Víkurfréttir - 18.05.2017, Side 23
23fimmtudagur 18. maí 2017 VÍKURFRÉTTIR
Njarðvík og Sindri skildu jöfn 2:2 á Njarðtaksvellinum í Njarðvík í dag. Leikurinn var annar leikur Njarðvíkur í 2. deild
karla í knattspyrnu í sumar. Njarðvíkingar skoðuðu fyrsta markið og var það Ingibergur Kort Sigurðsson sem skoraði á
5. mínútu. Sindri náði að jafna á 24. mínútu úr vítaspyrnu. Sindri komst yfir á 72. mínútu úr marki úr hornspyrnu. Allt
stefndi í sigur Sindra en í uppbótartíma náði Ingibergur að skora aftur fyrir Njarðvík. Maður leiksins var markaskorarinn
Ingibergur Kort Sigurðsson. Njarðvíkingar eru með 2 stig eftir jafntefli í tveim fyrstu leikjunum.
Keflavík sigraði Sindra frá Höfn í
Hornafirði 1:0 í 1. deild kvenna í
knattspyrnu á Nettóvellinum í Kefla-
vík sl. sunnudag. Aníta Lind Daníels-
dóttir skoraði mark Keflavíkur á 11.
mínútu. Þetta var fyrsti leikur Kefla-
víkur í sumar og er liðið því komið
með fyrstu þrjú stigin í hús.
Grindvíkingar töpuðu stórt á heimavelli fyrir ÍBV í Pepsi-deild kvenna á Ís-
landsmótinu í knattspyrnu. Eyjakonur skoruðu 4 mörk geng engu heimakvenna.
Heimakonur í Grindavík vilja örugglega gleyma þessum leik sem fyrst. Þær
eru um miðja deild, hafa unnið tvo leiki og tapað tveimur. Næsti leikur er gegn
Stjörnunni í Garðabæ á laugardaginn.
Grindvíkingar steinlágu á heimavelli gegn Víkingum Ólafsvík í 3. umferð Pepsi-
deildar karla í knattspyrnu. Gestirnir fóru með þau þrjú stig sem voru í boði
eftir 3:1 sigur. Það voru Guðmund ur Steinn Haf steins son, Ken an Turudija og
Þor steinn Már Ragn ars son sem skoruðu mörk Vík ings í leikn um. Juan Manu el
Ort iz skoraði fyr ir Grinda vík.
Það var markalaust í hálfleik en gestirnir komust yfir snemma í síðari hálfleik
með því að skota tvö mörk, bæði úr hornspyrnum.
Þegar rétt um tíu mínútur lifðu af leiknum bættu gestirnir við þriðja markinu.
Heimamenn klóruðu svo í bakkann í uppbótartíma en 3:1 tap varð raunin.
Grindvíkingar eru með fjögur stig eftir fyrstu þrjár umferðirnar og eru í 6. sæti
Pepsi-deildar karla. Þeir mæta næst Skagamönnum á Akranesi þann 22. maí nk.
Keflvíkingar unnu öruggan 3:0 sigur
á Leikni F. á Nettóvellinum í Keflavík
sl. laugardag. Leikurinn var 2. leikur
sumarsins hjá Keflavík í Inkasso-
deildinni, 1. deild Íslandsmótsins í
knattspyrnu karla. Jeppe Hansen
skoraði tvö fyrir Keflavík og Jóhann
Birnir Guðmundsson eitt.
Það var ekki fyrr en undir lok fyrri
hálfleiks sem fyrsta markið kom þegar
Jeppe Hansen skoraði með skalla.
Hann var aftur á ferðinni eftir miðjan
síðari hálfleik með fallegt mark. Jó-
hann Birnir Guðmundsson inn-
siglaði svo sigurinn rétt fyrir leikslok
með þriðja marki Keflavíkur. Með
sigrinum í dag er Keflavík í 2. sæti
deildarinnar með 4 stig en Keflvík-
ingar gerðu jafntefli við Leikni R. í 1.
umferð Íslandsmótsins í 1. deildinni.
Grindvíkingar
steinlágu heima
SPORT
■
Tvö lið af Suðurnesjum leika í þriðju
deild Íslandsmóts karla í sumar. Þau
léku bæði sína fyrstu leiki um helgina.
Þróttarar unnu sinn leik með tveim
mörkum gegn engu en Reynir mátti
þola stórtap. Leikur Þróttar og Ber-
sekkja fór fram á Víkingsvelli í Foss-
voginum. Leiknum lauk með 2:0 sigri
Þróttar og voru bæði mörkin skoruð í
seinni hálfleik. Mörkin skoruðu þeir
Elvar Freyr Arnþórsson og Tómas Ingi
Urbancic á 55 og 60 mínútu. Reynir
mátti aftur á móti þola stórtap á móti
Einherja á heimavelli. Leiknum lauk
með 4:0 sigri Einherja. Öll mörkin
litu dagsins ljós í fyrri hálfleik.
Njarðvík jafnaði í uppbótartíma
Töpuðu heima fyrir Eyjakonum
KEFLAVÍKURSTELPUR
UNNU SINDRA
Búið er að velja þá 12 leikmenn sem
munu skipa landslið Íslands, hjá
konum og körlum, á Smáþjóðaleik-
unum í körfubolta, sem fara fram
í San Marínó dagana 30. maí til 3.
júní. Í landsliði kvenna er helm-
ingur liðsins frá Suðurnesjunum og
í landsliði karla eru þeir fimm af tólf
leikmönnum liðsins.
Landslið kvenna er skipað öllum
þeim bestu leikmönnum sem leik-
færir eru, segir í tilkynningu frá
KKÍ. Þar eru þær Birna Valgerður
Benónýsdóttir, sem er nýliði, Emelía
Ósk Gunnarsdóttir og Thelma Dís
Ágústsdóttir, en þær spila allar
með liði Keflavíkur, Ingunn Embla
Kristínardóttir úr liði Grinda-
víkur, Sandra Lind Þrastardóttir,
sem leikur með Horsholms í Dan-
mörku, og Sara Rún Hinriksdóttir
sem spilar með Canisius í Banda-
ríkjunum.
Í landsliði karla verða þeir Gunnar
Ólafsson sem spilar með St. Francis
í Bandaríkjunum, Grindvíkingur-
inn Jón Axel Guðmundsson sem
spilar með Davidson í Bandaríkj-
unum, Maciek Baginski úr liði Þórs
Þorlákshafnar, Grindvíkingurinn
Ólafur Ólafsson og Kristinn Pálsson
sem spilar með Marist í Bandaríkj-
unum.
Í báðum landsliðunum í þessu
verkefni fá leikmenn sem leika í há-
skólum í Bandaríkjunum tækifæri
til að taka þátt, en margir efnilegir
leikmenn, sem hafa verið í yngri
landsliðum og A-liðum undanfarin
ár, iðka þar nám og leika körfuknatt-
leik um þessar mundir.
Helmingur frá Suðurnesjum
í körfubolta landsliðunum
Þróttarar sigruðu
en Reynismenn
töpuðu stórt
Björn Lúkas vann fyrsta MMA
bardagann með rothöggi
■ Björn Lúkas Haraldsson mætti Zabi Saeed í veltivigt í Færeyjum um
síðustu helgi í sínum fyrsta MMA bardaga. Þrír andstæðingar drógu sig úr
bardaganum en Saeed, sem berst vanalega í léttvigt, var tilbúinn að berjast
í veltivigt gegn óreyndari andstæðingi. Björn byrjaði mjög vel og var ekki
lengi að þessu, en dómarinn stöðvaði bardagann í 1. lotu og sigraði Björn
bardagann með tæknilegu rothöggi.
Í samtali við MMA fréttir segist Björn hafa stefnt að þessu frá 13 ára aldri og að
sigurtilfinningin hafi verið ein sú besta sem hann hafi upplifað. „Það augnablik
þar sem ég stend upp er líklega besta tilfinning sem ég hef upplifað,“ segir hann.
„Þetta verður dúndur slagur gegn Fylkismönnum. Þeim er spáð efsta
sætinu og okkur í annað sætið. Þannig að það skiptir miklu máli að ná
allavega stigi út úr leiknum, best væri að ná öllum þremur. Það væri gott
fyrir sjálfstraustið að vinna þennan leik,“ segir Hólmar Örn Rúnarsson,
einn reynslumesti leikmaður Inkasso-deildarliðs Keflvíkinga í knatt-
spyrnu.
Hólmar Örn er næst elsti leikmaður liðsins, aðeins Jóhann Birnir Guð-
mundsson er eldri en þeir félagar hífa upp meðalaldurinn í liðinu og reynsl-
una. Hólmar Örn lék nánast ekkert í fyrra vegna meiðsla. „Ég sleit liðbönd
í fyrra og spilaði ekkert það árið. Kom inn á í 20 mínútur í síðasta leik og er
bara bjartsýnn á framhaldið. Sumarið leggst vel í mig. Við erum með ungt
lið þar sem margir eru að stíga sín fyrstu skref í meistaraflokki. Við sem eru
eldri þurfum að vera duglegir að styðja þá.“
Öruggur sigur og
Keflavík í 2. sæti Verður dúndur-
slagur gegn Fylki
●● segir●Hólmar●Örn●Rúnarsson,●Keflvíkingur
Hólmar Örn fylgist
með Jóhanni Birni í
leiknum gegn Leikni
sl. laugardag. Þeir
eru reynsluboltarnir
í Keflavíkurliðinu.
VF-myndir: hilmarbragi.
Óskar Þorsteinsson í
skallabolta í leiknum
gegn Víkingum.
lub
Barist um boltann
í leik Grinda-
víkur og ÍBV.
Sveindís Jane
með boltann
gegn Sindra.
VF-mynd/
Óskar.