Fréttablaðið - 18.04.2018, Blaðsíða 44

Fréttablaðið - 18.04.2018, Blaðsíða 44
Þetta er vægast sagt stór-sýning því að við erum með alveg hundrað manns á sviði. Við erum með tólf dansara, þarna er tíu manna alveg geggjað „cast“, þetta er landsliðið í söng og leik – Gói, Örn Árna, Hera Björk, ég, Siggi Þór, Alma Rut, Sigga Eyrún og svo er Todmobile-bandið þarna auk sjötíu manna kórs og sjö bakradda … ég get lofað því að þetta verður bara algjör sprengja!“ segir Greta Salóme en hún stendur nú í stórræðum eins og venjulega og hendir upp sýningu byggðri á söngleiknum Moulin Rouge! í Eld- borgarsal Hörpu á laugardaginn. Eins og ráða má af orðum hennar er ekkert til sparað við uppsetninguna. Þarna verður áherslan á tónlistina og dansinn úr sýningunni, en ein- hverjar senur verða leiknar inni á milli. „Við ákváðum að fara í þetta í haust. Ég hafði samband við hana Björk Jakobsdóttur sem hafði sett þetta upp áður og hún var því búin að búa til svona beinagrind um það hvernig þetta ætti að vera. Við erum að taka öll lögin úr myndinni og leika senur inni á milli. Dans- og söngatriðin eru alveg ótrúleg, við erum búin að vera að æfa stíft í tvo mánuði og það er hver einasta hreyfing útpæld.“ Sinfóníuhljómsveit Norðurlands er líka búin að taka upp tónlist fyrir sýninguna sem verður spiluð á „play-back,“ þannig að það er ekkert verið að fara stystu leiðirnar, eins og Greta orðar það. „Það er verið að ganga svo miklu lengra en fólk býst við á tónleikum – enda er þetta svo miklu meira. Þetta er blanda af tónleikum, leikriti og svo bara „mega“ danssjói líka – bara tryllt sjónarspil: það er róla, það er eitthvert flug líka, það eru lyftur, s t j ö r n u l j ó s og bara allur p a k k i n n . Þetta verður a l g j ö r l e g a glæsilegt. Það sem ég hlakka mest til er að sjá gleðina í fólkinu því að það er búin að vera svo mikil gleði í hópnum við að æfa þetta. Þetta eru svo geggjuð lög og það er svo stutt á milli hláturs og gráts í þessari sögu – þetta snertir allan tilfinningaskalann: þarna eru mjög dramatískar ástarballöður eins og Roxanne, sem verður eitt svakaleg- asta atriði sem ég bara held að hafi verið sett á svið hér á landi, og svo algjör partílög eins og Rythm of the Night og Lady Marmalade.“ Sýningin verður sýnd í Eldborg á laugardaginn, þann 21. apríl, og svo ferðast öll strollan norður til Akureyrar þar sem allt heila klabbið verður sýnt þann 28. apríl. stefanthor@frettabladid.is Nokkur góð lög úr myNdiNNi 1. Nature Boy með David Bowie og Massive Attack 2. Because We Can með Fatboy Slim 3. Diamond Dogs með Beck 4. Children of the Revolution með Bono, Gavin Friday og Maurice Seezer 5. Lady Marmalade með Christina Aguilera, Lil Kim, Mya, og Pink miklu meira en bara tónleikar StaðreyNdir Aðalhlutverk: Gói, Eyþór Ingi, Greta Salóme, Sigurður Þór Óskarsson, Örn Árnason, Elmar Gilbertsson, Hera Björk, Sigríður Eyrún, Alma Rut og Heiða Ólafs. Tónlistarstjórn: Greta Salóme og Þorvaldur Bjarni Þorvaldsson. Um tónlistina sér Todmobile ásamt sönghópnum Harmoníu og Fílharmoníukórnum undir stjórn Magnúsar Ragnarssonar. Moulin Rouge! (2001) Kvikmynd með glymskratta-söngleiknum Moulin Rouge! kom út árið 2001 og var gífurlega vinsæl. Myndin var tilnefnd til átta Óskarsverðlauna, þar á meðal sem besta myndin og Nicole Kid- man var tilnefnd sem besta leik- konan. Myndin hlaut á endanum tvenn verðlaun, fyrir bestu listrænu stjórnunina og bestu búningahönnunina. Lögin í myndinni voru popplög frá ýmsum tímabilum en ekki lög sérstaklega samin fyrir Moulin Rouge! en það er einmitt það sem einkennir glymskratta-söngleiki. Greta segir gleðina í hópnum hafa verið alveg einstaka á æfingum og hlakkar hvað mest til að sjá hana líka á stóra sviðinu. FRéTTAblAðið/AnTon bRink Sýning byggð á hinum vinsæla söng- leik Moulin Rouge! verður sett upp í Eldborgarsal Hörpu á laugardaginn. Ekkert verður til sparað við uppsetninguna en þarna verða tæplega hundrað syngjandi og dansandi sálir á sviði. Það er verið að gaNga Svo miklu leNgra eN fólk býSt við á tóNleikum – eNda er Þetta Svo miklu meira: Þetta er blaNda af tóNleikum, leikriti og Svo bara „mega“ daNSSjói líka. Margir muna lík- lega hvað best eftir ofursmellinum lady Marmalade sem Christina Aguilera, lil kim, Mya og Pink tóku svo eftir- minni- lega í Mo- ulin Rouge! 1 8 . a p r í l 2 0 1 8 M I Ð V I K U D a G U r28 l í f I Ð ∙ f r É T T a B l a Ð I Ð Lífið 1 8 -0 4 -2 0 1 8 0 4 :2 1 F B 0 4 8 s _ P 0 4 4 K .p 1 .p d f F B 0 4 8 s _ P 0 4 1 K .p 1 .p d f F B 0 4 8 s _ P 0 0 5 K .p 1 .p d f F B 0 4 8 s _ P 0 0 8 K .p 1 .p d f A u to m a tio n P la te re m a k e : 1 F 7 E -F 0 0 0 1 F 7 E -E E C 4 1 F 7 E -E D 8 8 1 F 7 E -E C 4 C 2 7 5 X 4 0 0 .0 0 1 5 A F B 0 4 8 s _ 1 7 _ 4 _ 2 0 1 8 C M Y K

x

Fréttablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.