Víkurfréttir - 18.05.2017, Blaðsíða 14
14 fimmtudagur 18. maí 2017VÍKURFRÉTTIR
Halldór Karl Hermannsson, hafnar-
stjóri Reykjaneshafnar, sagði í sam-
tali við Víkurfréttir að það væri ljóst
að Reykjaneshöfn hefði haft af þessu
mikinn kostnað. Hann skipti millj-
ónum króna. Stormur SH hafi verið
í höfninni í næstum áratug. Fyrri
eigandi, öflugt ferðaþjónustufyrir-
tæki, hafi haft hugmyndir um að gera
bátinn upp. Fyrir rúmu ári síðan hafi
svo bátnum verið afsalað yfir á fyrir-
tæki á Þingeyri fyrir eina krónu, eins
og áður segir.
Þá hafði báturinn þegar sokkið einu
sinni í höfninni og hann átti eftir að
gera það aftur, því skömmu eftir að
nýr eigandi tók við Stormi SH sökk
hann að nýju og hafði legið á botni
hafnarinnar, þar til fyrir stuttu að
Reykjaneshöfn lét koma bátnum á
þurrt þar sem honum var fargað.
Til að geta losnað við Storm SH úr
höfninni þurfti Reykjaneshöfn að
kaupa bátinn. Kaupverðið hljóðaði
upp á eina krónu, sem var sama verð
og fyrirtækið á Þingeyri hafði greitt
fyrir hann. Hvalaskoðunarfyrirtækið
losaði sig við bátinn á eina krónu til
fyrirtækis sem greinilega ætlaði sér
ekkert með bátinn og sýndi af sér
mikið tómlæti og hirðuleysi með því
að verða ekki við ítrekuðum áskor-
unum hafnarinnar, eins og segir í
gögnum hafnarinnar. Með því að af-
sala sér bátnum endaði milljóna króna
kostnaður á íbúum Reykjanesbæjar,
eigendum hafnarinnar.
Næstum áratug í höfninni
Stormur SH 333 hafði verið í viðlegu
hjá Reykjaneshöfn frá því í júlí 2008.
Ástandið á bátnum var strax frekar
slæmt en upphaflega stóð til að bátur-
inn stoppaði aðeins skamman tíma
í viðlegu þar sem eigandinn, hvala-
skoðunarfyrirtæki, hafði fyrirhugað
að gera bátinn upp. Það gekk þó ekki
eftir og versnaði ástand bátsins stöð-
ugt. Frá árinu 2008 hefur báturinn
sokkið tvisvar við bryggju í Njarðvík.
Hann hafði áður sokkið tvisvar og
einu sinni rekið upp í fjöru á öðrum
stað á landinu. Hann á því líklega Ís-
landsmetið í að sökkva eða fjórum
sinnum.
Þegar hvalaskoðunarfyrirtækið seldi
Storm SH þann 1. mars í fyrra fékk
Reykjaneshöfn sent afrit af afsali söl-
unnar þar sem fram kemur að bátnum
hafi verið afsalað með fylgifé og um-
sömdum búnaði. Þá hafi báturinn
verið afhentur kaupanda í hinu um-
samda ástandi, sem kaupandi hafi
rækilega kynnt sér og samþykkt af
öllu leyti. „Umsamið kaupverð bátsins
kr. 1 er að fullu greitt“, segir í afsalinu.
Skuldir fylgdu bátnum
Þá segir í afsali að engar skuldir hvíli
á bátnum og engar lögveðskröfur.
Það stangast á við upplýsingar Víkur-
frétta en Reykjaneshöfn sendi nýjum
eiganda Storms SH þá þegar bréf þar
sem vakin var athygli á því að skulda-
staða fyrrum eiganda var þá um hálf
milljón króna fyrir utan vexti og van-
skilakostnað, að stærstum hluta vegna
lestar- og bryggjugjalda, en einnig
vegna rafmagnsnotkunar. Lestar- og
bryggjugjöld eiga lögveð í viðkom-
andi bátum og því var það rangt í af-
sali bátsins að engar skuldir hvíldu á
bátnum og engar lögveðskröfur.
Reykjaneshöfn hafði þegar samband
við nýjan eiganda bátsins og óskaði
upplýsinga um hvernig umsýslu og
umsjón með bátnum yrði háttað og
hvaða framtíð bátnum væri ætluð.
Upplýsingar Víkurfréttir herma að nýr
eigandi bátsins hafi fengið bréf þar
sem farið var ítarlega yfir málið og
honum bent á hættuna sem stafar af
bátnum þar sem hann var í höfninni. Í
bréfi til eigandans, sem sent var í maí
í fyrra, er vakin athygli á því að ástand
Storms SH sé með þeim hætti að mikil
hætta sé á að báturinn sökkvi. Eig-
anda bátsins er jafnframt fyrirskipað
að fjarlægja bátinn úr hafnarsvæðum
Reykjaneshafnar eða gera aðrar þær
úrbætur á bátnum sem tryggja að
hann valdi ekki höfninni eða öðrum
tjóni.
Sýndi af sér mikið
tómlæti og hirðuleysi
Reykjaneshöfn sagði eiganda bátsins
hafi sýnt af sér mikið tómlæti og
hirðuleysi með því að verða ekki við
ítrekuðum áskorunum hafnarinnar.
Reykjaneshöfn áskildi sér því rétt til að
tilkynna háttsemina, brot gegn hafna-
lögum og almenna vanrækslu til við-
eigandi yfirvalda, þ.m.t. lögreglu.
Ekkert varð úr því að ástand bátsins
yrði bætt. Hann sökk svo fyrir mán-
uðum og var í votri gröf þar til á
dögunum að Reykjaneshöfn, sem var
orðinn nýr eigandi bátsins, lét koma
honum á þurrt og farga í slippnum í
Njarðvík.
hilmar@vf.is
Reykjaneshöfn situr uppi með
milljóna króna kostnað vegna förg-
unar á skipsflaki sem dagaði uppi í
Njarðvíkurhöfn. Norðlenskur hvala-
skoðunarrisi átti bátinn, Storm SH
333, en afsalaði sér honum fyrir eina
krónu til nýs eiganda á Þingeyri.
Hvalaskoðunarrisi
losaði sig við skuldsett
skipsflak á eina krónu
Nú þegar vorið er á næsta leiti munu íbúar Sveitarfélagsins Voga taka
höndum saman um að gera bæinn snyrtilegan fyrir sumarið. Umhverfis-
vikan hefst mánudaginn 22. maí og lýkur 29. maí.
Á heimasíðu sveitarfélagsins eru
ýmsar tillögur lagðar fram um
hvernig bæjarbúar geti lagt sitt af
mörkum. Einnig er áhersla lögð á
mikilvægi þess að flokka allt rusl. Þá
verður íbúum boðið upp á að fjar-
lægja járnarusl, svo sem bílhræ eða
annað sambærilegt og geta þeir skilið
garðúrgang eftir í ruslapokum við
lóðarmörk sem teknir verða fyrir þá.
Vogamenn hreinsa
upp ruslið í bænum
Hafnarsvæðið í Njarðvík. Stormur SH marrandi í kafi innan hafnar lengst til vinstri og rússneskur togari lengst til hægri. Hann fer úr höfninni á næstu dögum.
Stormur SH 333 sokkinn
í höfninni í Njarðvík.
VF-mynd: Hilmar Bragi
Horft yfir byggðina í Vogum. Vogatjörn og Stóru -Vogaskóli fremst á myndinni. Hluti byggðarinnar í baksýn.
Mynd tekin með flygildi í byrjun vikunnar. VF-mynd: Hilmar Bragi Bárðarson