Fréttablaðið - 18.04.2018, Blaðsíða 4

Fréttablaðið - 18.04.2018, Blaðsíða 4
Vinur við veginn KOSAN SMELLUGAS Einfalt, fljótlegt og öruggt Heilbrigðismál Rúnar Vilhjálmsson, prófessor í félagsfræði við hjúkrunar- fræðideild Háskóla Íslands, segir ekkert víst að aðgerðir hjá einka- fyrirtækjum séu ódýrari en hjá hinu opinbera. Einnig skipti miklu máli að tryggja færni lækna hjá hinu opin- bera með lágmarksfjölda aðgerða. Heilbrigðisráðherra segir unnið að lausn á því vandamáli að sjúklingar séu fluttir til Svíþjóðar í aðgerðir. Fréttablaðið sagði frá því á mánu- dag að íslenskir sjúklingar gætu farið til Svíþjóðar í liðskiptaaðgerð þegar þeir hafa verið lengur en þrjá mán- uði á biðlista hér á landi. Aðgerðin í heild kostar íslenska skattborgara um þrjár milljónir króna. Hjálmar Þorsteinsson, framkvæmdastjóri Klín íkurinnar, segist geta framkvæmt þessar aðgerðir fyrir rétt rúma millj- ón eða um þriðjung af kostnaðinum við að senda sjúklinga til Svíþjóðar. „Þessi staða sem er uppi, að íslenska ríkið sendir sjúklinga til útlanda í aðgerðir sem hægt er að gera hér á landi, er óásættanleg. Og sérstaklega þar sem kostnaður fyrir hverja aðgerð er mjög mikill fyrir opinbera sjóði,“ segir Svandís. Unnið sé að því að finna lausn þar sem til haga er haldið þeim kröfum sem gerðar eru í íslensku heilbrigðis- kerfi um jafnan aðgang óháð efnahag og að sá komist að sem hafi brýnustu þörfina. Þetta er óásættanleg staða sem fjallað hefur verið um í Frétta- blaðinu síðustu daga,“ bætir hún við. Samkvæmt heimildum Frétta- blaðsins er ekki unnið að því innan ráðuneytisins að gera samning við Klíníkina um að gera aðgerðir hér á landi svo lausnirnar eru líkast til annars eðlis. Rúnar segir mikilvægt að horft sé til þess að skurðlæknar og skurð- hjúkrunarfræðingar þurfi ákveðinn fjölda aðgerða á ári til að viðhalda þekkingunni rétt eins og atvinnu- flugmenn þurfi ákveðinn fjölda flug- tíma til að viðhalda þekkingu sinni. Því sé ekki æskilegt að dreifa aðgerðum sem þessum á marga staði hér innanlands, einmitt af þeim sökum að skurðteymin, læknar og hjúkrunarfræðingar, þurfi ákveðinn fjölda aðgerða.“ sveinn@frettabladid.is Ráðherra segir óásættanlegt að þurfa að senda sjúklinga út Svandís Svavarsdóttir heilbrigðisráðherra segir óásættanlegt að verið sé að senda sjúklinga til útlanda. Pró- fessor í félagsfræði segir það geta haft slæmar afleiðingar að dreifa liðskiptaaðgerðum á marga aðila. Sér- fræðingar á þessu sviði þurfi að viðhalda þekkingu sinni. Hundruð manna bíða þess að komast í aðgerð. Samkvæmt heimildum Fréttablaðsins fels lausnin ekki í því að semja við Klíníkina í Ármúla um liðskiptaaðgerðir. Hnjáliðaskipti 777 aðgerðir í heild 470 aðgerðir á LSH 188 aðgerðir á Akureyri 86 aðgerðir á Akranesi 33 aðgerðir hjá Klíníkinni Í febrúar 2018 voru 709 á biðlista eftir gervilið í hné. Mjaðmaliðaskipti 802 aðgerðir í heild 513 aðgerðir á LSH 176 aðgerðir á Akureyri 84 aðgerðir á Akranesi 29 aðgerðir hjá Klíníkinni Í febrúar 2018 voru 385 á biðlista eftir gervilið í mjöðm. *Tölur frá 2017 Alþingi Guðmundi Sævari Sævars- syni, hjúkrunardeildarstjóra og vara- þingmanni Flokks fólksins, var vísað úr þingveislunni sem haldin var á Hótel Sögu á föstudagskvöld. Hann var mjög ölvaður og áreitti þingkonur og maka þingmanna með óviðeigandi strokum og snertingum. Samkvæmt lýsingum sjónarvotta hafði hann ítrekað áreitt konur í veislusalnum með mjög óviðeigandi hætti þar til þolinmæði veislugesta þraut og starfsmaður hótelsins var fenginn til að fylgja honum á dyr. Heimildir Fréttablaðsins herma að framkoma varaþingmannsins hafi valdið uppnámi, bæði innan flokks hans og annarra, og þingflokksfor- menn hafi rætt sín á milli um hvernig bregðast skuli við. – þþ Varaþingmanni vísað úr veislu bAndAríkin Rösklega átta þúsund kaffihúsum Starbucks-keðjunnar í Bandaríkjunum verður lokað síðdegis 29. maí. Á meðan verða starfsmenn fræddir um kynþátta- mismunun. Markmiðið er að koma í veg fyrir slíka mismunun á kaffi- húsum Starbucks. Nýlega þurfti Starbucks að biðjast afsökunar eftir að tveir þeldökkir karlmenn voru handteknir þegar þeir voru að bíða eftir vini sínum á Starbucks-kaffi- húsi í Fíladelfíu. Alls fá 175 þúsund starfsmenn þjálfun sem og allir starfsmenn sem ráða sig til starfa í framtíðinni. – jhh Starfsmenn læra um misrétti Starbucks tekur atvikinu í Fíladelfíu mjög alvarlega NordicPhoToS/GeTTy dÓmsmál Björgólfur Thor Björg- ólfsson viðskiptamaður var í Hér- aðsdómi Reykjavíkur í gær sýknaður af rétt rúmlega 600 milljóna króna skaðabótakröfu tveggja félaga sem Kristján Loftsson, oftast kenndur við Hval, er í forsvari fyrir. Félögin tvö, Fiskveiðihlutafélagið Venus annars vegar og Vogun hins vegar, töldu sig hafa orðið fyrir tjóni við hrun Landsbankans. Fyrr- greinda félagið krafðist tæpra 238 milljóna króna en hið síðarnefnda vildi 366 milljónir úr vasa Björgólfs. Krafan var til komin vegna hluta- bréfa sem urðu verðlaus með öllu við fall bankans þann 7. október árið 2008. Töldu félögin að eignar- haldsfélagið Samson hefði farið með meirihluta atkvæða á hluthafa- fundum Landsbankans og að bank- inn væri í raun dótturfélag Samson. Því hefði bankanum verið skylt að taka yfir hlutabréf félaganna. Það hafi ekki verið gert og því bæri Björgólfur ábyrgð á tjóninu. Sakarefni málsins var skipt og fyrir dómi nú var aðeins tekin til málflutnings sú vörn lögmanns Björgólfs að krafan væri niður fall- in sökum fyrningar. Í niðurstöðu dómsins var talið að um skaðabóta- kröfu utan samninga væri að ræða og miða bæri upphaf fyrningar- frests við þann dag er tjónið kom fram. Niðurstaða dómsins var sú að krafan myndi fyrnast á fjórum árum frá þeim degi er félögin fengu nauð- synlegar upplýsingar um tjónið. „Telja verður að upphaf fyrningar- frestsins sé sá dagur er bankahrunið varð. Þá hafi stefnandi vitað að hrunið myndi leiða til tjóns fyrir hann. Ætla má að það hafi ekki tekið stefnanda langa yfirlegu að gera sér grein fyrir því hver að hans mati bæri ábyrgð á ætluðu tjóni hans,“ segir í dómnum. Krafan tald- ist því fyrnd. Félögin voru dæmd til að greiða Björgólfi hálfa milljón hvort í máls- kostnað. – jóe Björgólfur Thor sýknaður af 600 milljóna skaðabótakröfu Björgólfur Thor Björgólfsson. FrÉTTABLAÐiÐ/ViLheLM 1 8 . A p r í l 2 0 1 8 m i ð V i k U d A g U r4 f r é t t i r ∙ f r é t t A b l A ð i ð 1 8 -0 4 -2 0 1 8 0 4 :2 1 F B 0 4 8 s _ P 0 4 5 K .p 1 .p d f F B 0 4 8 s _ P 0 4 0 K .p 1 .p d f F B 0 4 8 s _ P 0 0 4 K .p 1 .p d f F B 0 4 8 s _ P 0 0 9 K .p 1 .p d f A u to m a ti o n P la te r e m a k e : 1 F 7 E -E 1 3 0 1 F 7 E -D F F 4 1 F 7 E -D E B 8 1 F 7 E -D D 7 C 2 7 5 X 4 0 0 .0 0 1 3 B F B 0 4 8 s _ 1 7 _ 4 _ 2 0 1 8 C M Y K

x

Fréttablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.