Fréttablaðið - 28.04.2018, Blaðsíða 10
Auglýsing um kosningu
vígslubiskups í Skálholti
Síðari umferð kosningar til vígslubiskups í Skálholti er hafin, en um
er að ræða póstkosningu sem fer fram á grundvelli starfsreglna um
kosningu biskups Íslands og vígslubiskupa nr. 333/2017.
Eftirtaldir eru í kjöri:
Séra Eiríkur Jóhannsson,
Séra Kristján Björnsson.
Vegna mistaka sem urðu hjá Íslandspósti við útsendingu kjörgagna
hefur kjörstjórn ákveðið að framlengja áður ákveðin frest sem
kjósendur hafa til að skila atkvæði sínu til mánudagsins 14. maí 2018.
Kjósandi getur hvort sem er lagt sendiumslag með atkvæði sínu í póst
eigi síðar en 14. maí nk. eða afhent það á biskupsstofu fyrir kl. 16:00
sama dag.
Allar nánari upplýsingar eru á vefsíðunni kirkjan.is
Reykjavík, 27. apríl 2018
f.h. kjörstjórnar þjóðkirkjunnar
Hjördís Stefánsdóttir, formaður.
OPINN FUNDUR - ALLIR VELKOMNIR
Opinn fundur ÖBÍ með framboðum til sveitarstjórnarkosninga.
Hver er réttur fatlaðs fólks í sveitarfélaginu?
Hverjar eru áherslur framboðanna varðandi:
Búsetu, atvinnu, NPA, skólamál, frístund, aðgengi, ferðaþjónustu o.s.frv.
DAGSKRÁ
-Áherslur og stefnumál ÖBÍ: Þuríður Harpa Sigurðardóttir, formaður Öryrkjabandalags Íslands
-Kynning á Samningi Sameinuðu þjóðanna um réttindi fatlaðs fólks: Árni Múli Jónasson, Þroskahjálp
-Niðurstöður Gallup: Halldór Sævar Guðbergsson varaformaður ÖBÍ
-Frambjóðendur kynna sig og sínar áherslur
-Pallborðsumræður / Spurningar úr sal
Fundarstjóri: Þröstur Emilsson, ADHD samtökunum
- EKKERT UM OKKUR ÁN OKKAR!
Réttur fatlaðs fólks í sveitarfélögum
REYKJAVÍK Tjarnarsalnum, Ráðhúsinu Reykjavík fimmtudaginn 3. maí kl. 10-12
Orkustofnun - Grensásvegi 9 - 108 Reykjavík - Sími 569-6000 - www.os.is
Samgönguhjólreiðar
- þróun og menning
Fyrirlestur um samgönguhjólreiðar á Orkustofnun,
mánudaginn 30. apríl kl. 12:00-13:00.
Sesselja Traustadóttir frá Hjólafærni á Íslandi kemur og talar
um þróun síðustu ára og horfir með okkur til framtíðar.
Einnig fjallar hún um öryggi hjólandi, hjólafærni, samvinnu
í umferð, hjólaleiðir, hjólamenningu, aðbúnað fyrir hjól og
ánægjuna sem fylgir fjölbreyttum samgöngum.
Fyrirlesturinn verður haldinn í Orkugarði, Grensásvegi 9,
á vegum Orkustofnunar, í samstarfi við Grænu orkuna -
samstarfsvettvang um orkuskipti.
Salurinn opnar kl. 12:00 og verður boðið upp á léttar veitingar
í upphafi fundar. Fyrirlesturinn hefst kl. 12:15 og verður góður
tími til umræðna að honum loknum.
Við biðjum fólk um að skrá sig á fundinn os.is
Kórea Kim Jong-un, einræðisherra
Norður-Kóreu, steig yfir landa-
mærin og til Suður-Kóreu í gær og
átti fund með Moon Jae-in, forseta
Suður-Kóreu, í Friðarhúsi landa-
mæraþorpsins Panmunjom. Í sam-
eiginlegri yfirlýsingu leiðtoganna
hétu þeir því meðal annars að vinna
að afkjarnorkuvæðingu skagans.
Þetta var fyrsti leiðtogafundur
ríkjanna tveggja frá því 2007 en
þá, sem og árið 2000, funduðu leið-
togarnir í Pjongjang. Í þá daga var
svokölluð sólskinsstefna höfð að
leiðarljósi í Suður-Kóreu, stefna sem
miðaði að bættum samskiptum við
einræðisríkið, og má segja að hún sé
nú snúin aftur eftir tíu ára fjarveru.
Afrakstur þeirra funda var hins
vegar lítill. Á sameiginlegum blaða-
mannafundi leiðtoganna sagði Kim
þá hafa sammælst um að vinna að
því að „hin óheppilega saga, þar
sem árangur fjaraði út, endurtaki sig
ekki“. „Það gæti komið bakslag. Við
gætum lent í erfiðleikum og pirringi.
En það er aldrei hægt að ná fram
sigri án sársauka,“ sagði Kim.
Hvorki voru gerðir samningar né
sáttmálar í viðræðum gærdagsins,
enda þær frekar hugsaðar sem fyrsta
stóra skrefið í átt að bættum sam-
skiptum á Kóreuskaga. Eftirtektar-
verðar greinar yfirlýsingarinnar eru
þó fjölmargar, þótt ekkert hafi verið
um útskýringar á útfærslum loforða.
„Leiðtogarnir tveir lýsa því yfir,
fyrir framan heimsbyggðina alla, að
stríðinu á Kóreuskaga muni ljúka.
Nú tekur við nýtt tímabil friðar,“
sagði í inngangi yfirlýsingarinnar.
Var því heitið að ráðast í annað-
hvort þríhliða viðræður, með
Bandaríkjunum, eða fjórhliða, með
Kína þar að auki, til þess að semja
endanlega um frið. Við lok Kóreu-
stríðsins árið 1953 var það ekki gert,
þá var samið um vopnahlé.
„Suður- og Norður-Kórea stað-
festa sameiginlegt markmið sitt
um kjarnorkulausan Kóreuskaga.
Ríkin eru sammála um að skrefin
sem Norður-Kórea hefur stigið séu
þýðingarmikil fyrir afkjarnorku-
væðingarferlið,“ sagði enn fremur.
Hinn skyndilegi vilji Kim til að
losa sig við kjarnorkuvopn sín, sem
miklum fjármunum og tíma hefur
verið varið í að þróa, hefur komið
heimsbyggðinni í opna skjöldu. Enn
er þó ekkert ljóst í þessum efnum
og ber að minna á að Norður-Kórea
hefur áður gefið sams konar loforð,
þó ekki með jafn afgerandi hætti.
Þá komust mörg önnur smærri
mál inn á borð leiðtoganna. Ætla
ríkin að halda áfram að taka saman
þátt á íþróttaleikum, sameina
aðskildar fjölskyldur og bæta sam-
göngur yfir landamærin.
Ljóst er að stórt skref hefur verið
stigið í átt að friði á Kóreuskaga. Fjöl-
mörg önnur skref eru fram undan.
Viðræður sendinefnda ríkjanna
tveggja, fundur Kim með Donald
Trump Bandaríkjaforseta í sumar og
svo mun Moon ferðast til Pjongjang
í haust. thorgnyr@frettabladid.is
Stórt skref í átt að friði
Allra augu voru á leiðtogum Norður- og Suður-Kóreu er þeir funduðu í gær.
Fundurinn þykir vel heppnaður. Kóreustríðið senn á enda eftir 65 ára vopnahlé.
Vel fór á með Kim og Moon sem féllust í faðma í gær. Nordicphotos/AFp
Létt yfir fundinum
Létt andrúmsloft var yfir leið-
togaviðræðunum. Þetta sást strax
þegar Kim átti að ganga yfir landa-
mærin. Moon spurði Kim hvenær
hann fengi að koma norður. „Hvað
með að gera það bara núna?“
spurði Kim og leiddi Moon skref
til baka yfir landamærin.
Athygli vakti þegar Moon lýsti
yfir áhuga sínum á að skoða hið
helga Paektu-fjall í norðri. Kom þá
Kim með óvænta viðurkenningu:
„Mér finnst nokkuð vandræðalegt
hversu lélegir samgönguinnviðir
okkar eru.“
Kaldar núðlur frá Norður-Kóreu,
stálu svo senunni. „Ég hef verið að
skoða fréttirnar og fólk er mikið
að tala um mat. Þannig að ég kom
með kaldar núðlur frá Pjongjang
svo Moon forseti geti notið þeirra.
Endilega, herra Moon, fáðu þér af
þessum gómsætu núðlum.“
2 8 . a p r í l 2 0 1 8 l a U G a r D a G U r10 f r é t t i r ∙ f r é t t a B l a ð i ð
2
8
-0
4
-2
0
1
8
0
0
:2
4
F
B
1
2
0
s
_
P
1
1
4
K
.p
1
.p
d
f
F
B
1
2
0
s
_
P
1
1
1
K
.p
1
.p
d
f
F
B
1
2
0
s
_
P
0
0
7
K
.p
1
.p
d
f
F
B
1
2
0
s
_
P
0
1
0
K
.p
1
.p
d
f
A
u
to
m
a
ti
o
n
P
la
te
r
e
m
a
k
e
:
1
F
9
F
-A
F
E
0
1
F
9
F
-A
E
A
4
1
F
9
F
-A
D
6
8
1
F
9
F
-A
C
2
C
2
7
5
X
4
0
0
.0
0
1
7
A
F
B
1
2
0
s
_
2
7
_
4
_
2
0
1
8
C
M
Y
K