Fréttablaðið - 18.04.2018, Blaðsíða 24
Uppskeruhátíð Barnamenn-ingarhátíðar í Kópavogi verður haldin laugardaginn
21. apríl en þá verður dagskrá í
öllum Menningarhúsum bæjarins
þar sem fjölskyldum er gefið færi
á að upplifa það sem grunnskóla-
börn hafa unnið að í smiðjum
hátíðarinnar undanfarna viku.
Verk barna sem unnin voru í
smiðjum hátíðarinnar verða til
sýnis í Gerðarsafni og Náttúru-
fræðistofu Kópavogs en ein þeirra
er kórónuleirsmiðjan Valdhafar.
Það eru listakonurnar Elín Anna
Þórisdóttir og Guðrún Jóna Hall-
dórsdóttir sem stýra henni en þær
eru nemar í listkennslu við Lista-
háskóla Íslands.
Táknrænt gildi
Kórónuleirsmiðjan snýst um
kórónugerð og er í raun fyrir alla
aldurshópa, segir Elín. „Þó miðum
við undirbúning og kveikjur fyrir
þann hóp sem við vinnum með
hverju sinni. Markmiðið með
smiðjunum núna er að fjölskyldur
kynnist Náttúrufræðistofunni
og noti það sem innblástur að
listaverki, geri völdu náttúrufyrir-
bæri hátt undir höfði og taki þátt í
sýningu í kjölfarið. Einnig vonumst
við til að þátttakendur íhugi sam-
band sitt við náttúruna, uppgötvi
hversu merkileg undur veraldar
eru og það að við mennirnir erum
aðeins hluti af stórri heild. Við
erum sannfærðar um að leirinn
glæðir hamingju og sköpun hjá
þeim sem gefur sér tíma í að upp-
lifa efnið og sjá möguleikana sem
útkoman gefur.“
Guðrún segir þær báðar hafa
íhugað hvað standi að baki
kórónunni en hún hefur verið tákn
valds í gegnum tíðina. „Kórónan er
táknrænt gildi sem setur valdið á
höfuð eins aðila. Að krýna náttúru-
fyrirbæri er kannski valdatilfærsla
á huglægan hátt.“
Ótrúlega skemmtilegt
Aðspurðar hvernig það hafi komið
til að þær voru beðnar um að
standa fyrir slíkri smiðju segir Elín
að lokaverkefni hennar hafi byggt
á kórónuleirsmiðjum sem hún hélt
í Náttúrustofu með eldri borgurum
frá Gjábakka og leikskólabörnum
frá Undralandi. „Sýning á þeim
verkum verður opnuð í Náttúru-
stofu þann 26. maí. við höfum svo
tekið að okkur kennslu saman á
fleiri stöðum og verið með lista-
smiðjur með fólki á öllum aldri.
Smiðjurnar komu vel út og við
vorum beðnar um að taka að
okkur smiðjur fyrir grunnskóla-
börn í Kópavogi og fjölskyldu-
smiðju í kjölfarið svo fleiri gætu
notið þess að leira.“
Þær hafa áður tekið þátt í sam-
Fallegar leirkór-
ónur að fæðast.
Teiknismiðjur í Gerðarsafni fyrir 4.-6. bekk standa yfir alla vikuna.
Ólöf Breiðfjörð er verkefnastjóri fræðslu- og kynningar-
mála hjá Menningarhúsunum í Kópavogi.
Fólk er kynningarblað sem býður auglýsendum
að kynna vörur og þjónustu í formi viðtala og um-
fjallana. Í blaðinu er einnig hefðbundið ritstjórnar-
efni. Blaðið fylgir Fréttablaðinu daglega.
Umsjónarmenn efnis: Elín Albertsdóttir, elin@frettabladid.is, s. 512 5349 | Ragnheiður Tryggvadóttir,
heida@frettabladid.is, s. 512 5367 | Oddur Freyr Þorsteinsson, oddurfreyr@frettabladid.is, s. 512 5368
| Sigríður Inga Sigurðardóttir, sigriduringa@frettabladid.is, s. 512 5372 | Starri Freyr Jónsson, starri@
frettabladid.is, s. 512 5358 | Þórdís Lilja Gunnarsdóttir, thordisg@frettabladid.is s. 512 5338
Útgefandi:
365 miðlar
Ábyrgðarmaður:
Elmar Hallgríms Hallgrímsson
Sölumenn: Atli Bergmann, atli@frettabladid.is, s. 512 5457 | Jón Ívar Vil-
helmsson, jonivar@frettabladid.is, s. 512 5429 | Ólafur H. Hákonarson,
olafurh@frettabladid.is, s. 512 5433 |
Við hjá Menningar-
húsum hlökkum til
að taka á móti fjölskyld-
um á laugardaginn og
ljúka þannig vel heppn-
aðri hátíð.
Ólöf Breiðfjörð
og persónulega listræna tjáningu,
auka hæfni til að takast á við verk-
efni á skapandi hátt og nýta tæki-
færið til að láta rödd sína heyrast.“
Fjölskyldusmiðjan í tengslum
við leirsmiðjuna verður haldin
milli kl. 14 og 16 á laugardaginn í
Náttúrufræðistofu Kópavogs.
Fjölbreytt dagskrá
Að sögn Ólafar Breiðfjörð, verk-
efnastjóra fræðslu- og kynningar-
mála hjá Menningarhúsunum
í Kópavogi, verður dagskráin á
laugardaginn fjölbreytt og ættu
allir að finna eitthvað við sitt
hæfi. „Dagskráin hefst í Linda-
safni kl. 11.30 með smiðju sem
nefnist Japanskar dúkkulísur og
grímur en það er myndlistar-
maðurinn Ingibjörg Huld sem
leiðir smiðjuna. Þá hefst dagskrá
í aðalsafni Bókasafns Kópavogs
sem er hluti af Menningarhús-
unum kl. 12 en þá er hægt að læra
að skrifa arabískt, rússneskt og
pólskt letur.“
Í Gerðarsafni verður boðið upp
á hreyfi-teiknismiðju sem sló í
gegn meðal nemenda í 4. til 6.
bekk í vikunni í umsjón lista-
kvennanna Eddu Mac og Hrafn-
hildar Gissurardóttur. Smiðjan fer
fram í sýningarsal Gerðarsafns og
í takt við tónlist teikna þátttak-
endur á risastórar pappírsarkir
sem síðan mynda stórt listaverk í
sýningarsalnum. „Auk þess verður
marokkósk stemning í Stúdíói
Gerðar frá kl. 15 en boðið verður
upp á te og hennatattú sem ég er
sérstaklega spennt fyrir og sérlega
gaman að vera í samstarfi við félag
kvenna frá Marokkó,“ segir Ólöf.
Í Salnum verður einnig boðið
upp á skemmtilega viðburði.
„Barnaóperan Gilitrutt eftir
Hildigunni Rúnarsdóttur verður
sýnd kl. 16 en sagan er færð til
nútímans þar sem Gilitrutt er m.a.
komin með snjallsíma. Raftón-
listarmenn framtíðar úr Kársnes-
skóla mæta svo í hús kl. 17 og sýna
gestum afrakstur námskeiðs sem
bæjarlistamaðurinn Sigtryggur
Baldursson stóð fyrir ásamt
tónlistarmönnunum Unnsteini
Manuel og Hildi Kristínu.“
Hún segir hafa verið frábært að
fylgjast með smiðjum í Menn-
ingarhúsunum þar sem húsin
hafa fyllst af kátum grunnskóla-
nemum. „Í gær var Salurinn þar að
auki fullur í tvígang en leikskóla-
krakkar fengu að njóta þess að
hlusta og horfa á Gilitrutt. Í dag og
á föstudag halda svo smiðjurnar
áfram en við hjá Menningar-
húsum hlökkum til að taka á móti
fjölskyldum á laugardaginn og
ljúka þannig vel heppnaðri hátíð.“
Dagskrána og nánari tímasetningar
má finna á kopavogur.is.
bærilegum hátíðum og segja þær
ótrúlega skemmtilegar enda séu
börn svo áhugasöm og skapandi.
„Þarna fá þau margbreytileg tæki-
færi til að víkka sjóndeildarhring-
inn gegnum sjónræna skynjun
Skipholti 29b • Sími 551 4422 • www.laxdal.is
S Í G I L D K Á P U B Ú Ð
GERRY WEBER TILBOÐSDAGAR
30% AFSLÁTTURw
(af völdum stöndum)
2 KYNNINGARBLAÐ FÓLK 1 8 . A p R Í L 2 0 1 8 M I ÐV I KU DAG U R
1
8
-0
4
-2
0
1
8
0
4
:2
1
F
B
0
4
8
s
_
P
0
3
6
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
4
8
s
_
P
0
2
5
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
4
8
s
_
P
0
1
3
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
4
8
s
_
P
0
2
4
K
.p
1
.p
d
f
A
u
to
m
a
ti
o
n
P
la
te
r
e
m
a
k
e
:
1
F
7
E
-D
2
6
0
1
F
7
E
-D
1
2
4
1
F
7
E
-C
F
E
8
1
F
7
E
-C
E
A
C
2
7
5
X
4
0
0
.0
0
1
2
A
F
B
0
4
8
s
_
1
7
_
4
_
2
0
1
8
C
M
Y
K