Fréttablaðið - 24.02.2018, Qupperneq 38
Þetta er leikur en
líka leið til að vekja
fólk til umhugsunar um
hvaðan fötin sem við
kaupum koma, hvað
verður um þau þegar við
erum hætt að nota þau
og hver býr til fötin
okkar.
Sigríður Inga
Sigurðardóttir
sigriduringa@frettabladid.is
Endurvinnsla og endurnýting á fötum er Helgu Björgu Kjerúlf og Höllu Hákonardóttur hug-
leikin en þær reka saman lista- og
hönnunarstúdíóið USEE STUDIO.
„Á tískuvinnustofunni í dag ætlum
við að mála föt, tússa á föt, klippa
þau í sundur og setja saman aftur,
taka t.d. tvo jakka og búa til nýjan
jakka úr þeim. Þetta er leikur en
líka leið til að vekja fólk til umhugs-
unar um hvaðan fötin sem við
kaupum koma, hvað verður um
þau þegar við erum hætt að nota
þau og hver býr til fötin okkar. Svo
má líka hugleiða hvort við þurfum
öll að eiga eins mikið af fötum og
raun ber vitni,“ segir Helga Björg
sem er arkitekt að mennt. Halla er
fatahönnuður og þær hafa starfað
saman við hönnun í þrjú ár. Tísku-
vinnustofan er samstarfsverkefni
þeirra, Reykjavik Dans Festival og
Listasafns Reykjavíkur.
Sængurföt verða að skyrtu
„Í dag ætlum við að hanna fatalínu
í samstarfi við Sorpu sem heitir ON
BRAND og er skírskotun í merkja-
fatnað. Hver kannast ekki við að
einn bolur með einhverri áletrun
kemst í tísku svo úr verður hálf-
gerð múgæsing og allir vilja eiga
þennan bol? Okkur finnst áhuga-
vert að velta því upp hvað það er
sem skapar svona spennu fyrir
ákveðinni flík,“ segir Helga Björg en
þær ætla einnig að skoða hvað hægt
er að gera við gömul sængurföt.
„Margir setja sængurfatnað beint í
endurvinnslu en oft er um að ræða
vandaðan textíl sem nota má á
nýjan hátt. Við Halla höfum t.d. oft
saumað fínustu skyrtur og buxur úr
gömlum sængurfötum með góðum
árangri.“
ON BRAND línan verður svo
sýnd á viðburði sem Reykjavik
Dans Festival stendur fyrir 11. mars.
Vaknaði fyrir þremur árum
Þegar Helga Björg er spurð hvort
fólk spái almennt meira í hvaðan
föt sem það kaupir koma og hvað
verður úr þeim segist hún vera viss
um að svo sé. „Sjálf vaknaði ég fyrir
um þremur árum þegar við Halla
fórum að skiptast á hugmyndum.
Þá var ég að vísu ekki eins róttæk
í þessum efnum og ég er núna.
Eftir að ég skoðaði upplýsingar
um hversu margir fatagámar frá
Sorpu eru sendir til útlanda á degi
hverjum og hversu mikið af fötum
er notað í landfyllingar get ég ekki
snúið til baka. Það má heldur ekki
gleyma fólkinu sem býr til fötin
okkar en það vinnur oftar en ekki
við hræðilegar aðstæður og svo
enda þessi föt kannski bara á rusla-
haug. Tíðarandinn hefur líka breyst
og við lifum á tímum þar sem fólk
hugsar meira um umhverfið og um
leið náungann. Við sjáum þetta líka
í stefnum eins og „slow living“og
„slow cooking“. Ég kaupi mér
heldur vönduð föt sem nýtast lengi
og versla við búðir með notaðan
fatnað. Þar má finna alls konar gim-
steina,“ segir Helga Björg.
Fylgjast má með Helgu Björgu og
Höllu á heimasíðunni usee.is og á
instagram @useestudio.
Klippa, mála og lita föt
Eftir að Helga Björg skoðaði upplýsingar um hversu margir fatagámar frá Sorpu eru sendir til útlanda á degi hverjum og
hversu mikið af fötum er notað í landfyllingar ákvað hún að leggja sitt af mörkum til umhverfismála. MYND/EYÞÓR
Helga Björg Kjerúlf og Halla Hákonar-
dóttir verða með tískuvinnustofu fyrir
ungmenni í dag þar sem endurvinnsla
og endurnýting á fötum er í brenni-
depli. Afraksturinn verður til sýnis á
Reykjavík Dance Festival 11. mars.
sérblað Fréttablaðsins kemur út miðvikudaginn 7. mars nk.
Unnið að hluta í samvinnu við Festu - miðstöð um samfélagsábyrgð fyrirtækja.
Fyrirtækjum og stofnunum gefst færi á kynna sína stefnu og aðgerðir
þegar kemur að samfélagsábyrgð. Svo sem á sviði loftslags
og umhverfismála, samfélagsþátttöku, jafnréttismál, starfsumhverfis,
vinnuvernd og stjórnunar og viðskiptahátta.
Upplýsingar veitir Ólafur H. Hákonarson markaðsfulltrúi.
Sími: 512 5433. Netfang: olafurh@frettabladid.is.
Tryggðu þínu fyrirtæki gott pláss í langmest lesna dagblaði landsins.
Kynningarumfjöllun, viðtal eða hefbundin auglýsing í boði.
Samfélagsábyrgð fyrirtækja
4 KYNNINGARBLAÐ FÓLK 2 4 . F E B R úA R 2 0 1 8 L AU G A R DAG U R
2
4
-0
2
-2
0
1
8
0
4
:3
5
F
B
1
1
2
s
_
P
0
7
5
K
.p
1
.p
d
f
F
B
1
1
2
s
_
P
0
7
4
K
.p
1
.p
d
f
F
B
1
1
2
s
_
P
0
3
8
K
.p
1
.p
d
f
F
B
1
1
2
s
_
P
0
3
9
K
.p
1
.p
d
f
A
u
to
m
a
ti
o
n
P
la
te
r
e
m
a
k
e
:
1
F
0
D
-6
C
5
8
1
F
0
D
-6
B
1
C
1
F
0
D
-6
9
E
0
1
F
0
D
-6
8
A
4
2
7
5
X
4
0
0
.0
0
1
5
B
F
B
1
1
2
s
_
2
3
_
2
_
2
0
1
8
C
M
Y
K