Víkurfréttir - 18.05.2017, Qupperneq 16
16 fimmtudagur 18. maí 2017VÍKURFRÉTTIR
Kornið bakarí leitar eftir starfsfólki í afgreiðslu
í Fitjum Reykjanesbæ. Við leitum að
duglegum og kraftmiklum einstaklingum með
ríka þjónustulund. Vinnutími er eftir
samkomulagi.
Hæfniskröfur:
Reynsla af afgreiðslustörfum er kostur
Umsækjendur þurfa að hafa náð 18 ára aldri
Snyrtimennska og stundvísi
Viðkomandi þarf að geta hafið störf sem fyrst
Umsóknir sendist á umsokn@kornid.is
SKÓGARHLÍÐ 12 105 REYKJAVÍK SÍMI 520 4700
Festa lífeyrissjóður óskar eftir að
ráða í almennt skrifstofustarf
Starfssvið
• Færsla iðgjalda- og fjárhagsbókhalds
• Afstemmingar reikninga
• Almenn afgreiðsla og símsvörun
• Önnur tilfallandi verkefni
Menntunar- og hæfniskröfur
• Menntun sem nýtist í starfi
• Reynsla af bókhaldi skilyrði
• Hæfni í mannlegum samskiptum
• Góð íslensku- og enskukunnátta
Upplýsingar veitir:
Sverrir Briem
sverrir@hagvangur.is
Umsóknir óskast fylltar út
á www.hagvangur.is
Umsóknarfrestur er til og með 25. maí nk.
Festa lífeyrissjóður er tíundi stærsti lífeyrissjóður landsins með tæplega 18.000 greiðandi sjóðfélaga og rúmlega 8.000
lífeyrisþega. Heildareignir sjóðsins nema rúmlega 123 milljörðum króna. Sjóðurinn starfar í tveimur deildum, aldurstengdri
samtryggingardeild og séreignardeild. Hjá sjóðnum starfa 12 starfsmenn. Aðalskrifstofa sjóðsins er í Reykjanesbæ.
Snyrtivöruverslunin Daría
flytur um set á Hafnargötunni
Snyrtivöruverslunin Daría flutti
nýverið um set í Keflavík og hefur
nú opnað á nýjum stað við Hafnar-
götu 29. Daría er eina sérverslunin
með snyrtivörur á Suðurnesjum en
eigandi verslunarinnar er Jóhanna
Ósk Þorsteinsdóttir.
Hún segir að viðskiptavinirnir séu
á öllum aldri en þann 6. maí síðast-
liðinn var opnunarpartý haldið í nýja
húsnæðinu þar sem mörgum „snöpp-
urum“ var boðið. „Partýið gekk mjög
vel. Það komu mjög margir. Við
kynntum nýtt snyrtivörumerki sem
heitir PÜR og er mjög vinsælt á Yo-
utube og meðal Hollywood leikara,“
segir hún, en auk þess selur hún
fjöldan allan af öðrum vörum frá fleiri
snyrtivörumerkjum.
Jóhanna heldur úti Snapchat aðgangi
fyrir verslunina en fyrir áhugasama er
það daria.is.
„Jóhanna Ósk
Þorsteinsdóttir,
eigandi Daríu.“
Ný málningarvöruverslun í Reykjanesbæ
Færa sig nær viðskiptavinunum
Slippfélagið opnaði nýja málningar-
vöruverslun í Reykjanesbæ 21. apríl
síðastliðinn. Verslunin er staðsett
við Hafnargötu 54 í Keflavík. Þetta
er fimmta verslun Slippfélagsins en
tvær verslanir eru í Reykjavík, ein
í Hafnarfirði og önnur á Akureyri.
Ástæða Slippfélagsins fyrir opnun
verslunarinnar í Reykjanesbæ er sú
að auka þjónustuna við viðskipta-
vini á svæðinu.
„Við höfum í gegnum tíðina haft
tryggan hóp viðskiptavina af Suður-
nesjum og erum því að færa þjónust-
una nær þeim. Við höfum líka mikla
trú á svæðinu og þeirri uppbyggingu
sem á sér stað hér,“ segir Þröstur Ing-
varsson, sölustjóri Slippfélagsins.
Verslunin í Reykjanesbæ er með
öllum almennum málningarvörum.
Boðið er upp á hágæða inni- og úti-
málningu, ásamt iðnaðarmálningu.
Reyndir starfsmenn starfa í verslun-
inni í Reykjanesbæ, þeir Eðvald
Heimisson, málari og verslunarstjóri,
og Benjamín Friðriksson. Þeir hafa
báðir áralanga reynslu af málningar-
vinnu og sölustörfum.
Verslunin verður opin á virkum
dögum á milli klukkan 8 og 18 og frá
10 til 14 á laugardögum.
Þröstur og Eðvald að
störfum í versluninni.
Gott úrval af málningarvörum
í versluninni.
Séð inn í verslun Slippfélagsins
að Hafnargötu 54.
Reykjanesbær snýr vörn í sókn varðandi heilsu íbúa
■ Reykjanesbær er í mikilli sókn og var íbúafjölgun hér í fyrra sú mesta á
landinu. Reykjanesbær er meðal annars þekktur fyrir mikil afrek á sviði
íþrótta og menningar en skólar í sveitarfélaginu hafa verið sigursælir í Skóla-
hreysti undanfarin ár og aðstaða til íþróttaiðkunar verið með því besta sem
gerist á landinu. Þó er það svo að heilsufarsleg útkoma íbúa á Suðurnesjum
kom mis vel út úr samanburðartölum lýðheilsuvísa Embættis landlæknis.
Í kjölfarið ákvað Reykjanesbær að gerast aðili að verkefninu Heilsueflandi
Samfélag og efla lýðheilsu bæjarbúa með ýmsum verkefnum og aðgerðum á
næstu árum.
Samanburður á milli lands-
hluta sýnir að virkur ferða-
máti, s.s. að ganga í vinnu eða
skóla, er langt undir lands-
meðaltali á Suðurnesjum. Að
auka hreyfingu er því verk-
efni sem samráðshópur um
heilsueflandi samfélag setti á
oddinn í byrjun árs með þátt-
töku í Lífshlaupi ÍSÍ en þátt-
takan í Reykjaesbæ var framar vonum.
Virk hreyfing er það mikilvægasta sem
fólk getur gert fyrir heilsuna. Hreyfing
þarf ekki að kosta mikið, þarf
ekki að vera flókin eða taka
mjög mikinn tíma til þess að
vera áhrifarík. Því hefur sam-
ráðshópur um heilsueflandi
samfélag ákveðið að taka
þátt í hreyfiviku UMFÍ sem
hefst 29. maí. Hreyfivikunni
verður þjófstartað 24. maí
kl. 17.00 í Skúðgarðinum í
Reykjanesbæ þar sem FFGÍR (regn-
hlífarsamtök foreldrafélaga grunn-
skólanna í Reykjanesbæ) mun bjóða
öllum bæjarbúum, jafnt börnum sem
fullorðnum í jóga. Reykjanesbær mun
einnig taka þátt í sundkeppni á milli
sveitarfélaga þar sem dregið verður
um árskort í sund meðal þeirra sem
skrá sig til leiks. Allir bæjarbúar verða
svo hvattir til þess að fara út að ganga í
Hreyfivikunni og eiga þá möguleika á
að vinna sér inn vegleg hreyfivikuverð-
laun. Ýmsir viðburðir tengjast Hreyfi-
vikunni í Reykjanesbæ og verður hægt
að nálgast upplýsingar um þá á heima-
síðu verkefnisins heilsueflandisam-
felag.is og á hreyfivika.is. Ég skora á
alla bæjarbúa að virkja hreyfiorkuna
og mæta með börnin í jóga í Skrúð-
garðinum kl.17.00 á miðvikudaginn
kemur.
Jóhann Fr. Friðriksson,
verkefnastjóri heilsueflandi samfélags
í Reykjanesbæ