Fréttablaðið - 20.02.2018, Síða 15
Good Night má
nota eftir hentug-
leika og getur reynst afar
hjálplegt við að komast
út úr þeim vítahring sem
svefnleysi getur valdið.“
Hrönn Hjálmarsdóttir
Svefnvandamál og svefnleysi getur þó átt sér dýpri rætur en svo að þetta hjálpi og þá er um að gera að leita til fagaðila sem sérhæfa sig í þessu.
Góður svefn er undirstaða góðrar heilsu en um það bil þriðjungi mannsævinnar er
varið í svefn. Þó svo að um tíma-
bundið svefnleysi sé að ræða, getur
það valdið vanlíðan og þreytu á
daginn og haft mikil áhrif á dagleg
störf. Við eigum erfiðara með að
einbeita okkur, erum þreytt og
pirruð og rökhugsun skerðist,“
segir Hrönn Hjálmarsdóttir,
heilsu- og næringarmarkþjálfi hjá
Artasan.
30% Íslendinga sofa of lítið
„Algengt er að svefntruflanir komi
með aldrinum og talið er að um
30% Íslendinga sofi of lítið og fái
óendurnærandi svefn. Ástæðurnar
eru margvíslegar og er algengt að
streita, áhyggjur, kvíði, óvissa og
þunglyndi valdi því að við sofum
illa en ýmsir sjúkdómar, bæði
líkamlegir sem og andlegir geta
einnig haft bein áhrif. Ferðalög
milli tímabelta og vaktavinna rugla
svefninn hjá mörgum, notkun raf-
tækja (lýsing frá skjáum á símum
og tölvum) og svo skiptir það
máli hvað við borðum, hvernig og
hvenær þegar kemur að því að fá
góðan nætursvefn.“
Byggingarefni melatóníns
„Líkamsklukkan okkar tengist
dagsbirtunni og við eðlilegar
aðstæður fer líkaminn að fram-
leiða svefnhormónið melatónín
þegar fer að nálgast háttatíma.
Þetta á að gerast á náttúrulegan
hátt en hjá mörgum er eitthvað
sem truflar þetta ferli, eins og t.d.
það sem talið er upp hér fyrr í
greininni sem og birtan og myrkrið
úti,“ útskýrir Hrönn. „Þá eyðir fólk
oft löngum tíma í að bylta sér í
rúminu og jafnvel pirrast yfir að
festa ekki svefn. Til að líkaminn
framleiði svefnhormónið mela-
tónín þarf m.a. að vera til staðar
amínósýra sem kallast L-tryptófan.
Hún fyrirfinnst í matvælum eins
og t.d. eggjum, laxi, sesamfræjum,
sætum kartöflum og banönum en
hún er einnig eitt helsta innihalds-
efni Good Nigth.“
Betra skap og minni
matarlyst
„L-tryptófan getur bætt svefninn
og þar með heilsufar okkar. Það
er einnig vert að nefna að það
er líka byggingarefni serótóníns
sem hefur m.a. áhrif á skapferli,
almenna virkni, át og svefn. Þetta
þýðir að serótónín í nægilega
miklu magni getur dregið úr líkum
á þunglyndi og kvíða ásamt því að
það dregur úr matarlyst en þá er
verið að tala um fólk sem hefur of
mikla matarlyst og gengur illa að
stýra áti. Eins og áður sagði þá er
L-tryptófan til staðar í ákveðnum
matvælum en það getur haft mikla
kosti að taka það inn á bætiefna-
formi líka.“
Róandi jurtir í bland
„Í Good Night er þessi amínósýra,
L-tryptófan, hugsuð fyrst og fremst
til að hjálpa okkur að sofna og er
því búið að blanda saman jurtum
sem allar eru þekktar fyrir að hafa
róandi og slakandi áhrif. Þetta er
melissa, lindarblóm og hafrar. Að
auki er blanda af B-vítamínum og
magnesíum sem er gott fyrir tauga-
kerfið,“ segir Hrönn.
Hugum vel að svefn
aðstæðum
„Um það bil þriðjungi manns-
ævinnar er varið í svefn. Gott er að
koma sér upp rútínu fyrir svefninn
sem miðar að því að við slökum á
og gleymum aðeins amstri dagsins.
Mikilvægt er að það sé ávallt ferskt
og gott loft í svefnherberginu
okkar og gott er að draga eins og
hægt er úr rafmagnstækjanotkun
ásamt því að sleppa alveg notkun
á tölvum, iPad og símum rétt áður
en farið er að sofa. Bæði getur
rafsegulsviðið kringum tækin haft
áhrif og svo er talið að bláu geisl-
arnir frá skjánum leiði til minni
framleiðslu á svefnhormóninu
melatón íni í heil akönglinum og
geti því spillt nætursvefninum.
Fáum okkur frekar góða bók að
lesa, hlustum á róandi tónlist eða
stundum einhvers konar slökun
eða íhugun frekar en að hafa
sjónvarpið í gangi yfir rúminu.
Gætum þess einnig að hafa hljótt
í kringum okkur og dimmum her-
bergið vel þegar við ætlum að fara
að sofa.“
Sölustaðir: Flest apótek, heilsuhús
og heilsuhillur verslana.
Betra skap og minni matarlyst
Good Night er náttúrulegt svefnbætiefni sem hjálpar fólki að sofna og ná samfelldari svefni. Það
inniheldur amínósýruna L-tryptófan, jurtir og bætiefni sem eru róandi og hafa slakandi áhrif.
Hrönn Hjálmarsdóttir, heilsu og
næringarmarkþjálfi.
Magnesíum flögur
Frábært í baðið og fótabaðið
Fyrir íþróttafólk og
þá sem stunda
mikla hreyfinguFyrir alla
Fyrir svefninn
og við fótaóeirð
FÓLK KYNNINGARBLAÐ 3 Þ R I ÐJ U DAG U R 2 0 . F e b r úa r 2 0 1 8
2
0
-0
2
-2
0
1
8
0
4
:4
2
F
B
0
4
0
s
_
P
0
2
6
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
4
0
s
_
P
0
2
3
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
4
0
s
_
P
0
1
5
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
4
0
s
_
P
0
1
8
K
.p
1
.p
d
f
A
u
to
m
a
tio
n
P
la
te
re
m
a
k
e
: 1
F
0
1
-8
8
6
0
1
F
0
1
-8
7
2
4
1
F
0
1
-8
5
E
8
1
F
0
1
-8
4
A
C
2
7
5
X
4
0
0
.0
0
1
6
A
F
B
0
4
0
s
_
1
9
_
2
_
2
0
1
8
C
M
Y
K