Fréttablaðið - 28.04.2018, Blaðsíða 59
Hagstofa Íslands
leitar að metnaðarfullu og áhugasömu starfsfólki
Hagstofa Íslands er miðstöð opinberrar hagskýrslugerðar á Íslandi. Hlutverk Hagstofunnar er að vinna hlutlægar hagskýrslur, hafa forystu um samhæfingu hagtalna,
stunda rannsóknir og stuðla þannig að upplýstri umræðu og faglegum ákvörðunum. Nánari upplýsingar má finna á www.hagstofa.is
Sérfræðingur á fyrirtækjasviði
Hagstofa Íslands óskar eftir að ráða sérfræðing til starfa á fyrirtækjasviði. Í starfinu felst að
efla skammtímatölfræði um fyrirtæki eftir atvinnugreinum auk aðkomu að öðrum verkefnum
á fyrirtækjasviði.
Á FYRIRTÆKJASVIÐI ER FRAMLEIDD TÖLFRÆÐI UM
• Afkomu og rekstur fyrirtækja eftir atvinnugreinum
• Gistinætur og ferðamál
• Nýsköpun fyrirtækja og útgjöld til rannsókna- og þróunar
• Umhverfismál
• Sjávarútveg og landbúnað
HÆFNISKRÖFUR
• Háskólapróf í hagfræði, verkfræði, viðskiptafræði eða önnur sambærileg menntun sem
nýtist í starfi
• Reynsla af vinnslu gagna í gagnagrunnsumhverfi er nauðsynleg
• Reynsla af tölfræðilegri úrvinnslu og framsetningu gagna er æskileg
• Hæfni í greiningu ársreikninga er kostur
• Góð íslensku- og enskukunnátta
• Góð samskiptafærni
• Sjálfstæð og skipulögð vinnubrögð
Nánari upplýsingar um starfið veitir Helga Hauksdóttir í síma 5281000.
Sérfræðingur á félagsmálasviði
Hagstofa Íslands óskar eftir að ráða starfsmann til starfa við framleiðslu hagtalna um
húsnæði og búsetu á Íslandi.
Í starfinu felst að hanna nýjar hagtölur um húsnæði og búsetu, meta breytingar milli tíma-
bila og vinna árlega stöðutöku. Starfsmaðurinn mun undirbúa gögn fyrir greiningu, sinna
úrvinnslu gagna og sjá um birtingu auk þess að vera í samskiptum við innri og ytri hagsmu-
naaðila. Um er að ræða nýtt starf innan stofnunarinnar.
HÆFNISKRÖFUR
• Háskólapróf sem nýtist í starfi
• Þekking á íslenskum húsnæðismarkaði er kostur
• Reynsla af tölfræðilegri úrvinnslu og framsetningu tölulegra upplýsinga
• Góð kunnátta á tölfræðiforritum (s.s. R og SPSS) er mikill kostur
• Reynsla af gagnagrunnsvinnslu (t.d. SQL) er nauðsynleg
• Góð samskipta- og samstarfsfærni
• Frumkvæði, nákvæmni og skipulögð vinnubrögð
• Geta til að tjá sig í ræðu og riti
Nánari upplýsingar um starfið veitir Helga Hauksdóttir í síma 5281000
Sérfræðingur í félagsvísum
Hagstofa Íslands óskar eftir að ráða sérfræðing í félagsvísum.
Starfið felst í gerð félagsvísa sem veita upplýsingar um lífskjör þjóðarinnar og aðstæður
ólíkra hópa til dæmis eftir fjölskyldugerð, kyni og aldri. Að auki mun starfsmaðurinn taka
þátt í rannsóknarstarfi og öðrum verkefnum innan stofnunarinnar.
HÆFNISKRÖFUR
• Háskólapróf sem nýtist í starfi
• Þekking á félags- og velferðarrannsóknum er mikill kostur
• Reynsla af tölfræðilegri úrvinnslu og framsetningu tölulegra upplýsinga
• Góð kunnátta á tölfræðiforritum (s.s. R og SPSS)
• Reynsla af gagnagrunnsvinnslu (t.d. SQL) er kostur
• Góð samskipta- og samstarfsfærni
• Frumkvæði, nákvæmni og skipulögð vinnubrögð
• Geta til að tjá sig í ræðu og riti
Nánari upplýsingar um starfið veitir Helga Hauksdóttir í síma 5281000
Sérfræðingur á efnahagssviði
Hagstofa Íslands óskar eftir að ráða sérfræðing til starfa í utanríkisverslunardeild. Deildin
sér um útreikning á vöru- og þjónustuviðskiptum við útlönd. Starfið felur í sér vinnu við
mælingu og útreikning vöru- og þjónustuviðskipta við útlönd, útgáfu fréttatilkynninga,
samskipti við gagnaveitendur, þjónustu við notendur, alþjóðlegt samstarf auk annarra
tilfallandi starfa.
HÆFNISKRÖFUR
• Háskólapróf í hagfræði, viðskiptafræði, verkfræði eða önnur sambærileg menntun sem
nýtist í starfi.
• Reynsla af tölfræðilegri úrvinnslu
• Þekking á vinnslu gagnagrunna (t.d. SQL) er æskileg
• Afar góðir samstarfs- og samskiptahæfileikar.
• Geta til að vinna sjálfstætt, skipulega og undir álagi.
• Frumkvæði og nákvæmni.
Nánari upplýsingar um starfið veitir Helga Hauksdóttir í síma 5281000
Um er að ræða fullt starf og æskilegt er að viðkomandi geti hafið störf sem fyrst. Laun eru samkvæmt kjarasamningi fjármálaráðuneytisins og hlutaðeigandi stéttarfélags.
Umsóknarfrestur er til og með 14. maí 2018 og skulu umsóknir berast í pósti á: Starfsumsókn, Borgartúni 21a, 150 Reykjavík eða rafrænt á netfangið starfsumsokn@hagstofa.is.
Öllum umsóknum verður svarað og umsækjendum tilkynnt um ráðstöfun starfsins þegar ákvörðun hefur verið tekin. Umsóknir gilda í sex mánuði frá því að umsóknarfrestur rennur út.
Nánari upplýsingar um starfið veitir Helga Hauksdóttir í síma 5281000.
UN bókhald ehf óskar eftir að ráða
starfsmann í 100% starf
Hæfniskröfur:
Viðurkenndur bókari eða áralöng reynsla við bókhald
Þekking á DK bókhaldskerfi
Exelkunnátta kostur
Umsóknarfrestur er til og með 6. maí n.k.
Vinsamlegast sendið umsóknir ásamt ferilskrá á netfangið
unbokhald@unbókhald.is
Þarftu að ráða starfsmann?
RÁÐUM EHF • Sími 519 6770 • www.radum.is • radum@radum.is
Ráðum sérhæfir sig í ráðningum og mannauðsráðgjöf.
Við komum til móts við þarfir fyrirtækja og sérsníðum
lausnir sem henta hverjum viðskiptavini.
ATVINNUAUGLÝSINGAR 17 L AU G A R DAG U R 2 8 . a p r í l 2 0 1 8
2
8
-0
4
-2
0
1
8
0
0
:2
4
F
B
1
2
0
s
_
P
0
7
1
K
.p
1
.p
d
f
F
B
1
2
0
s
_
P
0
6
2
K
.p
1
.p
d
f
F
B
1
2
0
s
_
P
0
5
0
K
.p
1
.p
d
f
F
B
1
2
0
s
_
P
0
5
9
K
.p
1
.p
d
f
A
u
to
m
a
tio
n
P
la
te
re
m
a
k
e
: 1
F
9
F
-E
6
3
0
1
F
9
F
-E
4
F
4
1
F
9
F
-E
3
B
8
1
F
9
F
-E
2
7
C
2
7
5
X
4
0
0
.0
0
1
4
B
F
B
1
2
0
s
_
2
7
_
4
_
2
0
1
8
C
M
Y
K