Fréttablaðið - 24.02.2018, Qupperneq 10
skipulagsmál „Þessar breytingar
ganga þvert á þær forsendur sem
urðu til þess að við völdum að
kaupa íbúðina fyrir tveimur árum,
þar sem umhverfið, lífsgæðin, birta
íbúðarinnar og útsýnið til Snæfells-
jökuls vógu þyngst,“ segir í mót-
mælabréfi vegna fyrirhugaðrar
breytingar á skipulagi Alliance-
reitsins við Reykjavíkurhöfn.
Fyrir liggur tillaga um að breyta
skipulagi sem gert var fyrir Alliance-
reitinn árið 2013. Leyfðar verða
fjórar hæðir í stað þriggja við hlið
Mýrargötu 26 og byggingarmagn
ofanjarðar á lóðinni er meira en tvö-
faldað; verður 6.700 fermetrar í stað
3.300 fermetra. Bílakjallari minnkar
úr 1.500 í 1.400 fermetra. Þá er skil-
greiningu reitsins breytt þannig að
gert verði ráð fyrir hótelstarfsemi.
Íbúar við Mýrargötu 26, og þá
þeir sem eru vestan megin í húsinu,
eru áberandi í hópi andstæðinga
breytingarinnar. Er fyrrnefnd til-
vitnun frá eigendum íbúðar þar,
þeim Árna Möller og Signýju Páls-
dóttur.
„Um það bil níu metrum frá stofu-
og svefnherbergisgluggum okkar
munu koma íbúðir með tilheyrandi
gluggum og svölum. Þetta skerðir
lífsgæði okkar mjög mikið og frið-
helgi einkalífsins með öllu horfin
nema dregið sé fyrir glugga,“ segir
einnig í bréfi Árna og Signýjar. Þau
áskilja sér rétt til að krefjast bóta af
borginni.
Helga Bragadóttir og Jóhann
Sigurjónsson segjast í sínu bréfi hafa
keypt íbúð í húsinu í ágúst 2014 eftir
að hafa kynnt sér nýtt aðalskipulag
og gildandi deiliskipulagsáætlun.
„Vegna einstaks útsýnis frá íbúð
509 og með tilliti til nýrra deili-
skipulagsákvæða í næsta nágrenni
var ákveðið að verja umtalsverðum
fjármunum umfram þá sem greiða
þurfti fyrir samskonar íbúðir á
hæðum neðar, enda tryggt að ekki
yrði byggt vestan íbúða á 5. hæð,
sem eru hæðinni hærri en friðað
Alliance hús,“ rekja Helga og Jóhann
sínar aðstæður. Segja þau verðgildi
eignar sinnar munu skerðast og þau
áskilja sér einnig rétt til að sækja
bætur.
Guðmundur Þorsteinsson bendir
í sínu bréfi á að nýtingarhlutfall Alli-
ance-lóðarinnar muni aukast um
ríflega 77 prósent. „Það er því ljóst
að um meiriháttar breytingar er að
ræða á byggingarmagni á umrædd-
um reit og ljóst að slíkt kallar á veru-
legan forsendubrest þeirra aðila
sem fjárfestu í dýrum íbúðum að
Mýrargötu 26,“ skrifar hann.
Í bókun meirihlutaflokkanna
í borgarstjórn frá í október 2017
er bent á að byggingarmagnið á
reitnum verði með þessari tillögu
umtalsvert minna en samkvæmt
skipulagi sem hafi verið í gildi er
borgin keypti reitinn á árinu 2012
Skipulagsstofnun gagnrýnir
framgöngu borgarinnar. „Gögn eru
misvísandi varðandi hæðafjölda
nýbyggingar milli Alliance hússins
og Mýrargötu 26 og viðbrögð við
athugasemdum er ófullnægjandi,“
segir stofnunin í bréfi. Helstu
athugasemdir sem borist hafi lúti að
umtalsverðri aukningu byggingar-
magns og hæð nýbygginga. Einnig
séu áhyggjur af hóteluppbyggingu
og fækkun bílastæða á lóð.
Þá segir Skipulagsstofnun að í
greinargerð og svörum borgarinn-
ar við athugasemdum komi fram að
meginmarkmið með breytingunni
sé að styrkja stöðu Alliance-hússins
og skapa stað með sterkan heildar-
svip. „Telur Skipulagsstofnun að
rökstyðja þurfi betur hvernig þessi
útfærsla styrkir stöðu Alliance
hússins og uppfyllir önnur mark-
mið breytingarinnar,“ segir stofn-
unin og bendir á að Minjastofnun
telji áformin hafa neikvæð áhrif á
Alliance-húsið.
Þá telur Skipulagsstofnun að svör
borgarinnar við athugasemdum
varðandi nýbygginguna milli Alli-
ance-hússins og Mýrargötu 26 séu
ekki rétt hvað varðar hæðafjölda.
Húsið sé fjórar hæðir en ekki þrjár
eins og komi fram í uppdrætti.
„Í svörum við athugasemdum er
ýmist sagt að húsið sé þrjár hæðir
eða þrjár hæðir séð frá Mýrargötu
og aðeins sé verið að breyta formi
þess.“
Eigendur fasteigna við Granda-
garð 1-13 gagnrýna áformin harð-
lega af ýmsum ástæðum: „Leggjumst
við allir sem einn gegn þeim tillög-
um sem fyrir liggja um uppbyggingu
Alliance reitsins.“ gar@frettabladid.is
Bætur fyrir útsýni yfir
hafið og Snæfellsjökul
Eigendur íbúða á Mýrargötu 26 mótmæla harðlega tillögu vegna nýrra bygginga
vestan við húsið og boða skaðabótakröfur á hendur borginni. Skipulagsstofnun
segir borgina gefa misvísandi myndir af hæð nýbyggingar í kynningargögnum.
AÐALFUNDUR
GEÐHJÁLPAR 2018
Aðalfundur Geðhjálpar verður haldinn að Borgartúni
30, 2. hæð til hægri, laugardaginn 17. mars kl. 14.
Á dagskrá verða hefðbundin aðalfundarstörf, m.a.
kjör nýrra stjórnarmanna, umfjöllun um ársskýrslu
og ársreikning samtakanna.
Félagsmenn eru hvattir til að mæta á fundinn.
Virðingarfyllst, stjórn Geðhjálpar.
www.gedhjalp.is
Auglýst eftir framboðum
til kirkjuþings
Á grundvelli 11. gr. starfsreglna um kjör til kirkjuþings, nr. 1075/2017
auglýsir kjörstjórn þjóðkirkjunnar eftir framboðum til kirkjuþings.
Á kirkjuþingi eiga sæti 29 þjóðkirkjumenn kjörnir til fjögurra ára í senn.
Eru 12 þeirra úr hópi vígðra manna, þ.e. presta og djákna og
17 leikmenn.
Kjörgengur til kirkjuþings er:
a. hver vígður maður sem á kosningarrétt skv. 3. gr. starfsreglna nr.
1075/2017 b. hver leikmaður sem hefur hlotið skírn í nafni heilagrar
þrenningar, skráður er í íslensku þjóðkirkjuna, og hefur náð 18 ára aldri.
Kjörgengisskilyrði skulu vera uppfyllt 1. apríl 2018.
Þeir sem hyggjast bjóða sig fram til kirkjuþings skulu hafa tilkynnt
kjörstjórn framboð sitt skriflega eigi síðar en 15. mars 2018. Tilkynningu
um framboð skal senda til biskupsstofu, Laugavegi 31, 150 Reykjavík,
eða í tölvupósti á netfangið kirkjan@kirkjan.is
Kjörstjórn getur óskað eftir að sá sem hyggst bjóða sig fram, framvísi
staðfestingu er sýni kjörgengi hans.
Ef ekki berast nægilega mörg framboð, sbr. 11. gr. starfsreglan um kjör
til kirkjuþings nr. 1075/2017, skal kjörstjórn svo fljótt sem auðið er gera
uppstillingarnefnd kirkjunnar viðvart. Skal uppstillingarnefnd tilnefna þá
frambjóðendur sem á vantar. Skal sú tilnefning hafa borist kjörstjórn eigi
síðar en 31. mars nk., ásamt samþykki hlutaðeigandi.
Kosningarnar verða rafrænar og standa frá kl. 12:00 hinn 2. maí 2018
til kl. 12:00 hinn 7. maí s.á. Verða kosningarnar auglýstar sérstaklega
síðar.
Fyrir hönd kjörstjórnar
Hjördís Stefánsdóttir, formaður
Húsmæðraorlof
Gullbringu- og Kjósarsýslu 2018
Garðabær, Garður, Grindavík, Kjósarhreppur, Mosfellsbær,
Reykjanesbær, Sandgerði, Seltjarnarnes, Vogar.
Rétt til þess að sækja um eftirfarandi ferðir, hefur sérhver
kona sem veitir eða hefur veitt heimili forstöðu án
launagreiðslu fyrir það starf.
Í ár verða eftirtaldar ferðir í boði:
Sumarævintýri í Alsace í Frakklandi .............27. maí – 3. júní
Haustgleði í Prag í Tékklandi ...........................5. – 9. október
Aðventuferð til Wiesbaden
í Þýskalandi ..............................29. nóvember – 2. desember
Eftirtaldar konur veita nánari upplýsingar og taka á
móti pöntunum í síma á milli kl. 17:00 og 19:00
á virkum dögum frá 26. febrúar - 7. mars.
Svanhvít Jónsdóttir ......565 3708
Ína D. Jónsdóttir............421 2876
Guðrún Eyvindsdóttir ...422 7174
Valdís Ólafsdóttir...........566 6635
Sigrún Jörundsdóttir ....565 6551
Hér sést hvernig nýbyggingar eiga að rísa vestan Mýrargötu 26 og nánast um-
lykja Alliance-húsið á þrjá vegu. Eigendur Mýrargötu 26 mótmæla tillögunni.
Rúmlega fjörutíu ára bygging sem lengi hýsti verslun Ellingsen norðan Alliance-hússins á að hverfa. FRéttAblAðið/ERniR
Í svörum við athuga-
semdum er ýmist
sagt að húsið sé þrjár hæðir
eða þrjár hæðir séð frá
Mýrargötu og aðeins sé verið
að breyta formi þess.
Skipulagsstofnun
2 4 . f e b r ú a r 2 0 1 8 l a u g a r D a g u r10 f r é t t i r ∙ f r é t t a b l a ð i ð
2
4
-0
2
-2
0
1
8
0
4
:3
5
F
B
1
1
2
s
_
P
1
0
6
K
.p
1
.p
d
f
F
B
1
1
2
s
_
P
1
0
3
K
.p
1
.p
d
f
F
B
1
1
2
s
_
P
0
0
7
K
.p
1
.p
d
f
F
B
1
1
2
s
_
P
0
1
0
K
.p
1
.p
d
f
A
u
to
m
a
ti
o
n
P
la
te
r
e
m
a
k
e
:
1
F
0
D
-2
C
2
8
1
F
0
D
-2
A
E
C
1
F
0
D
-2
9
B
0
1
F
0
D
-2
8
7
4
2
7
5
X
4
0
0
.0
0
1
7
A
F
B
1
1
2
s
_
2
3
_
2
_
2
0
1
8
C
M
Y
K