Morgunblaðið - 10.11.2017, Blaðsíða 20
20 FRÉTTIRErlent
MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 10. NÓVEMBER 2017
Mottur setja punktinn yfir i-ið á heimilinu.
Persía er sérdeild innan Parka með stök teppi og mottur.
Við bjóðum upp á sérvalin handhnýtt austurlensk teppi og fjölbreytt
úrval af vönduðum vélofnum gervi- og ullarteppum.
Bjóðum aðeins það besta fyrir þig.
Parki ehf. • Dalvegi 10-14 • 201 Kópavogi • www.parki.is • parki@parki.is • sími: 595 0570
VIÐARPARKET • UTANHÚSSKLÆÐNINGAR • VÍNYLPARKET • FLÍSAR • HURÐIR • TEPPI • KERFISLOFT • HARÐPARKET • INNRÉTTINGAR
Evrópusambandið varaði við því í
gær að Bretar yrðu að ná samn-
ingum um helstu ágreiningsatriði
um útgöngu þeirra úr sambandinu
fyrir lok nóvembermánaðar, til þess
að hægt yrði að ræða viðskipta-
samband Bretlands og sambandsins
eftir útgönguna.
Michel Barnier, aðalsamninga-
maður ESB, sagði í ræðu sem hann
flutti í Róm að tíminn væri af skorn-
um skammti, en ný viðræðulota, hin
sjötta í röðinni, hófst í gær í Brussel,
höfuðborg Belgíu. Lotan verður ein-
ungis í tvo daga en ekki fjóra eins og
hinar fyrri, og lýkur henni því í dag.
„Fundur Evrópuráðsins í október
lagði áherslu á að halda yrði dampi í
viðræðunum og ég er sama sinnis,“
sagði Barnier og bætti við að „stund
skýrleikans“ væri á næsta leiti.
AFP
Brexit Viðræður um útgöngu Breta
hafa lítið þokast áfram á þessu ári.
Ýta á eftir
samningum
Athygli vestrænna fjölmiðla í heimsókn Donalds
Trumps Bandaríkjaforseta til Kína hefur eink-
um beinst að þeim móttökum sem forsetahjónin
hafa fengið þar, en þeim hefur verið fagnað
gríðarlega hvar sem þau hafa komið.
Þá virðist sem áhersla beggja ríkja með heim-
sókninni hafi verið að treysta hin persónulegu
bönd sem myndast hafa með þeim Trump og Xi.
Það vakti til dæmis sérstaka athygli að í opinber-
um kvöldverði sem haldinn var í fyrrakvöld var
sýnt myndband þar sem barnabarn Trumps,
Arabella Kushner, söng ballöðu á mandarínsku
og vann hún hug og hjarta kvöldverðargesta. Þá
hafa bæði Trump og Xi hrósað hvor öðrum í há-
stert meðan á heimsókninni hefur staðið.
Heimsókn Trumps til Kína sögð vel heppnuð og íburðarmikil
AFP
Trump og Xi skjalla hvor annan í hástert
Stefán Gunnar Sveinsson
sgs@mbl.is
Donald Trump Bandaríkjaforseti
varaði Xi Jinping, forseta Kína, við
því í gær að tíminn til þess að leysa
kjarnorkudeiluna við Norður-Kóreu
væri senn á þrotum.
Trump nýtti einnig tækifærið til
þess að kvarta undan viðskiptahalla
Bandaríkjanna við Kína, en tók fram
að hann kenndi fyrirrennurum sín-
um í starfi um frekar en Kínverjum.
Var viðskiptahallinn hálfgert leiðar-
stef Trumps í kosningabaráttu sinni,
þar sem hann sagði Kínverja hafa
gengið á lagið. Hann hefur hins veg-
ar mildast síðan í afstöðu sinni til
Kínverja, og var heimsókn hans nýtt
til þess að undirrita nýja viðskipta-
samninga á milli stórveldanna
tveggja, sem metnir eru á um 250
milljarða bandaríkjadala.
Lagði Trump á það sérstaka
áherslu að Kínverjar gætu leyst
kjarnorkudeiluna við Norður-Kóreu
á einfaldan og skilvirkan hátt. „Ég
kalla eftir því að Kína og ykkar frá-
bæri forseti muni leggja hart að sér
til að svo megi verða,“ sagði Trump
meðal annars.
Er það í samræmi við þá skoðun
sem ríkjandi er innan Bandaríkja-
stjórnar, að Kínverjar hafi efnahag
Norður-Kóreumanna í hendi sér, en
þeir eru langstærsta viðskiptaþjóð
Norður-Kóreu.
Xi sagði fyrir sitt leyti að Kínverj-
ar hefðu þá stefnu að Kóreuskaginn
yrði aftur laus við kjarnorkuvopn, en
lagði áherslu á að deiluna við Norð-
ur-Kóreu yrði að leysa með samn-
ingum.
Trump segir tímann senn á þrotum
AFP
Móttaka Þessi skólabörn heilsuðu
Melaniu Trump með virktum.
Viðskiptasamningar undirritaðir á
milli Kína og Bandaríkjanna
Theresa May,
forsætisráð-
herra Bretlands,
skipaði í gær
Penny Mordaunt
sem undir-
ráðherra þróun-
araðstoðar í
utanríkisráðu-
neytinu eftir að
Priti Patel
sagði af sér á miðvikudaginn.
Ástæður afsagnarinnar voru
þær að Patel hafði hitt Benjamín
Netanyahu, forsætisráðherra Ísr-
aels, á laun þegar hún var þar í
fríi í sumar, auk þess sem hún
heimsótti Gólanhæðir í trássi við
stefnu breskra stjórnvalda.
Patel er annar ráðherrann til
þess að segja af sér í nóv-
embermánuði eftir að Michael
Fallon varnarmálaráðherra sagði
af sér 1. nóvember síðastliðinn
vegna ásakana um kynferðislega
áreitni.
BRETLAND
Penny Mordaunt
tekur við af Patel
Priti Patel
Framkvæmdastjórn Evrópusam-
bandsins felldi í gær tillögu um að
veitt yrði áframhaldandi leyfi fyr-
ir framleiðslu og sölu illgresiseyð-
isins glýfosats innan ríkja sam-
bandsins. Féll tillagan á jöfnum
atkvæðum þar sem einungis 14 af
28 meðlimum Evrópusambandsins
samþykktu hana.
Glýfosat er virka efnið í mörg-
um eiturefnum sem notuð hafa
verið til þess að vinna bug á ill-
gresi og er plöntueitrið Roundup
þar einna þekktast. Segja gagn-
rýnendur efnisins meðal annars að
það sé krabbameinsvaldandi og
mengi auðveldlega grunnvatn þar
sem það sé notað.
Núgildandi leyfi rennur út 15.
desember nk. að öllu óbreyttu og
hafa umhverfisverndarsamtök
fagnað niðurstöðu framkvæmda-
stjórnarinnar. Hefði tillagan verið
samþykkt hefði nýtt leyfi gilt til
næstu fimm ára. Hefur verið tek-
ist á um leyfið síðan í júní á síð-
asta ári.
EVRÓPUSAMBANDIÐ
Leyfi fyrir notkun
glýfosats ekki veitt