Morgunblaðið - 10.11.2017, Blaðsíða 2

Morgunblaðið - 10.11.2017, Blaðsíða 2
2 FRÉTTIRInnlent MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 10. NÓVEMBER 2017 Rafvirkjar LED flóðkastarar              Morgunblaðið Hádegismóum 2, 110 Reykjavík. Sími 5691100 Fulltrúar ritstjóra Sigtryggur Sigtryggsson sisi@mbl.is Ágúst Ingi Jónsson aij@mbl.is Fréttir Guðmundur Sv. Hermannsson ritstjorn@mbl.is Menning Einar Falur Ingólfsson menning@mbl.is Viðskipti Sigurður Nordal vidskipti@mbl.is Íþróttir Víðir Sigurðsson sport@mbl.is mbl.is Jón Pétur Jónsson netfrett@mbl.is Smartland Marta María Jónasdóttir smartland@mbl.is Umræðan | Minningar mbl.is/senda grein Prentun Landsprent ehf. Atli Steinarsson blaða- maður lést á Landspít- alanum í fyrrakvöld, 88 ára að aldri. Atli fæddist í Reykja- vík 30. júní 1929. For- eldrar hans voru Stein- arr St. Stefánsson fulltrúi og eiginkona hans, Ása Sigurðar- dóttir húsmóðir. Atli lauk stúdentsprófi frá Verzlunarskóla Íslands 1950. Hann innritaðist í læknadeild HÍ sama ár en hóf jafnframt störf sem blaðamaður við Morgunblaðið og starfaði síðan óslitið sem blaðamaður til starfsloka. Atli starfaði hjá Morgunblaðinu til ársins 1975. Hann fór þá á Dagblaðið og var þar til 1981. Þá fór hann á fréttastofu útvarpsins og var þar til 1986. Sam- hliða rak Atli og rit- stýrði ásamt konu sinni, Önnu, Mosfells- póstinum um sex ára skeið. Á árunum 1988 til 1997 var Atli búsett- ur í Bandaríkjunum og var þar sjálfstætt starfandi blaðamaður. Atli gerðist blaðamað- ur hjá Sunnlenska fréttablaðinu þegar hann sneri heim og var þar til ársins 2005. Atli starfaði mikið fyrir Blaðamannafélag Íslands og sat í stjórn þess frá 1956-1975. Hann var hand- hafi blaðamannaskírteinis nr. 1. Atli var einn af fjórum helstu hvatamönn- um að stofnun Samtaka íþróttafrétta- manna árið 1956, enda var hann lengi umsjónarmaður íþróttafrétta Morg- unblaðsins. Hann var formaður sam- takanna níu fyrstu árin. Hann var um langt skeið í stjórn ÍR og varastjórn ÍSÍ. Sjálfur var Atli góður íþrótta- maður á yngri árum. Hann var Ís- landsmeistari í sundi og keppti á Ól- ympíuleikunum í London 1948. Atli var sæmdur heiðurskrossi Íþrótta- og ólympíusambands Íslands 2006 og gerður að heiðursfélaga ÍR 2007. Einnig var hann sæmdur gull- merki Blaðamannafélags Íslands. Eiginkona Atla var Anna Bjarna- son blaðamaður en hún lést árið 1998. Þau eignuðust fjögur börn, Önnu Sig- ríði, Ásu Steinunni, Gunnar Þór og Atla Steinar. Barnabörnin eru tólf talsins og barnabarnabörnin átta. Atli Steinarsson starfaði við Morg- unblaðið í aldarfjórðung. Við leið- arlok þakkar blaðið Atla góð störf og sendir fjölskyldu hans innilegar sam- úðarkveðjur. Andlát Atli Steinarsson blaðamaður Vilhjálmur A. Kjartansson vilhjalmur@mbl.is Lánasjóður íslenskra námsmanna mun ekki taka við greiðslu með ávís- un frá og með næstu áramótum. Ákvörðun sjóðsins ætti ekki að koma neinum á óvart því ávísanir eru að mestu horfnar úr viðskiptaumhverfi landsins. „Við höfum ekki tekið við ávís- unum í einhvern tíma, hvorki ís- lenskum né erlendum,“ segir Finnur Árnason, forstjóri Haga, en fyrir- tæki Haga taka við hvers konar greiðslukortum auk þess að taka við íslenskri sem erlendri mynt. Sömu sögu er að segja hjá Festi en þessi tvö fyrirtæki reka stærstu smá- vöruverslanir landsins á borð við Bónus og Krónuna. Bankarnir hættir útgáfu Stóru viðskiptabankarnir eru hættir útgáfu og innlausn ávísana, nema Arion banki í undantekning- artilvikum. Með tilkomu rafrænna aðferða er greiðslumiðlun hvort tveggja í senn einfaldari og örugg- ari, að sögn Rúnars Pálmasonar, upplýsingafulltrúa Landsbankans, en bankinn hætti útgáfu og sölu ávísanahefta til einstaklinga og fyr- irtækja og innlausn innlendra ávís- ana 15. ágúst á síðasta ári. Þá hætti bankinn jafnframt að selja erlendar ávísanir frá og með 1. október á þessu ári og hættir að kaupa erlend- ar ávísanir frá og með næstu ára- mótum. Ástæðan er að sögn Rúnars einkum sú að notkun erlendra ávís- ana, jafnt ferðatékka og við- skiptatékka, hefur dregist mjög saman á undanförnum árum. Edda Hermannsdóttir, upplýs- ingafulltrúi Íslandsbanka, segir að bankinn hafi hætt með ávísanahefti í október árið 2015. „Eftirspurn eftir ávísana- heftum var ekki mikil á þeim tíma og því ákveðið að hætta útgáfu þeirra,“ segir Edda. Arion banki gefur einn bank- anna út ávísanir ef sérstaklega er óskað eftir því. „Bankinn er enn með ávísana- hefti fyrir þá viðskiptavini sem sér- staklega óska eftir slíku. Einnig er hægt að nálgast bankatékka hjá gjaldkera. Þetta er þó þjónusta sem lítil eftirspurn er eftir í dag eins og gefur að skilja,“ segir Haraldur Guðni Eiðsson, forstöðumaður sam- skiptasviðs Arion banka. Ávísanir að deyja út Ávísanahefti Risaeðla úr fortíðinni sem er við það að deyja út.  Allir nema Arion banki hættir  Verslanir taka ekki við ávísunum Helgi Bjarnason helgi@mbl.is Miðstjórn Alþýðusambands Íslands telur rétt að fresta heimild sjóðs- félaga lífeyrissjóðanna til að ráðstafa hluta af lífeyrisiðgjaldi sem til- greindri séreign. Ástæðan er óvissa sem skapast um innheimtu iðgjalda og þar með réttindi sjóðsfélaga vegna þeirrar túlkunar Fjármálaeftirlitsins að sjóðsfélagar geti ráðstafað sér- eigninni til annarra lífeyrissjóða. ASÍ og Samtök atvinnulífsins sömdu um aukin lífeyrisréttindi í kjarasamningum í janúar á síðasta ári. Meðal annars var gert ráð fyrir að menn gætu undirbúið sveigjanleg starfslok með því að ráðstafa viðbót- ariðgjaldinu í tilgreinda séreign hjá lífeyrissjóðunum. Lög áttu að fylgja í kjölfarið. Þau hafa enn ekki verið sett. Byrjað var að bjóða upp á þessa séreign í júlí í sumar og hafa margir nýtt sér heimildina. ASÍ og SA voru ósammála þeirri túlkun Fjármálaeft- irlitsins að fólk gæti ráðstafað sér- eigninni inn á reikning hjá öðrum líf- eyrissjóðum en sameignarsjóði viðkomandi. Innheimtukerfi í uppnámi „Við komumst alltaf að sömu nið- urstöðu. Að óbreyttu mun þessi túlk- un Fjármálaeftirlitsins leiða til þess að innheimtukerfi lífeyrissjóðanna lendir í uppnámi. Það hefur tryggt að rétt iðgjald sjóðsfélaga berist frá at- vinnurekanda og þar með lífeyris- réttindi hans. Með þessari túlkun veit sjóðurinn ekki hvað er að gerast. Hann má ekki taka svar atvinnurek- andans gilt og verður að leita til laun- þegans sjálfs. Það mun hafa mikinn kostnað í för með sér,“ segir Gylfi Arnbjörnsson, forseti ASÍ. Hann segir að það sé hlutverk ASÍ að standa vörð um réttindi launþega sem samið var um í þessum kjara- samningi. Miðstjórn ASÍ leggi til að frestað verði ráðstöfun hluta iðgjalda í tilgreinda séreign og hún öll lögð í sameignarsjóðinn, þar til lögum hafi verið breytt og með því tryggt að fyr- irkomulagið sem samið var um gangi upp. Tekur hann fram að iðgjöldun- um sem þegar hafi verið ráðstafað í tilgreinda séreign verði ekki breytt. Jafnframt tekur Gylfi fram að ekki liggi fyrir svar hins aðila samnings- ins, Samtaka atvinnulífsins, við til- lögu ASÍ. Ráðstöfun iðgjalda í séreign verði frestað  Miðstjórn ASÍ óttast um iðgjöld og réttindi sjóðsfélaga Ákveðið hefur verið að prófkjör um efsta mann á lista Sjálfstæð- isflokksins fyrir borgarstjórn- arkosningarnar á vori komanda verði haldið laugardaginn 27. jan- úar næstkomandi. Að loknu leið- togakjörinu mun kjörnefnd stilla upp framboðslistanum að öðru leyti. Stefnt var að leiðtogakjöri í októ- ber eða nóvember en því var frest- að vegna alþingiskosninganna í lok október. Stjórn Varðar, full- trúaráðs sjálfstæðisfélaganna í Reykjavík, lagði fram tillögu um 27. janúar og var einhugur um þá tillögu á fjölmennum félagsfundi sem haldinn var í gærkvöldi. Gísli Kr. Björnsson, formaður Varðar, segir að þátttaka verði með sama sniði og í síðustu prófkjörum, flokksbundnir sjálfstæðismenn kjósi. Auglýst hefur verið eftir framboðum í kjörnefnd. Leiðtogakjör sjálfstæðismanna 27. janúar „Enn og aftur vinnur forysta Al- þýðusambands Íslands þvert gegn hagsmunum sinna eigin félagsmanna,“ skrifar Vil- hjálmur Birgisson, formaður Verkalýðsfélags Akraness, í op- inni færslu á Facebook-síðu sína, og gagnrýnir afstöðu ASÍ. Gegn hags- munum VILHJÁLMUR BIRGISSON Umferðarflæði um miðbæinn á að batna verulega við það að í gær var opnað fyrir umferð um nýja Geirsgötu og ný gatnamót hennar við Lækjargötu og Kalkofns- veg. Geirsgata er nú komin í sína framtíðarlegu ofan á bílakjallara sem byggður hefur verið á uppbyggingar- svæðinu í Austurhöfn. Frágangur gangstétta við ný hús á svæðinu er fyrirhugaður á næsta ári og er það í takt við uppbyggingu á svæðinu. Morgunblaðið/Árni Sæberg Opnað fyrir umferð á nýrri Geirsgötu

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.