Fréttablaðið - 24.02.2018, Qupperneq 4
Umboðsaðili Jeep - Þverholti 6 - 270 Mosfellsbær - s. 534 4433
www.jeep.is - www.isband.is - isband@isband.is - Opið virka daga 10-18 - Laugardaga 12-16
JEEP GRAND CHEROKEE TRAILHAWK
TORFÆRUÚTGÁFAN AF ÞESSUM
FRÁBÆRA JEPPA
®
Quadra-DriveTM fjórhjóladrif, driflæsing að aftan, loftpúðafjöðrun, 18” álfelgur,
grófari dekk, 8,4” snertiskjár, lykillaust aðgengi og ræsing, rafdrifin sport sæti
frammi í með hita og kælingu, leður/rúskinsáklæði, rafdrifinn afturhleri,
Bi-Xenon og LED framljós, bakkmyndavél, hiti í stýrishjóli, íslenskt
leiðsögukerfi, hlífðarplötur undir vél, kössum og eldsneytistönkum o.fl.
DÍSEL 3.0L V6 250 HÖ.
8 GÍRA SJÁLFSKIPTING HÁTT OG LÁGT DRIF
TRAILHAWK VERÐ FRÁ: 10.490.000 KR.
Grand Cherokee Laredo verð frá: 8.990.000 kr.
Þrjú í fréttum
Efasemdir,
brotthvarf og
myndlist
Tölur vikunnar 18.02.2018 Til 24.02.2018
Ragnar Aðalsteinsson
lögmaður
sagði að gera
þyrfti athuga-
semdir við
greinargerð
setts saksóknara
í Guðmundar- og
Geirfinnsmál-
unum þótt sýknu væri
krafist. Ragnar benti á að dregið
væri í efa í greinargerðinni að
dómfelldir væru í raun saklausir.
Lagði Ragnar áherslu á að mál-
flutningur yrði í Hæstarétti. For-
sendur dómsins gætu skipt máli
vegna mögulegra bótakrafna.
Lilja Alfreðsdóttir
menntamálaráðherra
sagði tölur um
brotthvarf úr
framhaldsskól-
um gefa tilefni
til að styrkja
sálfræðiþjónustu
í skólunum. Hún
ynni nú með Svandísi
Svavarsdóttur heilbrigðisráðherra
í málinu. Síðastliðna haustönn
hætti 141 nemandi vegna andlegra
veikinda en í heildina hættu 750 í
framhaldsskóla í haust.
Sigurður Guðjónsson
myndlistarmaður
var valinn mynd-
listarmaður
ársins fyrir
sýninguna Inn-
ljós, í kapellu
og líkhúsi St.
Jósefsspítala í
Hafnarfirði. Var þetta
í fyrsta skipti sem verðlaunin voru
veitt. Auður Lóa Guðnadóttir hlaut
hvatningarverðlaun ársins.
570
einstaklingar voru í janú-
ar á biðlista eftir innlögn
á sjúkrahúsið Vog. Í
ágúst síðastliðnum biðu
445 eftir innlögn.
154
milljarða hafa bankarnir
greitt í arð frá árinu 2016.
Stjórnir bankanna hafa
lagt til að greiddir verði
53,4 milljarðar króna í
arð á þessu ári.
71,2
milljónir voru laun og árangurs-
tengdar greiðslur til Höskuldar
H. Ólafssonar, bankastjóra Arion
banka, í fyrra. Hækkuðu þær um
5,9 milljónir, eða ríflega níu pró-
sent, milli ára.
4
prósenta atvinnuleysi
var í janúar. Samkvæmt
vinnumarkaðsrannsókn
Hagstofu Íslands voru að
jafnaði 203.500
manns á aldrinum
16-74 ára á vinnu-
markaði í janúar
2018, sem jafngildir
81,7% atvinnuþátt-
töku.
2,9
prósenta aukningu landsfram-
leiðslu er spáð á þessu ári og verður
hún að miklu leyti drifin áfram
af vexti einkaneyslu samkvæmt
þjóðhagsspá Hagstofunnar. Íbúða-
fjárfesting vex um 19 prósent og
opinber fjárfesting um nærri 12
prósent.
72,5
prósent stuðnings-
manna Sjálfstæðis-
flokksins vilja að Sigríður
Andersen dómsmála-
ráðherra segi af sér
embætti samkvæmt
könnun sem gerð var í
samstarfi Stundarinnar
og Maskínu.
kr
umhverfismál „Mér ber, samkvæmt
stjórnsýslulögum, að meta hæfi mitt
og ég hef metið það sem svo að mér
beri að víkja sæti við meðferð og
töku ákvarðana í þessum málum,“
segir Guðmundur Ingi Guðbrands-
son umhverfisráðherra um flutning
tiltekinna mála sem tengjast Land-
vernd af hans borði og til heilbrigðis-
ráðherra. Málið var kynnt í ríkisstjórn
í gær og gerð tillaga þessa efnis til for-
seta Íslands.
„Ég tók ákvörðunina eftir að hafa
fengið ráðgjöf í mínu ráðuneyti um að
það séu þarna nokkur mál sem tengj-
ast erindum sem bárust ráðuneytinu
á meðan ég var framkvæmdastjóri
Landverndar og ég geti ekki tekið
ákvarðir um.“
Aðspurður um hæfi hans í öðrum
málaflokkum, sem Landvernd hefur
beitt sér í undanfarin misseri, segist
hann munu taka afstöðu til hæfis síns
í hverju máli fyrir sig. „Ef vafi leikur
á hæfi, þá verður auðvitað farið í
gegnum það ferli og tekin afstaða til
þess, líkt og var í þessu tilviki.“
Aðspurður um feril þeirra mála
sem flust hafa til heilbrigðisráðherra
vísar Guðmundur á skrifstofustjóra í
ráðuneytinu þar sem málin séu ekki
í hans höndum.
„Sérfræðingar ráðuneytisins munu
vinna þessi mál og verða í sambandi
við settan ráðherra vegna þeirra. Hún
fer svo yfir þetta og klárar málin,“
segir Steinunn Fjóla Sigurðardóttir,
skrifstofustjóri í umhverfis- og auð-
lindaráðuneytinu. Hún segir að
allur gangur sé á því hvernig mál
Umhverfisráðherra víkur sæti
en málin unnin í ráðuneytinu
Guðmundur Ingi Guðbrandsson umhverfisráðherra víkur sæti í málum sem varða erindi Landverndar til
ráðuneytisins. Gat ekki tekið ákvarðanir sjálfur um málin. Hann var áður framkvæmdastjóri Landverndar.
Málin verða unnin af sérfræðingum umhverfisráðuneytisins í samráði við heilbrigðisráðherra.
n Erindi Landverndar, dags. 23. maí
2017, þar sem skortur á eftirliti
Umhverfisstofnunar með fram-
kvæmdum Landsnets hf. við
lagningu háspennulínu frá Kröflu og
Þeistareykjum að Bakka, er kærður.
n Erindi Landverndar, dags. 12.
september 2017, þar sem farið
er fram á að umhverfis- og auð-
lindaráðuneytið fjalli um lögmæti
álits Skipulagsstofnunar um mat á
umhverfisáhrifum Hvalárvirkjunar.
n Umsóknir Landverndar til um-
hverfis- og auðlindaráðuneytis
um verkefnastyrki, dags. 18.-22.
nóvember 2017, ásamt umsóknum
annarra aðila um styrkina.
n Erindi nokkurra eigenda Reykja-
hlíðar í Mývatnssveit, dags. 8.
desember 2017, um fyrirhugaðar
friðlýsingar á jörðinni.
Guðmundur Ingi Guðbrandsson, umhverfis- og auðlindaráðherra, víkur sæti í
Landverndarmálum sem fara nú til heilbrigðisráðherra. FréttabLaðIð/Eyþór
✿ mál sem flytjast til
heilbrigðisráðherra
flytjist milli ráðuneyta vegna van-
hæfis. „Það er mjög algengt að þau
séu bara unnin í því ráðuneyti sem
þau voru upphaflega í og það verður
þannig í þessu tilviki. Þetta er nátt-
úrulega bara vegna þess að ráðherra
var framkvæmdastjóri Landverndar
þegar erindin komu til ráðuneytisins
en hann á engra persónulegra hags-
muna að gæta sjálfur,“ segir Steinunn.
adalheidur@frettabladid.is
2 4 . f e b r ú a r 2 0 1 8 l a u G a r D a G u r4 f r é T T i r ∙ f r é T T a b l a ð i ð
2
4
-0
2
-2
0
1
8
0
4
:3
5
F
B
1
1
2
s
_
P
1
0
9
K
.p
1
.p
d
f
F
B
1
1
2
s
_
P
1
0
0
K
.p
1
.p
d
f
F
B
1
1
2
s
_
P
0
0
4
K
.p
1
.p
d
f
F
B
1
1
2
s
_
P
0
1
3
K
.p
1
.p
d
f
A
u
to
m
a
ti
o
n
P
la
te
r
e
m
a
k
e
:
1
F
0
D
-0
9
9
8
1
F
0
D
-0
8
5
C
1
F
0
D
-0
7
2
0
1
F
0
D
-0
5
E
4
2
7
5
X
4
0
0
.0
0
1
3
B
F
B
1
1
2
s
_
2
3
_
2
_
2
0
1
8
C
M
Y
K