Morgunblaðið - 10.11.2017, Qupperneq 1

Morgunblaðið - 10.11.2017, Qupperneq 1
F Ö S T U D A G U R 1 0. N Ó V E M B E R 2 0 1 7 Stofnað 1913  265. tölublað  105. árgangur  Nýbý l aveg i 8 Kópavog i og Aus tu r veg i 4 S e l f o s s i - S ím i 527 1717 - domusnova . i s FRÍTT V ERÐMA T HAGLEIKS- MAÐUR Á SKURÐSTOFU ER ELST NÚLIFANDI ÍSLENDINGA ÁSTIN SIGRAR ALLTAF AÐ LOKUM 108 ÁRA Í DAG 34 SAGA ÁSTU  39TRÉSKURÐUR 12  Tafir og mis- tök í prentsmiðju í Finnlandi settu íslenska jóla- bókaflóðið í upp- nám um tíma. Yf- ir 100 þúsund eintök íslenskra bóka eru prentuð þar í landi að þessu sinni og nýr tækjabúnaður í prentsmiðjunni reyndist erfiður ljár í þúfu. „Þegar fyrstu bækurnar komu í hús þurftum við að láta endur- prenta bæði heilu upplögin og kápu. Útkoman var ekki ásættanleg og við létum lagfæra allt sem ekki var 100%. Plastpökkunin uppfyllti ekki gæðakröfur og við þurftum að endurplasta yfir 30.000 eintök hér á landi,“ segir Egill Örn Jóhanns- son, framkvæmdastjóri Forlagsins. Þetta hafði verulega röskun í för með sér og fyrst nú er dreifing komin á áætlun. »6 Þurftu að endur- prenta heil upplög í jólabókaflóðinu Baldur Arnarson baldura@mbl.is Aðfluttir erlendir ríkisborgarar um- fram brottflutta voru rúmlega 6.600 á fyrstu níu mánuðum ársins. Þá komu hingað um 4.600 erlendir ríkis- borgarar sem útsendir starfsmenn, eða sem vinnuafl hjá starfsmanna- leigum, fyrstu tíu mánuði ársins. Báðar tölurnar eru metfjöldi og er nú útlit fyrir að fleiri erlendir ríkis- borgarar leiti hingað í núverandi uppsveiflu, 2015-2017, en gerðu samanlagt þensluárin 2005-2007. Páll Guðjónsson, framkvæmda- stjóri Samtaka sveitarfélaga á höfuðborgarsvæðinu (SSH), segir áformað að greina áhrif aðflutnings erlendra ríkisborgara á menntakerf- ið. M.a. þurfi að skoða aldursdreif- ingu hópsins sem hingað kemur. Kallar á nýtt borgarskipulag Hrafnkell Á. Proppé, svæðisskipu- lagsstjóri SSH, segir orðið aðkall- andi að taka þennan aðflutning til greina við hönnun skipulags. Ætla megi að aðflutningurinn auki eftir- spurn eftir ódýrari íbúðum og leigu- húsnæði. Þá kunni eftirspurn eftir almenningssamgöngum að aukast vegna þessa fjölmenna nýja hóps. „Það þarf að greina áhrifin á hús- næðismarkaðinn og hvernig húsnæði þarf að byggja. Þetta er hluti af því að fullorðnast sem borgarsamfélag. Líkanið hefur verið einfalt. Horft hefur verið á stærð árganga. Myndin er orðin miklu flóknari,“ segir hann. Ólafur Már Sigurðsson, sérfræð- ingur hjá Hagstofunni, segir unnið að greiningu á hreyfanlegu vinnuafli. Innflytjendur aldrei fleiri  Um 6.600 fleiri erlendir ríkisborgarar hafa flutt til landsins en frá því á árinu  Að auki hafa um 4.600 útlendingar komið hingað gagngert vegna atvinnutilboðs MMesti aðflutningur … »14 Erlendir ríkisborgarar Aðfluttir umfram brottflutta* Starfsmenn hjá starfsmannaleigum** Útsendir starfsmenn erlendra fyrir- tækja** Heimild: Vinnumálastofnun og Hagstofan. *Janúar til september 2017. **Janúar til október 2017. 6.6201.624 3.002 2017 alls 11.246 Agnes Bragadóttir agnes@mbl.is Bjarni Benediktsson, formaður Sjálfstæðisflokksins, og Sigurður Ingi Jóhannsson, formaður Fram- sóknarflokksins, hittust síðdegis í gær á heimili Bjarna í Garðabæ þar sem formennirnir ræddu hugsanlegt ríkisstjórnarsamstarf flokkanna tveggja, með fulltingi Vinstrihreyf- ingarinnar – græns framboðs. Samkvæmt upplýsingum Morg- unblaðsins gerðist þar fyrir utan ekki mikið í stjórnarmyndunar- viðræðum í gær. „Menn hafa verið að glöggva sig á því að ef þetta gæti orðið og fengi stuðning, þá hlýtur að þurfa að fara miklu dýpra ofan í málefnin,“ sagði þingmaður Sjálfstæðisflokksins í gærkvöld. Hann kvaðst telja að flokkarnir sem um ræðir, þ.e. Sjálfstæð- isflokkur, VG og Framsókn- arflokkur, þyrftu kannski eitthvað meira svigrún, sem hann var ekki sannfærður um að forsetinn myndi veita. Telja línur skýrast í dag  Ræddu saman á heimili Bjarna í gær Hvítt teppi lá yfir höfuðborgarsvæðinu í gær- kvöldi eftir hressilegt él. Bíleigendur sem hreyfðu bíla sína þurftu að skafa töluvert snjólag af rúðum. Tveir ferðamenn frá Frakklandi og Þýskalandi sem ljósmyndari hitti við Sæbraut í gærkvöldi voru í óðaönn að búa til snjókall. Veðurfræðingar búast við éljum og snjókomu norðanlands og austan og stöku éljum á höfuð- borgarsvæðinu næstu daga. Kröftugt él setti mark sitt á höfuðborgina í gærkvöldi Morgunblaðið/Árni Sæberg Snjóteppi yfir götum og bílum

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.