Morgunblaðið - 10.11.2017, Blaðsíða 41

Morgunblaðið - 10.11.2017, Blaðsíða 41
MENNING 41 MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 10. NÓVEMBER 2017 Jon Helt Haarder, gagnrýnandi danska dagblaðsins Jyllandsposten, lýsir Hestvík eftir Gerði Kristnýju sem blöndu af lágstemmdu hvers- dagsraunsæi með undirliggjandi hryllingi og brútal húmor. Hann gef- ur skáldsögunni fimm stjörnur af sex mögulegum. „Sem lesanda fer manni fljótt að þykja vænt um þessa litlu perlu sem skáldsagan er. Ég gleypti hana í mig í tveimur munnbitum og langaði í raun strax að byrja aftur á byrjun. Það er þétt orka í því er virðist ómerkilegt hugarflæði Elínar og einfaldar setningarnar eru ljómandi vel þýddar hjá Erik Skyum-Nielsen. Það svífur undarleg landamæra- stemning yfir sumarhússvæðinu við vatnið, persónugalleríinu og fram- vindunni. Í hinu venjulega leynast alls kyns óvenjulegheit og allt er þetta skapað með aðferðum sem láta lítið yfir sér,“ skrifar Haarder. Thomas Bredsdorff, gagnýnandi Politiken, lýsir skáldsögunni sem sálfræðilegri hryllingssögu þar sem litið er ofan í hyldýpi illskunn- ar eins og hún að- eins getur birst hjá sködduðum börnum. Hann gefur bókinni fjögur hjörtu af sex mögulegum. Í sögunni fer Elín með 12 ára son sinn upp í sumarbústað. Í næsta húsi hitt- ir hún fyrir gamlan skólafélaga sem var harðstjóri bekkjarins, en Elín taglhnýtingur hans. Þegar börn þeirra beggja hverfa án skýringa verður fullorðna fólkið „eins og börn á ný, annað harðstjóri og hitt kúgað og sjálfbirgingslegt. Þetta er ekki falleg sjón, en bókmenntalega séð er þetta það fallegasta við þessa skáld- sögu: krufningin á eðli eineltisins, kvalalosta hans, meðvirkni og kjarna illskunnar,“ skrifar Breds- dorff. Hestvík hlýtur góða dóma í Danmörku Gerður Kristný Hönnunarverðlaun Íslands fyrir árið 2017 voru veitt í gærkvöldi í Iðnó og hlutu þau að þessu sinni arkitektarnir Ásmundur Hrafn Sturluson og Stein- þór Kári Kárason, eigendur arki- tektastofunnar Kurt og Pí, fyrir hönnun Marshall-hússins sem sýn- inga- og veitingastaðar, sem þeir leiddu í samstarfi við ASK arkitekta. Marshall-húsið var upphaflega byggt árið 1948 sem síldarbræðsla en er nú nýr vettvangur myndlistar við gömlu höfnina í Reykjavík. Aðferðum hönnunar beitt til nýsköpunar „Verkið kristallar velheppnaða um- breytingu eldra iðnaðarhúsnæðis fyr- ir nýtt hlutverk í samtímanum. Arki- tektarnir þróuðu verkið allt frá hugmyndastigi og leiddu saman breiðan hóp til að skapa heilsteypt verk. Unnið er vel með sögu bygg- ingar og samhengi staðar og til verð- ur nýr áfangastaður á áhugaverðu þróunarsvæði í borginni. Verkið er gott dæmi um það hvernig beita má aðferðum hönnunar til nýsköpunar í borgarumhverfinu,“ segir í umsögn dómnefndar um Marshall-húsið. Í dómnefnd sátu Sigríður Sig- urjónsdóttir, formaður dómnefndar, en hún er forstöðumaður Hönn- unarsafns Íslands og fyrrverandi pró- fessor í vöruhönnun við Listaháskóla Íslands; Katrín María Káradóttir, fagstjóri fatahönnunarbrautar Listaháskóla Íslands; Magnús Hreggviðsson, formaður félags ís- lenskra teiknara og grafískur hönn- uður hjá auglýsingastofunni ennemm; Sigrún Birgisdóttir, arkitekt og deild- arforseti hönnunar- og arkitektúr- deildar Listaháskóla Íslands; Tinna Gunnarsdóttir, sjálfstætt starfandi hönnuður og prófessor í vöruhönnun við Listaháskóla Íslands og Jóhanna Vidís Arnardóttir, verkefnastjóri á menntasviði og viðskiptastjóri á fram- leiðslusviði Samtaka iðnaðarins en Jó- hanna sat í dómnefnd verðlaunanna fyrir hönd samtakanna. Bláa lónið hlaut viðurkenningu Einnig var afhent viðurkenning fyrir bestu fjárfestingu í hönnun og hlaut hana Bláa lónið. Viðurkenn- inguna hlýtur fyrirtæki sem hefur haft hönnun og arkitektúr að leið- arljósi alla tíð í þeim tilgangi að auka verðmætasköpun og samkeppn- ishæfni, eins og segir í tilkynningu. Í umsögn dómnefndar segir að Bláa lónið hafi frá upphafi leitað sam- starfs við hönnuði á öllum sviðum uppbyggingar. „Hönnun er órjúf- anlegur hluti af heildarmynd fyr- irtækisins sem vinnur náið með fram- úrskarandi arkitektum og hönnuðum þvert á greinar. Þessi framsýni á svo sannarlega þátt í því að fyrirtækið hefur notið þeirrar velgengni sem raun ber vitni og átt sinn þátt í vin- sældum Íslands sem áfangastaðar. Bláa lónið er eitt besta dæmið á Ís- landi um það að fjárfesting í góðri hönnun margborgar sig,“ segir í um- sögninni. Marshall-húsið hlaut Hönnunarverðlaunin Morgunblaðið/Einar Falur Verðlaunahönnuðir Arkitektarnir hjá Kurt og pí, þeir Ásmundur Hrafn Sturluson og Steinþór Kári Kárason, í sal Nýlistasafnsins, ásamt Berki Arnarsyni, gallerista í i8 galleríi, en þeir eru hugmyndafræðingarnir og mennirnir sem hafa frá upphafi staðið að baki hugmyndunum að framkvæmdunum í Marshall-húsinu úti á Granda.  Velheppnuð umbreyting, að mati dómnefndar Leikarinn Tómas Lemarquis leikur í stuttu myndbandi á móti vélmenn- inu Sophiu sem komst í kastljósið nú síðast fyrir að hljóta sádiarab- ískan ríkisborgararétt. Vélmennið þekkir andlit og getur haldið uppi samræðum við fólk. Í myndband- inu, sem m.a. má finna á Facebook og nær 6.000 manns hafa tjáð sig um, segir Tómas við Sophiu að hann sé einn þeirra sem sköpuðu hana. Undir myndbandinu er spurt hvort þeirra sé vélmenni, Sophia eða Tómas, sem ætti þó varla að fara á milli mála þótt Sophia sé ansi lík manneskju. Þau Tómas ræða ýmislegt, m.a. hamingjuna og spyr Tómas Sophiu hvort hún sé ham- ingjusöm yfir því að vera á lífi. „Raddblær þinn gefur til kynna að ég ætti að vera það en ég hef ekki verið lifandi nógu lengi til að geta svarað því,“ svarar vélmennið. Hvort er vélmenni, Tómas eða Sophia? AFP Vélmenni Sophia, sköpunarverk hátæknifyrirtækisins Hanson Robotics. Bandaríski leikarinn Kevin Spacey verður ekki í kvikmynd Ridley Scott, All the Money in the World, vegna fjölda ásakana á hendur hon- um fyrir kynferðislega áreitni í garð ungra pilta. Atriðin með Spac- ey verða öll tekin upp að nýju og kemur leikarinn Christopher Plum- mer í hans stað. Til stendur að frumsýna kvikmyndina 22. desem- ber næstkomandi. Spacey lék auð- jöfurinn Jean Paul Getty í kvik- myndinni sem fjallar um rán á barnabarni Getty. Kvikmyndavef- urinn Variety greinir frá því að Spacey hafi verið í tvær vikur við tökur á kvikmyndinni og þar af ver- ið einn í nokkrum atriða hennar. Fyrstur til að saka Spacey um kynferðislega áreitni var Anthony Rapp og hafa fleiri gert slíkt hið sama, bæði karlar og konur. Leystur af Kevin Spacey og Christopher Plummer á verðlaunahátíð árið 2013. Spacey fjarlægður úr kvikmynd Scott AFP SÝND KL. 8, 10.25SÝND KL. 5.30 SÝND KL. 6, 8 SÝND KL. 3.30 SÝND KL. 10 SÝND KL. 3.30SÝND KL. 5.50, 8, 10.15 Miðasala og nánari upplýsingar 5%

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.