Fréttablaðið - 06.02.2018, Blaðsíða 20

Fréttablaðið - 06.02.2018, Blaðsíða 20
Það er ekki á hverjum degi sem íslenskum bílablaða-mönnum er boðið til Afríku til að prófa bíla, hvað þá þann sem reyndur var í síðasta mánuði, sjálfan Íslandsbílinn Toyota Land Cruiser. Staðsetning prófunar hans í Namibíu á sér helst skýringar í því að hann er meðal annars fram- leiddur í nágrannalandinu í suðri, í Durban í Suður-Afríku. Toyota Land Cruiser jeppinn er seldur í 190 löndum heims, enda á þessi fjölhæfi bíll erindi svo víða þar sem færð er ekki með allra besta móti, þökk sé frábærri drifgetu hans. Saga Land Cruiser er næstum farin að spanna mannsaldur, en hann heldur upp á 65 ára afmælið í ár og hefur aldrei selst betur. Það er jafn undarlegt við allar kyn- slóðir Land Cruiser, líkt og með Porsche 911, að þær sjást allar enn þá á götunum og frekara vitni um endingu þessa vinnuþjarks er vart hægt að dikta upp. Hann er líkt og minni bróðir hans, Hilux, hreint ódrepandi bíll sem gengur bara og gengur og það sem meira er, heldur ávallt ótrúlega háu endur- söluverði. Það er ein af ástæðunum fyrir því af hverju bæði íslenskir kaupendur og erlendir fjárfesta sífellt í nýjum Land Cruiser, en hann er nánast í áskrift að hverri nýrri kynslóð hjá stórum hópi fólks. Það er ágætt dæmi um hörku Land Cruiser að hið strjálbýla og harða land Ástralía er stærsta ein- staka söluland Land Cruiser með um 12% heimsframleiðslunnar og þar hafa frá tilkomu hans selst alls yfir 700.000 bílar. Laglegar útlitsbreytingar en áfram kraftalegur Meginástæðan fyrir því að blaða- mönnum alls staðar úr heiminum var boðið til Namibíu til að reyna Land Cruiser er að bíllinn hefur tekið talsvert miklum breytingum, þó svo ekki sé um að ræða kyn- slóðabreytingu með nýju tölu- númeri. Mestu breytingarnar að utan eru á framendanum og grillið hefur fengið mjög vel heppnaða andlitslyftingu, sem og framljósin sem nú eru með köntuðu lagi. Ef til vill sést þó mesta breytingin að framan þegar sest er upp í fram- sætin og horft yfir húddið. Það er nú mikið tekið niður í miðjunni og er það bæði gert til að auka karakt- er og skerpa línur, en ekki síður svo ökumaður sjái betur á veginn fyrir fram, sem oft er jú í formi ófæra. Frambrettin eru hærri sem er til þess gert að ökumaður geri sér betur grein fyrir breidd bílsins við þröngar aðstæður. Lengd bílsins hefur verið aukin um 6 cm og er hann nú 4,84 metra langur en samt er snúningsradíus bílsins aðeins 5,8 metrar. Bíllinn stendur nú á ferlega flottum 17, 18 eða 19 tommu felgum og eru þær stærstu með 12 rimum og prýða bílinn mjög. Afturljósin eru líka nokkuð breytt, sem og afturstuðarinn. Í heild er hér kominn enn snoppu- fríðari bíll, en samt heldur hann sínu kraftalega útliti sem var ein- mitt upphaflega meining Toyota. Fá má bílinn nú í 10 mismunandi litum og flestir reynsluaksturs- bílarnir voru í hrikalega flottum lit, Midnight Emerald Blue, og eftir því hvernig eða hvort Namibíusólin skein á hann var hann svartur, grænn eða blár. Nýr litur er einn- ig fólginn í Avant-Garde Bronze metallic lit. Enn meiri breytingar að innan Að innan eru breytingar enn meiri og lúxusbílatilfinningin skín af honum þegar inn er sest. Mæla- borðið og allur miðjustokkurinn með stjórntækjunum er nýr og ferlega flottur og stýrið er einnig nýtt. Stjórntakkar fyrir aksturs- stillingar, sem mikið voru notaðar í reynsluakstrinum, eru afar vel staðsettar og stutt að laumast í þá. Þeir vöndust strax og það var eins gott því í fjölbreyttu og erfiðu landslaginu var sífellt verið að breyta akstursstillingum bílsins og lægra drifið, læsingarnar og klifurtakkinn óspart notað. Þetta verða nýir kaupendur bílsins Íslandsjeppinn sýndi taktana í Namibíu Nýr og breyttur Land Cruiser var reyndur í Afríkulandinu Namibíu. Talsverðar breytingar eru á ytra útliti en enn meiri að innan sem færir hann eiginlega í lúxusbílaflokk. Drifgetan hefur enn aukist og er bíllinn nú hlaðinn nýjustu tækni. Eknir voru 700 kílómetrar í ægifagurri náttúru Namibíu. Kostir og gaLLar toyota LaNd CruisEr 150 l 2,8 lítra dísilvél l 177 hestöfl l fjórhjóladrif eyðsla frá: 7,4 l/100 km í bl. akstri Mengun: 194 g/km CO2 hröðun: 12,1 sek. í 100 km hraða hámarkshraði: 175 km/klst verð frá: 7.490.000 kr. Umboð: Toyota Kauptúni l drifgeta l Nýja innréttingin, l Lágt verð l Mættu vera fleiri vélarkostir reynsluakstur Finnur Thorlacius finnurth@365.is 6 . f e b r ú a r 2 0 1 8 Þ r i Ð j U d a G U r6 b í l a r ∙ f r é t t a b l a Ð i Ð Bílar 0 6 -0 2 -2 0 1 8 0 4 :2 6 F B 0 4 0 s _ P 0 2 8 K .p 1 .p d f F B 0 4 0 s _ P 0 2 1 K .p 1 .p d f F B 0 4 0 s _ P 0 1 3 K .p 1 .p d f F B 0 4 0 s _ P 0 2 0 K .p 1 .p d f A u to m a ti o n P la te r e m a k e : 1 E E 7 -1 E 7 8 1 E E 7 -1 D 3 C 1 E E 7 -1 C 0 0 1 E E 7 -1 A C 4 2 7 5 X 4 0 0 .0 0 1 4 A F B 0 4 0 s _ 5 _ 2 _ 2 0 1 8 C M Y K

x

Fréttablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.