Víkurfréttir - 18.05.2017, Page 24
Krossmóa 4a, 4. hæð, 260 Reykjanesbær
Sími: 421 0000 Póstur: vf@vf.is
Afgreiðslan er opin virka daga kl. 09:00 - 17:00
Auglýsingasími: 421 0001
Mundi
S T Æ R S T A F R É T T A - O G A U G L Ý S I N G A B L A Ð I Ð Á S U Ð U R N E S J U M
facebook.com/vikurfrettirehf twitter.com/vikurfrettir instagram.com/vikurfrettir
Hélt Varnarliðið að
þetta væri grafið
og gleymt?
86.761
Fyrir rétt um ári síðan biðlaði Kári
Stefánsson, forstjóri Íslenskrar
erfðagreiningar, til allra Íslendinga
um að skora á ríkisstjórnina með
undirskrift sinni að endurreisa heil-
brigðiskerfið á Íslandi með því að
veita 11% af vergri landsframleiðslu
til heilbrigðiskerfisins. Fjölmargir
málsmetandi Íslendingar lögðu mál-
efninu lið og 86.761 Íslendingur
skrifuðu undir þessa áskorun á
ríkisstjórnina. Hlutfall vergrar
landsframleiðslu sem rennur til
heilbrigðismála á Íslandi er um
8,7% sem er langt undir meðaltali
á Norðurlöndum. Kári vildi meina
að með því að hækka þetta hlutfall
í 11% væri hægt að reisa heilbrigðis-
kerfið á Íslandi við, reisa það við úr
rjúkandi rústum, rústum sem ekki
sér fyrir endann á.
Undirskriftum var skilað til ráða-
manna 30. apríl 2016. Hvað hefur
gerst síðan þá? Við fengum nýja ríkis-
stjórn síðastliðið haust eftir fall fyrri
ríkisstjórnar og nýjan heilbrigðisráð-
herra. Þjónusta við landsbyggðina í
heilbrigðismálum hefur verið skert
til muna undanfarin ár, þrátt fyrir að
Landsspítalinn sé hvergi í stakk búinn
til þess að taka við öllum þeim verk-
efnum sem þar voru unnin. Við fáum
fréttir af því daglega að sjúklingar fái
ekki þá þjónustu sem þeir þurfa, liggi
fárveikir á göngum spítalans, að hús-
næði Landsspítala sé að hruni komið,
að tækjaskortur sé gríðarlegur og við-
eigandi lyf við þeim sjúkdómum sem
heilbrigðisstarfsfólk berst við alla daga
séu ekki í boði hér á landi.
Ég gæti skrifað langan pistil um heil-
brigðiskerfið okkar en flest vitum við
hvernig málum er háttað þar. Það sem
ég hins vegar átta mig ekki á, er hvað
þurfi til til þess að á okkur sé hlustað,
að við sem hluthafar Landsspítala og
hagsmunaaðilar heilbrigðiskerfisins
fáum í hendur skýra aðgerðaráætlun
út kjörtímabilið. Hvert er hlutverk
heilbrigðisráðherra sem stjórnanda?
Eru ráðherraembættin orðin að silki-
húfustörfum? Það fer of mikill tími í
mál sem skipta ekki höfuðmáli, klippa
á borða, halda ræður (sem einhver
annar semur) og svo mætti lengi telja.
Ég vil sjá skýra stefnu og markvissar
aðgerðir, í stað óljósra afleiðinga fjár-
lega.
Ísland er fyrirtæki með sínar tekjur og
gjöld. Vel rekin fyrirtæki þurfa góða
stjórnendur, skýra stefnu og skilvirka
framkvæmd svo starfsmenn viti hver
markmiðin séu og hafi þau tól og tæki
til að sinna sínu starfi sem best. Við
réðum stjórnendur þjóðarbúsins til
vinnu í síðustu kosningum. Það er
skortur á skýrri stefnu frá þessum
stjórnendum hvert þjóðarbúið er að
stefna í þessum stóru og mikilvægu
málum. Það bíður 86.761 Íslendingur
eftir skýrri stefnu í heilbrigðismálum.
Enn fleiri bíða eftir stefnu varðandi
okkar staðnaða menntakerfi sem
þarfnast endurlífgunar og innviði
ferðaþjónustunnar sem ráða engan
veginn við álagið.
TJARNARGÖTU 2 • 230 REYKJANESBÆ • S: 421-3377 • WWW.BUSTOD.IS • BÚSTOÐ EHF
RÝMUM FYRIR NÝJUM VÖRUMERKJUM
Í GJAFAVÖRUDEILD
TUNGU- OG
U SÓFAR Á
TILBOÐI TIL
1.JÚNÍ
50%
AFSLÁTTUR
ALLT AÐ
AF VÖLDUM VÖRUM
LOKAORÐ
Ingu Birnu Ragnarsdóttur
■ Keflavíkurkirkja var fyllt í tvígang á Queen-
messu sem haldin var í kirkjunni um síðustu helgi.
Þar fékk kór Keflavíkurkirkju Jón Jósep Snæ-
björnsson til liðs við sig. Flutt voru Queen-lög
við íslenska texta og við undirleik hljómsveitar.
Fjallræðan er umfjöllunarefni messunnar en
sóknarpresturinn, séra Erla Guðmundsdóttir,
flutti erindi á milli laga þar sem hún lagði út
frá stefnum fjallræðunnar.
Queen-messan verður endurflutt um helgina í Sel-
fosskirkju á laugardag kl. 13:30 og í Lauganeskirkju
sama dag kl. 17:30. Það er því kjörið fyrir Suður-
nesjafólk sem missti af þessum tónleikum að skella
sér í þessar kirkjur til að upplifa stemmninguna
en kórinn, hljómsveitin og Jónsi leysa verkefnið
mjög vel.Myndirnar voru teknar í Keflavíkurkirkju
sl. sunnudag.
Troðfylltu kirkjuna í tvígang á Queen-messu