Morgunblaðið - 10.11.2017, Blaðsíða 14
14 FRÉTTIRInnlent
MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 10. NÓVEMBER 2017
Illuminate colour
Illuminate colour línan er byggð á lífrænni Acai olíu og hörfræ olíu.
Þessar nærandi olíur eru notaðar til að byggja upp mýkt
og hjálpar við viðgerð á hárinu.
Næringaríka olían er full af omega 3, omega 6 og
öðrum fjölbreyttum vítamínum. Eins og t.d. B1,B2, B3
og Vítamín C+D. Ávinningur þessara efna bjóða
upp á fullkomna blöndu af auknum gljáa og ljóma.
Modus Hár og Snyrtistofa - Smáralind | harvorur.is
REF Stockholm er 12 ára gamalt
Professional haircare merki
REF Stockholm er 100 % Vegan ,
sulfate, Paraben, glúten
og Cruelity free
Sjá nánar á harvorur.is
bjuggu um 2.600 manns á Ísafirði um
síðustu áramót.
Tvöfalt fleiri en í fyrra
Samtals rúmlega þrjú þúsund
starfsmenn voru skráðir á starfs-
mannaleigum á fyrstu tíu mánuðum
ársins. Það eru nærri tvöfalt fleiri en
allt árið í fyrra, þegar 1.527 starfs-
menn voru skráðir hjá leigunum.
Sandra Árnadóttir, sérfræðingur
hjá Vinnumálastofnun, segir útlit
fyrir að þessi aukning haldi áfram á
síðustu tveimur mánuðum ársins.
Eftirspurnin sé enda mikil. „Það dró
aðeins úr fjöldanum milli september
og október. Þetta tók þó enga dýfu.
Flestir starfsmanna hjá leigunum
vinna í byggingar- og mannvirkja-
gerð. Hluti þeirra starfar þó á hjól-
barðaverkstæðum og í atvinnugrein-
um tengdum ferðaþjónustu og í
sláturhúsum en fjöldinn í öðrum at-
vinnugreinum er hverfandi.“
Þá hafa samtals 1.624 útsendir
starfsmenn verið skráðir á fyrstu tíu
mánuðum ársins. Til samanburðar
voru þeir alls 996 í fyrra. Það sam-
svarar 63% aukningu milli ára.
Útsendir starfsmenn koma á veg-
um fyrirtækja í Evrópu og vinna að
ákveðnum verkefnum, yfirleitt um
skemmri tíma. Boðvald og verk-
stjórn er á hendi erlenda fyrirtæk-
isins. Útsendir starfsmenn eru al-
mennt á launaskrá erlendu fyrir-
tækjanna. Má í því efni rifja upp að í
gildi er tvísköttunarsamningur milli
Íslands og margra erlendra ríkja.
Leigja starfsmenn gegn gjaldi
Starfsmannaleigur leigja starfs-
menn gegn gjaldi til að sinna störf-
um á vinnustað notendafyrirtækis
undir verkstjórn þess. Þessir tveir
hópar geta skarast. Þegar erlend
starfsmannaleiga sendir starfsmann
til Íslands gilda þannig ekki ein-
göngu lög um starfsmannaleigur um
störf þeirra heldur einnig að hluta til
reglur um útsendan starfsmann.
Samkvæmt upplýsingum frá Vinnu-
málastofnun er slík skörun óverulegt
brot af heildinni.
Haft var eftir Gísla Davíð Krist-
jánssyni, sérfræðingi hjá Vinnu-
málastofnun, í Morgunblaðinu í júní
að tölur um fjölda útsendra starfs-
manna og starfsmanna hjá starfs-
mannaleigum frá síðustu uppsveiflu,
2004-2008, væru ekki samanburðar-
hæfar við tölur síðustu ára. Í fyrsta
lagi hefðu núverandi lög um útsenda
starfsmenn ekki tekið gildi fyrr en
2007. Í öðru lagi hefði Evrópusam-
bandið tekið miklum breytingum á
tímabilinu. Aðildarríkjum hefði
fjölgað úr 15 í 27 í tveimur lotum,
2004 og 2007. Gengu ríki Austur-
Evrópu þá í ESB og tengdust þannig
Íslandi í gegnum EES-samninginn.
Fleiri en á síðasta þensluskeiði
Var líka haft eftir Gísla Davíð að
starfsmannaleigur hefðu verið nýtt
fyrirbæri í uppsveiflunni 2004-2008.
Umsvifin hefðu þá verið minni.
Aðflutningur erlendra ríkisborg-
ara á þátt í að landsmönnum hefur
fjölgað úr 338.349 í byrjun árs í
346.750 undir lok 3. ársfjórðungs.
Það er fjölgun um 8.400 manns.
Haldi aðflutningurinn áfram mun
íbúatalan senn fara yfir 350 þúsund í
fyrsta sinn í sögu landsins.
Íbúaþróunin bendir til að spár um
að hingað myndu flytjast þúsundir
erlendra ríkisborgara til að starfa í
ferðaþjónustu og byggingariðnaði
hafi verið réttar. Erlendir ríkis-
borgarar töldust vera um 36.700 í lok
3. ársfjórðungs, sem er metfjöldi.
Hvað snertir aðflutning íslenskra
ríkisborgara er útlit fyrir að þetta ár
verði það þriðja frá aldamótum þar
sem aðfluttir eru fleiri en brottflutt-
ir. Alls hafa tæplega 11.700 fleiri ís-
lenskir ríkisborgarar flutt frá land-
inu en til þess á öldinni.
Mesti aðflutningur í sögu landsins
Aðfluttir erlendir ríkisborgarar umfram brottflutta aldrei jafn margir Fjöldinn fyrstu níu mánuði
ársins er kominn fram úr gamla metárinu 2006 Við það bætast þúsundir útsendra starfsmanna
Búferlaflutningar frá Íslandi 1. janúar 2000 til 30. september 2017
Aðfluttir umfram brottflutta
*Til og með 30.9.2017
Heimild: Hagstofa Íslands
+6
+5
+4
+3
+2
+1
0
-1
-2
-3
-4
.000
Íslenskir Erlendir
2000 62 1.652
2001 -472 1.440
2002 -1.020 745
2003 -613 480
2004 -438 968
2005 118 3.742
2006 -280 5.535
2007 -167 5.299
2008 -477 1.621
2009 -2.466 -2.369
2010 -1.703 -431
2011 -1.311 -93
2012 -936 617
2013 -36 1.634
2014 -760 1.873
2015 -1.265 2.716
2016 -146 4.215
2017* 250 6.620’00 ’01 ’02 ’03 ’04 ’05 ’06 ’07 ’08 ’09 ’10 ’11 ’12 ’13 ’14 ’15 ’16 ’17*
Samtals Íslenskir Erlendir
2000-2017 -11.660 36.264
2005-2007 -329 14.576
2015-2017* -1.161 13.551
Íslenskir ríkisborgarar
Erlendir ríkisborgarar
Starfsmannaleigurogerlendþjónustufyrirtæki
Heimild: Vinnumálastofnun 2017
2014 2015 2016 Október Jan.-okt.
Starfsmannaleigur 4 9 30 30 35
Starfsmenn 22 165 1.527 2.032 3.002
Erlend þjónustufyrirtæki 5 18 54 48 110
Útsendir starfsmenn 91 341 996 467 1.624
Pólskir ríkisborgarar
Aðfluttir umfram brottflutta
2017 Aðfluttir Brottfluttir Mismunur
1. ársfj. 570 180 390
2. ársfj. 1.670 150 1.520
3. ársfj. 1.310 340 970
2017 alls
2.880
Heimild:
Vinnumálastofnun
390
1.520
970
BAKSVIÐ
Baldur Arnarson
baldura@mbl.is
Aðfluttir erlendir ríkisborgarar voru
rúmlega 6.600 fleiri en brottfluttir á
fyrstu níu mánuðum ársins. Með
sama áframhaldi verður þessi tala
um tvöfalt hærri í ár en í fyrra.
Þetta má ráða af tölum Hagstofu
Íslands um búferlaflutninga.
Samkvæmt þeim stefnir í metár í
aðflutningi erlendra ríkisborgara.
Aðfluttir erlendir ríkisborgarar um-
fram brottflutta voru áður flestir ár-
ið 2006, eða 5.535. Þeir eru sem áður
segir rúmlega 6.600 fyrstu níu mán-
uði ársins. Að auki hafa komið hing-
að rúmlega 4.600 erlendir starfs-
menn sem útsendir starfsmenn eða
sem starfsmenn starfsmannaleigna.
Samtals eru þetta um 11.000 er-
lendir ríkisborgarar. Til samanburð-
ar búa ríflega 10.000 manns í Mos-
fellsbæ og alls um 14.000 manns á
Vestfjörðum og Norðurlandi vestra.
Gengið er út frá því að óveruleg
skörun sé í hópum útsendra starfs-
manna og starfsmanna starfsmanna-
leigna og að þeir séu ekki taldir með
sem aðfluttir erlendir ríkisborgarar.
Það er byggt á upplýsingum frá
Hagstofunni og Vinnumálastofnun.
Almennt ekki taldir til íbúa
Ólafur Már Sigurðsson, sérfræð-
ingur á Hagstofunni, segir þetta til
skoðunar. Almennt séu útsendir
starfsmenn og starfsmenn starfs-
mannaleigna ekki taldir með sem að-
fluttir erlendir ríkisborgarar.
„Við erum með hóp erlendra
starfsmanna sem kemur í skamman
tíma að vinna. Sá hópur kemur til
dæmis ekki í þjóðskrána. Þeir finn-
ast hins vegar í staðgreiðsluskrá,
enda fá þeir greidd laun á Íslandi.
Þeir eru hins vegar ekki taldir hluti
af mannfjölda á Íslandi,“ segir hann.
Pólverjar eru fjölmennir í hópi að-
fluttra erlendra ríkisborgara. Á
fyrstu níu mánuðum ársins fluttu
tæplega 2.900 fleiri Pólverjar til
landsins en frá því. Til samanburðar
Haukur Hjaltason, for-
stjóri, athafnamaður
og matreiðslumeistari,
lést á gjörgæsludeild
Landspítalans mið-
vikudaginn 8. nóv-
ember síðastliðinn, 77
ára að aldri.
Haukur fæddist í
Reykjavík 6. mars
1940 og ólst þar upp
hjá foreldrum sínum,
þeim Hjalta Jónssyni
verksmiðjustjóra og
Jóhönnu Gústu Bald-
vinsdóttur, húsfreyju
og gistiheimilisstýru.
Haukur lærði matreiðslu á Hótel
Sögu, stundaði nám við Hótel- og
veitingaskóla Íslands, útskrifaðist
sem matreiðslumaður 1964 og öðl-
aðist meistararéttindi 1967. Hann
var yfirmatreiðslumaður á Hótel
KEA á Akureyri og í Tjarnarbúð
1964-65, aðstoðaryfirmatreiðslu-
meistari á Hótel Loftleiðum 1965-
66 en stofnaði og rak síðan eigin
veitingastaði 1966-74, Sælkerann í
Hafnarstræti, Óðal við Austurvöll
og Nautið í Austurstræti 12a. Sæl-
kerinn var einn fyrsti skyndibita-
staður landsins.
Haukur hefur starfrækt innflutn-
ingsfyrirtæki frá 1969. Hann var
meðeigandi veitingahúsa Asks
1979-82 og stjórnarformaður þeirra.
Þá starfrækti hann tilraunabú í
nautgriparækt 1982-
86. Haukur sat í
stjórn Hafskips 1979-
83, var stjórnar-
formaður fjölskyldu-
fyrirtækjanna Dreif-
ingar ehf. frá 1969,
Skúlagötu 30 ehf. frá
1981 og Kjötbankans
ehf. frá 2005. Haukur
sat í stjórn Junior
Chamber í Reykjavík
1974-75 og var út-
nefndur senator Juni-
or Chamber og forseti
Senatsins 1986-87.
Hann sat í stjórn
knattspyrnudeildar KR 1978-82, í
stjórn Heimdallar 1971-73 og í
stjórn SUS 1973-75. Hann var virk-
ur í starfi KR. m.a. skíðadeildar, og
gegndi trúnaðarstörfum fyrir Sjálf-
stæðisflokkinn. Hann hefur skrifað
greinar í blöð og tímarit um efna-
hagsmál, stjórnmál og fagleg mál-
efni.
Eftirlifandi eiginkona Hauks er
Þórdís Jónsdóttir, fyrrv. flugfreyja
og fjármálastjóri. Dóttir Hauks og
Þórdísar er Charlotta María. Börn
Hauks frá því áður eru María, Guð-
jón Heiðar, Svava og Kolbrún. Son-
ur Þórdísar og uppeldissonur
Hauks er Jón Daði Ólafsson.
Útför Hauks fer fram frá Dóm-
kirkjunni í Reykjavík fimmtudaginn
16. nóvember kl. 13.
Andlát
Haukur Hjaltason