Fréttablaðið - 17.05.2018, Síða 6
HEYRNARSTÖ‹INKringlunni • Sími 568 7777 • heyra.is
Við hjálpum þér
að bæta lífsgæðin
Rexton™ heyrnartækin opna nýjar leiðir í samskiptum
og auka lífsgæðin. Komdu í ókeypis heyrnarmælingu
og fáðu heyrnartæki lánuð til reynslu.
UMHVERFISMÁL Umhverfisstofnun
hefur samið við Náttúrustofu Norð-
austurlands um að hefja rannsókn á
plasti í maga fýla á Íslandi en mark-
miðið er að meta plastmengunina
í sjónum og fylgjast þannig með
þróun mengunarinnar. Aðgerðin
er hluti af staðlaðri vöktun á plast-
mengun innan OSPAR sem er samn-
ingur um verndun hafrýmis Norð-
austur-Atlantshafsins og Ísland er
aðili að.
„Við fengum aukið fjármagn fyrir
rannsóknir tengdar plastmengun.
Rannsóknir í nafni OSPAR á plasti í
mögum fýla í Norðursjó hafa verið
stundaðar í lengri tíma. Hins vegar
er þetta í fyrsta sinn á Íslandi,“
segir Katrín Sóley Bjarnadóttir,
sérfræðingur í teymi hafs og vatns
hjá Umhverfisstofnun. Rannsóknir
hafa sýnt að fýlar gleypa mikið af
plasti og eru þeir því kjörið rann-
sóknarefni til þess að fylgjast með
og vakta plastmengun í sjó. Þeir afla
sér fæðu eingöngu á sjó og sjaldan
nærri landi. Þá eiga þeir erfitt með
að kafa og næla sér því í það sem
er næst yfirborði sjávar, sem iðu-
lega eru plastagnir sem líkjast fæðu.
Rannsóknirnar eru þegar hafnar
en Þorkell Lindberg, forstöðu-
maður NNA, fer þar fyrir þeim en
mikið nákvæmnisverk er að greina
plast frá náttúrulegri fæðu í maga
fuglanna.
Katrín Sóley segir að það taki
þó einhvern tíma að koma ferlinu
almennilega í gang. „Hluti af samn-
ingnum við NNA er að virkja sjó-
menn til þess að taka þátt í að safna
fýlum sem festast í netum og línum
og koma þeim til Náttúrustofu
Norðausturlands.“ Þorkell safnar
nú sýnum og í haust fer krufning
og úrvinnsla fram. Enn kemur ekki
inn nógu mikið af fýl sem finnst
ýmist dauður á ströndum eða fest-
ist í veiðarfærum fiskiskipa. „Við
reynum að nota þá söfnunaraðferð
hér á Íslandi. Við eigum síðan von á
niðurstöðum í lok þessa árs, en svo
er ætlunin að halda þessari vöktun
áfram í lengri tíma. Grunnurinn fyrir
öllum náttúruverndaraðgerðum er
að hafa gögn um hvert raunverulegt
ástand er.“ gj@frettabladid.is
Rannsókn á plastmengun í
maga fýla á Íslandi er hafin
Fýlar afla sér fæðu mest sem næst yfirborði sjávar og gleypa því oft plast. Fréttablaðið/Ernir
VIðSkIptI Héraðsdómur Reykjavík-
ur hefur í dag staðfest að Byko hafi
framið alvarleg brot á samkeppnis-
lögum og hækkað álagða sekt í 400
milljónir króna. Áfrýjunarnefnd
samkeppnismála hafði talið 65
milljóna króna sekt hæfilega.
Í maí 2015 komst Samkeppnis-
eftirlitið að þeirri niðurstöðu að
Byko hefði brotið gegn samkeppn-
islögum og EES-samningnum með
umfangsmiklu ólögmætu samráði
við gömlu Húsasmiðjuna. Var um
að ræða samráð um verð á bygg-
ingavörum. Málið hófst þegar Múr-
búðin sneri sér til Samkeppniseftir-
litsins og gerði grein fyrir tilraunum
Byko og gömlu Húsasmiðjunnar til
að fá Múrbúðina til að taka þátt
í hinu ólögmæta samráði. Taldi
Samkeppniseftirlitið að um alvarleg
brot væri að ræða og lagði 650 millj-
óna króna sekt á Norvik, móður-
félag Byko.
Norvik og Byko kærðu ákvörðun
Samkeppniseftirlitsins til áfrýj-
unarnefndar samkeppnismála. Í
október 2015 komst nefndin að
þeirri niðurstöðu að Byko hefði
tekið þátt í ólögmætu verðsamráði
og brotið gegn samkeppnislögum.
Hins vegar féllst nefndin ekki á að
ákvæði EES-samningsins hefðu
verið brotin. Einnig taldi nefndin
að brot Byko væru ekki jafn alvar-
leg og Samkeppniseftirlitið lagði
til grundvallar. Taldi nefndin því
hæfilegt að lækka sekt Byko úr 650
milljónum króna í 65 milljónir.
Samkeppniseftirlitið höfðaði
mál fyrir héraðsdómi þar sem eftir-
litið byggði á því að áfrýjunarnefnd
samkeppnismála hefði túlkað EES-
samninginn með röngum hætti.
Einnig hefði nefndin ekki lagt rétt
mat á alvarleika brota Byko og sekt
nefndarinnar gæti ekki tryggt full-
nægjandi varnaðaráhrif. Slík áhrif
eru mikilvæg til að stuðla að því
að fyrirtæki raski ekki samkeppni,
neytendum til tjóns. Samkeppnis-
eftirlitið krafðist þess að sekt Byko
yrði hækkuð.
Héraðsdómur komst að þeirri
niðurstöðu að sekt áfrýjunar-
nefndar væri of lág. Engum vafa sé
undirorpið að um sé að ræða sam-
ráð í skilningi samkeppnisréttar.
Einnig féllst dómurinn á að ákvæði
EES-samningsins hafi verið brotin.
– jhh
Héraðsdómur hækkar sekt á Byko úr 65 milljónum í 400 milljónir
byko þarf að
greiða mun hærri
sekt eftir dóm
Héraðsdóms
reykjavíkur.
Fréttablaðið/
Ernir
LögREgLUMÁL Til átaka kom milli
bílstjóra og farþega um borð í Strætó
í Borgarnesi í gærmorgun. Vagninn
var kominn á leiðarenda frá Reykja-
vík til Borgarness þegar atvikið varð.
Vagnstjóri ýtti þá við sofandi far-
þega sem greitt hafði fyrir far upp í
Borgarnes, og vildi að hann yfirgæfi
vagninn áður en hann héldi af stað
suður á nýjan leik. Farþeginn sem
mun hafa verið í annarlegu ástandi,
brást hinn versti við og lét að sögn
höggin dynja á vagnstjóranum.
Maðurinn var í kjölfarið hand-
tekinn og er í fangelsi í Borgarnesi,
að sögn Guðmundar Heiðars Helga-
sonar, upplýsingafulltrúa Strætó. – bg
Farþegi réðst
á bílstjóra
SkagaFjöRðUR Öll tímalaun í
Vinnuskóla Skagafjarðar hafa
verið hækkuð um 120 krónur.
Hækkunin er hlutfallslega mest
á tímakaupi nemenda í sjöunda
bekk sem fer úr 417 krónum í 517
krónur. Launin fara síðan stighækk-
andi eftir aldri og verða 830 krónur
á tímann fyrir nemendur úr tíunda
bekk.
Félags- og tómstundanefnd
Skagafjarðar segir launin hækkuð
til að bregðast við ábendingum íbúa
og þannig að launin standist vel
samanburð við önnur sveitarfélög
án þess að stytta vinnutímabilið –
sem sé lengra heldur en að meðaltali
í vinnuskólum landsins. – gar
Launin hækka í
vinnuskólanum
830
krónur fá nemendur úr
10. bekk í laun á tímann
Hluti af samningn-
um við NNA er að
virkja sjómenn til þess að
taka þátt í að safna fýlum
sem festast í netum og línum
Katrín Sóley Bjarna-
dóttir, sérfræðing-
ur hjá Umhverfis-
stofnun
Aukið fjármagn veitt til
rannsókna sem tengjast
plastmengun. Rannsókn
á fýlum er þekkt í Norð-
ursjó en stunduð í fyrsta
sinn á Íslandi. Niður-
stöður munu liggja fyrir
í lok árs. Vöktun verður
haldið áfram í lengri
tíma
1 7 . M a í 2 0 1 8 F I M M t U D a g U R6 F R é t t I R ∙ F R é t t a B L a ð I ð
1
7
-0
5
-2
0
1
8
0
4
:0
9
F
B
0
5
6
s
_
P
0
5
1
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
5
6
s
_
P
0
4
6
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
5
6
s
_
P
0
0
6
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
5
6
s
_
P
0
1
1
K
.p
1
.p
d
f
A
u
to
m
a
ti
o
n
P
la
te
r
e
m
a
k
e
:
1
F
C
D
-6
2
0
C
1
F
C
D
-6
0
D
0
1
F
C
D
-5
F
9
4
1
F
C
D
-5
E
5
8
2
7
5
X
4
0
0
.0
0
1
5
B
F
B
0
5
6
s
_
1
6
_
5
_
2
0
1
8
C
M
Y
K