Fréttablaðið - 18.04.2018, Blaðsíða 11

Fréttablaðið - 18.04.2018, Blaðsíða 11
Svar við grein Jóhannesar Kr. Kristjánssonar í Fréttablaðinu 12. apríl 2018. Umræða um gæði þjónustu við börn sem glíma við alvarlegan vanda snertir strengi hjá almenn- ingi og mikilvægt er að umræða fari fram í samfélagi hverju sinni um þau úrræði sem í boði eru og það hvort og þá hvernig megi gera betur í þjónustu við börn. Mikilvægt er hins vegar að almenningur sé ekki afvegaleiddur í slíkri umræðu og hún sé byggð á staðreyndum en ekki dylgjum og hálfsannleik eða að tilteknir ein- staklingar séu dregnir ranglega til ábyrgðar á ákvörðunum sem stjórn- völd taka. Ákvarðanir á ábyrgð forstjóra Allar ákvarðanir um þróun með- ferðarstarfs Barnaverndarstofu, s.s. innihald meðferðar, tegund með- ferðarúrræða eða hvort opna eða loka eigi tilteknu meðferðarúrræði, eru teknar af og eru á ábyrgð for- stjóra Barnaverndarstofu en ekki á herðum tiltekinna starfsmanna, hversu mikilli þekkingu og færni sem þeir búa yfir. Ákvörðun um innleiðslu fjöl- kerfameðferðar, MST, var tekin af Barnaverndarstofu áður en núverandi sviðsstjóri meðferðar- og fóstur sviðs stofunnar hóf þar störf, og raunar áður en sviðið varð formlega til. Að sama skapi hefur meðferðarheimilum eingöngu verið lokað vegna samdráttar í umsóknum til Barnaverndarstofu um stofnanameðferð. Fullyrðingar um annað eru ósannar og eingöngu til þess fallnar að slá ryki í augu almennings og gera ákvarðanir opinberrar stofnunar tortryggilegar að ósekju. MST-meðferð bylting í þjónustu fyrir börn Frá árinu 2008 hefur Barnaverndar- stofa boðið fjölskyldum barna sem sýna alvarlega áhættuhegðun upp á MST-meðferð, sem fer fram á heima- velli barnsins og án þess að fjarlægja þurfi barnið af heimili sínu. Með- ferðin hefur verið margrannsökuð og endurtekið sýnt árangur. Eins og eðlilegt er greiðir Barnaverndarstofa hóflegt gjald fyrir að fá að nýta sér þetta úrræði, sem felur í sér viku- legt eftirlit og ráðgjöf og reglulega fræðslu erlendra sérfræðinga til þess að tryggja gæði meðferðarstarfsins og þjálfa starfsfólk. Tilkoma MST á Íslandi hefur gert Barnaverndarstofu kleift að gjör- bylta þjónustu vegna barna sem eiga í alvarlegum vanda og hefur tryggt börnum bestu þjónustu sem völ er á, á sama tíma og samfélagið stóð frammi fyrir fordæmalausum niðurskurði í velferðarþjónustu í kjölfar efnahagshruns síðasta ára- tugar. MST skilar árangri Um 560 börn og fjölskyldur hafa lokið MST-meðferð hér á landi. Eingöngu um 25% þeirra sem ljúka MST þurfa vistun utan heimilis á næstu 18 mánuðum, ýmist á meðferðardeild Stuðla, á með- ferðarheimili eða hjá fósturfor- eldrum. Einnig sýna tölur um stöðu barnanna 18 mánuðum eftir lok meðferðar að verulegur árangur hefur náðst hvað varðar vímuefna- neyslu, skólasókn og vinnu, afskipti lögreglu og ofbeldishegðun. Hafa skal það sem sannara reynist Mikilvægi meðferðarheimila Mikilvægt er að hægt sé að bjóða upp á fjölbreytta flóru úrræða, enda ljóst að ekki hafa allir foreldrar burði til að nýta sér MST-meðferð og vandi sumra barna er alvarlegri en hægt er að takast á við í MST. Á meðferðar- heimilum er veitt þjónusta sem Barnaverndarstofa og samfélagið allt getur verið stolt af. Þar er starfs- fólk og börn sem leggur mikið á sig til að ná árangri og sárnar ósönn umræða um það góða starf sem þar er unnið. Frá því að MST tók til starfa hefur samsetning barna á með- ferðarheimilum Barnaverndarstofu breyst. Algengara er að þar dveljist börn sem glíma við allra alvarlegasta vandann og/eða koma frá heimilum sem glíma við vanda. Slíkt kallar á aukna sérfræðivinnu inni á með- ferðarheimilum, öfluga eftirmeðferð og annan stuðning í kjölfar vistunar. Hefur Barnaverndarstofa haldið áfram að þróa meðferðarkerfi sitt og er það nú stigskiptara en áður. Undirbúningur nýs meðferðarheimilis Allt frá árinu 2011 hefur Barnavernd- arstofa bent á þörf fyrir sérhæfða meðferðarstofnun í jaðri byggðar á höfuðborgarsvæðinu. Ákvörðun um að koma slíku heimili á fót var tekin af félags- og húsnæðismálaráðherra á árinu 2015. Hefur fjármagn verið tryggt í verkefnið. Hægt var að hefja leit að lóð fyrir heimilið í ársbyrjun 2017 en ekki hefur fundist heppileg lóð. Leitin stendur nú yfir af aukn- um þunga og í góðri samvinnu við sveitar félögin á höfuðborgarsvæðinu. Þar til nýja heimilið verður opnað mun Barnaverndarstofa halda áfram að veita börnum þjónustu á þeim meðferðarheimilum sem starfandi eru, en þar eru laus pláss á sumum og litlir sem engir biðlistar á öðrum. Heiða Björg Pálmadóttir starfandi forstjóri Barna- verndarstofu Samstarfsaðilar Alþjóðleg ráðstefna um verndarsvæði og þróun byggðar Föstudaginn 27. apríl í Veröld, húsi Vigdísar. Við getum lært heilmikið af reynslu annarra þjóða um samspil verndarsvæða og byggðaþróunar. Annað þarf ekki að útiloka hitt. Á ráðstefnunni fjalla sex erlendir fyrirlesarar um áhugaverð fordæmi og fjölbreyttar leiðir sem farnar eru í þessum efnum. Ráðstefnan stendur frá kl. 10.00-15.30. Hádegisverður innifalinn. Nánari upplýsingar og skráning: Fyrirlesarar Peter Crane Head of Visitor Services for Cairngorms National Park Authority (CNPA) Skotlandi Jukka Siltanen M.Sc., Computer Science University of Tampere, M.Sc. Environment and Natural Resources, University of Iceland Elliott Lorimer Principal officer for Forest of Bowland Area of Outstanding Natural beauty, Englandi Salvör Jónsdóttir Skipulagsfræðingur Ráðstefnustjóri Sigurður Gísli Pálmason Stofnandi Hrífanda, félags um náttúrumenningu Guðmundur Ingi Guðbrandsson Umhverfis- og auðlindaráðherra Rita Johansen World Heritage Coordinator Vega Archipelago World Heritage, Noregi Carol Ritchie Executive director EUROPARC Federation Dr. Miguel Clüsener-Godt Director, Ecological and Earth Sciences Man and the Biosphere, UNESCO Hvernig getur vernd umhverfisins stutt við blómlega búsetu? hrifandi.is S k o ð u n ∙ F R É T T A B L A ð i ð 11M i ð V i k u D A G u R 1 8 . A p R í L 2 0 1 8 1 8 -0 4 -2 0 1 8 0 4 :2 1 F B 0 4 8 s _ P 0 4 7 K .p 1 .p d f F B 0 4 8 s _ P 0 3 8 K .p 1 .p d f F B 0 4 8 s _ P 0 0 2 K .p 1 .p d f F B 0 4 8 s _ P 0 1 1 K .p 1 .p d f A u to m a tio n P la te re m a k e : 1 F 7 E -C D 7 0 1 F 7 E -C C 3 4 1 F 7 E -C A F 8 1 F 7 E -C 9 B C 2 7 5 X 4 0 0 .0 0 1 1 B F B 0 4 8 s _ 1 7 _ 4 _ 2 0 1 8 C M Y K

x

Fréttablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.