Fréttablaðið - 03.05.2018, Side 24

Fréttablaðið - 03.05.2018, Side 24
Skeifunni 8 • 108 Reykjavík • Sími: 517 6460 • www.belladonna.is Verslunin Belladonna Síðbuxur, ökklabuxur, kvartbuxur og leggings Stærðir 38-58 Fólk er kynningarblað sem býður auglýsendum að kynna vörur og þjónustu í formi viðtala og um- fjallana. Í blaðinu er einnig hefðbundið ritstjórnar- efni. Blaðið fylgir Fréttablaðinu daglega. Umsjónarmenn efnis: Elín Albertsdóttir, elin@frettabladid.is, s. 512 5349 | Ragnheiður Tryggvadóttir, heida@frettabladid.is, s. 512 5367 | Oddur Freyr Þorsteinsson, oddurfreyr@frettabladid.is, s. 512 5368 | Sigríður Inga Sigurðardóttir, sigriduringa@frettabladid.is, s. 512 5372 | Starri Freyr Jónsson, starri@ frettabladid.is, s. 512 5358 | Þórdís Lilja Gunnarsdóttir, thordisg@frettabladid.is s. 512 5338 Útgefandi: 365 miðlar Ábyrgðarmaður: Elmar Hallgríms Hallgrímsson Sölumenn: Atli Bergmann, atli@frettabladid.is, s. 512 5457 | Jón Ívar Vilhelmsson, jonivar@frettabladid.is, s. 512 5429 | Ólafur H. Hákonarson, olafurh@frettabladid.is, s. 512 5433 | Diljá segist tengja helst við níunda áratuginn í fatavali. „Ég hef samt alltaf haft minn eigin sérstæða stíl, ég fíla yfirleitt það sem er litríkt og ákveðið,“ segir hún. „Ég er til dæmis með bleikt hár og finnst gaman að vera með blóm í hárinu en svo er ég líka rokkari í mér. Ég blanda öllu saman bara.“ Hún segist vera sparsöm þessa dagana enda að safna fyrir upp­ tökum á fyrstu breiðskífu sinni. „En ef ég hef efni á að kaupa mér föt þá kaupi ég fáar en flottar flíkur. Það skiptir ekki máli hvort það er frægt merki eða bara úr búð með notuð föt, ef það er flott er það flott,“ segir hún ákveðin. „Ég hef alveg ákveðna hugmynd um hvernig mig langar að vera og hvernig mér líður vel, þetta tengist í raun bara því að vera sú manneskja sem ég er, ekki reyna að vera eitthvað annað.“ Diljá finnst mjög gaman að kíkja í fatamarkaðinn hjá Hlemmi. „Það leynist oft eitthvað flott þar. Svo fer ég í Zöru, Júník og Urban Outfitt­ ers og einstaka sinnum Sautján og svo HM. En mér þykir yfirleitt bara gaman að fara að versla ef ég er að leita að einhverju ákveðnu. Það er ekki alltaf auðfundið það sem mig langar í en þegar ég finn það er ég mjög ánægð.“ Þegar hún er spurð um uppá­ haldsflík nefnir hún svartan rúskinnsjakka með kögri frá einu af sínum uppáhaldsmerkjum. „Hann er frá Reykjavík Moss design,“ segir hún. „Þegar ég fann hann var þetta síðasti jakkinn í minni stærð og hann var með 60 prósent afslætti. Ótrúleg heppni.“ Þó uppáhaldsjakkinn sé svartur er Diljá samt almennt frekar litrík í klæðaburði. „Ég fíla bleikt, appelsínugult, grænt, blátt, gult, fjólublátt og bara flestalla liti held ég.“ Hún viðurkennir að eiga sína veikleika. „Ég fell of oft fyrir skóm og jökkum og kaupi þó ég eigi alveg nóg af því. Uppáhaldsskórnir mínir eru hælaskór úr HM sem eru að syngja sitt síðasta eftir þrjú ár. Ég setti í þá litríkar reimar og veit ekki alveg hvað ég geri þegar þeir gefa sig,“ segir hún. „Ég get heldur aldrei átt nóg af flottum bolum og mjög oft með blómabönd í hárinu. Diljá fór í sína fyrstu hljómleika­ ferð til Bandaríkjanna í febrúar og féll að sjálfsögðu fyrir tísku heimamanna. „Ég fór meðal annars til Tennessee sem er án efa eitt skemmtilegasta ríki sem ég hef komið til,“ segir hún. „Maður þar sem hjálpaði mér að bóka tón­ leika sagði að ég mætti ekki fara fráTennessee án þess að kaupa mér kúrekastígvél þannig að ég gerði mér sérferð því það er ekki á hverjum degi sem maður fær þann­ ig tækifæri.“ Diljá er með mörg járn í eldinum. „Ég er í miðju kafi að safna fyrir upptökum á fyrstu plötunni minni og fékk samþykkta hópfjármögnun á franskri síðu sem heitir Ulule. Ég verð einmitt með styrktartónleika í kvöld á Dillon og svo er ég líka að vinna í tónlistarmynbandi fyrir eitt af nýju lögunum mínum.“ Samhliða því að safna fyrir upptökum og semja lög stendur hún fyrir söngvaskáldakvöldum á Gamla Gauknum. „Ég var að vinna þar sem barþjónn og datt í hug að prófa svona kvöld í nóvember síðastliðnum. Við byrjuðum einu sinni í mánuði en þetta varð svo vinsælt að ég fæ að halda svona Diljá nýtur þess að klæðast litríkum fötum í bland við rokkarastílinn. Hér má einnig sjá uppáhalds- skóna, hælaskó úr HM sem eru á síðasta snúningi en fengu upp- lyftingu með marglitum reimum. Diljá hefur dálæti á kögri og blandar saman rokki og litríkum blómastíl með góðum árangri. Uppáhaldsskórnir fengu langþráða upplyftingu með litríkum skóreimum.  MYNDIR/STEFÁN Brynhildur Björnsdóttir brynhildur@frettabladid.is Framhald af forsíðu ➛ kvöld tvisvar í mánuði núna.“ Diljá er bjartsýn á framtíðina. „Það þýðir ekkert að bíða eftir að einhver annar komi manni áfram,“ segir hún. „Mér hefur tekist að gera ansi margt síðastliðið ár og langar bara að hvetja aðra til þess að gera hið sama og gera eitthvað smátt á hverjum degi til að láta draumana rætast.“ Og hún hefur skipulagt í þaula hvað hún gerir ef fjármögnunin gengur upp. „Þá fer ég beinustu leið í hljóðver að taka upp og eftir það er förinni heitið í tónleikaferð um Bandaríkin og vonandi Evrópu líka,“ segir hún og bætir við að um leið og fjárhagur­ inn leyfi muni hún byrja að undir­ búa fyrir alvöru. „Mér þykir mjög vænt um hversu margir eru hrifnir af tónlistinni minni og ég vona svo innilega að þessi söfnun gangi upp svo ég geti leyft sem flestum að heyra það sem ég er að gera.“ Tónleikarnir á Dillon í kvöld hefj­ ast klukkan níu og aðgangseyrir er 2.000 krónur. Nánari upplýsingar um hópfjármögnunina má finna á ulule.com/dilicusrecording. Bæjarlind 6 • S. 554 7030 Við erum á Facebook Kímónó Kr. 7.990Str. S-XXL 2 KYNNINGARBLAÐ FÓLK 3 . M A Í 2 0 1 8 F I M MT U DAG U R 0 3 -0 5 -2 0 1 8 0 4 :2 0 F B 0 5 6 s _ P 0 3 6 K .p 1 .p d f F B 0 5 6 s _ P 0 3 3 K .p 1 .p d f F B 0 5 6 s _ P 0 2 1 K .p 1 .p d f F B 0 5 6 s _ P 0 2 4 K .p 1 .p d f A u to m a ti o n P la te r e m a k e : 1 F A 8 -2 8 A C 1 F A 8 -2 7 7 0 1 F A 8 -2 6 3 4 1 F A 8 -2 4 F 8 2 7 5 X 4 0 0 .0 0 1 8 A F B 0 5 6 s _ 2 _ 5 _ 2 0 1 8 C M Y K

x

Fréttablaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.