Víkurfréttir - 18.05.2017, Page 18
18 fimmtudagur 18. maí 2017VÍKURFRÉTTIR
Jákvæð sálfræði er vís-
indagrein sem fæst við
rannsóknir á hamingju
og vellíðan. Greinin hefur
verið í þróun sl. tvo ára-
tugi og segja má að um
sé að ræða nýja nálgun,
byggða á gömlum grunni.
Meginhlutverk almennrar
sálfræði hefur, í gegnum
tíðina, verið að skoða sjúk-
dóma og vandamál og hjálpa fólki að
greina þau, ná bata og vera andlega
heilbrigt. Rannsóknir í jákvæðri
sálfræði beinast hins vegar fyrst og
fremst að því, hvað fær einstaklinga
til að blómstra, hvernig þeir geta
nýtt styrkleika sína og byggt frekar
upp það sem gott er.
Í rannsóknum jákvæðu sálfræðinnar
eru gjarnan notaðar aðferðir sem
kallast jákvæð inngrip. Þá eru sett
fyrir verkefni sem þátttakendur inna
af hendi í stuttan tíma og síðan er
kannað hvaða áhrif þau hafa á ham-
ingju og vellíðan. Eitt slíkra inngripa
kallast „Þrír góðir hlutir“ og snýst
um að leiða hugann, á hverjum degi,
að þrem góðum hlutum sem áttu sér
stað yfir daginn og hvaða þátt maður
sjálfur átti í þeim. Þetta er æfing sem
reynst hefur áhrifarík og ég hvet alla
til að prófa. Ég mæli jafnframt með
„appi“ sem heitir „Happapp“, sem
minnir m.a. á að gera slíkar æfingar
og býður upp á möguleika til að skrá
þrjá góða hluti á hverjum degi.
Annað jákvætt inngrip
snýst um að greina og
nýta betur styrkleika sína.
Komið hafa fram mjög já-
kvæð áhrif þessa inngrips
fyrir hamingju og vellíðan.
Í þessu samhengi er gerður
ákveðinn greinarmunur á
styrkleikum og hæfileikum.
Hæfileikar geta verið áskap-
aðir og jafnframt er hægt
að kasta þeim á glæ, séu þeir ekki
ræktaðir. Aftur á móti eru styrkleikar
ákveðin persónuleikaeinkenni sem
eru til staðar hjá einstaklingi í ólíkum
aðstæðum og einkenna hugsanir hans,
tilfinningar og athafnir. Þegar við
erum meðvituð um styrkleika okkar
og notum þá í daglegu lífi, getur það
haft margvísleg jákvæð áhrif á líðan
okkar, m.a. aukna hamingju, minni
streitu, aukna bjartsýni og betri sjálfs-
mynd. Fyrir áhugasama er hægt að
taka vandaða könnun á netinu (vi-
acharacter.org) sem greinir styrkleika
einstaklinga frá 10 ára aldri.
Notkun styrkleika í barnauppeldi
kallast „styrkleikamiðað uppeldi“ eða
„strength based parenting“. Þá horfa
foreldrar eftir jákvæðum gjörðum og
jákvæðum eiginleikum hjá börnunum
og auka þannig vitund þeirra á styrk-
leikum. Þeir hvetja jafnframt börnin
til að nota þá og þróa. Unglingar sem
hafa fengið styrkleikamiðað uppeldi
eru líklegri til að vera meðvitaðir um
styrkleika sína og að nota þá, sem
síðan eykur líkur á hamingju og vel-
líðan. Notkun styrkleika í uppeldinu
hefur einnig jákvæð áhrif á hvernig
börn og unglingar takast á við streitu-
valdandi aðstæður. Hægt er að læra
margt fræðilegt um styrkleika, en þó
að við þekkjum ekki endilega nöfn
þeirra eða skilgreiningar, er mikilvægt
að horfa eftir því jákvæða og hrósa
fyrir það sem vel er gert.
Þegar við hrósum börnum, er mikil-
vægt að tilgreina hvað það er sem vel
er gert og reyna að draga athygli að
þeim styrkleikum sem notaðir eru
við verkefnin. Ef við hrósum börnum
fyrir að vera gáfuð, snillingar, klár
o.s.frv. getum við aukið líkurnar á að
þau hræðist það að standa ekki undir
væntingum (festuhugarfar). Það getur
verið erfitt að standa undir því að vera
snillingur eða vera klár. Hins vegar sé
barni hrósað fyrir að leggja sig fram,
sýna þrautseigju og nota styrkleika
eins og hugrekki, vinsemd, heiðar-
leika eða sanngirni þá ýtum við undir
aukna nýtingu á styrkleikunum og
jafnframt þá hugsun að hægt sé að
bæta sig með því að leggja sig fram
(gróskuhugarfar).
Þekking á okkar eigin styrkleikum og
annarra og aukin notkun þeirra er það
minnsta sem við getum gert til að hafa
sem mest áhrif á hamingju og vellíðan.
Laufey Erlendsdóttir,
markþjálfi og kennari
Listahátíð barna sem haldin er hátíðleg í 12.
sinn í Reykjanesbæ er hin glæsilegasta að vanda.
Í öll þessi ár hefur Listasafn Reykjanesbæjar,
undir stjórn þeirra Guðlaugar Maríu Lewis,
fræðslufulltrúa menningarmála, og Valgerðar
Guðmundsdóttur, menningarfulltrúa, haldið
utan um sýninguna og eiga þær heiður skilið
fyrir góða og gefandi samvinnu.
Þemað að þessu sinni er „Dýrin mín stór og smá“.
Nemendur og kennarar í leikskólum Reykjanes-
bæjar hafa unnið ötullega að sýningunni allt skólaárið og
er undirriðuð snortin af sköpunarkrafti, ánægju og ástríðu
nemenda og kennara.
Svo miklu meira en að búa til listaverk
Á sýningunni má greinilega sjá tengingu við þá sex grunn-
þættti menntunar sem hafðir eru að leiðarljósi í aðalnám-
skrá leikskóla, enda er verkefni sem þetta einstakt tækifæri
til þess að vinna með sköpun, sjálfbærni, læsi, lýðræði og
umhverfismennt svo eittthvað sé nefnt.
Til að gefa innsýn í þá vinnu sem liggur að baki sýningu
sem þessari, þá hófst undirbúningur t.a.m. í leikskólanum
Gimli á haustönn 2016. Markvisst var unnið að þemanu
sem byrjaði með umræðum um dýrin og kosningu nem-
enda um hvaða dýr ætti að búa til. Krókódíll og úlfur báru
sigur úr býtum í þeirri kosningu.
Vísindaleg nálgun
Í framhaldi kynntu nemendur sér dýrin nánar með því að
skoða myndir og myndbönd. Einnig mældu þau raunveru-
lega stærð á dýrunum, til þess að hægt væri að skapa þau í
raunstærð. Nemendur unnu dýrin úr dagblöðum, bjuggu
til fjöldan allan af kúlum, röðuðu og límdu þær
saman til að mynda búkinn á dýrunum. Einnig
voru dagblöð og veggfóðurslím notuð til að móta
búkinn og að lokum var gifs borið á. Krókódíllinn
fékk eggjabakka á bakið til að kalla fram hrjúfu
áferðina á baki krókódílsins, síðan voru dýrin
máluð. Búnar voru til mýs úr pappír og þeim
sleppt lausum í listasalnum.
Það var gefandi að sjá hvernig börnin blómstruðu
í því skapandi starfi sem fylgdi undirbúningnum
fyrir hátíðina og lærdómsríkt að fylgjast með því hvernig
styrkleikar ólíkra einstaklinga fengu notið sín í verkefninu.
Elsti árgangur leikskólans bar hitann og þungann af
vinnunni, en að sjálfsögðu lögðu allir nemendur leik-
skólans hönd á plóg við sköpun listaverkanna. Allt sköp-
unarferlið var ævintýri líkast og unun að fylgjast með
þegar dýrin tóku smátt og smátt á sig nýja og breytta mynd.
Verkferlið einkenndist af gleði og ákafa þar sem fróðleikur
og ný þekking bættist við allan veturinn. Þegar hátíðin var
sett þann 4.maí mátti sjá ánægð og stolt börn ganga um
sýningarsalinn í Duus Safnahúsum.
Með því besta sem boðið er upp á
Utanaðkomandi aðilum ber saman um að Listahátíð barna
í Reykjanesbæ beri af öðrum hátíðum og sé á meðal þess
besta sem boðið er upp á í hátíðahaldi á landsvísu. Sýningin
stendur til 21. maí og hvet ég alla sem tök hafa á að bera
hana augum, því sjón er sögu ríkari.
Karen Valdimarsdóttir
Leikskólastýra í leikskólanum Gimli
Sveitarfélögin á Suðurnesjum tóku höndum saman um stofnun Fjölbrauta-
skóla Suðurnesja (FS) árið 1976. Með tilkomu skólans var brotið blað í sögu
menntamála hér á svæðinu sem hafði það í för með sér að mun fleiri fóru í
framhaldsnám. Á síðasta ári fagnaði skólinn 40 ára afmæli sínu og við þau
tímamót var Hollvinafélag Fjölbrautaskóla Suðurnesja stofnað til að styðja
og styrkja starfsemi skólans. HFS var stofnað þann 24. september 2016 og
hélt sinn fyrsta aðalfund í nóvember sama ár. Nú er næsta verkefni að allir
velunnarar skólans skrái sig í félagið á heimsíðu Fjölbrautaskóla Suðurnesja
svo að það geti náð markmiðum sínum og tilgangi.
Tilgangur félagsins er:
l Að styðja við uppbyggingu skólans og efla hag hans.
l Að efla og viðhalda tengslum félaga í HFS við skólann.
l Að efla tengsl skólans við atvinnulíf og samfélag og að efla samfélagslega
ábyrgð.
l Að efla tengsl milli nemenda, fyrrverandi nemenda og annarra sem bera
hag skólans fyrir brjósti.
l Að miðla upplýsingum um starfsemi skólans og félagsins til félagsmanna.
Félagið hyggst ná tilgangi sínum á eftirfarandi hátt:
l Með því að efla og viðhalda tengslum fyrri nemenda FS og félagsmanna
HFS við skólann.
l Með því að fjalla á jákvæðan og uppbyggilegan hátt um starfsemi FS.
l Með því að afla fjár til stuðnings skólastarfi FS.
l Með því að hafa frumkvæði og taka þátt í einstökum verkefnum sem til
heilla horfa fyrir skólastarfið.
l Með því að sinna öðrum málefnum og starfsemi skólans, í samráði við
stjórnendur skólans, eftir því sem stjórn HFS og aðalfundur ákveða.
l Með því að halda uppi annarri starfsemi er stjórn félagsins og aðalfundur
ákveða.
Við viljum hvetja ykkur fyrrverandi nemendur, velunnara skólans og áhuga-
fólk um skólamál að gerast félagar í Hollvinafélagi Fjölbrautaskóla Suður-
nesja og styðja við skólann okkar.
Skráning í félagið fer fram á heimasíðu Fjölbrautaskóla Suðurnesja www.
fss.is
Árgjald í félaginu er 2.000.- krónur.
HFS er á fésbókinni undir nafninu Hollvinir Fjölbrautaskóla Suðurnesja.
Netfang HFS er hollvinir@fss.is
Með bestu kveðju,
Stjórn Hollvinafélags
Fjölbrautaskóla Suðurnesja
Sveindís Valdimarsdóttir
Jóhann Friðrik Friðriksson
Þráinn Guðbjörnsson
Jóhanna Helgadóttir
Bergný Jóna Sævarsdóttir
Guðrún Hákonardóttir
Svava Pétursdóttir
Ertu hollvinur?
●l Skráðu●þig●í●Hollvinafélag●Fjölbrautaskóla●Suðurnesja●(HFS)
Þekking á okkar eigin styrkleikum mikilvæg
●l Listahátíð●barna●í●Reykjanesbæ●●4.●-●21.●maí●í●Duus●Safnahúsum.
Sköpunarkraftur, ánægja og ástríða nemenda og kennara