Fréttablaðið - 28.04.2018, Blaðsíða 32
D an Brown, einn vi n s æ l a s t i r i t-höfundur heims, var hér á landi í vikunni en nýjasta skáldsaga hans
Uppruni er komin út í íslenskri
þýðingu. Söguhetja þeirrar bókar
er Robert Langdon, prófessor í
táknfræði. Brown hefur skrifað
nokkrar bækur um Langdon, sú
þekktasta er Da Vinci lykillinn
sem skaut höfundinum upp á
stjörnuhimininn. Brown er ein-
staklega geðþekkur maður í við-
kynningu, skemmtilegur, alúð-
legur og með mikla persónutöfra.
„Ég á vini sem hafa komið
hingað, foreldrar mínir komu á
síðasta ári og fóru Gullna hringinn
og voru stórhrifin, bróðir minn er
ljósmyndari og kemur oft hingað
og hefur sagt mér að náttúran
hér á landi sé einstök. Mér fannst
næstum glæpsamlegt að hafa ekki
komið til Íslands,“ segir Brown
þegar hann er spurður af hverju
hann hafi viljað koma til Íslands.
Ólst upp í heimi tákna
Tákn, dulmál, þrautir og ráð-
gátur eru áberandi í skáldverkum
Browns. Hann segir skýringuna
liggja í barnæskunni. „Faðir minn
er stærðfræðingur og mamma tón-
listarmaður. Það er margt líkt með
stærðfræði og tónlist og það má
segja að ég hafi alist upp í heimi
tákna. Þegar við systkinin vorum
krakkar og vöknuðum á jóladag
voru jólagjafirnar ekki undir jóla-
trénu heldur voru þar skilaboð á
dulmáli sem við urðum að ráða.
Þar gat til dæmis staðið: „Líttu inn
í ísskápinn,“ og í ísskápnum var að
finna önnur skilaboð um að leita
skyldi áfram á ákveðnum stað.
Þetta var eins og fjársjóðsleit sem
leiddi okkur að lokum til gjafanna.
Alveg frá því ég var lítill drengur
hef ég hrifist af dulmáli, þrautum
og ráðgátum. Það er gaman að vera
í fjársjóðsleit og þess vegna ákvað
ég að skrifa bækur um trúarbrögð
og listir.“
Varð sjálfsmeðvitaður
Da Vinci lykillinn er ein vinsælasta
skáldsaga allra tíma. Hún var þriðja
bók höfundarins og færði honum
bæði heimsfrægð og ríkidæmi.
Hann er spurður hvort hin skyndi-
lega frægð hafi ekki verið nokkuð
yfirþyrmandi.
„Þetta gerðist allt svo hratt,“
segir hann. „Maður gerist ekki
rithöfundur til að verða ríkur og
frægur, það eru auðveldari leiðir
til þess. Maður skrifar vegna þess
að maður hefur þörf fyrir það og
hefur eitthvað að segja. Ég skrifa
vegna þess að ég hef unun af því
og vil segja sögur. Í byrjun vonað-
ist ég til að einn daginn myndi mér
vegna það vel að ég ætti fyrir leig-
unni og í mig og á. Velgengni Da
Vinci lykilsins var meiri en nokkur
hefði getað látið sig dreyma um.
Sú bók vakti líka athygli á fyrri
bókum mínum sem urðu fyrir
vikið mjög vinsælar.
Ég er oft spurður hvort það að
verða ríkur hafi breytt mér. Svarið
er nei. Það hefur ekki breytt því
hvernig ég skrifa, skriftirnar kosta
enn mikla vinnu. Það eina sem
hefur breyst er að fólk er sífellt að
velta fyrir sér hvað ég ætli að skrifa
um næst og mér er mikið í mun að
halda því leyndu. Þegar ég vinn
rannsóknarvinnu fyrir bók þarf ég
að ræða við fólk til að fá alls kyns
upplýsingar. Stundum þarf ég að
þykjast vera annar en ég er því ég
vil ekki að það leki út hvað ég er að
fást við þá stundina. Ég spyr líka
alls konar spurninga sem tengjast
því sem ég er vinna við ekki neitt,
þannig að fólk heldur að ég sé að
gera eitthvað allt annað en ég er að
gera.“
Da Vinci lykillinn kom út árið
2003 og það liðu sex ár þar til næsta
bók kom út, Týnda táknið. Af hverju
var svona langt á milli bóka?
„Ég varð mjög sjálfsmeðvitaður.
Áður en Da Vinci lykillinn kom út
spurði ég sjálfan mig: „Hvernig bók
vil ég lesa, hvað vil ég að gerist, um
hvað vil ég fræðast?“ Þannig varð
Da Vinci lykillinn til. Eftir útkomu
Da Vinci lykilsins leið mánuður
þar sem ég skrifaði og hugsaði:
„Milljónir eiga eftir að lesa þetta,“
og eyddi síðan textanum. Svo kom
að því að ég sagði við sjálfan mig:
„Þú hefur gert þetta áður. Andaðu
djúpt, skrifaðu bók sem þér finnst
spennandi og ef þér finnst hún
spennandi mun öðrum einnig finn-
ast það.“
Þetta tók tíma af því líf mitt
hafði breyst svo mikið. Ég þurfti
að læra að takast á við frægðina.
Fólk þekkti mig og það tók mig
tíma að venjast því. Það var gerður
kvikmyndasamningur. Dómsmál
voru höfðuð gegn mér þar sem
ég var sakaður um að hafa stolið
hugverkum annarra og svo voru
margir öskureiðir og sögðu mig
vera andsnúinn kristni. Allt þetta
tók á. Svo var erfitt að skrifa Týnda
táknið vegna þess að efnið krafðist
mikillar heimildavinnu.“
Upplognar sakir
Hann er spurður um dómsmálin
þar sem hann var sakaður um að
hafa stolið efni og notað í Da Vinci
lykilinn. „Þetta var þreytandi því
ég þurfti að undirbúa vörnina en
það var líka erfitt að vita til þess að
bornar væru á mig upplognar sakir
bara til að ná í peninga. Einhverjir
vonuðust til að þegar ég frétti af
lögsókn myndi ég borga þeim fyrir
að hætta við hana. Slíkt geri ég
ekki, ég berst. Ég hef unnið hvert
einasta mál sem hefur verið höfðað
á hendur mér og þau eru mörg.“
Hvað með ásakanir um að þú sért
andstæðingur kristinnar trúar?
„Ég ólst upp í trúarlegu umhverfi.
Mamma var organisti í kirkjunni og
ég söng í kórnum. Ég las Biblíuna
og trúði öllu sem þar stóð. Þegar
ég var tíu ára kynntist ég þróunar-
kenningunni. Ég fór til prests og
spurði hvor sköpunarsagan væri
rétt, sagan um Adam og Evu eða
þróunarkenningin. Hann sagði:
„Góðir drengir spyrja ekki svona
spurningar.“ Þar og þá ákvað ég
að þetta væri spurningin sem ég
myndi spyrja.“
Í mörg ár fjarlægðist ég trúna en
eftir því sem ég sökkti mér meir
ofan í vísindin færðist ég nær hinu
andlega. Trúin hefur fært heim-
inum margt gott en einnig margt
slæmt. Þegar ég skrifa um trúar-
brögð leitast ég við að sýna þeim
virðingu en ég vil einnig vera
heiðarlegur.“
Gagnrýni og aðdáendur
Brown á ótal aðdáendur víða um
heim en gagnrýnendur eru ekki
allir jafnhrifnir. Hann er spurður
hvernig hann taki neikvæðri gagn-
rýni.
„Ég er kominn í mikla æfingu,“
segir hann og hlær og bætir við:
„Þegar Da Vinci lykillinn kom út
voru fyrstu dómarnir frábærir.
Bókin var sögð skemmtileg, snjöll
og fersk. John Grisham sagði við
mig: „Þú skalt vera viðbúinn við-
snúningi.“ Og svo snerist þetta
skyndilega við og bókin var sögð
hræðileg. Fólk sagði ekki bara að
því líkaði ekki stíllinn heldur væri
ég andsnúinn trúarbrögðum og
auk þess lygari. Ég var ekki vanur
því að fólk hataðist við mig en ég
vandist því.
Ég var nýlega gestur í sjónvarps-
þætti hjá BBC, sem var í beinni
útsendingu klukkan 7 um morg-
un. Fyrsta spurningin var: „Góðan
daginn, herra Brown. Guardian
segir að þú sért versti rithöfundur
heims og nýjasta bók þín Uppruni
sé algjört drasl. Hver eru viðbrögð
þín við því?“ Ég gat ekkert annað
gert en að hlæja og segjast óska
þess að allir hefðu gaman af bók-
unum mínum. Þannig er það samt
ekki og ég sætti mig við það.“
Með jafn öflugan aðdáendahóp
og Brown á getur hann samt ekki
annað en verið sáttur. Hann segist
hafa mikla ánægju af að hitta les-
endur sína. „Það kemur mér stöð-
ugt á óvart að skynja hversu sterk
áhrif bækurnar hafa á lesendur. Ég
hitti fólk sem segir að bækur mínar
hafi breytt því og orðið til þess að
það tók aðra stefnu í lífinu. Það
er gríðarlega hvetjandi að vita af
slíkum áhrifum.“
Það er gaman að
vera í fjársjóðsleit
Metsöluhöfundurinn Dan Brown var á Íslandi í vikunni. Þurfti að
læra að takast á við frægðina. Gleðst yfir áhrifum bóka sinna.
„Það kemur mér stöðugt á óvart að skynja hversu sterk áhrif bækurnar hafa á lesendur,“ segir Dan Brown. FréttaBlaðið/EyÞÓr
Eftir útkomu Da Vinci
lykilsins lEið mánuður
þar sEm ég skrifaði
og hugsaði: „milljónir
Eiga Eftir að lEsa þEtta,“
og EyDDi síðan tExtanum.
Kolbrún
Bergþórsdóttir
kolbrun@frettabladid.is
EinhVErjir Vonuðust
til að þEgar ég frétti
af lögsókn mynDi ég
Borga þEim fyrir að
hætta Við hana. slíkt
gEri ég Ekki, ég BErst.
2 8 . a p r í l 2 0 1 8 l a U G a r D a G U r32 H e l G i n ∙ F r É T T a B l a ð i ð
2
8
-0
4
-2
0
1
8
0
0
:2
4
F
B
1
2
0
s
_
P
1
0
4
K
.p
1
.p
d
f
F
B
1
2
0
s
_
P
0
8
9
K
.p
1
.p
d
f
F
B
1
2
0
s
_
P
0
1
7
K
.p
1
.p
d
f
F
B
1
2
0
s
_
P
0
3
2
K
.p
1
.p
d
f
A
u
to
m
a
ti
o
n
P
la
te
r
e
m
a
k
e
:
1
F
9
F
-7
E
8
0
1
F
9
F
-7
D
4
4
1
F
9
F
-7
C
0
8
1
F
9
F
-7
A
C
C
2
7
5
X
4
0
0
.0
0
1
2
A
F
B
1
2
0
s
_
2
7
_
4
_
2
0
1
8
C
M
Y
K