Víkurfréttir - 18.05.2017, Qupperneq 22
22 fimmtudagur 18. maí 2017VÍKURFRÉTTIR
Vildi gefa strákunum sínum innsýn í
●● Sundkonan●og●læknirinn●Eydís●Konráðsdóttir●býr●í●Ástralíu
Eydís Konráðsdóttir var afreks-
íþróttakona í Keflavík og náði mjög
góðum árangri í sundi. Hún keppti
fyrir hönd Íslands á tvennum Ól-
ympíuleikum, 1996 og árið 2000
og átti lengi Íslandsmet í 100 metra
flugsundi. Þá var hún valin Íþrótta-
maður Keflavíkur árin 1995 og 1996.
Eydís starfar nú sem heimilislæknir
í Ástralíu þar sem hún býr með
manni og þremur sonum en það
vakti athygli margra í gamla bænum
hennar, Reykjanesbæ, þegar hún
mætti með þrjá syni sína til náms í
Heiðarskóla síðastliðið haust.
Hvar hefur Eydís Konráðsdóttir alið
manninn undanfarin ár?
Síðastliðin ár hef ég búið í Sydney í
Ástralíu ásamt manninum mínum,
Matt, og strákunum okkar þremur, Al-
exander 10 ára, Lúkasi 7 ára og Adam
5 ára.
Ég flutti hingað út fljótlega eftir að við
giftum okkur. Þá var ég langt komin
með læknisfræðina við Háskóla Ís-
lands en gat flutt mig yfir í háskóla
hérna úti og klárað hana hér. Ég sér-
menntaði mig í heimilislækningum
og vinn nú á einkarekinni heilsu-
gæslustöð í nágrenninu okkar milli
þess sem ég sinni fjölskyldunni.
Hvernig er lífið þarna úti, það hlýtur
að vera frábrugðið að einhverju leyti
Íslandi?
Já, það er svo sannarlega frábrugðið
lífinu heima en á sama tíma er svo
margt eins. Nú er haust hérna úti,
dagarnir farnir að styttast og byrjað að
kólna í veðri. Litadýrðin á trjánum er
alveg ótrúleg og mörg þeirra blómstra
á haustin. Vetraríþróttirnar eru
komnar á fullt en það eru íþróttir eins
og fótbolti og rugby. Skíðaíþróttir eru
líka vinsælar en skiljanlega erfiðara að
komast í snjó hér en heima!
Fjölskyldulífið hér er svipað og heima.
Þó er mun algengara að annað for-
eldrið sé í hlutastarfi eða heimavinn-
andi. Leikskólar og barnagæsla eru
mun dýrari en heima og það getur því
verið mikið púsluspil að láta hlutina
ganga upp.
Við fréttum af þér með drengina þína
þrjá í skólum í Reykjanesbæ síðast-
liðið haust, segðu okkur frá því.
Mig hefur lengi dreymt um að geta
leyft strákunum okkar að fara í skóla
á Íslandi og kynnast fleiri íslenskum
krökkum, styrkja tungumálið þeirra
og lestur og gefa þeim betri innsýn
í daglegt líf. Ég hafði samband við
Harald Einarsson, skólastjóra Heiðar-
skóla sem tók okkur svo vel og bauð
strákana hjartanlega velkomna. Við
komum ekki til Íslands fyrr en 3 vikur
voru liðnar af skólaárinu en Alexander
og Lúkasi var tekið svo vel frá fyrsta
degi, bæði af kennurunum sínum,
Maríu Óladóttur og Kristínu Jóns-
dóttur, og bekkjarfélögum, að þeim
fannst þeir alltaf hafa verið hluti af
hópnum. Sem dæmi um það hversu vel
þeim var tekið, var Alexander boðið
í þrjú bekkjarafmæli fyrstu vikuna
sem hann var í skólanum. Strákarnir
voru mjög hrifnir af Heiðarskóla og
fannst allt skemmtilegt og voru alltaf
glaðir þegar þeir komu heim. Eins og
mörgum öðrum börnum fannst þeim
sérstaklega gaman í smíði, heimilis-
fræði, íþróttum og sundi en þetta er
allt greinar sem eru ekki kenndar í
skólanum sem þeir voru í áður. Þeir
eignuðust marga góða vini og það
voru svo sannarlega blendnar tilfinn-
ingar þegar það var kominn tími til að
fara aftur til Ástralíu. Mig langar sér-
staklega að þakka kennurum og öllu
starfsfólki Heiðarskóla fyrir að gera
þetta að svona eftirminnilegum tíma
hjá strákunum og eins bekkjarfélög-
unum sem hleyptu þeim strax inn í
hópinn og buðu þá velkomna.
Er það rétt að þú hafir fengið inni í
tónlistarskólanum líka?
Já. Bæði Alexander og Lúkas eru
búnir að vera að læra á píanó hérna
í Ástralíu og voru svo heppnir að
fá inni í tónlistarskólanum hjá Sig-
rúnu Gróu Magnúsdóttur. Hún er
yndislegur kennari og þeir hlökk-
uðu alltaf til að fara í spilatíma.
Þeir fengu að spila á tvennum tón-
leikum, læra íslensk lög og auðvitað
nokkur jólalög, sagði Eydís að lokum.
pket@vf.is
daglegt líf á Íslandi
Sundlaugar í Ástralíu eru jafn
algengar og heitir pottar á Íslandi.
Hér eru strákarnir þrír í lauginni.
Adam á fyrsta skóladeginum í Sidney.
Strákarnir með félögum sínum í Heiðarskóla.
Eydís og
Matt eigin-
maður
hennar.Lúkas, Adam og Alexander saman í garðinum.
Úrklippa
úr VF 1996
eftir Oly-
píuleikana.
Alexander og Lúkas í skólabúningunum.