Fréttablaðið - 31.05.2018, Side 10
Viðskipti Guðrún Hafsteinsdóttir,
formaður Samtaka iðnaðarins og
stjórnarformaður Lífeyrissjóðs
verslunarmanna, hefur verið kjörin
formaður Landssamtaka lífeyris-
sjóða. Guðrún er fyrsta konan í for-
mannsstóli samtakanna frá stofnun
1998. Framkvæmdastjóri Lands-
samtaka lífeyrissjóða frá 2011 er
Þórey S. Þórðardóttir. Því eru konur
í báðum æðstu forystustörfum líf-
eyrissjóðakerfis landsmanna. – jhh
Í forystu fyrir
lífeyrissjóðina
UMHVERFisMÁL Guðmundur Ingi
Guðbrandsson, umhverfis- og
auðlindaráðherra, telur tillögur
framkvæmdastjórnar Evrópusam-
bandsins um aðgerðir gegn notkun
einnota plastumbúða ríma vel við
stefnu íslenskra stjórnvalda.
Tillögurnar sem voru formlega
kynntar á mánudag ganga meðal
annars út á að sett verði bann við
notkun ákveðinna einnota hluta úr
plasti. Meðal þeirra hluta sem lagt
er til að verði bannaðir eru drykkj-
arrör úr plasti, einnota diskar og
hnífapör úr plasti og eyrnapinnar.
Guðmundur Ingi segist gera ráð fyrir
að tillaga að nýrri tilskipun verði
tekin upp í EES-samninginn.
„Ég er í þann mund að setja á
fót samráðsvettvang um aðgerða-
áætlun í plastmálefnum sem hefur
það hlutverk að koma með tillögur
um hvernig dregið verði úr notkun
plasts,“ segir Guðmundur Ingi.
Hópnum sé einnig ætlað að koma
með tillögur að æskilegum stjórn-
valdsaðgerðum og hugmyndir um
nýsköpun í vörum sem leyst geta
plast af hólmi. Von sé á tillögunum
í nóvember á þessu ári.
Björn H. Halldórsson, fram-
kvæmdastjóri Sorpu, segir að magn
plastumbúða sem skili sér til endur-
vinnslu sé alltaf að aukast. Hins
vegar sé alltaf hægt að gera betur.
„Svo er líka spurning hvort það
þurfi ekki að skoða hvernig hægt
sé að minnka magn plastumbúða.
Það þarf að ráðast að rót vandans,“
segir Björn.
Árið 2016 fóru rúm 15.000 tonn af
plastumbúðum á markað hérlendis
en tæp 43 prósent skiluðu sér til
endurvinnslu sem er heldur hærra
hlutfall en fyrir árin 2014 og 2015.
Að sögn Guðlaugs Gylfa Sverris-
sonar, rekstrarstjóra hjá Úrvinnslu-
sjóði, er það hlutfall sambærilegt
við önnur Evrópulönd en munur-
inn sá að víða í Evrópu fari þar að
auki mikið magn af plasti í endur-
nýtingu í gegnum brennslu sem sé
ekki mögulegt hér.
Guðlaugur segir að með til-
komu grenndargáma og lausna
eins og grænna tunna hafi í raun
orðið ákveðið stökk í endurvinnslu
plasts. „Það er okkar skoðun að það
sé sterk fylgni milli árangurs og þess
hve nálæg þjónustan er íbúum.
Það tók í raun ekki langan tíma að
kenna Íslendingum á þetta.“
Stefán Magnússon, sölu- og
markaðsstjóri Coca-Cola á Íslandi,
segir fyrirtækið fylgjast vel með
umræðunni um plastnotkun og
vera meðvitað um mikilvægi auk-
innar endurvinnslu. Í gangi sé til að
mynda verkefni sem snúi að því að
minnka plastnotkun við framleiðslu
umbúða.
„Það er okkar markmið að allar
okkar umbúðir séu endurunnar eða
endurnotaðar. Varðandi drykkjar-
rörin, þá er það í skoðun en það þarf
að koma efni í staðinn sem hefur
næg gæði.“ sighvatur@frettabladid.is
Segir tillögur ríma við stefnuna
Samráðsvettvangur um aðgerðaáætlun í plastmálefnum skilar ráðherra tillögum að aðgerðum í nóvember.
ESB leggur til bann við vissum einnota hlutum. Framkvæmdastjóri Sorpu vill að ráðist sé að rót vandans.
Gríðarlegt magn af plastúrgangi hefur verið safnað í endursvinnslustöðinni í Gufunesi. Fréttablaðið/SiGtryGGur ari
GRÆNLAND Velji Grænlendingar
kínverskan verktaka vegna gerðar
flugvalla er hætta á komu kín-
verskra hermanna til landsins. Þetta
sagði varnarmálaráðherra Banda-
ríkjanna, Jim Mattis, á fundi með
varnarmálaráðherra Danmerkur,
Claus Hjort Frederiksen.
Kínverska ríkisfyrirtækið China
Communications Construction
Company, CCCC, býður í gerð flug-
valla í Nuuk, Ilulissat og Qaqortoq.
Mattis benti á hernaðarum svif
Kínverja í Suður-Kínahafi. Gaf hann
þar með í skyn að gera mætti ráð
fyrir slíkum umsvifum víðar. – ibs
Grænland varað
við Kínverjum
Frá Nuuk, höfuðstað Grænlands.
NOrDiCPHOtOS/aFP
Það er okkar
markmið að allar
okkar umbúðir séu endur-
unnar eða endurnotaðar.
Stefán Magnússon, sölu- og markaðs-
stjóri Coca-Cola á Íslandi
Guðrún
Hafsteinsdóttir,
formaður ll.
Hæfni og yfirburðir Ford Kuga AWD liggja í öflugu fjórhjóladrifi,
mikilli veghæð og einstakri dráttargetu þar sem hann leikandi dregur
2.100 kg. Þú situr hátt í Kuga, aksturseiginleikar eru fyrsta flokks og
þægindin í hámarki. Ford Kuga er búinn íslensku leiðsögukerfi,
8“ skjá, Bluetooth, raddstýringu og fimm stjörnu öryggi.
Brimborg Reykjavík
Bíldshöfða 6
Sími 515 7000
Brimborg Akureyri
Tryggvabraut 5
Sími 515 7050
Nýir og notaðir bílar:
Söludeildir eru opnar alla virka daga kl. 9-17
og laugardaga kl. 12-16
FORD KUGA TITANIUM S AWD
YFIRBURÐIR!
ford.is
5.190.000
FORD KUGA TITANIUM S AWD SJÁLFSKIPTUR
TILBOÐSVERÐ:
VERÐ ÁÐUR: 5.610.000 KR.
KR.
A F S L Á T T U R
-420.000 KR.
Ford_Kuga_Tilboð_3_5x15_20180528_END.indd 1 28/05/2018 14:24
3 1 . M A í 2 0 1 8 F i M M t U D A G U R10 F R é t t i R ∙ F R é t t A B L A ð i ð
3
1
-0
5
-2
0
1
8
0
4
:4
8
F
B
0
6
4
s
_
P
0
5
8
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
6
4
s
_
P
0
5
5
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
6
4
s
_
P
0
0
7
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
6
4
s
_
P
0
1
0
K
.p
1
.p
d
f
A
u
to
m
a
ti
o
n
P
la
te
r
e
m
a
k
e
:
1
F
F
5
-1
D
4
C
1
F
F
5
-1
C
1
0
1
F
F
5
-1
A
D
4
1
F
F
5
-1
9
9
8
2
7
5
X
4
0
0
.0
0
1
7
A
F
B
0
6
4
s
_
3
0
_
5
_
2
0
1
8
C
M
Y
K