Víkurfréttir - 18.05.2017, Qupperneq 12
12 fimmtudagur 18. maí 2017VÍKURFRÉTTIR
Stóru-Vogaskóli er staðsettur við
mikla fjöru í lygnri vík, Vogavík.
Þar er því einstakt tækifæri til að
efla útikennslu og náttúruupplifun
en á undanförnum árum hefur úti-
kennsla við skólann verið aukin sem
viðbót við fjölbreytta kennsluhætti.
Einn liður í útikennslu við Stóru-
Vogaskóla er valfag í kajakróðri. Í
kajaktímum er öryggið í fyrirrúmi
og fara því alltaf tveir kennarar í
róður með hverjum hópi. Kajak-
tímarnir eru valfög á unglingastigi
og hafa notið vinsælda, enda kær-
komin tilbreyting frá inniveru og
bókalestri. „Nemendur hafa tekið
því vel að geta valið sér skemmti-
legt fag úti í náttúrunni. Fagið er
hluti af þeirri auknu áherslu sem
víða er verið að leggja á útikennslu.
Stóru-Vogaskóli er staðsettur við
þessa frábæru fjöru og Stapann
og hefur fallega umgjörð frá nátt-
úrunnar hendi,“ segir Hilmar E.
Sveinbjörnsson, kennari við Stóru-
Vogaskóla.
Aðeins eru um 50 metrar frá Stóru-
Vogaskóla niður í fjöru svo að það er
ekki langt að fara í róður. Sökum veð-
urs er ekki hægt að sigla allt skólaárið
um kring. Fyrstu tvo, þrjá mánuðina
á haustin er róið og svo aftur tvo, þrjá
síðustu á vorin. „Þetta fer líka alltaf
eftir veðrinu. Þumalputtareglan hjá
okkur er að ef það er hvítt í öldunni
er vindur of mikill til að róa. Þá ráða
sumir krakkarnir illa við bátana.
Sömuleiðis þarf að taka tillit til þess
hvort það sé vindur af landi eða sjó,“
segir Hilmar. Yfirleitt rær hópurinn í
fjörunni, nálægt landi og út að Stapa.
Ef aðstæður leyfa er farið aðeins utar
og þá jafnvel til að renna fyrir fisk.
Það voru fjórir kennarar við Stóru-
Vogaskóla sem upphaflega fengu
hugmyndina að því að bjóða upp á
kajak sem valfag. Þeir vinna sjálfir að
fjáröflun fyrir kaupum á kajökum og
búnaði. Að sögn Hilmars hafa bæði
Stóru-Vogaskóli og sveitarfélagið
Vogar sýnt málefninu stuðning. Enn
vanti þó talsvert upp á svo að vel megi
við una. Til þessa hafa nokkur fyrir-
tæki í Vogum styrkt verkefnið. Fyrir-
tækin eru Beitir, Nesbú og Þorbjörn.
Vill Hilmar fyrir hönd kajakræðara
færa þeim bestu þakkir fyrir.
Heyrnartækni | Glæsibæ | Álfheimum 74 | 104 Reykjavík | Landsbyggðaþjónusta | Sími 568 6880
Bókaðu tíma í síma 568 6880 eða á www.heyrnartaekni.is
Heyrnarmælingar, ráðgjöf og heyrnartækjaþjónusta
Nú þjónustum við Suðurnesin
Vantar þig heyrnartæki?
Árni Hafstað heyrnarfræðingur mun bjóða upp á
heyrnarmælingar og ráðgjöf á Heilbrigðisstofnun
Suðurnesja. Mikið úrval af vönduðum heyrnartækjum.
Starfsmenn í sumardagvistun fatlaðra barna
Þroskaþjálfi
Aðstoðarleikskólastjóri
Kennarar
Leiðbeinandi í myndlist
Deildarstjóri yngra stigs
Leikskólakennari
Þroskaþjálfi
Leikskólakennari
Umönnunarstarf fatlaðra barna
Umsjónarkennari á miðstigi
Kennari
Umsjónarkennsla á mið- og yngsta stigi
LAUS STÖRF
Umsóknum í öll ofangreind störf skal skilað á vef Reykjanes-
bæjar undir Stjórnsýsla: Laus störf. Þar eru jafnframt nánari
upplýsingar um auglýst störf og á Facebook síðunni Reykja-
nesbær - laus störf.
ÖSPIN
HOLTASKÓLI
LEIKSKÓLINN HEIÐARSEL
HÁALEITISSKÓLI
LISTASKÓLI BARNA
HEIÐARSKÓLI
LEIKSKÓLINN TJARNARSEL
HEIÐARSKÓLI
LEIKSKÓLINN HOLT
MÁLEFNI FATLAÐS FÓLKS
HOLTASKÓLI
HEIÐARSKÓLI
AKURSKÓLI
VIÐBURÐIR
HVATNINGARVERÐLAUN FRÆÐSLURÁÐS
Opnað hefur verið fyrir árlegar tilnefningar til hvatningarverðlauna
fræðsluráðs Reykjanesbæjar. Form fyrir tilnefningu er að finna á vef
Reykjanesbæjar (undir Auglýsingar).
FRAMHALDSPRÓFS- OG BURTFARARTÓNLEIKAR
Díana Lind Monzon heldur framhaldsprófs- og burtfarartónleika í
söng frá Rytmískri deild Tónlistarskóla Reykjanesbæjar í Stapa
sunnudaginn 21. maí kl. 20:30. Með henni leika hryn- og blásarasveit.
FJÖRUG DAGSKRÁ Í BÓKASAFNI REYKJANESBÆJAR
Laugardaginn 20. maí verður Notaleg sögustund á ensku kl. 11:30.
Frá kl. 12-14 sama dag verður Hjólreiðaverkstæði Helga á staðnum og
yfirfer hjól fjölskyldunnar fyrir sumarið. Allir hjartanlega velkomnir.
SUMAR Í REYKJANESBÆ
Vefurinn Sumar í Reykjanesbæ hefur verið opnaður á slóðinni sumar.
rnb.is. Þar er að finna tómstundir og afþreyingu fyrir börn í sumar.
Nýta sjóinn sem
útikennslustofu
●● Boðið●er●upp●á●kajakróður●í●Stóru-Voga
Nemendur ásamt kennurum,
þeim Hilmari E. Sveinbjörns-
syni og Marc André Portal.
VF-mynd/dagnyhulda