Morgunblaðið - 10.11.2017, Blaðsíða 26

Morgunblaðið - 10.11.2017, Blaðsíða 26
26 MINNINGAR MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 10. NÓVEMBER 2017 ✝ ÞórhallurHróðmarsson fæddist í Kiljar- holti, Mýrum, A- Skaftafellssýslu 15. september 1942. Hann lést á gjör- gæsludeild Land- spítalans 27. októ- ber 2017. Foreldrar hans voru Ingunn Bjarnadóttir frá Einholti á Mýrum og Hróðmar Sigurðsson frá Reyðará í Lóni. Systkini Þórhalls eru Margrét Sigurbjörg Sigurðardóttir, Bjarni Eiríkur Sigurðsson, Anna Sigríður Hróðmarsdóttir, Óttar Hrafn Hróðmarsson og Hallgrímur Hróðmarsson. Hann kvæntist Önnu Jórunni Stef- ánsdóttur haustið 1969. Börn þeirra eru Stefán Ingimar, f. 1974, og Vilborg Una, f. 1976. Þórhallur ólst upp í Hveragerði. Hann varð stúdent frá Mennta- skólanum á Laug- arvatni og tók kennarapróf úr stúdentadeild Kennaraskólans. Hann var kennari við Garðyrkjuskóla rík- isins á Reykjum í Ölfusi í rúm 30 ár. Útför hans verður gerð frá Hveragerðiskirkju í dag, 10. nóvember 2017, klukkan 14. Tengdaforeldrum mínum, Þórhalli og Önnu Jórunni, kynnt- ist ég fyrir tæplega tuttugu ár- um. Allt frá fyrsta degi voru þau með eindæmum elskuleg og hafa stutt okkur Stebba og drengina í öllu því sem við höfum tekið okk- ur fyrir hendur. Eftir að við fjölskyldan flutt- um til Hveragerðis fyrir hartnær áratug, upphófst mikill samgang- ur og dágóðar upphæðir lagðar inn í minningabankann. Hvers- dagslegu augnablikin standa án efa upp úr, einkum hinar fjöl- mörgu og vinsælu pulsuferðir drengjanna með afa sínum. Ég verð ævinlega þakklát fyrir að hafa fengið að njóta samvista við Þórhall öll þessi ár – meiri öð- lingi hef ég ekki kynnst. Hér að lokum fylgir kvæði, Hamingju- forskrift, sem hann orti til okkar Stebba en Þórhallur hafði yndi af því að semja ljóð og lög. Guð blessi þig, elsku tengdapabbi. Heyrst hefur gjarnan, þar hamingjan fer, heimsæki’ hún útvalda fáa, en gættu þess vandlega’ að gerlegt það er að gleðja sig yfir því smáa. Afstaða mannanna ólík víst er, efnið, umhverfið, vinnan, en hamingjutilfinning hugurinn ber og hún kemur bara að innan. Í núinu lifir, hve naumt sem það er þess nýtur, ef ekki er kviðið því ókomna, ellegar obbi þess fer í eftirsjá þess sem er liðið. Forskrift að hamingju fólgin er í fjölskrúði sólarlagsins, að hlúa að minningu hlýrri og því, að hlakka til morgundagsins. (Þórhallur Hróðmarsson) Kristín Arna Hauksdóttir. „Laufblöð á moldu mynda krans og minningar söngfugla hljóma.“ Þessar ljóðlínur Krist- jáns Hreinssonar koma í huga minn og verða kveðjuorðin til söngvaskáldsins Þórhalls sem og þakklæti. Þórhallur var samferðamaður og góður söngfélagi í Kirkjukór Hveragerðis – og Kotstrandar- kirkju til margra ára og söng þar til kallið kom svo fyrirvaralaust. Held að hann hafi verið methafi í mætingu á æfingum og kirkjuat- höfnum en þannig maður var Þórhallur, trúr því sem hann tók að sér. Annað ómetanlegt sem hann gerði fyrir kórinn var að sjá um að hafa nótur með texta ætíð tilbúnar fyrir athafnir. Meðan ég var í kórstarfinu kynntist ég vel hans þægilega viðmóti. Hann var ekki hávaðasamur en glettinn og góður maður orðsins, í vísum og ljóðum. Þar fóru vel saman hæfi- leikar þeirra hjóna, Önnu Jór- unnar og Þórhalls, og einhvern- veginn eru störf þeirra svo saman tvinnuð í félagsstörfum þeirra í Hveragerði að aldrei verður full- þakkað. Vefari gæti verið eitt starfs- heiti Þórhalls en hann tvinnaði saman ótal lög og ljóð úr eigin hugarfylgsnum og annarra. Vef- síða hans geymir þann vefnað. Við áttum síðan samleið með Hverafuglum, sem er kór eldri borgara í Hveragerði. Þar líkt og áður var hann boðinn og búinn að hafa nótur með texta tilbúnar fyrir kórfélagana, nutum við söngfuglarnir ómældrar sam- vinnu þeirra hjóna. Tollatríó er kennt við Þórhall og var tríóið ætíð tilbúið að kæta og bæta þegar Hverafuglar voru að skemmta sér og öðrum. Mörgu öðru mætti bæta við en fyrst og fremst vil ég þakka fyrir að hafa átt hann að vini til margra ára. Vinátta hans kom vel í ljós þegar hann setti svo falleg eft- irmæli í bundið mál um manninn minn þegar hann kvaddi í vor. Nú er kvaddur mætur, hljóð- látur, hæfileikaríkur maður og skilur eftir minningar sem er dýrmætur fjársjóður. Önnu Jór- unni og fjölskyldu sendi ég um- vefjandi samúðarkveðjur. Jóna Einarsdóttir. Enginn fær flúið sitt skapa- dægur. Þegar frétt berst um lát samferða- og samstarfsmanns til margra ára flæða fram minning- ar um liðna tíð. Maður er minntur á að mannsævin er fljót að líða og að við höfum ekki ótakmarkaðan tíma hér á jörðu. Þórhallur ólst upp á miklu menningarheimili í Hveragerði þar sem bókmenntir og tónlist var höfð í hávegum. Faðir hans var kennari og rithöfundur og móðir hans þekkt tónlistarkona og lagahöfundur. Æskuheimilið hefur áreiðanlega haft mikil áhrif á áhugamál og hugðarefni Þór- halls er hann ólst upp í bænum undir Hamrinum þar sem allir þekktu alla á þeim tíma. Tónlist var einnig alla tíð í hávegum höfð á heimili þeirra hjóna, Önnu Jór- unnar og Þórhalls, og húsbónd- inn spilaði á hljóðfæri og samdi lög. Leiðir okkar Þórhalls lágu fyrst saman í barna- og miðskól- anum í Hveragerði, eins og hann hét þá, en aldursmunur var, svo ekki vorum við bekkjarbræður. Að loknu landsprófi lá leið okkar aftur saman í Menntaskólanum að Laugarvatni. Síðan liðu árin við nám og störf. Síðar réðst Þór- hallur sem kennari, og seinna varð hann yfirkennari við Garð- yrkjuskóla ríkisins að Reykjum í Ölfusi og þar áttum við ánægju- legt og farsælt samstarf í um ald- arfjórðung. Þórhallur var einnig staðgengill skólastjóra í náms- leyfi hans 1986-1987. Frá þeim árum er margs að minnast við störf að frekari uppbyggingu skóla og staðar og þróun og efl- ingu námsins, m.a. með nýjum námsbrautum og endurmenntun. Það var gott fyrir skólastjóra, í önnum dagsins, að hafa sér við hlið yfirkennara sem hægt var að treysta fyrir margvíslegum verk- efnum. Þórhallur var mjög góður ís- lenskumaður og gott að hafa hann til taks er lesa þurfti yfir ritað mál. Þórhallur átti það líka til að setja saman vísur ef svo bar undir, sem skemmtan var að. Er tölvutæknin fór að ryðja sér til rúms á tíunda áratugnum fékk Þórhallur mikinn áhuga á þessari nýju tækni. Bæði skólinn og nem- endur nutu góðs af því. Mörgum hjálpaði hann einnig sem voru í vandræðum með tölvur sínar. Erlend samskipti skólans voru margvísleg, t.d. þátttaka í nor- rænum, evrópskum og alþjóðleg- um garðyrkjusamtökum, nem- endaskipti og náms- og kynnisferðir með nemendur til annarra landa. Þórhallur var betri en enginn í að aðstoða í öllu því starfi. Mikill gestagangur var á Reykjum og margir vildu heim- sækja og skoða stað og skóla og kynnast starfsemi skólans. Í mörg ár bjuggu þau hjón á Reykjum, í Fífilbrekku, og þá var stutt á milli heimila okkar. Börn okkar ólust upp samtímis og þar varð til vinátta sem varað hefur allt til dagsins í dag. Við hjónin og börn okkar, Fjóla, Kristín og Unnsteinn, minnumst margra ánægjulegra samverustunda bæði á Reykjum og síðar á heim- ili þeirra hjóna í Hveragerði. Nú á þessari kveðjustundu þökkum við Þórhalli samfylgdina og sendum Önnu Jórunni og börnum þeirra hjóna, Vilborgu Unu og Stefáni Ingimar, og fjöl- skyldum þeirra okkar dýpstu samúðarkveðjur. Megi minningin um góðan dreng lifa um ókomin ár. Guðrún og Grétar J. Unnsteinsson. Hvað sem hver segir byggir friður á réttlæti Hvað sem hver segir er fegurðin ekki skraut heldur kjarni lífsins Já gefðu mér rödd gefðu mér spámannsrödd til að bera fegurðinni vitni Gefðu mér rödd til að bera réttlætinu vitni. (Sigurður Pálsson) Það er vandasamt verkefni að minnast okkar ástsæla kórfélaga, þess fjölhæfa listamanns sem Þórhallur Hróðmarsson var. Við vonum að hann brosi örlítið og taki viljann fyrið verkið. Það er gæfa sönglífsins í Hveragerði að hjónin Þórhallur og Anna Jórunn settust þar að. Hæglátur, ljúfur, greiðvikinn, glettinn og hjartahlýr eru orð sem koma upp í hugann. Þórhall- ur var ókrýndur konungur kórs- ins í huga okkar. Sem betur fer var Þórhallur ekki skaplaus og sterkar skoðanir hafði hann á ýmsum þjóðfélagsmálum. Hann fékk mikinn arf í vöggugjöf, fal- lega bassarödd, samdi ógrynni af fallegum lögum og ljóðum. Hann átti ekki langt að sækja hæfileik- ana því móðir hans var Ingunn Bjarnadóttir tónskáld. Öllu þessu miðlaði hann til okkar af sinni óeigingjörnu hógværð. Afkom- endur og tengdabörn þeirra hjóna laðast öll að tónlistargyðj- unni. Í haust fengum við lag frá hon- um til að syngja á aðventukvöldi. Það er góð minning. Þórhallur var alltaf með bestu mætingu á æfingar og athafnir. Eitt sinn kom til tals að greiða kórfélögum framlag frá sóknarnefnd fyrir sönginn, þá stóð hann upp og sagði með sinni festu en hóg- værð: „Þá er ég hættur í kórnum, ég er að þessu mér til ánægju en ekki til að fá laun.“ Síðan hefur þetta ekki verið orðað. Ómetan- legt starf var að hreinskrifa nót- ur, bæta inn texta svo hvert orð félli rétt að nótum. Síðustu ár voru tónleikar kórsins teknir upp að hans frumkvæði og settir á geisladisk í fallegri umgjörð sem hann hannaði. Af og til hefur kór- inn ferðast utan bæði í söng- og skemmtiferðir. Of sjaldan naut Þórhallur þess að vera með í þessum ferðum en stóð vaktina heima. Í dagsferðum hér heima var hann ætíð hrókur alls fagn- aðar með vísum, gátum og gam- anmálum. Fyrir langt og gott samstarf viljum við þakka af heilum hug. Söknuðurinn er mikill hjá okkur kórfélögum en mestur er hann hjá ykkur, elskulega fjölskylda. Megi kærleikurinn umvefja ykk- ur og „minningar og myndir moldin aldrei hylur“. Við þökkum fyrir Þórhall. F.h. Kirkjukórs Hveragerðis- og Kotstrandarsókna, Svava Gunnarsdóttir. Góður vinur og bekkjarfélagi frá menntaskólaárum er fallinn frá. Fráfall hans kom ekki á óvart vegna langvarandi veikinda en var samt högg sem enginn átti von á. Minningarnar um Þórhall eru allar bjartar. Hann var óvenju léttur í lund og sá ég hann aldrei skipta skapi. Alltaf glaður, flaut- andi eða raulandi og á yngri árum mjög léttur í spori. Við vorum samtíða í fjögur ár á heimavist Menntaskólans á Laugarvatni. Þar myndaðist eig- inlega systkinasamband á milli okkar bekkjarsystkinanna. Þeg- ar við áttum fjörutíu ára stúd- entsafmæli héldum við upp á það norður á Hofsósi þar sem ein bekkjarsystir okkar var við störf. Þórhallur varð samferða okkur hjónunum og fórum við yfir Kjöl. Það var góð ferð og áttum við saman margt gott spjallið og ræddum þá um gleði og sorgir síðustu 40 ára. Þegar norður kom fengum við að gista í litlu húsi með tveim svefnherbergjum og tilkynnti Þórhallur að hann hefði fengið að vera í barnaherberginu hjá okkur Guðna. Þórhallur var alla tíð mikill músíkunnandi og var hann sí- starfandi á því sviði. Þau hjónin hann og Anna Jórunn voru sam- hent í að leggja mikið af mörkum til alls menningarlífs Hvera- gerðis. Þórhallur var vel hag- mæltur og gat bæði ort og þýtt. Hann bjó meðal annars til marg- ar litlar bækur með skemmtileg- um vísnagátum, sem urðu vinsæl- ar og bera snilli hans og húmor gott vitni. Hann átti það líka til að þýða kveðskap og fórst það vel úr hendi en þar vil ég sérstaklega nefna kvæðið Spor í sandi eftir Mary Stevenson. Þetta setti hann í litla bók eins og hann gerði við vísnagáturnar og færði vinum og vandamönnum. Þetta er fjársjóð- ur sem gaman er að grípa til þeg- ar við á. Ljóðið Spor í sandi segir frá manni sem dreymir að Drottinn sýndi honum lífsferil hans sem spor í sandi þar sem hann sér tvenn samhliða spor í sandinum og hafði Drottinn gengið við hlið hans. En svo veitir maðurinn því athygli að stundum eru bara ein spor í slóðinni og að þannig hafi það verið á erfiðustu stundum lífs hans. Maðurinn spyr Drottin hverju það sætti að hann hefði ekki gengið sér við hlið þegar hann þurfti mest á stuðningi að halda og Drottinn svarar þá: Þar sem í fjörunni finnst þér fótsporin vera tvenn, við hönd mér þig löngum leiddi, líkt og ég geri enn. Þar för eftir eina fætur fjaran einungis ber það var á þrautastundum, þegar ég hélt á þér. Ég veit að þau Anna Jórunn áttu saman gott líf og þau eign- uðust börn og barnabörn sem öll eru myndarfólk og hafa verið þeim til mikillar gleði. En þau gengu líka í gegnum erfiðleika og sorgir í lífinu, missi og heilsuleysi svo textinn í ljóðinu gæti vel átt við hann sjálfan enda ber hann vitni um skilning og samhygð. Að lokum sendum við bekkj- arsystkini Þórhalls Önnu Jórunni og fjölskyldu þeirra okkar inni- legustu samúðarkveðjur og þökkum fyrir kynnin við góðan dreng. Fyrir hönd ML 62, Guðrún S. Þórarinsdóttir og Guðni Á. Alfreðsson. Á ferð okkar í þessum heimi mætum við fólki, svipað eins og skip sem mætast í hafi. Stundum liggja leiðir saman til lengri eða skemmri tíma, stundum hittir maður fyrir fólk sem er unun að hafa kynnst og svo í öðrum til- fellum fólk sem maður hefði helst viljað vera án að hafa mætt í til- verunni. Kynni mín af Þórhalli Hróð- marssyni voru í fyrri flokknum. Á þeim tveimur árum sem við störf- uðum saman fyrir tæpum áratug tókst á milli okkar mikill og góð- ur vinskapur. Ekki síst var það vegna þess að hann bað mig að útsetja fyrir sig nokkur af lögum sínum, sem ég gerði með glöðu geði. Mér er þó sérstaklega minn- isstætt þegar hann kom til mín með lag eftir móður sína, Ingunni Bjarnadóttur, við texta eftir Ein- ar Ólaf Sveinsson undir nafninu Haustvísur til Maríu. Ég gerði einfalda en nokkuð fallega út- setningu við þetta magnaða lag og á allri minni lífstíð hef ég ekki fengið eins miklar og innilegar þakkir fyrir verk mín eins og frá Þórhalli fyrir þessa litlu útsetn- ingu mína sem ég tileinkaði hon- um. Lagið var frumflutt af Kirkju- kór Hveragerðiskirkju, það er á disknum „Barbörukórinn“ sem gefinn var út 2012 og það birtist á prenti í bókinni Söngvaseiður 15 árið 2009. Þótt leiðir skildi höfðum við allnokkurt samband, reglulega skrifuðumst við á á netinu og allt- af stóð til að hittast. Héðan af verður það víst að vera hinum megin. Ég kveð þennan góða vin minn með þökk fyrir að hafa kynnst honum. Hann á sér sinn stað í hjarta mínu. Smári Ólason. Elsku Þórhallur, það var svo margt sem ég átti eftir að segja þér, maður heldur alltaf að tím- inn sé nægur. Til dæmis veit ég ekki hvort ég sagði þér nokkurn tímann hversu góður bróðir og vinur þú varst alltaf. Ég hef verið að rifja upp minningar og ég á ekkert nema góðar minningar um þig. T.d. heima í Hraunteigi þegar við vorum börn, sumarið okkar í sveitinni hjá Grétu systur okkar og árin sem við unnum saman á Garðyrkjuskólanum. Þú varst líka alltaf tilbúinn að hlusta og deila gleði og sorgum. Svo gafstu mér fyrstu tölvuna mína og kenndir mér á hana gegnum símann, hjálpaðir mér með að setja árbókina mína á netið og svo margt margt fleira eins og fyrir síðustu jól þegar þú settir upp og prentaðir fyrir mig aðal- jólagjöfina frá okkur Pétri og þóttist með því vera að borga gamlan greiða. Það eins og allt sem frá þér fór bar vitni um frá- bæra smekkvísi og vandvirkni. Það var líka svo gaman að fylgj- ast með þér þegar þú varst að vinna við tölvuna og hummaðir eins og afi í Hólabrekkunni. Þú varst sífellt að semja, bæði tónlist og ljóð, og gafst öllum aðgang að verkunum þínum á vefsíðunni þinni. Ég hef verið að hlusta á diskana með lögunum þínum og ljóðunum, sem þú gafst mér. Það er svo gott að hlusta á þig þessa dagana og vita að þessar perlur get ég alltaf sett í spilarann þeg- ar ég þarf á huggun að halda. Elsku bróðir, takk fyrir allt og allt. Anna S. Hróðmarsdóttir. Þórhallur Hróðmarsson Ástkær eiginmaður minn, faðir okkar, tengdafaðir og afi, MAGNÚS MAGNÚSSON verkfræðingur, Deildarási 6, lést þriðjudaginn 7. nóvember. Útförin verður auglýst síðar. Kristrún Guðbergsdóttir Magnús Bergur Magnússon Ingunn Eyjólfsdóttir Jónína Guðný Magnúsdóttir Bjarni Þór Árnason Súsanna Hrund Magnúsd. Daníel Harðarson Magnús Orri Magnússon Elskulegur eiginmaður minn, faðir okkar, tengdafaðir og afi, ÖRN INGÓLFSSON, fyrrverandi framkvæmdastjóri, Bogahlíð 8, Reykjavík, lést á líknardeild Landspítalans 8. nóvember. Lóa Gerður Baldursdóttir Þórdís Arnardóttir Gunnlaugur Sigurjónsson Herdís B.A. Diederichs Jürgen Diederichs Örn Ingi Arnarson Sigríður Ákadóttir Baldur Arnarson Zoë Robert og barnabörn Ástkær mágur okkar og vinur, HEINZ DIETER GINSBERG, lést á hjúkrunarheimilinu Höfða, Akranesi, mánudaginn 30. október. Útför hefur farið fram í kyrrþey. Hilmar Guðlaugsson Jóna Steinsdóttir Kristín J. Guðlaugsdóttir Gylfi Þór Þorsteinsson

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.