Morgunblaðið - 17.10.2017, Qupperneq 11
skottlokið sé langur stallur til móts
við afturrúðuna. Það hjálpar eflaust
einhverjum ef ég nefni Audi A7 í
þessu sambandi. Að því sögðu minnti
afturendinn, ljósin og heildarsvip-
urinn allur undirritaðan einna helst á
seinni ára gerðir Maserati Quattro-
porte. Fyrir fáeinum misserum
hefðu slík hugrenningatengsl milli
Kia og Maserati þótt á mörkum
brjálsemi og veruleikafirringar, en
hvað get ég sagt – Kia eru bara að
gera dúndurgott mót með þessum
bíl.
Fallega hannaður, vel búinn
Það er ekki nóg að vera fallegur
ásýndum ætli bíll að keppa við að-
albílana í E-flokki og þessu hafa Kia
gert sér grein fyrir. Efnisvalið og
hönnunin er til stakrar fyrirmyndar
inni í Stinger, bæði fyrir farþega og
ökumenn. Framsætin eru þokkalega
djúp „bucket-sæti“ svo sem hæfir
aflmiklum bíl, en til fyrirmyndar
þótti mér að við hlið annarra stillinga
á sæti var hnappur sem þrengir hlið-
arnar að ökumanni svo hann situr
sem pikkfastast, jafnvel þegar farið
er geyst í krappar beygjur. „Cut-off“
stýrið er fallegt og þægilegt auk þess
sem stýringin er hreint fyrirtak, að-
gerðaskjárinn stór og skýr, og mér
þótti býsna smart að ekki einasta
sýnir bíllinn hámarkshraðann hve-
nær sem skilti þar að lútandi ber fyr-
ir augu, heldur les hann einnig skilti
sem banna framúrakstur og gefur
stöðuna til kynna í samræmi við það,
bæði í mælaborði og á skjánum.
Þessi búnaður er reyndar þegar til
staðar í öðrum Kia-bílum, alltént nýj-
asta Sportage, og er til fyrirmyndar.
Stinger steinliggur á veginum og er
stórskemmtilegur akstursbíll.
Hentar vel til hraðaksturs
Þeir lesendur sem eru nógu gamlir
til að muna þá tíð þegar maður tók
ekki myndir á símann sinn heldur á
apparöt er kölluðust „myndavélar“
og fór í framhaldinu með filmur úr
téðum vélum til framköllunar. Ef vel
tókst til að mati starfsfólks framköll-
unarstofunnar í það skiptið var sett-
ur límmiði á ljósmyndina sem á stóð:
„Hentar vel til stækkunar“. Þegar ég
var á dögunum staddur á Mallorca
við reynsluakstur á Stinger hefði ég
vel getað hugsað mér að hafa á mér
límmiðann sem á stæði „Hentar vel
til hraðaksturs“ því ég hefði um-
svifalaust splæst einum slíkum á bíl-
inn. Hér verður þó að taka fram að
hér er helst átt við Stinger í GT út-
færslu, sem býr yfir 370 hestöflum
og upptaki sem drífur hann í 100 km/
klst á 4,9 sekúndum. Alveg hreint
frábærlega skemmtilegur bíll, í sem
stystu máli sagt. Stinger var tekinn
til kostanna á margvíslegum vett-
vangi, inni í smábæjum, úti á hrað-
brautum og meira að segja á kapp-
akstursbraut, og alls staðar naut
hann sín með miklum ágætum.
Fjöðrunin er frábær, allt frá mjúkri
fjöðrun í Comfort-stillingu og yfir í
vel stífa hraðakstursfjöðrun í
Sport+ stillingu. Brembobremsur í
Stinger GT sáu svo um að hemla eins
og best verður á kosið.
Í þessu sambandi verður þó að
benda á að Askja mun bjóða upp á
bílinn í tveimur útfærslum og sitt er
hvað þegar allt er sett upp á strik,
Stinger GT Line og Stinger GT.
Sá fyrrnefndi er fjórhjóladrifinn
með 2,2 lítra díselvél, 200 hestöfl,
sem er sú sama og Sorrento-jeppinn
frá Kia skartar. Upptakið er 7,6 sek-
úndur í 100 km/klst.
Kia Stinger GT er aftur á móti
bensínbíll með 3300 rúmsetrimetra
sprengirými, sturlað vélarhljóð og
370 hestöfl sem dreifast á hjólin fjög-
ur og sem fyrr sagði 4,9 sek. í hund-
raðið. Þó GT Line bíllinn sé enginn
skussi þá er GT einfaldlega á öðrum
stað í tilverunni og þar er Kia að láta
að sér kveða með þeim hætti að eng-
in leið er að hunsa Stinger.
Bíll sem breytir landslaginu
Kia eru semsagt komnir með bíl
sem á fullt erindi inn í hóp skemmti-
legustu og bestu kraftbílanna í E-
flokki. Stóra fréttin er sú að ef þú
ætlar að fá þér jafn öflugan bíl og
Stinger GT þá þarf að leita í hóp
Benz E 43 AMG, BMW M5 eða Audi
S6 – semsagt sérútgáfurnar af þýsku
þrenningunni – og þar sleppurðu
aldrei með verðmiða undir 15 millj-
ónum á meðan Stinger GT kostar um
10 millur. Þjóðverjarnir komast þar
af leiðandi ekki hjá því að líta um öxl
því það er nýr aðili fluttur í bæinn og
hann mun að öllum líkindum setja
talsvert mark á landslagið á næstu
mánuðum og misserum.
Innviðirnir eru óneitanlega fallegir og sportlegir; fágun og töffaraskapur í jöfnum hlutföllum.
Séð er til þess að farþegar í aftursæti hafi loftflæði og loft-
gæði í lagi. Hér þarf ekki að væsa um nokkurn mann.
Aftursætin eru þægileg og fótarýmið geysimikið. Þrír fullorðnir komast fyrir með bílbelti en
það fer talvert betur um tvo eins og sjá má á hönnum aftursætisbekksins í bílnum.
Flott útlit vekur athygli en það er mátturinn og dýrðin undir húddinu sem fær pyngjuna til að
opnast og léttast í framhaldinu. Vélarhljóðið í GT gerðinni er hreint út sagt unaðslegt.
Skottrýmið er 406 lítrar sem er vel ásættanlegt fyrir þennan bíl en eykst upp í rúmlega 1100
ef aftursætin eru lögð niður. Það færist til bókar sem býsna gott fyrir sportlegan fólksbíl.
19 tommu álfelgurnar fara Kia Stinger vel enda má það ekki minna vera þegar 370 hestöfl
knýja farartækið. Hönnunin nýtur sér ekki síður vel ásýndar þegar bíllinn er á ferð.
MORGUNBLAÐIÐ | 11