Morgunblaðið - 10.11.2017, Blaðsíða 37
DÆGRADVÖL 37
MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 10. NÓVEMBER 2017
Bankastræti 6 – sími 551 8588 – gullbudin.is
Unicorn
Armband 6.900-
Hálsmen frá 5.400-
Eyrnalokkar frá 8.900-
Stjörnuspá
21. mars - 19. apríl
Hrútur Orð þín eru áhrifaríkari en þú gerir
þér grein fyrir. Allt gengur upp rétt eftir að
þú hefur hugleitt að gefast upp og ganga í
burtu.
20. apríl - 20. maí
Naut Það mun eitthvað koma þér á óvart í
dag. Ekki er hægt að verða við öllum kröfum,
sem lagðar eru á herðar þér. Lærðu að segja
nei. Þú færð símtal sem mun hrista upp í þér.
21. maí - 20. júní
Tvíburar Vináttan er ekki bara að þiggja af
öðrum heldur líka að gefa af sjálfum sér. Tal-
aðu við fólk sem sér lífið í sama ljósi og þú.
Mundu að allt á sinn stað og sína stund.
21. júní - 22. júlí
Krabbi Einhver misskilningur gæti komið
upp milli ástvina sem þarf að leiðrétta. Þér
finnst gaman hvað félagslífið hefur tekið við
sér. Taktu samt frá tíma til að slappa af.
23. júlí - 22. ágúst
Ljón Þú færð hugmyndir um það hvernig þú
getur aukið tekjur þínar. Hvatning er öllum
nauðsyn af og til. Ekki láta vont skap annarra
trufla þitt góða.
23. ágúst - 22. sept.
Meyja Eitthvað óvenjulegt gæti gerst á heim-
ilinu í dag, hugsanlega verður nýtt heimilis-
tæki tekið í gagnið. Mundu að það er ekki til
neins að hafa betur í rökræðum ef það kostar
vinslit.
23. sept. - 22. okt.
Vog Þú hefur velt langtímamarkmiðum fyrir
þér síðustu mánuði. Taktu stundarfjórðung í
að skipuleggja þann hluta lífs þíns sem
þarfnast mestrar athygli.
23. okt. - 21. nóv.
Sporðdreki Það getur verið varasamt að
hlaupa upp til handa og fóta af minnsta til-
efni. Gott er að hlusta á innri rödd þegar taka
þarf afdrifaríka ákvörðun.
22. nóv. - 21. des.
Bogmaður Ævintýrin bíða þín handan
hornsins og það er ekkert annað að gera en
að drífa sig og njóta þess að vera til. Styrkur
þinn mun ryðja öllum hindrunum úr vegi.
22. des. - 19. janúar
Steingeit Dagurinn hentar vel til að koma
hlutunum á hreint við maka og nána vini.
Dagurinn gæti komið skemmtilega á óvart,
en þú þarft að vera á varðbergi.
20. jan. - 18. febr.
Vatnsberi Þú færð oft góðar hugmyndir en
gleymir þeim jafnóðum. Gerðu upp við þig
hvort vandamálin eru tímabundin eða hvort
komið sé að leiðarlokum.
19. feb. - 20. mars
Fiskar Ekki er allt gull sem glóir og hin sönnu
auðæfi eru ekki fólgin í gulli eða gimsteinum.
Foreldrum er ráðlagt að hafa augum opin og
gæta sérlega vel að börnum sínum.
Pólitíkin er hagyrðingum hug-leikin. Á þriðjudag orti Hösk-
uldur Búi á Leir:
Þukl og aðrar þreifingar
þráfalt um þið dylgið,
því hugsar sér til hreyfingar
hægri og vinstra fylgið.
„Og enn heldur dansinn áfram,“
bætti Sigurlín Hermannsdóttir við í
fyrradag:
Þreifingar fylgja víst margflóknu mynstri
menúett dansaður til bæði og frá
menn halla sér ýmist til hægri eða vinstri
hneigja sig, teygja sig, beint og á ská.
Ef að þeir samstöðu ná þarna nægri
næst er í ráðherrastóla að spá.
Hvort stjórn þessi verður til vinstri eða
hægri
er vonlítið akkúrat núna að sjá.
„Þetta kemur vonandi,“ segir Ár-
mann Þorgrímsson:
Fréttir engar fékk í gær
um forsætið gekk illa að semja
en kannski eru Kötur tvær
hvítu merina að temja.
Skírnir Garðarsson talar um
„stjórnarmyndunarviðræður að
hætti hússins“:
„Kata segir:
Þú komst í hlaðið á hvítum hestum
þú komst með bros í augum þér.
Við pitsu snæddum í prjónavestum,
þú pískraðir glatt í eyra mér.
Sigurður Ingi segir:
Hægri umferð hér er stunduð,
heillin góða,
vinstri grænna vesen allt
þú vilt mér bjóða,
vesöld mikla og vöntun gróða.
Logi segir:
Færðin austur var fremur greið,
við fargjald og dísel borguðum.
Þar pilsner volgum og pitsusneið,
af prúðmennsku öll við torguðum.“
Ing. Ómar sló botninn í þennan
vísnaspuna:
Allt að sama brunni ber
blása á ný til sóknar.
Viðræðurnar virðast mér
vera ansi flóknar.
Katrín hún er illskeytt, en
að engu vil þó flana.
En Sigurður og Bjarni Ben
báðir þrýsta á hana.
Á Boðnarmiði malaði kötturinn
Jósefína Meulengracht Dietrich:
Margt er það sem menn á þingum með
sér bræða
og undarlegt er á að hlýða.
En ætli sé nú aðra tíma um að ræða
en þessa öld sem er að líða?
Halldór Blöndal
halldorblondal@simnet.is
Vísnahorn
Af þreifingum
til hægri og vinstri
Í klípu
„ÞÚ ÞARFT AÐ LÆRA AÐ HLÆJA
AÐ SJÁLFUM ÞÉR. ÞÁ GERIR ÞAÐ
ALLAVEGA EINHVER.“
eftir Mike Baldwin eftir Jim Unger
„ÞANNIG AÐ ÞAÐ LÍTUR ÚT FYRIR AÐ
VEÐRIÐ VERÐI ÁGÆTT Á MORGUN.“
Hermann
Ferdinand
Hrólfur hræðilegi
Grettir
... að reyna að vera ögn
hugulsamari!
ERTU AÐ SEGJA MÉR AÐ FÓLK HAFI
PRENTAÐ ÚT MYNDIR Í GAMLA DAGA
OG SÍÐAN LÍMT ÞÆR Í BÆKUR ?
JÁ
ÞAÐ HLJÓMAR
SVEI MÉR EINS
OG MIKIL
FYRIRHÖFN
ÞAÐ HAFÐI
NÆGAN
FRÍTÍMA
ÞURFTI ÞAÐ
EKKI AÐ VEIÐA
RISAEÐLUR?
BARA Á
ÞRIÐJUDÖGUM
ÞÚ HEFUR SVO YNDISLEGA,
GLANSANDI, LÝTALAUSA HÚÐ!
LOKSINS HEF ÉG
HITT MANN SEM
EINBLÍNIR Á MIG!
HVAÐA ANDLITSKREMI MYNDIR ÞÚ MÆLA
MEÐ FYRIR MIG?
Víkverji áttar sig æ betur á þvíhversu mikilvægt er að vera með
allt á hreinu þegar kemur að við-
skiptum við flugfélög.
x x x
Aukakostnaður hjá lággjaldaflug-félögum getur skotið upp koll-
inum við minnstu hreyfingu.
x x x
Ekki þarf endilega lággjaldaflug-félög til. Víkverji flaug eitt sinn
með SAS á þessu ári. Ekki hefur það
rótgróna flugfélag þá ímynd að um
lággjaldaflugfélag sé að ræða.
x x x
Þegar Víkverji mætti til Leifs-stöðvar stóð hann í þeirri mein-
ingu að ferðataska væri innifalin í
bókuninni. Svo var ekki.
x x x
Konan sem var við afgreiðslustörffyrir hönd flugfélagsins var hin
almennilegasta. Hún varð ögn vand-
ræðaleg og tók það fram að ekki
væri neitt sérstaklega skýrt á heima-
síðu fyrirtækisins að borga þyrfti sér
gjald fyrir að tékka inn ferðatösku.
x x x
Þegar taskan var tékkuð inn ástaðnum þá kostaði það á milli 8
og 9 þúsund. Hefði verið helmingi
ódýrara á netinu við pöntun.
x x x
Víkverji lenti einnig í því á árinu aðlítil en óvænt færsla var tekin út
af kreditkortinu af flugfélagi. Hafði
hann fengið tölvupóst þar sem í boði
var að velja sér sæti á netinu.
x x x
Erfitt var að koma auga á upplýs-ingar um að fyrir það væri greitt.
Enda taldi Víkverji að þessi þjónusta
væri einfaldlega án endurgjalds.
x x x
Upphæðin skiptir svo sem engumáli en fyrir þetta voru rukk-
aðar um 1.500 krónur. En greinilegt
er að neytendur þurfa að vera á
varðbergi gagnvart því sem flug-
félögin bjóða þegar þau eru með
kreditkortaupplýsingarnar í hönd-
unum.
vikverji@mbl.is
Víkverji
Drottinn veitir lýð sínum styrk, Drott-
inn blessar lýð sinn með friði.
(Sálmarnir 29:11)