Fréttablaðið - 07.04.2018, Page 43
Opið alla daga
vikunnar frá
kl. 11:00 - 22:00
Kínahofið veitingahús l Nýbýlavegi 20 l 200 Kópavogi
www.kinahofid.is l Sími 554 5022
Afmælistilboð
Kínahofið fagnar 30 ára afmæli
með frábærum tilboðum sem gilda frá 9. apríl til og með 15. apríl.
Veglegt hádegishlaðborð
8 bragðgóðir réttir ásamt úrval af sósum og meðlæti
Verð aðeins kr. 1.590 kr.
Gildir á milli kl. 11 og 14.
Freistandi kvöldtilboð
Allir kjúklinga, nauta, lamba og svínakjötsréttir af matseðli.
Hrísgrjón fylgja öllum réttum.
Verð aðeins kr. 1.590 kr.
Geggjuð ídýfa með snakkinu.
Þessi er svakaleg með helgar
snakkinu.
2-3 steiktir hamborgarar
1 dós rauðar nýrnabaunir,
skolið vel
1 dós svartar baunir, skolið vel
½ stór smátt saxaður laukur
280 g frosin maískorn
50 g grænn chili-pipar úr dós
(má sleppa)
170 g eldristaðir tómatar úr dós
(e. fire roasted tomatoes)
140 g maukaði tómatar úr dós
1 msk. taco-krydd
1 msk. cumin
1 msk. chili-duft
450 g cheddar-ostur,
skorinn í litla bita
1 bolli mjólk
2 bollar rifinn cheddar-ostur
½ bolli saxaður kóríander
(má sleppa)
Skerið hamborgarana í litla bita.
Setjið tómatana í pott og hitið.
Bætið við baunum, grænu chili og
maís. Sjóðið í smá stund og bætið
kryddum út í. Sjóðið áfram og
hrærið vel. Næst fara hamborgara-
bitar, cheddar-ostur í bitum og
mjólkin út í. Setjið lokið á og
sjóðið við vægan hita í a.m.k. klst.
Í lokin er rifna ostinum bætt út
í og kóríander. Sjóðið þar til allt
hefur blandast vel saman. Berið
fram heitt. Ef ídýfan er of þykk má
þynna með smá mjólk. Berið fram
með t.d. taco-flögum eða tortilla-
kökum.
Chili-ostaídýfa
Lax er ljúffengur
og vítamínríkur.
Lax má matreiða á ótal vegu án mikillar fyrirhafnar og hann er tilvalinn sunnu-
dagsréttur. Lax er góður hvort
sem hann er steiktur, soðinn,
bakaður eða grillaður. Hægt
er að útbúa dýrindisrétt með
því að blanda vel saman 2 dl af
sojasósu, 3 cm af engiferrót og
2 tsk. af púðursykri og hella yfir
vænt laxaflak og baka í 180°C
heitum ofni í um 15 mínútur.
Annar skotheldur réttur inni-
heldur 2 msk. af ólífuolíu,
safa úr hálfri sítrónu og salt
og pipar. Þessu er dreypt yfir
laxaflax sem er bakað í ofni við
180°C í um 15 mínútur. Gott
er að setja grænan aspas með í
ofnskúffuna og hafa hann sem
meðlæti en aspas er einmitt
ríkur af A-, C-, E-, K- og B6-víta-
míni. Lax er ríkur af D-vítamíni,
ómega-3 sýrum og próteini,
enda oft flokkaður sem ofur-
fæða.
Ljúffengur lax á ótal vegu
Norræna húsið býður í dag fjöl-
skyldur velkomnar á skemmtilega
textílvinnusmiðju með áherslu
á sjálfbærni og sköpun. Vinnu-
smiðjan er liður í Umhverfishátíð
Norræna hússins sem haldin er nú
um helgina.
Þátttakendur fá tækifæri til
að skapa sína eigin furðuveru úr
endurunnum textílefnum sem
fallið hafa til við framleiðslu á
Íslandi. Efnin koma frá Umemi,
Glófu og Cintamani. Þátttakendur
eru svo hvattir til að segja sögu af
furðuverunni sinni og leyfa öðrum
að kynnast henni betur.
Leiðbeinendur í smiðjunni eru
textílhönnuðirnir Erla Dís Arnar-
dóttir og Guðný Katrín Einarsdótt-
ir sem standa fyrir þróunarverk-
efninu Handabandi, en markmið
þess er að þróa skapandi vinnu-
stofu sem hluta af félagsstarfi.
Vinnusmiðjan er á íslensku og
stendur frá klukkan 14 til 16 í dag.
Þátttaka er ókeypis en skráning fer
fram á Tix. Einn miði gildir fyrir
einn þátttakanda, fullorðinn eða
barn. Fullorðinn getur fylgt einu
eða tveimur börnum.
Furðuverur í
Norræna húsinu
FÓLK KYNNINGARBLAÐ 7 L AU G A R DAG U R 7 . a p r í l 2 0 1 8
0
7
-0
4
-2
0
1
8
0
4
:3
3
F
B
1
2
8
s
_
P
0
9
1
K
.p
1
.p
d
f
F
B
1
2
8
s
_
P
0
8
6
K
.p
1
.p
d
f
F
B
1
2
8
s
_
P
0
3
8
K
.p
1
.p
d
f
F
B
1
2
8
s
_
P
0
4
3
K
.p
1
.p
d
f
A
u
to
m
a
tio
n
P
la
te
re
m
a
k
e
: 1
F
6
0
-D
3
5
4
1
F
6
0
-D
2
1
8
1
F
6
0
-D
0
D
C
1
F
6
0
-C
F
A
0
2
7
5
X
4
0
0
.0
0
1
5
B
F
B
1
2
8
s
_
6
_
4
_
2
0
1
8
C
M
Y
K