Fréttablaðið - 03.05.2018, Page 36

Fréttablaðið - 03.05.2018, Page 36
Hjartans þakkir fyrir samúð og hlýjar kveðjur við andlát og útför móður okkar, tengdamóður, ömmu og langömmu, Kristínar Björnsdóttur Tjarnarási 7a, Stykkishólmi, Eyþór Benediktsson Unnur Valdimarsdóttir Ingibjörg H. Benediktsdóttir Gretar D. Pálsson Bryndís Benediktsdóttir Birgir Jónsson Björn Benediktsson Árþóra Steinarsdóttir Lára Benediktsdóttir Anne Bau barnabörn og barnabarnabörn. Okkar elskulegi Sæbjörn Jónsson (Sæbi) lést mánudaginn 16. apríl á Sjúkrahúsinu á Akureyri. Útför hans hefur farið fram í kyrrþey. Bestu þakkir til þeirra sem önnuðust hann í hans erfiðu veikindum. Sérstakar þakkir til starfsfólks Hornbrekku fyrir góða umönnun. Fjölskyldan Ástkær faðir minn, tengdafaðir og afi, Óli Kristinn Jónsson málari og múrari, áður til heimilis í Garðabæ, lést 8. apríl sl. á Hrafnistu Hafnarfirði. Útförin hefur farið fram í kyrrþey að ósk hins látna. Jón Þór Ólason Ragna Soffía Jóhannsdóttir Gústav Óli Jónsson Edda Líf Jónsdóttir Bjartur Þór Jónsson Ástkær faðir okkar, stjúpfaðir, tengdafaðir, fósturfaðir, afi, langafi og langalangafi, Guðjón Sveinbjörnsson Leirubakka 30, 109 Reykjavík, lést á Landspítalanum 28. apríl sl. Útförin verður auglýst síðar. Logi A. Guðjónsson Jóhanna G. Jóhannesdóttir Sveinbjörn Guðjónsson Guðmundur Guðjónsson Jón Ívar Guðjónsson Björn S. Stefánsson Þorgerður Sigurjónsdóttir Stella Stefánsdóttir Ásmundur Reykdal Halldór Sigurðsson Árný J. Guðmundsdóttir Jóhann T. Sigurðsson afabörn, langafabörn og langalangafabörn. Elskuleg móðir okkar, tengdamóðir, amma og langamma, Sjöfn Helgadóttir er látin. Jórunn L. Bragadóttir Linda B. Bragadóttir Sveinn H. Bragason tengdabörn, barnabörn og barnabarnabörn. Ástkær eiginkona, móðir okkar, tengdamóðir og amma, Sigríður Einarsdóttir píanókennari, Brúnalandi 30, Reykjavík, lést sunnudaginn 29. apríl. Útförin fer fram frá Dómkirkjunni föstudaginn 11. maí kl. 15. Þeim sem vilja minnast hennar er bent á Hjartavernd. Gunnar Sigurðsson Kristín Ragna Gunnarsdóttir Gunnlaugur Torfi Stefánss. Sigurður Bjarki Gunnarsson Þórunn Ósk Marinósdóttir Ragnheiður Gunnarsdóttir Martin Nagstrup og barnabörn. Eiginmaður minn, faðir, tengdafaðir, afi og langafi, Stefán Valdimarsson Mánabraut 9, Þorlákshöfn, lést á Hrafnistu miðvikudaginn 25. apríl. Útförin fer fram frá Þorlákskirkju, Þorlákshöfn, þriðjudaginn 8. maí kl. 14. Þeim sem vilja minnast hans er bent á Hrafnistu. Fyrir hönd fjölskyldunnar, Elsa Auðbjörg Unnarsdóttir Elskulegur faðir okkar, tengdafaðir, afi og langafi, Brynleifur H. Steingrímsson Lækjasmára 7, Kópavogi, sem lést á Landakotsspítala þriðjudaginn 24. apríl, verður jarðsunginn frá Fossvogskirkju föstudaginn 4. maí kl. 15.00. Guðrún Helga Brynleifsdóttir Gunnlaugur A. Jónsson Helga Brynleifsdóttir Jón G. Hauksson Brynja Blanda Brynleifsdóttir Ingvaldur Thor Einarsson Steingrímur Brynleifsson barnabörn og barnabarnabörn. Stafurinn z var einu sinni hluti af stafrófinu en var tekinn út árið 1973 vegna þess að z er í íslensku borið fram eins og s og þótti því ástæða til að einfalda stafsetningu. Samtímis var rætt um að fella út y og ý en ekki náðist samstaða um það. Ekki var einhugur um málið á Alþingi og flutti Sverrir Hermannsson þrumu- ræðu þar sem hann kom bókstafnum til varnar. Sagði hann meðal annars; „Það er nauðsynlegt að fá sem gleggstar upp- lýsingar um alla þætti þessa máls, því að greinilega er með því vegið að íslensku ritmáli og úr launsátri.“ Þá benti Sverrir á að nokkrir sem hefðu komið að því að reyna að útrýma bókstafnum myndu sjálfir ætla að rita z þegar það ætti við. „Nú á að gera tilraun á Íslendingum. Nú hyggja launsáturs- menn, að kunni að vera lag, og því skal róið. Könnuð skulu viðbrögð almenn- ings í velferðarþjóðfélaginu. Kanna skal, hvort hann er ekki daufdumbur orðinn fyrir öllu öðru en brauði og leikjum, einnig hvort t.d. alþm. hafa ekki áreiðan- lega asklokið fyrir himin. Z hefur aldrei verið og er ekki heldur þessum mönnum neitt aðalatriði. Þeir verða að fikra sig áfram að þeirri aðferð, að ritað skuli eftir framburði. Og þá er feitari gelti að flá en z, og þar á ég t.d. við y. Ef þessi tilraun með z heppnast vel, þá er að snúa sér að stóru verkefnunum og þá fyrst og fremst að y. Meðan þrætan stóð um íslenskar ritreglur í 150 ár eða þ.u.b., var endur- skoðunarsinnum öllum miklu meira í nöp við y en z.“ Ólafur Stephensen, fyrrverandi rit- stjóri Morgunblaðsins og Fréttablaðsins og núverandi framkvæmdastjóri Félags atvinnurekenda, er einn af þeim sem nota z-una. „Mér finnst rétt að nota hana,“ segir Ólafur. „Hún er aflögð rétt áður en ég byrja í Ísaksskóla. Ég las mikið af bókum sem krakki sem voru stafsettar upp á z. Sem unglingur fór ég að velta fyrir mér reglunum og myndaði mér þá skoðun að þetta hefði verið misráðið hjá Magnúsi Torfa Ólafssyni, þáverandi menntamála- ráðherra, sem lagði til afnám z. Reglurnar eru e i n f a l d a r o g rökréttar og í m e n n t a s k ó l a fór ég að prófa mig áfram en íslenskukennarar mínir sögðu að ég fengi villu fyrir að nota bókstafinn, þó sumir hvísluðu að mér að þetta væri gott hjá mér. En þeir vildu ekki að ég notaði z í rit- gerðum og stílum. Þegar ég var slopp- inn úr mennta- skóla fór ég að nota bókstafinn í skrifum mínum,“ segir Ólafur. Hann segir að nokkrir aðrir noti enn hinn bann- aða bókstaf en þeir séu þó ekki margir. „Menn þurfa að vanda sig. Það fer í taugarnar á mér þegar fólk skrifar z en fer ekki rétt með bókstafinn.“  benediktboas@365.is Verður að fara rétt með hinn brottfellda bókstaf Bókstafnum z var rutt út úr íslenska stafrófinu nánast með einu pennastriki á Alþingi fyrir 45 árum. Þó eru enn nokkrir Íslendingar sem ávallt nota zetuna þegar þeir rita mál sitt. Einn af þeim er Ólafur Stephensen, framkvæmdastjóri Félags atvinnurekenda. Mörgum þykir mjög vænt um zetuna og geta ekki hugsað sér annað en að nota hana. NordicPhotos/Getty Sem unglingur fór ég að velta fyrir mér regl- unum og myndaði mér þá skoðun að þetta hefði verið misráðið hjá Magnúsi Torfa Ólafssyni, þáverandi mennta- málaráðherra, Ólafur Þ. Stephensen, framkvæmdastjóri Félags atvinnurekenda Fimleikafólk getur mótað z ef tveir eru saman. NordicPhotos/ Getty  996 Gregoríus 5. (Bruno von Kärnthen) kjörinn páfi. Hann var 24 ára frændi Ottós keisara og fyrsti þýski páfinn. 1494 Kristófer Kólumbus kemur auga á Jamaíku. 1902 Oddfellowreglan hefur forgöngu um stofnun Hjúkr- unarfélags Reykjavíkur. Það var lagt niður 1937. 1943 Frank M. Andrews, æðsti yfirmaður herafla Banda- ríkjanna í Evrópu, ferst í flugslysi er flugvél hans flýgur inn í Fagradalsfjall á Reykjanesskaga. Auk hans fórust þrettán aðrir. 1970 Álverið í Straumsvík formlega tekið í notkun, en álframleiðsla hafði þó hafist þar árið áður. 1973 Íslenskri stafsetningu breytt með reglugerð frá menntamálaráðuneytinu. Bókstafurinn z er lagður niður í íslensku ritmáli. 1986 Ísland tekur þátt í Eurovision í fyrsta skiptið með laginu „Gleðibankinn“ sem hljómsveitin ICY flutti. Sandra Kim vann keppnina fyrir hönd Belgíu með laginu „J’aime la vie“. 1991 Síðasti þáttur sjónvarpsþáttaraðarinnar Dallas er sendur út. 1998 Fyrsti áfangi Grafarvogslaugar opnaður. 1999 Skýstrokkur gengur yfir miðborg Oklahómaborgar og veldur 36 dauðsföllum. 2000 Fyrsti Geocaching-leikurinn fer fram. Merkisatburðir 3 . m a í 2 0 1 8 F I m m T U D a G U R24 T í m a m ó T ∙ F R É T T a B L a ð I ð TíMaMÓT 0 3 -0 5 -2 0 1 8 0 4 :2 0 F B 0 5 6 s _ P 0 3 6 K .p 1 .p d f F B 0 5 6 s _ P 0 3 3 K .p 1 .p d f F B 0 5 6 s _ P 0 2 1 K .p 1 .p d f F B 0 5 6 s _ P 0 2 4 K .p 1 .p d f A u to m a tio n P la te re m a k e : 1 F A 8 -2 8 A C 1 F A 8 -2 7 7 0 1 F A 8 -2 6 3 4 1 F A 8 -2 4 F 8 2 7 5 X 4 0 0 .0 0 1 8 A F B 0 5 6 s _ 2 _ 5 _ 2 0 1 8 C M Y K

x

Fréttablaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.