Fréttablaðið - 24.02.2018, Blaðsíða 46
Rafvirki óskast
Óskum eftir að ráða rafvirkja til starfa eða mann vanan
raflagnavinnu til starfa á starfstöð Tengils ehf í
Reykjavík.Tengill ehf er öflugt rafverktakafyrirtæki með
starfstöðvar í Reykjavík, Akureyri, Sauðárkróki,
Blönduósi og Hvammstanga.
Vinsamlega sendið fyrirspurn eða umsókn á netfangið
gisli@tengillehf.is fyrir 15. mars.
Sumarstörf hjá Ísafjarðarbæ 2018
Íþróttamannvirki Ísafjarðarbæjar -
Sundlaugarverðir og vallarstarfsmaður
Íþróttamannvirki Ísafjarðarbæjar auglýsa eftir sundlaugar-
vörðum í sumarstörf við sundlaugarnar á Ísafirði, Suðureyri,
Flateyri og Þingeyri. Jafnframt er auglýst eftir öflugum
starfsmanni á vallarsvæðið á Ísafirði. Æskilegast er að
sundlaugarverðir geti hafið störf í lok maí 2018 eða eftir
nánara samkomulagi. Um er að ræða 100% störf í vaktavinnu.
Vallarstarfsmaður hefur störf 1. maí 2018 eða eftir nánara
samkomulagi. Starfstími er til loka ágústmánaðar 2018.
Vinnuskóli Ísafjarðarbæjar – Yfirflokkstjóri
Vinnuskóli Ísafjarðarbæjar auglýsir eftir yfirflokkstjóra.
Vinnuskólinn er útiskóli sem í sumar hefur aðsetur í Fjarðar-
stræti og Sundhöllinni, Austurvegi 9. Æskilegast er að
viðkomandi geti hafið störf í lok maí 2018 eða eftir nánara
samkomulagi. Um er að ræða 100% starf til þriggja mánaða.
Vinnuskóli Ísafjarðarbæjar - Almennur flokkstjóri
Vinnuskóli Ísafjarðarbæjar er útiskóli þar sem starfið gefur
einstaka möguleika á að njóta útivistar og eiga þátt í að
prýða umhverfið í Ísafjarðarbæ. Óskað er eftir ábyrgðarfullum
flokkstjórum til starfa á Ísafirði og Þingeyri. Æskilegast er
að viðkomandi geti hafið störf í lok maí 2018 eða eftir nánara
samkomulagi. Um er að ræða 100% störf til þriggja mánaða.
Starfsmenn í garðyrkjudeild Ísafjarðarbæjar
Þjónustumiðstöð Ísafjarðarbæjar auglýsir eftir starfsmönnum
til sumarstarfa í garðyrkjudeild. Um er að ræða 100% störf við
skemmtilega útivinnu á tímabilinu 14. maí til 17. ágúst eða eftir
nánara samkomulagi.
Þjónustumiðstöð Ísafjarðarbæjar
- Sumarstarfsmenn
Auglýst er eftir fjórum sumarstarfsmönnum við hin ýmsu störf
hjá Þjónustumiðstöð Ísafjarðarbæjar (áhaldahúsi). Leitað er
eftir starfsfólki 18 ára og eldra sem hefur áhuga á útivinnu.
Starfstímabil er 14. maí til 17. ágúst og er vinnutími milli
kl. 07.20 - 17.00 virka daga, nema til hádegis á föstudögum.
Velferðarsvið Ísafjarðarbæjar - Sumarstarfsmenn
Velferðarsvið Ísafjarðarbæjar óskar eftir sumarstarfsmönn-
um í blönduð störf við málefni fatlaðra og aldraðra. Störfin
sem um ræðir eru störf við heimaþjónustu (frekari liðveisla,
félagsleg heimaþjónusta), hæfingu, sólarhringsþjónustu og
sumarþjónustu við fötluð börn. Um er að ræða vaktavinnu þar
sem starfshlutfall er 40-100%. Starfstímabil er frá 20. maí til
loka ágúst.
Launakjör eru samkvæmt samningum launanefndar sveitar-
félaga við VerkVest/FOSVest. Umsóknarfrestur um ofangreind
störf er til og með 11. mars 2018.
Frekari upplýsingar um störfin má nálgast á vef Ísafjarðarbæ-
jar (www.isafjordur.is) undir „Laus störf“. Við hvetjum konur
jafnt sem karla til að sækja um störfin.
-Við þjónum með gleði til gagns-
ÍSAFJARÐARBÆR
Skipulagsfulltrúi óskast til starfa
Laus er til umsóknar staða skipulagsfulltrúa hjá Umhverfis- og tæknisviði uppsveita. Að embættinu standa sveitarfélögin
Grímsnes og Grafningshreppur, Hrunamannahreppur, Bláskógabyggð, Skeiða- og Gnúpverjahreppur, Flóahreppur og
Ásahreppur. Aðsetur skipulagsfulltrúa er að Dalbraut 12 á Laugarvatni.
Skipulagsfulltrúi starfar með sameiginlegri skipulagsnefnd áðurnefndra sveitarfélaga. Hann hefur umsjón með skipulagsgerð á
svæðinu og hefur eftirlit með að framkvæmdir séu í samræmi við skipulag og útgefin leyfi. Skipulagsfulltrúi skal uppfylla kröfur
um menntun og starfsreynslu samkvæmt 7. gr. skipulagslaga nr. 123/2010. og 2.5. kafla skipulagsreglugerðar nr. 90/2013.
Starfssvið:
• Yfirumsjón skipulagsmála í sveitarfélögunum.
• Útgáfa framkvæmdaleyfa.
• Leiðbeiningar til sveitarfélaganna um skipulagsmál.
• Undirbúningur funda skipulagsnefndar, lögformleg
afgreiðsla erinda og eftirfylgni mála.
Menntun og hæfniskröfur:
• Framhaldsmenntun á háskólastigi sem nýtist í starfi.
• Umsækjandi skal uppfylla menntunar og hæfniskröfur
samkvæmt 7. grein skipulagslaga nr. 123/2010 og 2.5. kafla
skipulagsreglugerðar nr. 90/2013.
• Reynsla af starfi tengdu skipulagsmálum er skilyrði.
• Þekking á opinberri stjórnsýslu æskileg.
• Metnaður og frumkvæði til að ná árangri í starfi.
• Hæfni í mannlegum samskiptum.
• Hæfni í ræðu og riti.
• Góð almenn tölvukunnátta.
Á starfsvæði embættisins er mikil fjölbreytni, þéttbýli, landbúnaður, sumarhús, dreifbýli og virkjanir. Íbúafjöldi svæðisins er um
3.950. Heildar flatarmál u.þ.b. 11.000 ferkílómetrar. Viðkomandi þarf að geta hafið störf sem fyrst.
Umsóknarfrestur er framlengdur til 11. mars og eiga umsóknir að berast á netfangið umsokn@gogg.is
Frekari upplýsingar veitir formaður skipulagsnefndar Gunnar Þorgeirsson í síma 892-7309 eða á netfangið gunnar@gogg.is
www.ruv.is
Fréttamenn í sumarstörf
Fréttastofa
Fréttastofa RÚV leitar að öflugu
sumarafleysingafólki í 100% störf á
vöktum. Störfin felast í að afla frétta á
höfuðborgarsvæðinu og landsbyggðinni,
í útvarp, sjónvarp og á rúv.is. Við leitum
að metnaðarfullu og sjálfstæðu fólki með
fjölbreyttan bakgrunn sem á auðvelt með
að vinna í hópi, hefur góða framsögn og er
vel ritfært.
Umsóknarfrestur er til 6. mars.
Verkefnastjóri þjónustu
fyrir útlendinga
Málfar og aðgengi
Við auglýsum eftir verkefnastjóra í
fullt starf við að leiða nýja þjónustu við
landsmenn með annað móðurmál en
íslensku þvert á miðla. Jafnframt hefur
verkefnastjórinn umsjón með miðlun
efnis á ensku á vef og auknu aðgengi
að efni í dagskrá RÚV. Þjónustan er í
samræmi við stefnu RÚV til 2021.
Umsóknarfrestur er til 12. mars.
Umsóknum ásamt ferilskrá er skilað
rafrænt á www.ruv.is/laus-storf.
RÚV starfar í almannaþágu og hefur það hlutverk að vekja, virkja og efla.
Öflugt og samhent starfsfólk RÚV skoðar samfélagið með gagnrýnum
hætti, segir mikilvægar sögur og þróar nýjar leiðir til miðlunar.
Við leitum að liðsauka
6 ATVINNUAUGLÝSINGAR 2 4 . f e b R úA R 2 0 1 8 L AU G A R DAG U R
2
4
-0
2
-2
0
1
8
0
4
:3
5
F
B
1
1
2
s
_
P
0
6
7
K
.p
1
.p
d
f
F
B
1
1
2
s
_
P
0
5
8
K
_
N
Y
.p
1
.p
d
f
F
B
1
1
2
s
_
P
0
4
6
K
.p
1
.p
d
f
F
B
1
1
2
s
_
P
0
5
5
K
.p
1
.p
d
f
A
u
to
m
a
ti
o
n
P
la
te
r
e
m
a
k
e
:
1
F
0
D
-4
E
B
8
1
F
0
D
-4
D
7
C
1
F
0
D
-4
C
4
0
1
F
0
D
-4
B
0
4
2
7
5
X
4
0
0
.0
0
1
2
B
F
B
1
1
2
s
_
2
3
_
2
_
2
0
1
8
C
M
Y
K