himingeiminn í stjörnutjaldinu,
kynnst undrum efnafræðinnar, prófað
vindmyllusmíði og gert ýmis konar
óvæntar uppgötvanir.
Háskólalestin hefur heimsótt hátt í 30
staði víða um land frá því að henni var
ýtt af stað á aldarafmælisári Háskóla
Íslands árið 2011. Lestin brunar nú
um landið sjöunda árið í röð.
Með viljann að vopni er allt hægt
●● Már●Gunnarsson●sló●í●gegn●í●auglýsingu●Lottó
Keflvíkingurinn Már Gunnarson lék
á dögunum í auglýsingu Lottó, sem
er í grunninn byggð á hans eigin ævi,
en Már er blindur. „Ég fæddist með
betri sjón en ég er með núna en henni
fór versnandi með aldrinum. Ég fór
að finna það svolítið að ég gæti ekki
tekið þátt í öllu því sem aðrir voru að
gera, íþróttum og öðru. Ég gat ekk-
ert farið í fótbolta eða körfubolta þó
ég hefði viljað það.“ Undanfarin ár
hefur Már æft sund af miklu kappi,
sett fjölda Íslandsmeta og keppt fyrir
Íslands hönd á stórmótum.
Már lítur hins vegar ekki á sjónskerð-
inguna sem fötlun og segir allt hægt
með viljann að vopni. „Maður þarf
bara að hafa mikinn áhuga og metnað
fyrir því sem maður er að gera,“ segir
Már sem hefur spilað á píanó í tíu ár
og segist lifa fyrir það að semja og
spila sín eigin lög.
fimmtudagskvöld kl. 20:00 og 22:00
Stilltu á Hringbraut