Fréttablaðið - 03.05.2018, Síða 2

Fréttablaðið - 03.05.2018, Síða 2
Veður Í dag gengur hann í suðvestan strekking. Honum fylgir éljagangur. Norðaustan- og austanlands verður hins vegar þurrt og bjart og einnig hlýjast. SJÁ SÍÐU 26 HEILBRIGÐISMÁL „Þetta er bara svo ósvífið,“ segir Valgeir Sigurðsson athafnamaður sem fann fyrir mikl- um þrýstingi læknaliðs í Flórída á að sonur hans sem þar fæddist yrði umskorinn. „Fyrir 35 árum fæddist mér sonur í Flórída. Á spítalanum var ég spurð- ur hvort það ætti ekki að umskera hann og ég sagði nei. Læknirinn gekk hart fram og það var í þrígang sem ég varð að segja nei, það á ekki að umskera hann,“ lýsir Valgeir sem kveðst vilja leggja sína frásögn inn í umræðuna um bann við umskurði drengja. Á þeim tíma sem drengurinn kom í heiminn bjó Valgeir í Lúxemborg. Hann var þá þekktur fyrir bar sinn Cockpit Inn og framleiðslu á íslensku brennivíni undir vöru- merkinu Black Death. „Þarna í Ameríku þarf maður náttúrlega að borga reikninginn. Þegar hann kom var búið að strika út á honum 150 dollara sem kostaði að umskera. Ég losnaði sem sagt þarna við að borga 150 dollara með því að neita að strákurinn yrði umskorinn,“ segir Valgeir og sér síður en svo eftir ákvörðuninni. „Síðan þá hefur sonur minn verið mér mjög þakklátur fyrir að hafa ekki látið umskera hann. Og ég var dálítið hissa á því að meira að segja kærasta hans þakkaði mér fyrir það líka – bara upp úr þurru,“ segir Val- geir sem býr nú á Siglufirði en sonur hans og tengdadóttir hins vegar í Pensacola í Flórída. F r u m - varp Silju Daggar Gunnarsdóttur og átta annarra þingmanna um bann við umskurði á Íslandi nema af læknisfræðilegri nauðsyn hefur vakið mikla athygli út fyrir land- steinana og hér innanlands. Frum- varpið verður vísast ekki afgreitt fyrir sumarhlé á Alþingi heldur vísað frá allsherjarnefnd þingsins til ríkisstjórnarinnar. Valgeir segir að halda þurfi mál- inu á lofti. „Þessi kjarklausa ríkis- stjórn kemur varla til með að gera nokkurn skapaðan hlut. Mér finnst þetta bara hræðilegt. Ég tala nú ekki um þegar maður heyrði í biskupn- um – þá fannst manni nú alveg öll sund lokuð,“ segir Valgeir. Þarna vísar Valgeir til þess að Agnes M. Sigurðardóttir, biskup þjóðkirkjunnar, hefur sent Alþingi neikvæða umsögn um hugsanlegt umskurðarbann. Það gerir Agnes á þeim forsendum að bann myndi skapa hættu á því að gera íslam og gyðingdóm að glæpsamlegum trúarbrögðum hérlendis. Meðal þeirra sem lýsa ánægju með umskurðarbannið eru rúm- lega 400 íslenskir læknar sem segja umskurð drengja ganga gegn Genfar yfirlýsingu lækna. gar@frettabladid.is Tengdadóttirin þakkar óumskorna kærastann Athafnamaðurinn Valgeir Sigurðsson segist hafa orðið fyrir miklum þrýstingi í Flórída á að láta umskera son sinn sem fæddist þar í fylkinu. Hann kveður son sinn og tengdadóttur sömuleiðis vera sér þakklát fyrir að hafa staðist áganginn. Heimsmeistaramótið í fjallahlaupum fer fram nærri Valencia á Spáni þann 12. maí næstkomandi. Guðni Páll Pálsson er einn þeirra sem taka þátt. Til þess að venjast hitanum á Spáni ákvað hann að hlaupa kappklæddur í World Class. Hann býst við að hitinn verði um 25 gráður. Sem er kannski ekkert svo mikið, en fyrir Íslendinginn sem er að æfa í -5 gráðum alla jafna, þá er þetta nokkuð strembið, segir Guðni Páll. FRETTABLAÐIÐ/EYÞÓR Kristján, sonur Valgeirs Sigurðssonar, býr með konu sinni í Flórída. Parið er þakklátt Valgeiri, segir hann. Höfum gaman af 'essu Kynntu þér Vinahópinn á olis.is Undirbýr HM í fjallahlaupi á Spáni MANNLÍF „Miðasalan fór af stað með hvelli,“ segir Björn Teitsson, upp- lýsingafulltrúi Solstice Production, sem stendur fyrir tónleikum Guns N' Roses á Laugardalsvelli í sumar. Miðasala hófst á þriðjudag en í sér- stakri forsölu á laugardag fóru fimm þúsund miðar á örskotsstundu. Þegar Fréttablaðið ræddi við Björn upp úr hádegi í gær, á öðrum degi miðasölunnar, höfðu selst alls 14.500 miðar. „Það hefur verið mest sala á mið- unum í stæði þannig að þeim er að fækka mjög mikið,“ segir Björn. Gert er ráð fyrir að selja um tólf þúsund miða í stæði en rúmlega tíu þúsund höfðu selst þegar Frétta- blaðið kannaði málið í gær. Miðar í stæði kosta 18.900 krónur en síðan eru einnig seldir miðar í stúku sem kosta frá 29.900 upp í 49.900 krónur. – smj Miðar á GNR rokseljast VELFERÐARMÁL Bragi Guðbrands- son, forstjóri Barnaverndarstofu, fagnar því ef fram mun fara óháð úttekt á störfum hans. Hann telur ekkert tilefni til vantrausts. Þetta kom fram í máli Braga að loknum fundi hans með velferðar- nefnd í gærmorgun. Í upphafi stóð til að fundurinn yrði opinn en breyting varð þar á, meðal annars vegna trúnaðargagna sem Bragi lagði fram á fundinum. Undanfarna daga hefur Bragi sætt gagnrýni vegna ásakana um að hann hafi haft afskipti af máli sem var til meðferðar hjá barnaverndarnefnd á höfuðborgarsvæðinu. Félags- og jafnréttismálaráðherra, Ásmundur Einar Daðason, hefur síðan verið gagnrýndur fyrir að hafa ekki gert þinginu viðvart um niðurstöðu úttektar í velferðarráðuneytinu á málinu en þar kom fram að Bragi hefði farið út fyrir valdsvið sitt. Að loknum óundirbúnum fyrir- spurnatíma tóku nokkrir þingmenn til máls um fundarstjórn forseta og bentu á að ráðherra hefði mögu- lega brotið gegn ákvæði þingskapa- laga með því að hafa ekki lagt fyrir þingið gögn sem málið varða. Hefur verið kallað eftir því að stjórnskip- unar- og eftirlitsnefnd þingsins taki málið til skoðunar. „Mér finnst ósköp eðlilegt að þingið standi fyrir því að nefnd á þess vegum rannsaki og skoði það sem fram hefur farið núna undan- farið, samskipti hæstvirts félags- og jafnréttismálaráðherra við velferð- arnefnd,“ segir Oddný G. Harðar- dóttir, þingmaður Samfylkingar- innar. – jóe Myndi fagna óháðri úttekt á störfum sínum Oddný Harðardóttir segir eðlilegt að nefnd á vegum þingsins rannsaki það sem gerst hefur, meðal annars samskipti ráðherra við velferðarnefndina. 3 . M A Í 2 0 1 8 F I M M T U D A G U R2 F R É T T I R ∙ F R É T T A B L A Ð I Ð 0 3 -0 5 -2 0 1 8 0 4 :2 0 F B 0 5 6 s _ P 0 5 5 K .p 1 .p d f F B 0 5 6 s _ P 0 5 5 K .p 1 .p d f F B 0 5 6 s _ P 0 0 2 K .p 1 .p d f F B 0 5 6 s _ P 0 0 2 K .p 1 .p d f A u to m a ti o n P la te r e m a k e : 1 F A 7 -E 8 7 C 1 F A 7 -E 7 4 0 1 F A 7 -E 6 0 4 1 F A 7 -E 4 C 8 2 7 5 X 4 0 0 .0 0 1 1 B F B 0 5 6 s _ 2 _ 5 _ 2 0 1 8 C M Y K

x

Fréttablaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.