Fréttablaðið - 31.05.2018, Qupperneq 30
Náttúrulegar trefjar
sem hjálpa til við
þyngdarstjórnun,
viðhalda eðlilegu
kólesteróli og
bæta meltinguna
Náttúrulegar trefjar
sem hjálpa til við
þyngdarstjórnun,
viðhalda eðlilegu
kólesteróli og
bæta meltinguna
Náttúrulegar trefjar sem
hjálpa til við þyngdarstjórnun,
viðhalda eðlilegu kólesteróli
og bæta meltinguna
Hlaupaferill Rúnu Rutar Ragn-arsdóttur hófst um alda-mótin þegar hún byrjaði
að hlaupa úti á sumrin eftir langa
inniveru í ræktinni yfir veturinn.
Sama ár tók hún þátt í sínu fyrsta
keppnishlaupi en eftir bakslag
lagði hún hlaupaskóna á hilluna
í fáein ár. Þegar fjölskyldan flutti
til Boston árið 2005 hófst hlaupa-
ferillinn á ný og hefur staðið yfir
óslitið síðan. Nokkrum árum síðar
hóf hún að stunda utanvegahlaup
en síðasta rúma árið hefur hún
tekið þátt í tveimur skemmtilegum
og krefjandi utanvegahlaupum
í Hong Kong og á eyjunni Elbu
skammt undan ströndum Ítalíu.
Rúna segir að upphaflega hefði
hún ekki trúað því að hún gæti
haft gaman af hlaupum enda ekki
þolað þau sem barn. Það var ekki
fyrr en eiginmaður hennar, Tómas
Ingason, dró hana út að hlaupa
sem hún lærði að njóta þess að
hreyfa sig utandyra. „Ég man þegar
ég fór í Öskjuhlíðina með honum
í fyrsta sinn hvað ég þoldi ekki
ójafnt undirlagið. Á þeim tíma-
punkti hefði ég aldrei trúað því
að ég ætti eftir að hlaupa í 100 km
fjallahlaupi á lífsleiðinni.“
Hún segir mest heillandi við
hlaupin að þar sé hægt að láta
drauma sína rætast. „Það er eitt-
hvað svo heillandi við að hlusta á
draumana sína, láta þá verða að
veruleika og leyfa þeim að þróast í
nýjar áskoranir.“
Gefa aukið sjálfstraust
Ákveðin kaflaskil urðu á hlaupa-
ferli Rúnu þegar fjölskyldan flutti
til Boston árið 2005. „Á þessum
tíma hafði ég hvílt hlaupin í góðan
tíma. Ég datt inn á heimasíðu um
Boston hálfmaraþon og ákvað að
slá til. Dóttir mín var þá tveggja
ára þannig að ég hljóp með hana
í hlaupakerru þegar ég var að
undirbúa mig. Ég man að þegar
ég kom í mark hugsaði ég að það
væri nú bara skrítið fólk sem færi
tvöfalt þá vegalengd. Þremur
mánuðum síðar rákumst við
hjónin á bók um maraþon eftir Hal
Higdon og í ágúst 2006 hlupum
við okkar fyrsta maraþon. Síðan
þá hef ég hlaupið í þrettán mara-
þonhlaupum og nokkrum ultra
hlaupum. Þrisvar sinnum hef ég
hlaupið Laugaveginn og einu sinni
Esjumaraþon og Hengilshlaupið.“
Hún segir magnað að horfa til
baka og sjá hvernig hlaupin hafi
þróast hjá henni en þau hafi gefið
sér miklu meira en hana grunaði.
„Ég hef notað þau að mestu
sem andlega uppbyggingu og
hvatningu til að láta drauma mína
rætast, stóra sem smáa. Hlaupin
hafa gefið mér aukið sjálfstraust og
ég hef lært að ég er enginn meðal-
jón heldur manneskja sem getur
svo miklu meira en ég hélt.“
Getur nánast allt
Langhlaupin hafa líka gert Rúnu
þolinmóðari en hún segist ekki
þolinmóð að eðlisfari heldur vilji
kýla á hlutina strax. „Þess vegna
hef ég t.d. ekki lagt í að stunda golf.
Með hverju skrefinu sem ég tek
verð ég sterkari. Það að ákveða
eitthvað, og láta af því verða, hefur
gefið mér mikinn styrk og trú á að
ég geti nánast allt. Auðvitað hafa
hlaupin líka byggt mig upp líkam-
lega en það er ekki ástæðan fyrir
því að ég hleyp, það er bara bónus.
Til að hlaupa langar vegalengdir
þarf að vera sterkur en ekki síður
Helga María, hlaupafélagi Rúnu
Rutar, tekur hér mynd af öllum
hópnum við drykkjarstöð á Elbu.
Rúna Rut fyrir miðri mynd ásamt hlaupavinkonum sínum Helgu Maríu (t.v.)
og Millu, eftir að hafa klára 40 km hlaup á eyjunni Elbu í síðasta mánuði.
Rúna Rut Ragnarsdóttir kemur hér í mark í Hengill Ultra hlaupinu síðasta sumar. MYND/HENGill UltRa
Sæl og glöð eftir flott 45 km Esju
maraþon síðasta sumar.
Útgefandi:
365 miðlar
Veffang:
frettabladid.is
Ábyrgðarmaður:
Elmar Hallgríms Hallgrímsson
Sölumaður auglýsinga:
Ólafur H. Hákonarson, olafurh@frettabladid.is, s. 512 5433
þarf höfuðstykkið að vera í lagi. Svo
er líka nauðsynlegt að hafa húmor
fyrir sjálfum sér og geta skemmt
sér einn. Hlaupin hafa ekki bara
hjálpað mér andlega og líkamlega
heldur í vinnunni líka þar sem ég
nota þessa aðferðafræði varðandi
þær hugmyndir sem ég fæ.“
Brosandi í mark
Eins og fyrr segir lauk Rúna
tveimur utanvegahlaupum í
Hong Kong og á Ítalíu á síðasta
ári og nú nýlega. Hún segir Hong
Kong hlaupið hafa átt sér smá
aðdraganda. „Sumarið 2016 ákvað
ég að hlaupa í Laugavegshlaupinu
og var planið að bæta tímann. Það
breyttist þegar ég ákvað að taka
Esjumaraþon, sem er 45 km hlaup
með 3.200 m hækkun, mánuði
áður og Reykjavíkurmaraþonið
mánuði síðar. Ég fór því þessi þrjú
hlaup á þremur mánuðum en ég
var ákveðin í að ef ég gæti það þá
myndi ég skrá mig í Hong Kong
hlaupið sem er 100 km hlaup.“
Hún tók undirbúninginn mjög
skynsamlega að eigin sögn og
ákvað í raun að æfa eins lítið og
hún kæmist upp með. Markmiðið
var í raun að koma brosandi í mark
og hafa gaman af. „Þetta hlaup var
ein magnaðasta upplifun mín til
þessa og ég kláraði innan þeirra
tímamarka sem mig dreymdi um.
Við vinkonurnar komum saman
brosandi í mark en það sem gerði
hlaupið algjörlega einstakt var að
við hlupum saman alla leiðina.
Það var alls ekki planið því ég vil
hlaupa á mínum forsendum og
það er bónus ef maður er í samfloti
með góðri vinkonu eða vini. Þetta
var upplifun sem ég mun aldrei
gleyma og hefur mótað mig mikið
sem einstakling.“
lét hjartað ráða
Rúna byrjaði að þjálfa hjá hlaupa-
hópnum Náttúruhlaupum í apríl
og þannig heyrði hún um hlaupið
á Elbu. „Það var í kringum miðjan
apríl sem ég ákvað að fara með
hópnum. Ég skráði mig fyrst í 20
km hlaup en innst inni langaði mig
í lengra hlaup. Rúmum tveimur
vikum fyrir hlaupið ákvað ég að
láta hjartað ráða og fara frekar 40
km og voru hlaupafélagar mínir
himinlifandi.“
Hún segir hlaupið hafa gengið
vonum framar og kláraði hún það á
30 mínútna skemmri tíma en plön
gerðu ráð fyrir. „Ég fann ekki mikið
fyrir þessu hlaupi enda komin með
góðan hlaupagrunn. Ég vildi þó
ekki fara hraðar enda var planið
ekki að fara í neina keppni þar sem
upplagið var bara að njóta.“
alltaf þakklát á ráslínu
Á löngum hlaupaferli hefur ekki
allt gengið upp að sögn Rúnu og
einu sinni þurfti hún að hætta
keppni vegna veikinda. „Það var
mjög svekkjandi en bara partur af
þessu og eftir það er ég alltaf þakk-
lát fyrir að vera á ráslínu og svo að
komast í mark. Tími er svona meira
auka markmið en ég fer ýmist í
hlaup með tímamarkmið í huga
eða þar sem ég er alls ekkert að spá
í það.“
Hún segist endalaust þakklát
manninum sínum fyrir að hafa
dregið sig út að hlaupa á sínum
tíma og að hafa stutt sig í gegnum
þessi ævintýri. „Eins hafa börnin
hvatt mig til dáða. Það er aldrei
að vita nema maður setji saman
maraþon myndabók til að sýna
barnabarnabörnunum en mark-
mið mitt er að hlaupa maraþon
eða lengra hlaup þegar ég verð 70
ára.“
Mikið úrval af TYR
sundfatnaði - nýjar
gerðir og litir, úr
DURAFAST 300+
efninu, sem er
sérlega klórþolið og
lithelt.
Kíktu á úrva ið á
heimasíðu okkar
www.aquasport.is
Bæjarlind 1-3, 201 Kópavogur
sími: 5640035
2 KYNNiNGaRBlaÐ 3 1 . M a í 2 0 1 8 F I M MT U DAG U RNæRiNG, HEilSa oG lífSStíll
3
1
-0
5
-2
0
1
8
0
4
:4
8
F
B
0
6
4
s
_
P
0
4
6
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
6
4
s
_
P
0
3
5
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
6
4
s
_
P
0
1
9
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
6
4
s
_
P
0
3
0
K
.p
1
.p
d
f
A
u
to
m
a
ti
o
n
P
la
te
r
e
m
a
k
e
:
1
F
F
4
-F
F
A
C
1
F
F
4
-F
E
7
0
1
F
F
4
-F
D
3
4
1
F
F
4
-F
B
F
8
2
7
5
X
4
0
0
.0
0
1
4
A
F
B
0
6
4
s
_
3
0
_
5
_
2
0
1
8
C
M
Y
K