Fréttablaðið - 18.04.2018, Page 2

Fréttablaðið - 18.04.2018, Page 2
Veður Í dag snýst vindur til suðlægari áttar, víða verður strekkingur og heldur áfram að rigna á suðaustanverðu landinu. Þá þykknar líka upp vestan til en léttir til um landið norðan- og norðaustanvert. sjá síðu 22  Á sjóbretti við Geldinganes Við Íslendingar erum aðeins farnir að finna fyrir vori í lofti. Þá er ekki seinna vænna að fara að taka fram þau leikföng sem yfirleitt standa inni í geymslu eða skúr yfir háveturinn. Sjóbretti er eitt þeirra, en þessi maður lék sér á slíku bretti við Geldinganesið í gær. frettablaðið/anton brink Fótbolti „Snjóþungi og veðurfar hefur ekki verið að vinna með okkur eftir áramótin,“ segir Þorsteinn Haukur Harðarson, framkvæmda- stjóri Víkings Ólafsvík, en eins og sjá má á meðfylgjandi mynd standa nú yfir miklar framkvæmdir á Ólafs- víkurvelli. Stórtækar vinnuvélar eru þar að störfum við að undirbúa nýjan gervigrasvöll félagsins. Verkið er kapphlaup við tímann áður en leiktíðin í Inkasso-deildinni í knattspyrnu hefst í næsta mánuði, en fyrsti heimaleikur Víkings er sett- ur 12. maí næstkomandi. Þrátt fyrir að útlitið gefi til kynna að langur vegur sé frá því að völlurinn sé leik- hæfur eru Þorsteinn Haukur og Vík- ingar hans bjartsýnir á að það takist að ljúka verkinu fljótt og örugglega. Ef það klikkar hefur hann gert ráð- stafanir til að bregðast við því. „Þeir eru á fullu núna og reikna ég fastlega með að það verði hægt að fara að leggja grasið eftir kannski tíu daga. En til að hafa vaðið fyrir neðan okkur hef ég haft samband við forsvarsmenn HK, sem við eigum fyrsta heimaleik við, um að víxla heimaleikjum. Formaður HK tók vel í það að skipta og bíð ég bara staðfestingar á því.“ Gangi það eftir myndi félagið kaupa sér tíma til að ljúka fram- kvæmdum og yrði þá fyrsti leikur gegn Selfossi í byrjun júní, um sjó- mannadagshelgi. „Við eigum bara þennan eina heimaleik í maí samkvæmt skipu- laginu. Við byrjum þá bara á fjórum útileikjum og tökum svo á móti Sel- fyssingum, vonandi á fullum velli.“ Víkingar ákváðu í fyrra að skipta yfir í gervigrasvöll, en sem fyrr segir hafa vetrarhörkurnar tafið fram- kvæmdir. Þorsteinn Haukur segir Víkinga spennta fyrir gervigrasinu og að það geti reynst mikil bót fyrir félagið. „Við búum við það að liðið hefur mátt æfa á parketti frá september og fram í apríl yfir vetrartímann en við bindum vonir við að gervigrasið muni kannski lengja það tímabil sem við getum æft og spilað úti.“ mikael@frettabladid.is Í kapphlaupi við að gera völlinn leikhæfan Stórtækar vinnuvélar fylla nú Ólafsvíkurvöll þar sem leggja á gervigras fyrir komandi leiktíð. Veður hefur tafið framkvæmdir við völlinn. Veður hefur tafið fram- kvæmdir við nýjan gervigrasvöll í Ólafsvík. Víkingur Ólafsvík er í kapphlaupi við tímann um að koma vell- inum í stand fyrir fyrsta heimaleik tímabilsins. Framkvæmdastjórinn er bjartsýnn á að það takist en hefur gert ráð- stafanir fari svo að það gangi ekki eftir. Þeir eru á fullu núna og reikna ég fastlega með að það verði hægt að fara að leggja grasið eftir kannski tíu daga. Þorsteinn Haukur Harðarson, framkvæmdastjóri Víkings Ólafsvík Dómsmál Skattsvikamál sem ákæru- valdið höfðaði gegn Tryggva Jóns- syni, fyrrverandi forstjóra Baugs, og systkinunum Jóni Ásgeiri Jóhannes- syni og Kristínu Jóhannesdóttur verður endurupptekið. Þetta er nið- urstaða Endurupptökunefndar. Jón Ásgeir og Tryggvi voru sakfelldir fyrir meiriháttar brot á skattalögum og dæmdir til skilorðsbundinnar fang- elsisvistar og greiðslu sektar árið 2013. Áður, eða árið 2007, hafði yfirskattanefnd gert þeim að greiða sekt vegna sömu brota. Mannréttindadómstóll Evrópu komst svo að þeirri niðurstöðu í maí í fyrra að íslenska ríkið hefði brotið gegn rétti þeirra Jóns Ásgeirs og Tryggva. Var það niðurstaða dómstólsins að endur- u p p t ö k u b e i ð e n d u r hefðu verið saksóttir og refsað tvívegis vegna sömu eða efnislega sömu háttseminnar í tveimur aðskildum málum sem ekki tengdust með f u l l n æ g j a n d i hætti. Gestur Jóns- son, lögmaður þ e i r ra Jó n s Á s g e i r s o g Tryggva, segir að málið verði sent Hæstarétti Íslands á næstu dögum. – jhh Fallist á endurupptöku tryggvi Jónsson Gestur Jónsson hæsta- réttarlögmaður segir að málið verði sent Hæstarétti á næstu dögum. lögreglumál Eigendur tölvubún- aðar sem stolið var úr gagnaveri á Suðurnesjum fyrr á árinu heita áfram 6 milljónum íslenskra króna í fundarlaun þeim sem getur veitt áreiðanlegar upplýsingar um hvar búnaðinn er að finna. Samkvæmt upplýsingum frá lög- reglunni á Suður nesjum hefur frestur til að með ábendingar um búnaðinn verið framlengdur um tvær vikur, eða til 2. maí. Þeir sem búa yfir upp- lýsingum um málið eru hvattir til að hafa samband við lögregluna á Suðurnesjum í síma 832 0253 Fundarlaunin verða greidd þeim sem lögregluyfirvöld staðfesta að hafi fyrstur komið á framfæri ábend- ingu um hvar búnaðinn er að finna. Lögreglan heitir trúnaði við þá sem veita upplýsingar um málið. – jhh Tvær milljónir í fundarlaun 1 8 . a p r í l 2 0 1 8 m i ð V i K u D a g u r2 F r é t t i r ∙ F r é t t a b l a ð i ð 1 8 -0 4 -2 0 1 8 0 4 :2 1 F B 0 4 8 s _ P 0 4 7 K .p 1 .p d f F B 0 4 8 s _ P 0 3 8 K .p 1 .p d f F B 0 4 8 s _ P 0 0 2 K .p 1 .p d f F B 0 4 8 s _ P 0 1 1 K .p 1 .p d f A u to m a ti o n P la te r e m a k e : 1 F 7 E -C D 7 0 1 F 7 E -C C 3 4 1 F 7 E -C A F 8 1 F 7 E -C 9 B C 2 7 5 X 4 0 0 .0 0 1 1 B F B 0 4 8 s _ 1 7 _ 4 _ 2 0 1 8 C M Y K

x

Fréttablaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.