Fréttablaðið - 16.03.2018, Síða 18
Fólk er kynningarblað sem býður auglýsendum
að kynna vörur og þjónustu í formi viðtala og um-
fjallana. Í blaðinu er einnig hefðbundið ritstjórnar-
efni. Blaðið fylgir Fréttablaðinu daglega.
Umsjónarmenn efnis: Elín Albertsdóttir, elin@frettabladid.is, s. 512 5349 | Ragnheiður Tryggvadóttir,
heida@frettabladid.is, s. 512 5367 | Oddur Freyr Þorsteinsson, oddurfreyr@frettabladid.is, s. 512 5368
| Sigríður Inga Sigurðardóttir, sigriduringa@frettabladid.is, s. 512 5372 | Starri Freyr Jónsson, starri@
frettabladid.is, s. 512 5358 | Þórdís Lilja Gunnarsdóttir, thordisg@frettabladid.is s. 512 5338
Útgefandi:
365 miðlar
Ábyrgðarmaður:
Elmar Hallgríms Hallgrímsson
Sölumenn: Atli Bergmann, atli@frettabladid.is, s. 512 5457 | Jón Ívar Vilhelmsson, jonivar@frettabladid.is, s. 512 5429 |
Ólafur H. Hákonarson, olafurh@frettabladid.is, s. 512 5433 | Máté Dalmay, mate@frettabladid.is, s. 512 5442 ,
Það er rétt tæplega ár síðan vestfirski dúettinn Between Mountains vann Músíktil
raunir og hefur árið verið bæði
viðburðaríkt og skemmtilegt hjá
þeim Kötlu Vigdísi Vernharðs
dóttur og Ásrósu Helgu Guðmunds
dóttur sem skipa sveitina. Í lok
janúar gáfu þær út lagið Into the
Dark sem trónar um þessar mundir
á toppi vinsældalista Rásar 2 og fyrr
í vikunni hlutu þær verðlaun sem
bjartasta vonin í poppi, rokki, rappi
og raftónlist á Íslensku tónlistar
verðlaununum. Sannarlega mikil
umskipti á stuttum tíma hjá þeim
en Ásrós varð nýlega sautján ára
og Katla verður sextán ára í sumar.
„Okkur þótti ótrúlega vænt um að
hafa verið tilnefndar sem bjartasta
vonin og það var mikill heiður
út af fyrir sig. Við höfðum engar
sérstakar væntingar um sigur enda
voru svo ótrúlega flottir listamenn
tilnefndir með okkur. Því var svo
frábært að vinna verðlaunin og ég
var í svo miklu sjokki að ég náði
ekki að þakka öllum, t.d. Hildu
vinkonu minni sem hefur verið mér
mikill andlegur stuðningur. Kvöldið
var ótrúlega skemmtilegt og það
var mjög gaman að spjalla við
annað fólk í bransanum og mynda
tengslanet,“ segir Katla.
Nýja lagið slær í gegn
Góðar viðtökur nýja lagsins, Into
the Dark, komu þeim skemmti
lega á óvart og segjast þær báðar
vera í skýjunum. „Okkur datt ekki
í hug að lagið myndi ná þessum
vinsældum. Katla samdi lagið í
febrúar í fyrra og hefur það verið
að breytast og mótast þangað til
við tókum það upp í Sundlauginni
í haust. Þá var ekkert annað í
stöðunni en að taka upp tónlistar
myndband og fengum við Hauk
Björgvinsson til að leikstýra því,
Chanel Björk pródúseraði og Katr
ín Gunnarsdóttir samdi alla dansa.
Við tókum það upp í nóvember og
stóðu tökur yfir eina helgi. Það má
segja að þetta hafi verið nokkurs
konar samfélagsverkefni þar sem
ótrúlega margt fólk kom að gerð
myndbandsins og hjálpaði okkur
að gera þetta að veruleika,“ bætir
Ásrós við en myndbandið var tekið
upp á Ísaf irði, Suðureyri, í Bol
ungar vík og við Óshlíð og þar má
m.a. sjá fjöl skyldumeðlimi og vini
stúlkn anna.
Nýtt efni á leiðinni
Ásrós og Katla hafa verið mikið
á ferðinni undanfarið ár og segja
líf sitt hafa gjörbreyst. Sveitin
hélt m.a. tónleika í Þýskalandi og
Frakklandi á vegum Hins hússins
og kom fram á Iceland Airwaves
í nóvember þar sem þær segjast
hafa fengið frábær viðbrögð.
Tónleikarnir vöktu m.a. athygli
tónlistartímaritsins Rolling Stone
sem sagði hljómsveitina eina af
þeim áhugaverðustu á hátíðinni
það árið.
Næstu mánuðir verða líka
annasamir hjá þeim. „Við verðum
á heimavelli um páskana þegar
við spilum á Aldrei fór ég suður á
Ísafirði og nýlega var tilkynnt að
við munum koma fram á Secret
Solstice í Laugardalnum í júní.
Vonandi fáum við svo að koma
fram aftur á Iceland Airwaves
næsta vetur.“
Aðspurðar hvort fleiri ný lög
verði gefin út í bráð segja þær nýtt
efni á leiðinni. „Við erum þó ekki
með nein plön um að gefa út plötu
eins og er en við erum á fullu að
æfa nýtt sett og ætlum að stækka
hljóðheiminn í bandinu aðeins.“
Þær lýsa tónlist sinni sem melód
ísku indí krúttpoppi. „Helstu
áhrifavaldar okkar eru Eivør,
Sóley, Alice Merton, The Smiths,
First Aid Kit og Florence and the
Machine. Annars höfum við báðar
fjölbreyttan tónlistarsmekk og
hlustum á ólíkar tónlistarstefnur.“
Skjótur frami
Það var í febrúar á síðasta ári sem
þær hófu að spila saman og stuttu
síðar tóku þær þátt í Samvest,
undankeppni söngvakeppninnar
Samfés, og sigruðu hana. „Í kjöl
farið stakk Katla upp á því að við
myndum taka þátt í Músíktil
raunum líka. Við bjuggumst alls
ekki við sigri þar enda áttum við
ekki einu sinni von á því að komast
í úrslitin. Bara að komast þangað
var sigur fyrir okkur,“ segir Ásrós.
Mikil umræða hefur skapast
um stöðu kvenna innan tónlistar
senunnar undanfarið en hvernig
skyldu þær upplifa hana? Katla
segist ekki hafa fundið fyrir mikilli
mismunun en segist þó alltaf með
það í huga að kynjamisréttið sé enn
til staðar og mikilvægt sé að vera
vakandi fyrir því. „Ég hef alltaf haft
sterkar fyrirmyndir í tónlistinni,
t.d. konur sem eru að skapa og
„meika það“. Það skipti mig miklu
máli sem stelpa að hafa konur
til að líta upp til af því að maður
tengdi miklu meira við þær. Það er
fyrirmyndum eins og Eivøru, Láru
Rúnars, Sóleyju og Hildi að þakka
að ég er á þessum stað í dag.“
Ásrós er á svipuðum nótum. „Ég
hef ekki orðið vör við mismunun
kvenna í bransanum en að vísu
viðgengst kynjamisrétti enn þann
dag í dag og er ég því mjög vakandi
fyrir því.“
Frábært fyrir vestan
Á meðan Katla og Ásrós eru ekki að
sinna Between Mountains stunda
þær nám við Menntaskólann á Ísa
firði auk þess sem þær eru báðar í
tónlistarnámi við Tónlistarskólann
á Ísafirði. Þær koma einnig að upp
setningu Konungs ljónanna með
leikfélaginu í Menntaskólanum
auk þess sem Katla æfir blak með
Vestra.
Katla segir frábært að búa fyrir
vestan og það sé í raun ein mesta
gjöf sem hún hafi fengið. „Fólkið í
bænum styður mann á fullu og allir
vilja gera allt til þess að koma okkur
á framfæri. Það er ekki á mörgum
öðrum stöðum sem hægt er að
finna svona þétt og heilsteypt sam
félag þar sem að allt þorpið hjálpast
að við að „ala“ börnin upp.“
Á að vera gaman
Þær segjast ætla að halda samstarfi
áfram á meðan þær hafi gaman af
en það sé einmitt það sem þetta
eigi að snúast um; að hafa gaman
af því sem maður gerir, vera trúr
sjálfum sér og sínum skoðunum.
Katla ætlar að mennta sig frekar
á tónlistarsviðinu og starfa við
tónlist til frambúðar að eigin sögn.
Ásrós segist líka ætla að vera við
loðandi tónlist með einum eða
öðrum hætti í framtíðinni. „Þó
langar mig mikið til að fara í lýðhá
skóla í Noregi eða Danmörku áður
en ég fer í frekara tónlistarnám, t.d.
í leiklistarnám eða eitthvert annað
akademískt nám.“
Fylgjast má með sveitinni á
Facebook, hlusta á lögin á Spotify
og horfa á myndböndin á You
Tuberás hljómsveitarinnar.
Starri Freyr
Jónsson
starri@frettabladid.is
Framhald af forsíðu ➛
„Okkur datt ekki í hug að lagið myndi ná þessum vinsældum,“ segir Ásrós
Helga Guðmundsdóttir (t.v) um vinsældir nýja lagsins, Into the Dark, sem
trónar nú á toppi vinsældalista Rásar 2. MYND/VALLI
„Okkur þótti ótrúlega vænt um að hafa verið tilnefndar sem bjartasta vonin
og það var mikill heiður út af fyrir sig. Við höfðum engar sérstakar væntingar
um sigur,“ segir Katla Vigdís Vernharðsdóttir (t.h.). MYND/BALDUR KRISTJÁNSSON
Between Mountains vann Músíktil-
raunir 2017 og kom sigurinn þeim á
óvart. MYND/BRYNJAR GUNNARSSON
Verkfæralagerinn
Smáratorgi 1, 201 Kópavogi, sími 588 6090, vl@verkfaeralagerinn.is
Mán.-fim. kl. 9-18, fös. kl. 9-18:30, lau. kl. 10-18, sun. kl. 12-17
Verkfæri í miklu úrvali
ViAir 12V loftdælur
í miklu úvali.
METABO Bútsög
KS216
Verðmætaskápar
Jeppatjakkur
2.25t 52cm.
16.995
frá 4.995
17.995
Frábær hóptilboð
Sjáðu öll tilboðin okkar á
www.kinahofid.is
Opið alla daga
vikunnar frá
kl. 11:00 - 22:00
Kínahofið veitingahús l Nýbýlavegi 20 l 200 Kópavogi
www.kinahofid.is l Sími 554 5022
TILBOÐ
4 réttir + súpa dagsins
aðeins 1.690 kr.*
NAUTAKJÖT Í OSTRUSÓSU
KJÚKLINGUR Í KARRÝSÓSU
NÚÐLUR MEÐ GRÆNMET
DJÚPSTEIKTAR RÆKJUR MEÐ SÚR/SÆTRI SÓSU
*tekið með heim – 1.990 kr. ef borðað er á staðnum.
gæði... ending… ánægja.
skoðaðu úrvalið á Weber.is
2 KYNNINGARBLAÐ FÓLK 1 6 . M A R S 2 0 1 8 F Ö S T U DAG U R
1
6
-0
3
-2
0
1
8
0
4
:2
3
F
B
0
4
8
s
_
P
0
3
1
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
4
8
s
_
P
0
3
0
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
4
8
s
_
P
0
1
8
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
4
8
s
_
P
0
1
9
K
.p
1
.p
d
f
A
u
to
m
a
ti
o
n
P
la
te
r
e
m
a
k
e
:
1
F
3
6
-D
C
9
0
1
F
3
6
-D
B
5
4
1
F
3
6
-D
A
1
8
1
F
3
6
-D
8
D
C
2
7
5
X
4
0
0
.0
0
1
6
B
F
B
0
4
8
s
_
1
5
_
3
_
2
0
1
8
C
M
Y
K