Fréttablaðið - 24.02.2018, Side 12
Fundur verður haldinn til að kynna ferðir
ársins 2018 á Hótel Natura (Loftleiðahótelinu)
Þriðjudaginn 27. febr. 2018 kl. 19:30
Kaffiveitingar, verð kr. 3.190,-
Upplýsingar um ferðir ársins 2018 er hægt að finna á
http://orlofrvk.123.is/ Hægt er að nálgast upplýsingar og
bækling á skrifstofunni að Hverfisgötu 69, á mánudögum,
þriðjudögum og miðvikudögum, milli klukkan 16:00 til 17:30, í
mars og apríl 2018 og í síma 551-2617/864-2617 á sama tíma.
,,Sérhver kona, sem veitir eða hefur veitt heimili
forstöðu án launagreiðslu fyrir það starf,
á rétt á að sækja um orlof.“
Nefndin
Orlofsnefnd húsmæðra
í Reykjavík
Fræ
Styrkir til frumkvöðla
Fræ er fyrir frumkvöðla með hugmyndir
og verkefni á frumstigi sem getur
leitt af sér stærra þróunarverkefni.
Nánari upplýsingar eru á tths.is
Umsóknarfrestur er til 4. apríl 2018
Bakkalárnám 9. apríl
Arkitektúr
Fatahönnun
Grafísk hönnun
Vöruhönnun
Myndlist
Sviðshöfundabraut
Hljóðfæri / Söngur
Hljóðfærakennaranám
Rytmískt kennaranám
Kirkjutónlist
Skapandi tónlistarmiðlun
Tónsmíðar / Nýmiðlar
Upplýsingar um
umsóknar- og inntökuferli
má finna á lhi.is
Alþjóðlegt meistaranám
30. apríl
Meistaranám í sviðslistum
Meistaranám í hönnun
Meistaranám í myndlist
Meistaranám í tónsmíðum
Sköpun, miðlun og frum-
kvöðlastarf (NAIP)
Meistaranám 11. maí
Meistaranám í listkennslu
(diplóma og aðfaranám)
Meistaranám í söng- og
hljóðfærakennslu
MEÐ
SKAPANDI
HUGSUN
BREYTUM
VIÐ …
OPIÐ FYRIR UMSÓKNIR
Save the Children á Íslandi
Sýrland „Ég er að bíða eftir að
sonur minn deyi. Þá verður hann
allavega laus við sársaukann. Ég
var bara að reyna að baka brauð
fyrir hann þegar þakið á húsinu
okkar hrundi. Hann er að fara
beint til himna. Það er að minnsta
kosti matur á himnum.“ Þetta sagði
móðir sjúklings í myndbandi sem
BBC birti í gær en miðillinn fylgd-
ist með störfum læknisins Amani
Balour í Austur-Ghouta í Sýrlandi.
Árásir bandamanna Bashars al-
Assad, forseta Sýrlands, á Austur-
Ghouta héldu áfram í gær og hafa
nú að minnsta kosti 462 farist eftir
að Assad-liðar settu aukinn þunga í
sókn sína á sunnudaginn. Stór hluti
hinna látnu var á barnsaldri. Svæðið
er síðasta stóra vígi uppreisnar-
manna nærri höfuðborginni
Damaskus og er umkringt yfirráða-
svæðum stjórnarliða. Eru því um
400.000 almennir borgarar innlyksa
í Austur-Ghouta þar sem hjálpar-
samtök segja að matur, vatn, lyf og
aðrar nauðsynjavörur séu á þrotum.
Á annan tug sjúkrahúsa hafa
orðið fyrir sprengjum svo illa geng-
ur að koma særðum undir læknis-
hendur. Samtökin Læknar án landa-
mæra sögðu í yfirlýsingu í gær að
árásir stjórnarliða kæmu í veg fyrir
að samtökin gætu aðstoðað íbúa.
Blóðbankinn væri tómur, sýklalyf
og deyfilyf ekki til.
Til stóð að öryggisráð Sameinuðu
þjóðanna gengi til atkvæðagreiðslu
í gær um ályktun um vopnahlé í Sýr-
landi en henni var frestað til dagsins
í dag að því er Al Jazeera greinir frá.
Í drögunum, sem Kúveit og Sví-
þjóð lögðu fram, er kveðið á um
þrjátíu daga vopnahlé í öllu Sýr-
landi sem myndi hefjast þremur
sólarhringum eftir samþykkt álykt-
unarinnar. Tveimur sólarhringum
eftir það myndu hjálparsamtök
Fær að minnsta kosti
að borða í himnaríki
Linnulausar árásir Assad-liða á Austur-Ghouta halda áfram. Tala látinna hækk-
ar. Öryggisráðið átti að greiða atkvæði um vopnahlé í gær. Atkvæðagreiðslunni
frestað ítrekað. Rússar sakaðir um að tefja svo árásir á svæðið geti haldið áfram.
Börn fá aðhlynningu á bráðabirgðasjúkrahúsi í Austur-Ghouta eftir árásir Assad-liða. FréttABlAðið/EPA
flytja nauðsynjar til íbúa og flytja
særða á brott. Enn fremur segir í
drögunum að 5,6 milljónir Sýr-
lendinga þurfi aðstoð.
Einnig er kveðið á um að
vopnahléið nái ekki til hryðju-
verkasamtakanna sem kenna sig við
íslamskt ríki og al-Nusra, fyrrverandi
bandamanna al-Kaída.
Rússar, sem hafa neitunarvald í
öryggisráðinu, vilja ganga lengra og
sagði Sergei Lavrov, utanríkisráð-
herra Rússlands, að útiloka þyrfti
samtök sem ynnu með þeim fyrr-
nefndum samtökum og þeim sem
hefðu skotið á Damaskus. Fyrri
vopnahlé hafa sjaldan borið mikinn
árangur, að því er kemur fram í
umfjöllun Reuters.
Viðræður Rússa við önnur ríki
sem eiga sæti í ráðinu voru ástæða
frestunarinnar. Sagði Mansour
Ayyad al-Otaibi, sendiherra Kúveits,
við Reuters í gær að unnið væri enn
að nokkrum greinum.
Kröfu Rússa er hægt að túlka
þannig að þeir vilji að tvær stærstu
fylkingar uppreisnarmanna í Aust-
ur-Ghouta verði líka útilokaðar.
Þær eru annars vegar Jaish al-Islam
og andstæðingar þeirra í Faylaq al-
Rahman. Síðarnefnda hreyfingin
hefur áður barist við hlið öfgasam-
takanna Hayat Tahrir al-Sham sem
er undir forystu al-Nusra.
„Við höfum ekki fengið það
tryggt að uppreisnarmenn haldi
ekki áfram að skjóta á íbúabyggðir
í Damaskus,“ sagði Lavrov í yfirlýs-
ingu um viðræðurnar í gær. Sagði
hann að Rússar væru tilbúnir
að samþykkja drögin en ekki í
óbreyttri mynd.
„Til þess að ályktunin beri
árangur leggjum við til breytingar
sem myndu tryggja raunverulegt
vopnahlé. Tillögur okkar krefjast
ákveðinna trygginga frá þeim sem
eru innan Austur-Ghouta jafnt sem
utan,“ sagði Lavrov.
Vesturveldunum í öryggisráðinu
þótti lítið til um málflutning Rússa.
Ef marka má frétt BBC grunar vest-
urveldin að Rússar hafi einfaldlega
verið að reyna að tefja ferlið svo
stjórnarherinn gæti unnið fulln-
aðarsigur og tekið Austur- Ghouta
af uppreisnarmönnum. Kölluðu
Bandaríkin, Bretland og Frakkland
eftir því að ályktunin yrði samþykkt
tafarlaust. thorgnyr@frettabladid.is
462
hið minnsta hafa farist í
Austur-Ghouta frá því að
sókn Assad-liða þyngdist
á sunnudag.
2 4 . f e b r ú a r 2 0 1 8 l a U G a r d a G U r12 f r é t t i r ∙ f r é t t a b l a ð i ð
2
4
-0
2
-2
0
1
8
0
4
:3
5
F
B
1
1
2
s
_
P
1
0
8
K
.p
1
.p
d
f
F
B
1
1
2
s
_
P
1
0
1
K
.p
1
.p
d
f
F
B
1
1
2
s
_
P
0
0
5
K
.p
1
.p
d
f
F
B
1
1
2
s
_
P
0
1
2
K
.p
1
.p
d
f
A
u
to
m
a
ti
o
n
P
la
te
r
e
m
a
k
e
:
1
F
0
D
-1
8
6
8
1
F
0
D
-1
7
2
C
1
F
0
D
-1
5
F
0
1
F
0
D
-1
4
B
4
2
7
5
X
4
0
0
.0
0
1
5
A
F
B
1
1
2
s
_
2
3
_
2
_
2
0
1
8
C
M
Y
K