Fréttablaðið - 28.04.2018, Page 26

Fréttablaðið - 28.04.2018, Page 26
keip og líta á alla sem gagnrýndu mig sem óvini og forherðast í afstöðu minni. Á þessum tíma var ég ekki búinn að öðlast nógu mikla reynslu og sýn á borgarmálin. Varðandi borgarskipu- lag þá var ég kominn með margar grunnhugmyndir mínar, eins og að það ætti að byggja í Vatnsmýri sem er langstærsta hagsmunamálið fyrir Reykjavík, til dæmis margfalt stærra en það hvort við erum inni í ESB eða ekki. Ég var þá á þeirri skoðun að ekki ætti að byggja í Úlfarsfelli heldur frekar meðfram ströndinni og hef alveg haldið mig við það. Ég talaði frá byrjun fyrir öðrum sam- göngum en einkabílnum, en ég vildi mislæg gatnamót sem ég sá sem stór- kostlegt verkfræðiundur, og hugsaði of lítið um nærumhverfið. Það sama á við um alls konar hluti í sambandi við umhverfismál, þéttingu byggðar og úthverfi sem ég síðar meir, með reynslu og menntun, öðlaðist betri sýn á. Ég held að það hefði verið krefjandi að ætla að læra þá hluti alla sitjandi í borgarstjórastól. Ég fór í skemmtilegt embætti sem formaður umhverfis- og samgöngu- ráðs sem eru akkúrat þau mál sem hafa átt hug minn síðan. Ég lærði mikið þar, las allar skýrslur. Ég fór í mastersnám í borgarfræðum og síðan tók ég líka eitt ár í Harvard við að rannsaka borgir. Það og að vera borgarfulltrúi í tíu ár opnaði mér nýjar víddir í þessum málum. Ég ein- faldlega breytti um skoðun þar sem ég sá að ég hafði verið að fara villur vegar.“ Hafa pólitískar skoðanir þínar þá gjörbreyst í gegnum árin? „Það er ekki eins og það hafi orðið kúvending í lífssýn minni. Ég trúi til dæmis mjög á einstaklinginn og ein- staklingsframtakið. Ég trúi ekki á mikla forræðishyggju. Það má kalla mig frjálshyggjumann út frá því. Ég er samt sem áður líka með sterkar félagslegar áherslur. Þetta samfélag sem Reykjavíkurborg er á að horfa til þeirra sem hafa það verst en ekki trufla þá sem vilja sækja fram.“ Barinn með landsfundar­ ályktunum Það er ekki hægt að neita því að þú varðst fyrir gagnrýni frá eigin flokks- mönnum vegna skoðana þinna, til dæmis þeirrar skoðunar að flug- völlurinn ætti að fara úr Vatnsmýri. Varstu of sjálfstæður fyrir flokkinn? „Ég hef alltaf litið þannig á að borgarbúar feli fulltrúum sínum í borgarstjórn að reka borgina á sem skynsamlegastan hátt í þau fjögur ár sem þau sitja í embætti. Borgarfull- trúarnir eiga ekki að vera neinum bundnir nema sannfæringu sinni um það hvernig best er að hafa þessa borg, allt frá göngustígum yfir í leik- skóla og grunnskóla yfir í velferðar- málin og umsjón með elsta fólkinu okkar. Margir sem starfa inni í flokk- unum líta ekki á það þannig heldur líta svo á að borgarfulltrúarnir séu fulltrúar flokkanna. Nokkrir ein- staklingar innan hverfafélaganna og annars staðar vildu stöðugt berja mig til hlýðni með landsfundar- ályktunum Sjálfstæðisflokksins og sögðu að ég yrði að fara eftir þeim en ekki eigin sannfæringu, til dæmis varðandi það að flugvöllurinn ætti að vera áfram í Vatnsmýrinni. Hvað eftir annað benti ég þeim á að það væri beinlínis tekið fram í stjórnar- skránni að kjörnir fulltrúar mættu ekki fylgja neinum reglum frá kjós- endum sínum, einungis fylgja eigin sannfæringu, sem í mínu tilviki lá mjög skýrt fyrir þegar ég var kosinn í prófkjörum og kosningum. Það er mjög vont fyrir stjórnmálin ef menn upplifa sig sem slíka flokks- hesta að þeir greiði atkvæði eins og hverfafélög eða landsfundir skipa þeim að gera. Mín reynsla er sú að inni í hverfafélögum, bæði í Sjálf- stæðisflokknum og öðrum flokkum, séu mestu öfgaskoðanirnar. Þessi hópur er ekki í mjög góðum tengsl- um við hinn almenna borgara sem er yfirleitt frekar öfgalaus og skynsöm persóna. Ég get tekið sem dæmi að í hverfafélögum Sjálfstæðisflokksins var mikil andstaða við moskuna en við, kjörnu fulltrúarnir, neituðum flest að láta þá andstöðu breyta skoð- unum okkar. Það á að gera þá kröfu á kjörna fulltrúa að þeir fylgi eigin sannfæringu.“ Að gera hið rétta Hvernig líst þér á lista Sjálfstæðis- flokksins í borginni? „Ég hef borið mig sérstaklega eftir því að hlusta á skoðanir þeirra sem eru á listanum og þar eru margir einstaklingar með skoðanir sem mér finnst vera góðar og til heilla fyrir borgina. Ég get nefnt Hildi Björnsdóttur sem er í öðru sæti, sem hefur frjálslyndar og framsýnar hug- myndir um Reykjavík að mínu mati. En fingraför þess hóps sem Dagur B. Eggertsson kallaði Morgunblaðsarm Sjálfstæðisflokksins eru mjög sterk á þessum lista. Það er erfitt að tala um listann sem eina heild því ég held að það séu býsna ólíkar skoðanir innan hans.“ Finnst þér Dagur B. Eggertsson hafa staðið sig vel sem borgarstjóri? „Já, ég tel að síðustu þrír borgar- stjórar í Reykjavík hafi verið mjög góðir, Dagur, Jón Gnarr og Hanna Birna. Betri en þeir sem á undan voru. Þau koma úr þremur ólíkum flokkum en settu öll borgina í fyrsta sæti og borgin hefur þróast í rétta átt á þessum tíma, þótt ég myndi reyndar vilja sjá stórstígari framfarir. Mér finnst Dagur hafa verið sjálfum sér líkur. Hann hefur verið duglegur og ég held að hann hafi gert vel í því að halda þessari sam- steypustjórn í borginni saman. Það var meiri glundroði hjá okkur Sjálf- stæðismönnum og Framsóknar- mönnum árið 2007 heldur en hjá þessum fjórum flokkum sem nú eru í meirihluta í borginni. Þau hafa að sumu leyti afsannað glundroðakenn- inguna gömlu. Stóri árangurinn fannst mér hins vegar nást á síðasta kjörtímabili, undir stjórn Jóns Gnarr, þegar sam- þykkt var nýtt aðalskipulag Reykja- víkur, sem ég held að sé merkileg- asta aðalskipulag sem hefur verið samþykkt í Reykjavík síðan 1927. Ég vann að þessu aðalskipulagi og er mjög stoltur af því. Þessi meiri- hluti hefur unnið vel samkvæmt því aðalskipulagi, eins og vera ber, enda á aðalskipulagið að vera eins konar stjórnarskrá og leiðarljós til lengri tíma.“ Hvernig finnst þér meirihlutinn í borginni hafa staðið sig í málum sem þú lætur þig varða? „Flest það sem ógnvaldurinn Holu- Hjálmar er gagnrýndur fyrir er ég mjög ánægður með. Ég hef beinlínis kallað eftir „aðförinni gegn einka- bílnum“ eins og andstæðingar henn- ar kalla nauðsynlegar breytingar á borginni. Ég vil meira rými fyrir gang- andi og hjólandi og betri almenn- ingssamgöngur. Bíllinn mun áfram eiga sitt pláss þótt hann verði ekki einráður eins og hingað til. Mér finnst hlægileg þessi hystería í sumum bíla- eigendum um að þeir séu einhvers konar ofsóttur minnihlutahópur. Helmingur borgarlands fer undir bíla og borgin hefur algjörlega verið skipulögð fyrir þeirra hagsmuni. Í áratugi hefur verið aðför að öllum öðrum ferðamátum en einkabílnum. Það er kominn tími til að snúa því við. Þeir sem fara sinna ferða öðru- vísi en á bílum eru í stórhættu vegna bílanna og anda að sér stórmenguðu lofti. 80 manns deyja á ári af völdum loftmengunar í Reykjavík, sem er töl- fræði sem menn virðast ekki með- taka. Ef 80 manns myndu deyja af einhverjum öðrum orsökum þá væri hér allt á hvolfi við að laga það, en enginn gerir neitt róttækt í málinu. Fólk skrifar bara skýrslur um það hvað á að gera árið 2030. Í erlendum borgum er alls staðar verið að taka risaskref við að þrengja að bílnum til að opna svæði fyrir gangandi og bæta loftgæði. Hér hafa því miður bara verið tekin hænuskref. Ég gagnrýni meirihlutann mjög fyrir linkind í málum þar sem hann er einmitt harkalega gagnrýndur fyrir að vera allt of öfgafullur. Þegar ég hitti borgarfulltrúa meirihlutans „Það er ótrúlega gott að finna frelsið sem fylgir því að geta sagt nákvæmlega það sem manni finnst um alla hluti,“ segir Gísli Marteinn. FréttA- BlAðið/SteFán Það er lykilatriði að menn taki euro- vision ekki of alvar- lega. um leið og menn taka keppnina of alvar- lega Þá er hún dauð. á förnum vegi segja þau: Þú sérð hvernig bílaeigendur sækja að okkur úr öllum áttum og svo ert þú að biðja okkur um að vera enn harðari gagn- vart þeim. Ég segi: Já, vegna þess að það er hið rétta. Í stjórnmálum eiga menn að gera hið rétta. Það var það sem var svo gott við Besta flokkinn sem starfaði í eitt kjörtímabil og lagði sig svo niður. Hann þurfti ekk- ert að hugsa um endurkjör, heldur gat bara fylgt hjartanu.“ Hafnaði sæti á lista Þú hefur gríðarlegan áhuga á borgar- málum. Var einhver flokkur sem bauð þér sæti á lista sínum fyrir borgar- stjórnarkosningarnar? „Ég get ekki neitað því. Fleiri en einn flokkur orðaði það við mig hvort ég vildi taka sæti á lista en ég sagði strax nei. Ég stóðst meira að segja freistinguna að láta ganga á eftir mér.“ Viltu segja mér nöfn á þessum flokkum? „Nei, ég virði trúnað.“ Finnst þér líklegt að þú eigir eftir að fara aftur út í pólitík? „Mér finnst það langt frá því óhugsandi. Ég er alveg spenntur fyrir því en er þó ekkert að stefna að því. Borgarstjórn yrði þá fyrir valinu vegna þess að þau mál brenna á mér. Ég fann enga knýjandi þörf hjá mér að þessu sinni. Mér líður mjög vel á RÚV og þar finnst mér að ég sé í hinu fullkomna starfi. Í frítíma mínum er ég að stússast í áhugamálum mínum. Ég var ekki tilbúinn að fórna öllu þessu til að fara í borgarstjórn, eins frábært starf og það er. Því fer hins vegar fjarri að ég sé búinn að missa áhugann á borgarmálum, ég er allan daginn að hugsa um þau. Ég er samt ekki viss um að ég myndi rekast vel í flokki. Ég hef mjög ákveðnar skoðanir á borgarmál- unum og hætti í stjórnmálum af því ég var ekki nógu góður hrossakaupa- maður. Ég vildi ekki gefa afslátt og segja: Þú færð þessi mislægu gatna- mót ef ég fæ þennan hjólastíg. Ég er bara á móti mislægum gatnamótum, alveg sama hvað ég fæ í staðinn! Eins og ég sagði við formann eins flokks sem vildi fá mig á lista fyrir þessar borgarstjórnarkosningar: Daginn eftir að ég segi já kem ég í fjölmiðla og segi eitthvað róttækt sem gerir allt vitlaust og þá hringir þú og segir við mig: Þú verður að tóna þetta aðeins niður. En ég er bara ekki til í að tóna neitt niður.“ Ertu enn þá Sjálfstæðismaður? „Ég er ekki í flokknum. Ég skráði mig úr honum þegar ég byrjaði í sjónvarpinu. Mér fannst það sjálf- sagt.“ Ætlarðu að kjósa Sjálfstæðisflokk- inn í borgarstjórnarkosningunum? „Ég ætla að bera fyrir mig hlut- leysisreglu fjölmiðlafólks og ekki segja þér hvað ég kýs.“ En það er ekki öruggt að þú kjósir Sjálfstæðisflokkinn? „Það er alls ekkert öruggt.“ ekki eurovision­nörd Föstudagsþáttur Gísla hefur kvatt í bili en mun væntanlega snúa aftur á skjá landsmanna í haust. Næsta verkefni Gísla Marteins er að vera kynnir í Eurovision-keppninni í Portúgal. Eftir það tekur við frí með fjölskyldunni, eiginkonunni Völu Káradóttur og dætrum þeirra Elísa- betu Unni og Vigdísi Freyju. „Fyrir tíu árum fórum við fjölskyldan í hjólreiðaferð um Búrgundarhérað í Frakklandi og ákváðum þá að endur- taka leikinn eftir áratug. Nú í sumar förum við á sömu slóðir.“ Spurður hvort hann sé mikill fjölskyldumaður segir hann svo vera: „Við búum í 100 fermetra íbúð þannig að stelpurnar þurfa mikið að vera inni í stofu með okkur. Við fjögur erum góð eining.“ Vert er að nefna hundinn Tinna sem er órjúfanlegur hluti af fjöl- skyldunni og vitanlega nefndur í höf- uðið á hinum eina sanna Tinna sem er æskuhetja Gísla Marteins. „Ég hef alltaf verið mikill Tinna-aðdáandi og eins og fleiri krakkar sem lásu Tinna hef ég kannski séð mig að einhverju leyti í honum,“ segir Gísli Marteinn sem fyrr á þessu ári gerði vinsæla útvarpsþætti um þessa hetju sína. Um þessa helgi flýgur Gísli Mar- teinn til Portúgal vegna Euro- vision-söngvakeppninnar. Þegar blaðamaður kallar Gísla Martein Eurovision-nörd segir hann stað- reyndina vera þá að það sé hann alls ekki. „Árið 1999 varð úr að ég færi með til Jerúsalem að kynna keppn- ina og þá varð Selma Björnsdóttir í öðru sæti. Ég var í þessu starfi til 2005. Þegar ég kom svo aftur til baka í sjónvarpið þá var ég sjanghæjaður í þetta á nýjan leik. Ég vissi í rauninni ekkert um Eurovison þegar ég byrjaði sem kynnir í keppninni. Núna veit ég allt um keppnirnar sem ég lýsti en þegar kemur að þeim sem ég lýsti ekki, þá er ég bara eins og hver annar Íslend- ingur sem hefur gaman af að sitja fyrir framan sjónvarpið. Eurovision er eins og fyrsta partí sumarsins, vinir bjóða heim og það er grillað. Mér finnst það óskaplega gaman. Í ár verður jafn gaman og alltaf og Ari mun verða landi og þjóð til sóma. Það er lykilatriði að menn taki Eurovision ekki of alvarlega. Um leið og menn taka keppnina of alvarlega þá er hún dauð. Menn verða að hafa húmor fyrir keppninni og muna að þetta er skemmtun. Til þess er leikur- inn gerður.“ ef ég hefði orðið borg- arstjóri á Þessum tíma Þá hefði ég gert fullt af mistökum sem ég hefði hugsanlega Þurft að sjá eftir lengi. ↣ 2 8 . a p r í l 2 0 1 8 l a U G a r D a G U r26 H e l G i n ∙ F r É T T a B l a ð i ð 2 8 -0 4 -2 0 1 8 0 0 :2 4 F B 1 2 0 s _ P 0 9 8 K .p 1 .p d f F B 1 2 0 s _ P 0 9 5 K .p 1 .p d f F B 1 2 0 s _ P 0 2 3 K .p 1 .p d f F B 1 2 0 s _ P 0 2 6 K .p 1 .p d f A u to m a ti o n P la te r e m a k e : 1 F 9 F -B 9 C 0 1 F 9 F -B 8 8 4 1 F 9 F -B 7 4 8 1 F 9 F -B 6 0 C 2 7 5 X 4 0 0 .0 0 1 8 A F B 1 2 0 s _ 2 7 _ 4 _ 2 0 1 8 C M Y K
Page 1
Page 2
Page 3
Page 4
Page 5
Page 6
Page 7
Page 8
Page 9
Page 10
Page 11
Page 12
Page 13
Page 14
Page 15
Page 16
Page 17
Page 18
Page 19
Page 20
Page 21
Page 22
Page 23
Page 24
Page 25
Page 26
Page 27
Page 28
Page 29
Page 30
Page 31
Page 32
Page 33
Page 34
Page 35
Page 36
Page 37
Page 38
Page 39
Page 40
Page 41
Page 42
Page 43
Page 44
Page 45
Page 46
Page 47
Page 48
Page 49
Page 50
Page 51
Page 52
Page 53
Page 54
Page 55
Page 56
Page 57
Page 58
Page 59
Page 60
Page 61
Page 62
Page 63
Page 64
Page 65
Page 66
Page 67
Page 68
Page 69
Page 70
Page 71
Page 72
Page 73
Page 74
Page 75
Page 76
Page 77
Page 78
Page 79
Page 80
Page 81
Page 82
Page 83
Page 84
Page 85
Page 86
Page 87
Page 88
Page 89
Page 90
Page 91
Page 92
Page 93
Page 94
Page 95
Page 96
Page 97
Page 98
Page 99
Page 100
Page 101
Page 102
Page 103
Page 104
Page 105
Page 106
Page 107
Page 108
Page 109
Page 110
Page 111
Page 112
Page 113
Page 114
Page 115
Page 116
Page 117
Page 118
Page 119
Page 120

x

Fréttablaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.