Fréttablaðið - 20.02.2018, Side 4
FIAT FIORINO
Tilboðsverð með aukahlutum
1.699.000 kr án vsk. / 2.106.760 kr. m/vsk.
Listaverð með aukahlutum frá
2.525.000 kr. m/vsk.
FIAT DOBLÓ
Tilboðsverð með aukahlutum
1.999.000 kr án vsk. / 2.478.760 m/vsk.
Listaverð með aukahlutum frá
3.225.000 kr. m/vsk.
FIAT DUCATO - MILLILANGUR
Tilboðsverð með aukahlutum frá
3.199.000 kr án vsk. / 3.966.760 m/vsk.
Listaverð með aukahlutum frá
5.215.000 kr. m/vsk.
SÉRTILBOÐ Á ATVINNUBÍLUM
Umboðsaðili Fiat Professional - Þverholti 6 - 270 Mosfellsbær - s. 534 4433
www.fiatprofessional.is - www.isband.is - isband@isband.is - Opið virka daga 10-18 - Laugardaga 12-16
Dómsmál Meðlimir hljómsveitar-
innar Sigur Rósar höfðu miklar
áhyggjur af því þegar ljóst varð að
35 milljónir af miðasölutekjum tón-
leika þeirra í Hörpu í desember síð-
astliðnum væru horfnar og um tíma
stefndi í að þeir færu jafnvel ekki
fram. Þetta kom fram í máli Bald-
vins Björns Haraldssonar, lögmanns
Hörpu ohf., við munnlegan mál-
flutning í Héraðsdómi Reykjavíkur í
gær. Í dómsal í gær var hart tekist á
um frávísunarkröfu Kára Sturlusonar
og félags hans, KS Productions slf., í
málinu. Líkt og greint hefur verið frá
stefndi Harpa tónleikahaldaranum
Kára og félagi hans til endurgreiðslu
á 35 milljóna fyrirframgreiðslu sem
hann fékk af miðasölutekjunum og
fékk kyrrsetningu á eignir hans.
Kári var ekki viðstaddur í dómsal
í gær en lögmaður hans, Steinbergur
Finnbogason, fór þar í löngu máli
fram á frávísun með vísan í vanreifun,
óskýrðar kröfur og gekk svo langt að
segja málatilbúnað stefnanda allan í
„skötulíki“.
Baldvin Björn furðaði sig á frávís-
unarkröfunni og má segja að hann
hafi tætt hana í sig lið fyrir lið í dóm-
sal í gær.
Í dómsal kom fram að tekjur af
tónleikunum hafi í heildina numið
um 80-90 milljónum króna og af
þeim fjármunum hafi að sögn Bald-
vins Björns Harpa leyft sér á sínum
tíma að greiða Kára fyrirfram 35
milljónir króna í trausti þess að hann
myndi nota þá fjármuni í að undir-
búa tónleikana.
Svo fór, líkt og fram hefur komið
í tilkynningu Hörpu og Sigur Rósar,
að samningi við Kára var rift vegna
Harpa og Sigur Rós skiptu með
sér stórkostlegu fjárhagstjóni
35 milljóna króna fyrirframgreiðsla Hörpu ohf. til Kára Sturlusonar stefndi tónleikum Sigur Rósar í des-
ember í hættu. Meðlimir sveitarinnar voru áhyggjufullir. Harpa og hljómsveitin neyddust til að semja um
hvernig skipta ætti tapinu sem lögmaður sagði stórkostlegt tjón. Frávísunarkrafa tekin fyrir í héraði í gær.
Miðasölumálið varpaði dökkum skugga á viðburð Sigur Rósar í Hörpu í
desember. Tekist var á um frávísunarkröfu í málinu fyrir dómi í gær.
meintra vanefnda og trúnaðarbrests
og hann því ekki aðili að tónleik-
unum lengur. Baldvin Björn lagði
áherslu á að ekki væri um bótakröfu
að ræða í málinu, einungis endur-
greiðslu á fyrirframgreiðslunni með
vísan í samning Hörpu og Kára. Lög-
maðurinn sagði málið snúast um
35 milljónir sem virtust hafa „gufað
upp“ sem ekki sé gott fyrir eigendur
Hörpu, ríki og borg. Málshöfðunin og
kyrrsetning eigna hafi því verið til að
tryggja endurgreiðslu enda áhöld um
að Kári væri borgunarmaður.
Baldvin Björn sagði Kára hafa
vikist undan áskorunum um endur-
greiðslu, en lögmaður hans vildi
meina að engin gögn væru lögð fram
því til staðfestingar að slíkt hafi ítrek-
að verið reynt. Baldvin Björn sagði
Kára hafa lofað því í vitna viðurvist
að endurgreiða upphæðina og því
verið fyllilega meðvitaður um hana.
Hvort Kári og KS Productions ættu
síðan kröfu vegna útlagðrar vinnu
við undirbúning tónleikanna áður
en kom til riftunar væri annar hand-
leggur. Þetta tiltekna mál snerist um
endurgreiðslu á hinni háu fyrirfram-
greiðslu.
Fram kom í dómsal að greiðslur
Hörpu ohf. til Kára hafi verið gerðar
í nokkrum millifærslum frá júní til
ágúst í fyrra. Þó tónleikarnir hafi
farið fram og þeir væru vissulega yfir-
staðnir lagði Baldvin Björn áherslu á
að enn vantaði 35 milljónir í upp-
gjörið. Um þetta gat hafi Harpa og
Sigur Rós þurft að semja sérstaklega.
Lögmaðurinn sagði ekki hafa verið
auðvelt að ákveða hvernig menn
skiptu með sér 35 milljóna króna
„tapi“ og um væri að ræða „stórkost-
legt tjón sem væntanlega er orðið“.
Forstjóri Hörpu, Svanhildur Kon-
ráðsdóttir, hefur hingað til ekki viljað
tala um þessa upphæð sem tapaða og
forsvarsmenn Hörpu og Sigur Rósar
treysti því að fjármunirnir fáist
endur greiddir. Miðað við það sem
fram kom í málflutningnum í gær
hefur nokkur efi verið um það.
mikael@frettabladid.is
Kári
Sturluson.
Jónsi í
Sigur Rós.
Svanhildur
Konráðsdóttir.
stjórnmál Forsætisnefnd ákvað
á fundi sínum í gær að upplýsingar
um ferðakostnað þingmanna verði
birtar á sérstökum vef. Þar verða
þó einungis birtar upplýsingar
um kostnað sem þingmenn hafa
stofnað til frá 1. janúar 2018 en ekki
lengra aftur í tímann. Þetta stað-
festir Jón Þór Ólafsson, þingmaður
og fulltrúi Pírata í forsætisnefnd.
Aðspurður segir Jón að á fund-
inum hafi ekki verið tekin endanleg
afstaða til upplýsingabeiðna fjöl-
miðla á fundinum, en Steingrímur
J. Sigfússon, forseti Alþingis, hefur
látið þess getið að honum sjálfum
og skrifstofunni hafi borist fjöldi
fyrirspurna um starfskjör þing-
manna og verði beiðnum fjölmiðla
um frekari upplýsingar vísað inn í
vinnu forsætisnefndar.
„Ég lýsti þeirri skoðun að rétt væri
að farið yrði yfir málið frá sjónar-
horni siðareglnanna og þessu var
stillt upp þannig í nefndinni að
skrifstofa þingsins, sem sér um
framkvæmd laga og reglna um þing-
fararkaup og kostnað, mun gefa for-
sætisnefnd samantekt um málið og
hvernig framkvæmdinni hefur verið
háttað. Mér skilst að þetta sé sá far-
vegur sem forsætisnefnd myndi
alltaf vísa málinu í ef það kæmi fram
beiðni um að málið yrði skoðað út
frá siðareglunum,“ segir Jón Þór.
Málið var rætt á Alþingi í gær
undir liðnum um fundarstjórn
forseta. Meðal þeirra sem tóku til
máls var Helga Vala Helgadóttir,
þingmaður Samfylkingarinnar,
sem spurði af hverju málið væri
svo viðkvæmt. Hún svaraði því sjálf
með orðunum: „Af því að það er
bara verið að gefa örlítinn hluta af
upplýsingunum. Við vitum hver ók
mest. Við vitum núna hver ók næst-
mest en við höfum ekki fengið upp-
lýsingar um hver er í þriðja, fjórða
og fimmta sæti.“ – aá
Birta aðeins ferðakostnað þingmanna frá nýliðnum áramótum
Jón Þór
Ólafsson.
Helga Vala
Helgadóttir.
HEIlBrIGÐIsmál Ísland er í öðru sæti
yfir þau lönd þar sem öruggast er að
fæða barn. Tíðni nýburadauða hér er
eitt barn á hvert þúsund. Japan skákar
Íslandi sem öruggasta landið. Þar deyr
einn nýburi af hverjum 1.111. Þetta
kemur fram í nýrri skýrslu UNICEF.
Hinum megin á listanum er Pak-
istan en þar deyr að meðaltali eitt
barn af hverjum 22. Mið-Afríkulýð-
veldið, Afganistan, Sómalía, Lesótó,
Gínea-Bissá og Suður-Súdan raða sér
í næstu sæti.
„Tíðni nýburadauða er gífurlegt
áhyggjuefni, einkum meðal fátækustu
ríkja heims,“ segir Bergsteinn Jónsson,
framkvæmdastjóri UNICEF á Íslandi.
„Í ljósi þess að meirihluti þessara
dauðsfalla er fyrirbyggjanlegur þá er
augljóslega verið að bregðast fátæk-
ustu börnunum og þeim sem búa á
jaðri samfélaga.“ – jóe
Ísland er
næstöruggast
fyrir nýbura
stjórnsÝslA Úrskurðarnefnd um
upplýsingamál (ÚNU) hefur fellt úr
gildi þá ákvörðun Þjóðskrár að synja
Siðmennt um aðgang að netföngum
skráðra félagsmanna í trúfélagið.
Þjóðskrá synjaði Siðmennt um
aðganginn á þeim grundvelli að um
væri að ræða persónuupplýsingar
í skilningi laga um persónuvernd
og meðferð persónuupplýsinga.
Taldi stofnunin að ekki væri unnt
að miðla upplýsingunum áfram án
þess að fyrir lægi samþykki hvers og
eins. Siðmennt taldi að hver og einn
hefði samþykkt slíkt með því að skrá
sig í félagið.
ÚNU benti á að í persónuverndar-
lögum væri tekið fram að þau tak-
marki ekki rétt til aðgangs að
gögnum samkvæmt upplýsinga- og
stjórnsýslulögum. Var synjunin því
felld úr gildi og lagt fyrir Þjóðskrá að
taka málið fyrir að nýju. – jóe
Mál Siðmenntar
tekið fyrir á ný
2 0 . f E B r ú A r 2 0 1 8 Þ r I Ð j U D A G U r4 f r é t t I r ∙ f r é t t A B l A Ð I Ð
2
0
-0
2
-2
0
1
8
0
4
:4
2
F
B
0
4
0
s
_
P
0
3
7
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
4
0
s
_
P
0
3
2
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
4
0
s
_
P
0
0
4
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
4
0
s
_
P
0
0
9
K
.p
1
.p
d
f
A
u
to
m
a
ti
o
n
P
la
te
r
e
m
a
k
e
:
1
F
0
1
-6
F
B
0
1
F
0
1
-6
E
7
4
1
F
0
1
-6
D
3
8
1
F
0
1
-6
B
F
C
2
7
5
X
4
0
0
.0
0
1
3
B
F
B
0
4
0
s
_
1
9
_
2
_
2
0
1
8
C
M
Y
K