Fréttablaðið - 06.02.2018, Qupperneq 8
Frá degi til dags
Útgáfufélag: 365 miðlar ehf. Stjórnarformaður: Einar Þór Sverrisson forStjóri: Ingibjörg Stefanía Pálmadóttir Útgefandi og aðalritStjóri: Kristín Þorsteinsdóttir kristin@frettabladid.is
aðStoðarritStjórar: Kjartan Hreinn Njálssson kjartanh@frettabladid.is, Ólöf Skaftadóttir olof@frettabladid.is, Sunna Karen Sigurþórsdóttir sunnak@frettabladid.is.
Fréttablaðið kemur út í 85.000 eintökum og er dreift ókeypis á heimili á höfuðborgarsvæðinu og Akureyri. Einnig er hægt að fá blaðið í völdum verslun um á landsbyggðinni. Fréttablaðið áskilur sér rétt til að birta allt efni blaðsins í stafrænu formi og í gagnabönkum
án endurgjalds. ISSN 1670-3871 fréttaBlaðið Skaftahlíð 24, 105 reykjavík Sími: 512 5000, ritstjorn@frettabladid.is helgarBlað: Kristjana Björg Guðbrandsdóttir kristjanabjorg@frettabladid.is markaðurinn: Hörður Ægisson hordur@frettabladid.is
menning: Magnús Guðmundsson magnus@frettabladid.is lífið: Guðný Hrönn Antonsdóttir gudnyhronn@frettabladid.is ljóSmyndir: Vilhelm Gunnarsson villi@frettabladid.is framleiðSluStjóri: Sæmundur Freyr Árnason sfa@frettabladid.is
Halldór
Kristín
Þorsteinsdóttir
kristin@frettabladid.is
Það eru magnaðir tímar í borginni. Menn segja að nú standi yfir mesta uppbyggingarskeið í sögu hennar. Þar sem áður voru malarlóðir, bílaplön, úr
sér gengin athafnasvæði, veghelgunarsvæði og afgangs-
lóðir er nú að rísa fjöldi íbúðarhúsa. Framkvæmdir eru
hafnar á reitum þar sem 3.600 íbúðir rísa. Deiliskipulag
hefur verið samþykkt fyrir tæplega 4.000 íbúðir í viðbót.
Nánast allar þessar íbúðir eru innan núverandi
byggðarmarka. Borgin byggist nú inn á við eftir að hafa
byggst út á við áratugum saman. Það styttir vegalengdir,
eflir þjónustu og minnkar mengun.
Rauður og grænn þráður í skipulaginu er áherslan á
mannvænt skipulag, vistvænar og skilvirkar samgöngur
og jöfnuð. Það sýna fyrirhuguð Borgarlína og samningar
borgarinnar við húsnæðisfélög almannasamtaka, náms-
manna og aldraðra um íbúðarbyggingar á hagstæðum
kjörum næstu árin.
Það er mikilvægt að allir geti búið í húsnæði við hæfi,
hvort sem er í eigu, leigu eða með búsetufyrirkomu-
lagi. Það er mikilvægt að allir komist leiðar sinnar fljótt
og vel, og geti notið ferðarinnar í borginni sem gestir
okkar dásama fyrir nálægð við náttúruna umhverfis.
Við verðum að leysa umferðarhnútana á stofnbrautum
milli hverfa – með bættum umferðarmannvirkjum sem
gagn er að en ekki síður margvíslegum valkostum við að
komast til vinnu eða skóla og heim aftur.
Ég er jafnaðarmaður og lít svo á að ein mikilvægasta
lífskjarabarátta okkar tíma snúist um borgarumhverfið;
að það sé hagkvæmt fyrir alla, heilsusamlegt, öruggt,
aðlaðandi og fjölbreytt. Jöfnuður er hugsjón – en oftast
er það líka þannig að jöfnuður borgar sig. Í húsnæðis-
málum, samgöngum, skólum og heilbrigðisþjónustu.
Verkefnin fram undan eru stór og spennandi. Við
þurfum að taka við fólki og efla valkosti á húsnæðis-
markaði og í samgöngum. Ekkert gerist af sjálfu sér. Við
þurfum að berjast fyrir því að borgarlínan verði til, fái
pláss og fjármagn. Hún tengir saman hverfin og léttir á
umferðinni – öllum til hagsbóta. Við þurfum að fá nýjan
borgarflugvöll til að geta haft íbúðir og útivistarsvæði í
Vatnsmýrinni.
Um þetta verður kosið í vor.
Magnaðir tímar í borginni
Hjálmar
Sveinsson
borgarfulltrúi
Rauður og
grænn þráður
í skipulaginu
er áherslan
á mannvænt
skipulag,
vistvænar
og skilvirkar
samgöngur
og jöfnuð.
Sögulegt blót
Miðflokkurinn hélt sitt fyrsta
þorrablót á Fjörukránni um helg-
ina. Margt var um manninn og
veislustjórinn Vigdís Hauksdóttir
stjórnaði gleðinni af myndarbrag.
Sigmundur Davíð Gunnlaugsson,
formaður flokksins, var gerður að
Heiðursvíkingi ásamt Önnu Kol-
brúnu Árnadóttur, þingmanni og
vopnasystur í Norðausturkjör-
dæmi. Þótti fara vel á þessu þar
sem flokkurinn varð til í því goð-
orði Sigmundar. Meðal glaðlegra
gesta voru Sigurður Þ. Ragnars-
son, Siggi stormur, Jón Hjaltalín
Magnússon, verkfræðingur og
handboltakempa, að ógleymdum
stórkanónum Útvarps Sögu þeim
Arnþrúði Karlsdóttur og Pétri
Gunnlaugssyni.
Fingrasett meiðyrði
Rithöfundurinn Auður Jónsdóttir
fagnaði nýlega sýknu í meiðyrða-
máli sem Þórarinn Jónsson, Póri
á Laxnes hestaleigu, höfðaði
gegn henni. Málinu er þó ekki
lokið þar sem hestabóndinn í
Mosfellsdal hefur látið þau boð
út ganga að hann muni áfrýja.
Auður bregst við á Facebook
með þessum orðum: „Ég er svo
... þreytt. En, já, ok. Vertu gestur
minn, Póri! Þú kenndir mér nú
einu sinni vélritun í gaggó.“ Póri
nagar sig sjálfsagt í handarbökin
núna, meðvitaður um að hann
ber sína ábyrgð á því að Auður
hamraði meiðyrðin niður með
fullkominni fingrasetningu.
thorarinn@frettabladid.is
Enn virðast tímamót í Brexitferlinu. Breska ríkisstjórnin mun hittast í vikunni til að móta afstöðu í nokkrum lykilmálum. Veigamest er ákvörðun um hvort Bretland verði áfram í Evrópska tollabandalaginu, eða hvort skorið verði á þann streng.
Meginávinningurinn af því að ganga úr tollabanda-
laginu væri að Bretar gætu gert fríverslunarsamninga
við ríki utan Evrópusambandsins. Því fylgir sá galli að
tollmúrar gætu risið að nýju milli Bretlands og Evrópu-
landanna.
Sem fyrr takast á tvær fylkingar innan ríkisstjórnar
Theresu May. Aðra mætti kalla harðlínumennina undir
forystu Boris Johnson og Michaels Gove, en þeir telja að
breska þjóðin hafi sagt sitt í þjóðaratkvæðagreiðslunni á
sínum tíma. Brexit þýði Brexit, óháð því hvort það kunni
að hafa efnahagslegar afleiðingar til skamms tíma.
Í hinni fylkingunni eru til að mynda Phillip Hammond
fjármálaráðherra og Amber Rudd innanríkisráðherra.
Bæði vilja reyna eins og framast er kostur að takmarka
hið efnahagslega tjón sem hlýst af Brexit. Með nokkurri
einföldun má segja að það þýði að Bretland gangi úr
Evrópusambandinu að nafninu til, en að sambandið við
ESB verði sem líkast því sem verið hefur. Brexit, en samt
ekki Brexit.
Veik staða Theresu May forsætisráðherra flækir málið.
The Economist hæðist að henni og kallar hana Theresu
Maybe vegna þess hversu erfitt hún virðist eiga með að
taka af skarið. Lýðræðislegt umboð May og fylgismanna
er ekki til að styrkja stöðu þeirra.
Breska þjóðin samþykkti vissulega að ganga úr
Evrópusambandinu með naumum meirihluta. Nokkru
síðar boðaði May til kosninga og freistaði þess að auka
við meirihluta sinn til að tryggja umboð sitt í samninga-
viðræðunum við sambandið.
May tapaði meirihluta flokks síns í kosningunum,
stórlaskaðist sjálf og þurfti að reiða sig á stuðning írskra
sambandssinna til að tryggja meirihluta í þinginu. Til
að auka ruglinginn benda skoðanakannanir til að mikill
meirihluti breskra kjósenda vilji nú hætta við allt saman.
Upp hafa sprottið trúverðugar pólitískar fylkingar sem
berjast fyrir því.
Hlutverk forsætisráðherra er vanalega að sætta ólík
sjónarmið, en taka af skarið ef þarf. May virðist hvorugt
geta og á meðan logar ríkisstjórn hennar stafnanna á
milli. Ekki bætir úr skák að Verkamannaflokkurinn undir
stjórn Jeremys Corbyn þykir fáum raunhæfur kostur til að
taka við stjórnartaumunum eins og sakir standa.
Samningamenn Evrópusambandsins ganga á lagið.
Aðalsamningamaður þeirra, Michael Barnier, hefur látið
hafa eftir sér að eina leið Breta til að halda í fríverslun
við Evrópusambandið sé áframhaldandi aðild að innri
markaðnum og tollabandalaginu. Ekkert annað sé til
umræðu.
May er því í vonlausri stöðu. Hún er föst á milli and-
stæðra fylkinga í eigin flokki. Hingað til virðist lausn
hennar hafa falist í því að gera ekki neitt og vona að
málið leysist af sjálfu sér. Orð Barniers og afstaða Evrópu-
sambandsins gefa skýrt til kynna að aðgerðaleysi sé ekki
kostur.
Theresa Maybe þarf að fara að gera upp hug sinn.
Theresa kannski
The Econom-
ist hæðist
að henni og
kallar hana
Theresu
Maybe vegna
þess hversu
erfitt hún
virðist eiga
með að taka
af skarið. Lýð-
ræðislegt um-
boð May og
fylgismanna
er ekki til að
styrkja stöðu
þeirra.
6 . f e b r ú a r 2 0 1 8 Þ r I Ð J U D a G U r8 s k o Ð U n ∙ f r É T T a b L a Ð I Ð
SKOÐUN
0
6
-0
2
-2
0
1
8
0
4
:2
6
F
B
0
4
0
s
_
P
0
3
6
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
4
0
s
_
P
0
3
3
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
4
0
s
_
P
0
0
5
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
4
0
s
_
P
0
0
8
K
.p
1
.p
d
f
A
u
to
m
a
ti
o
n
P
la
te
r
e
m
a
k
e
:
1
E
E
7
-2
8
5
8
1
E
E
7
-2
7
1
C
1
E
E
7
-2
5
E
0
1
E
E
7
-2
4
A
4
2
7
5
X
4
0
0
.0
0
1
5
A
F
B
0
4
0
s
_
5
_
2
_
2
0
1
8
C
M
Y
K