Morgunblaðið - 10.11.2017, Blaðsíða 30

Morgunblaðið - 10.11.2017, Blaðsíða 30
30 MINNINGAR MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 10. NÓVEMBER 2017 ✝ Örn Karl Sig-fried Þorleifs- son fæddist í Reykjavík 21. nóv- ember 1938. Hann lést á Landspít- alanum við Hring- braut 30. október 2017. Foreldrar Arnar voru hjónin Þor- leifur Þórðarson forstjóri, f. 27.4. 1908, d. 7.8. 1980, og Annie Chaloupek, f. 27.7. 1911, d. 28.12. 1948. Seinni kona Þor- leifs var Kristjana Kristjánsd., f. 14.3. 1921, d. 10.2. 2011. Alsyst- ir Arnar er Rosemarie, f. 1941. Hálfsystkini Arnar samfeðra eru Einar, f. 1953, María, f. 1954, Björg, f. 1955, og Olga Bergljót, f. 1956. Örn kvæntist 3.9. 1967 Elsu Þorbjörgu Árnadóttur, f. 1946, dóttur Árna Halldórssonar, bónda í Húsey, og k.h. Stef- ánnýju Níelsdóttur, þau eru bæði látin. Örn og Elsa skildu árið 1991. Börn Arnar og Elsu eru Anna Aðalheiður, f. 1967, gift Gísla Gunnari Jónss., f. 1965, og eiga þau eina dóttur saman, Huldu Vöku, f. 2007. Þau eru búsett í Þorlákshöfn, en fyrir átti Anna tvo drengi: a) Arnar Þór, f. 1991, sambýlisk. Hólmfríður D. Friðjónsd, b) Atla Grétar, f. 1994, sambýlisk. Ingibjörg Hann lauk gagnfræðaprófi 1955, lauk búfræðiprófi frá Hvanneyri 1957 og búfræðik- andídatsprófi þaðan 1963. Sam- hliða námi keyrði hann Norður- leiðarrútur í nokkra vetur. Örn dvaldi við nám í Þýskalandi 1957-1959, var í námi í vinnu- hagræðingu í Englandi 1964- 1965, fór kynnisferð til Noregs og Englands varðandi djúp- frystingu á nautasæði og til Þýskalands og Tékkóslóvakíu sumarið 1964 til að kynnast meðferð gæsa, anda, kanína og fleiri smádýra, stundaði nám í uppeldis- og kennslufræði við HÍ 1989-1990 og lauk prófi í þeirri grein. Örn var ráðunaut- ur hjá Búnaðarsambandi Eyja- fjarðar og Búnaðarsambandi Borgarfjarðar 1963, hjá Bún- aðarsambandi Austurlands 1965-1970, og starfaði aftur hjá Búnaðarsambandi Austurlands 1981-1984, hann var formaður Búnaðarfélags Tunguhrepps í nokkur ár, var kennari við Brúarásskóla frá 1987-2014 en í millitíðinni kenndi hann tvo vet- ur í Fellaskóla í Fellabæ. Árið 1970 hóf hann búskap í Húsey, Hróarstungu, ásamt þáverandi eiginkonu sinni. Árið 1981 fóru þau út í ferðaþjónustu meðfram búskapnum sem óx og dafnaði með árunum og er þar í dag vin- sæll áningarstaður ferðamanna, sem hann ásamt Laufeyju, eig- inkonu sinni, og börnum þeirra starfaði við til dauðadags. Örn var mikið náttúrubarn, allt sem tengdist náttúru var honum hugleikið. Útför Arnar fer fram frá Eg- ilsstaðakirkju í dag, 10. nóv- ember 2017, klukkan 14. Hjörleifsd. Gísli á tvær dætur, Dag- nýju, f. 1989, og Þóru Birnu, f. 1986, og á hún Rakel Betu, f. 2008. Þor- leifur Kristján, f. 1968, sambýliskona hans er Lene Harbo Sörensen, f. 1979. Þau eru bú- sett í Danmörku. Þorleifur átti fyrir einn son, Tómas Val, f. 1992, sambýlisk. Martine Usland Möll. Hjálmar Örn, f. 1974, kvæntur Ídu Björgu Unnarsd., f. 1976, og eiga þau þrjú börn: a) Skúla Berg, f. 1996, sambýlisk. Þórey Kristinsd., b) Söndru Björgu, f. 2004, og c) Sæþór Berg, f. 2007. Þau eru búsett í Garðabæ Stjúpdóttir Arnar, dóttir Elsu, Árný Vaka Jónsd., f. 1965, búsett í Reykjavík, á hún þrjár dætur: a)Kolbrún Arna, f. 1985, sambýlism. Arnar Darri Pét- urs., b) Anna Hlín, f. 1987, gift Jide Alabama barn þeirra Tayo Daníel, c) Stefánný Ósk, f. 2000. Örn kvæntist 11.9. 1997 eftir- lifandi eiginkonu sinni, Lauf- eyju Ólafsdóttur, f. 1966, dóttur Ólafs Hallgrímssonar og Þór- hildar Sigurðardóttur. Börn þeirra eru Örn, f. 1999, og Arn- ey Ólöf, f. 2002. Örn ólst upp á Hrefnugötunni í Reykjavík en ungur fór hann í Skógaskóla undir Eyjafjöllum. Elsku pabbi minn, ég líð hér um í hálfgerðri þoku þessa dag- ana, ég er ekki alveg að sam- þykkja það að þú sért farinn að eilífu. Ég veit samt að það er raunverulegt en mig dreymir þig á nóttunni; alltaf ljúfir og góðir draumar. Ég á svo marg- ar góðar minningar um sam- veru okkar , hvort sem það var í sveitinni í gamla daga, ég trítlandi á eftir þér að reyna ná í fótspor þín í snjónum á leið í fjárhúsin, kúra í fangi þínu í eldhúsinu á morgnana þegar ís- kalt var og þú búinn að kveikja á kolaeldavélinni til að hita að- eins. Ég austur í bæ á baðher- berginu hjá afa og ömmu að reyna að skrúbba freknurnar úr andlitinu með þvottapoka og sápu eftir að þú sýndir mér brúsann með brúnu málning- unni sem þú sagðist hafa notað til að búa þær til. Ekki datt mér í huga að þú værir að stríða mér fyrr en löngu, löngu seinna enda varstu ótrúlegur prakkari í þér. Seinna meir varð ég bara hæstánægð með freknurnar mínar eftir að ég uppgötvaði að þær hefðu erfst frá þér. Eftir að ég fór að búa sjálf komstu oft og eftir að strákarnir fæddust varstu alltaf boðinn og búinn að passa þá fyrir mig eða bara fá þá lánaða eins og þú sagðir. Seinna meir leist þú oft við bara til að leggja þig í smá stund, fá smá kaffisopa og spjall. Síðar eftir að ég flutti til Þorlákshafnar og sérstaklega eftir að þú fórst að fara í heilsubótardvöl í Hvera- gerði komstu oft bara aðeins að kíkja á okkur. Alla tíð gat ég leitað til þín alveg sama hvað var og þú hafðir alltaf einhverja lausn fyrir mig. Börnin mín fengu öll að njóta samvistar við þig í ríkum mæli, og þú óþreyt- andi að fræða þau um náttúr- una og allt í sambandi við dýrin í sveitinni. Ég er svo þakklát í hjarta mínu fyrir ferðina sem þú skipulagðir til Austurríkis 2012, að hafa haft tækifæri til að kynnast móðurfólki þínu aðeins er mér ómetanlegt, þú sýndir það í þessari ferð að allt er hægt ef viljinn er fyrir hendi. Æðruleysi þitt í veikindum þín- um síðastliðinn mánuð sýndi glöggt hversu sterkur persónu- leiki þú varst, huggaðir okkur og stappaðir í okkur stálinu þegar þú sást eða fannst að okkur leið illa þó svo að þér liði örugglega helmingi verr. Að fá að hafa þig hér hjá okkur í Þor- lákshöfn þessar vikur sem þú varst að berjast af öllu afli við krabbafjandann er ómetanlegt í mínum huga, sérstaklega af því að staður númer eitt var ekki í boði, þ.e.a.s. heima í Húsey. Þá vildir þú helst vera hér, fannst svo notalegt nýja húsið okkar og umhverfið hér í bænum og þú lést okkur svo sannarlega vita af því. Hulda Vaka afastelpa á eftir að sakna þín mikið en þú kvaddir hana svo fallega og vel. Ég vona bara að þú hafir átt góða ferð, sannfærð um að það hafi vantað mann eins og þig þarna hinum megin. Ég skal reyna mitt besta ásamt heims- meistaranum mínum, eins og þú kallaðir uppáhalds tengda- soninn þinn öðru nafni, til að halda í öll fjölskylduböndin því þú lagðir svo ríka áherslu á að þau myndu ekki rofna við brotthvarf þitt. Sofðu rótt, elsku pabbi minn, og hvíl þú í friði. Þín pabbastelpa Anna Aðalheiður. Það er ofsalega sárt að þú sért farinn, elsku afi. Ég vildi óska að við hefðum átt fleiri ár, því ég veit að þú hafðir fleiri sögur að segja. Þú varst frábær kennari og um- hyggjusamur maður og smit- aðir fólkið í kringum þig af gleði og ást og áhuga á nátt- úrunni. Takk fyrir allt. Arnar Þór Ingólfsson. Örn Þorleifsson, bóndi í Hús- ey, lést 30. október og er kvaddur hinstu kveðju frá Eg- ilsstaðakirkju í dag. Kynni okk- ar hófust fyrir um tveimur ára- tugum, er Laufey, dóttir mín, og hann rugluðu saman reytum og stigu þar með sannkallað gæfuspor. Áður þekkti ég lítið til Arnar, vissi að hann var Reykvíkingur, ráðunautur hjá Búnaðarsambandi Austurlands, bjó í Húsey og rak þar ferða- þjónustu. Við sáumst stundum á Egilsstöðum. Örn varð fljótt hluti af fjölskyldunni. Hann var hlýr og traustvekjandi, með okkur tókst góð vinátta, sem aldrei hefur borið skugga á. Að kynnast Húsey var ævintýri líkast. Þar er sannkölluð nátt- úruparadís, flatlendi mikið og sjóndeildarhringurinn víður og fagur. Þar er fuglalíf fjölskrúð- ugra en annars staðar, og oft má sjá seli spóka sig á aurum Jöklu eða úti við Ósinn. Í þessu umhverfi lifði og hrærðist Örn, þar var hans staður í lífinu, þar og hvergi annars staðar vildi hann eiga heima. Laufey féll líka fljótt vel inn í þessar kringumstæður, og saman hafa þau tekist á við úrlausnarefnin, rekstur farfuglaheimilisins við vaxandi aðsókn erlendra gesta, auk þess nokkurn búskap með hross fyrir ferðaþjónustuna og kindur og kýr til heimilisnota. Fólkið sem þangað kemur er ánægt og fer þaðan með bros á vör, enda vel við það gert. Börnin þeirra tvö, Örn og Arn- ey Ólöf, sem erft hafa góða kosti foreldranna, hafa vaxið úr grasi og lagt lið. Örn var fróður maður og gaman að heyra hann segja frá. Hann var umhverfisverndar- maður í orðsins bestu merk- ingu, umgekkst náttúruna með varúð og virðingu. Er Kára- hnjúkavirkjun var reist skipaði hann sér í raðir andstæðinga hennar. Honum féll þungt að sjá, hve Fljótið er illa leikið af völdum virkjunarinnar, hve það hefur breytt um lit og lögun og lífríkinu hnignað. Í þeirri bar- áttu áttum við samleið. Hann var fjölhæfur persónuleiki, í senn gróinn sveitamaður og heimsborgari, málamaður góð- ur, talaði þýsku sem innfæddur. Í rauninni var þýska hans ann- að móðurmál. Í mörg ár kenndi hann raungreinar við Brúarár- skóla, vinsæll og virtur af nem- endum sínum. Fyrir sex árum lenti Örn í alvarlegu slysi, brotnaði á báðum fótum við ökklalið og skaddaðist í baki, en náði góðum bata á næstu ár- um, m.a. með endurtekinni dvöl á Heilsuhælinu í Hveragerði, gat sinnt bústörfum, en varð þó aldrei jafngóður. Síðla sumars greindist Örn með lungna- krabbamein. Við tóku erfiðar sjúkradvalir á Landspítalanum og aðgerð, en eftir það hallaði undan fæti. Laufey stóð við hlið manns síns eins og kletturinn, sem aldrei bifast. Þungbært var að sjá þennan þrekmikla og lífsglaða mann verða að lúta í lægra haldi fyrir illvígum sjúk- dómi, sem eigi varð við ráðið. Röddin er hljóðnuð, en eftir stendur minningin um heil- steyptan mann og góðan dreng. Elsku fjölskylda í Húsey, börn Arnar frá fyrra hjóna- bandi og önnur skyldmenni. Megi Guð allrar huggunar gefa ykkur styrk. Ég kveð þig með orðum Sólarljóða og þakka ár- in, sem við urðum samferða. Hér við skiljumst og hittast munum á feginsdegi fira; drottinn minn gefi dauðum ró, hinum líkn, er lifa. Ólafur Hallgrímsson. Það er milt fallegt haust. Náttúran skartar sínu fegursta, blómin springa enn út, grasið sprettur og laufin halda fast í trén sín en taka liti haustsins með sínu litaskrúði eins og þau fegurst geta verið. Logn, hiti og blíða flesta daga. Það eru komin októberlok, náttúran lætur aðeins undan, frost á nóttu, myrkrið skellur á fyrr en varir. Á þessu fallega hausti grein- ist elskulegur Örn bróðir minn með krabbamein. Sjúkdóm sem leggur marga í valinn en einnig margir sigrast á. Örn sagði þessum sjúkdómi stríð á hend- ur, allt var reynt sem hægt var að gera en á örskömmum tíma tók banvænt meinið yfir, ekkert var hægt að gera. En elsku bróðir, við höfðum trú og von til síðasta dags. Þú vissir að hverju stefndi en tókst örlögum þínum með æðruleysi eins og öllu öðru alltaf. Hinn 30. októ- ber sigraði sláttumaðurinn með ljáinn. En elsku Örn, þú varst líka sláttumaður, en af hinu góða. Þú varst bóndi og hesta- maður, þú slóst um þig með dugnaði, eljusemi, bjartsýni, hjálpsemi og ekki síst frásagn- argleði. Skemmtilegur að segja sögur, stundum ótrúverðugar, hve oft sagði ég ekki: „En Örn, það getur ekki verið.“ mér fannst þú oft vera að skálda inn í en yfirleitt var þetta heilagur sannleikur. Þú lifðir þig svo inn í að segja frá, það var eins og staður og stund lifnaði við. Þú elskaðir dýrin og landið, varst mikill náttúruverndarbar- áttumaður. Dýrin öll stór og smá tókst þú undir þinn vernd- arvæng ef eitthvað bjátaði á, fugla, seli, mýs og hvaðeina, öll- um hjálpaðir þú. Þú varst sannkallaður dýra- hvíslari og þín verður sárt saknað í Húsey þegar dýrin heyra ekki rödd þína lengur. Eins og pabbi sagði við okkur og svo börnin okkar: „Verið dýrunum góð, þau eiga sinn rétt.“ Elsku Örn, það er svo ósanngjarnt að þetta skuli koma fyrir þig, þú sem hafðir náð þér svo vel eftir mikið slys og langa sjúkrahúsvist, máttir ekki hreyfa þig. Þá skipulagðir þú ferð okkar fjölskyldunnar á heimaslóðir móður okkar í Austurríki. Ógleymanleg ferð, við fórum á þriðja tug fjöl- skyldumeðlimir, börn, makar, afa- og ömmubörn. Í veikindum móður okkar varst þú oft að passa mig og við móðurmissi, þú tíu og ég sjö ára, áttum við hvort annað þeg- ar pabbi var fjarri vegna vinnu sinnar. Það var svo fallegt á dán- arbeði þínum að þú leitaðir eft- ir hönd Sigfúsar og sagðir: „Passaðu litlu systur mína.“ Við áttum alltaf hvort annað í blíðu og stríðu þó að mörg árin vær- um við fjarri hvort öðru. Það var mér mikils virði að geta verið hjá þér síðustu daga. Nú ert þú hjá mömmu og pabba. Far þú í friði. Þú varst einstakur maður. Þín litla systir, Rosemarie Brynhildur Þorleifsdóttir. Örn bróðir er fallinn frá. Allt til hinstu stundar lifði hann hvern dag brennandi af áhuga fyrir fólkinu sínu, landinu sínu og því sem það fóstraði og gaf. Víst er að umbrot snemma æv- innar mótuðu líf hans, sár móð- urmissir í bernsku og breyttar fjölskylduaðstæður þegar pabbi okkar kvæntist á ný fáeinum árum síðar og systkinahópurinn stækkaði. Á æskuárum varð sveitin at- hvarf Arnar á sumrin og þar var vafalaust sleginn upptakt- urinn að lífshlaupi hans. Í bernskuminningum okkar er stóri bróðir sumpart fjarlægur enda að nokkru fluttur að heiman þegar við munum fyrst. En ljósmyndir frá þessum tíma sýna glæsilegan ungan mann, kankvísan og glettinn á svip. Það var ekki fyrr en við yngri systkinin voru komin af barns- aldri og hann hafði fest sitt ráð sem kynni af bróður urðu meiri. Hann kvæntist Elsu Árnadóttur, heimasætu í Húsey í Hróarstungu, og þar hófu þau búskap og ólu upp börnin sín fjögur. Leiðir Arnar og Elsu skildi en Örn bjó áfram í Hús- ey. Hann kvæntist aftur og seinni kona hans var Laufey Ólafsdóttir og þau eignuðust tvö börn. Í Húsey fann Örn sinn griða- stað, í sveitinni milli tveggja stórfljóta, úti við ysta haf, þar sem víðsýni og blámi himinsins ríkir og Dyrfjöllin blasa við í allri sinni dýrð. Töfrar svæð- isins eru einstakir, þar er eins og tíminn leysist upp, einkum á sumrin þegar nóttin er björt og dagar langir. Örn festi þarna djúpar rætur og fann hversu landið og náttúran var honum dýrmætt og gjöfult. Miklar nytjar eru á Húseyj- arlandi, reki á fjörum, selur í ósnum, hreindýr í úthaga, fisk- ur í ám og fuglinn allt um kring. Hann nýtti það sem landið gaf en leit líka á sig sem vörslumann þessarar paradísar. Örn hafði unun af því að um- gangast dýr. Ósjaldan mátti t.d. sjá kópa við bæjartjörnina, undanvillinga úr selalátrinu, sem eltu Örn eins og heimaln- ingum er tamt. Hann fóstraði kópana og skilaði þeim síðan aftur í fljótið þegar þeir höfðu braggast og náð þroska. Hann hændi að sér villtar gæsir og endur og samband hans við hesta var einstakt. Honum var það líka mikið kappsmál að ganga vel um landið, sýna því virðingu og barðist ötullega gegn stórvirkjunum, taldi nátt- úruna ætíð eiga að njóta vaf- ans. Örn var búfræðingur og vann lengi sem ráðunautur á Austurlandi. Seinna samhliða búskap og ferðaþjónustu í Hús- ey kenndi Örn við Brúarár- skóla, aðallega raungreinar og náttúrufræði og sótti sér síðar framhaldsmenntun í kennslu- fræðum við Háskóla Íslands. Hann þótti framsækinn kennari og fór óvenjulegar leiðir til að ná til nemenda sinna og vekja áhuga þeirra. Örn bróðir var afar gestris- inn, fór ekki í manngreinarálit, kom eins fram við alla sem á vegi hans urðu. Hann naut þess jafnan að vera meðal fólks, segja sögur og spyrja fregna. Þannig var hann allt til síðustu stundar þegar hann háði hetju- lega baráttu við ólæknandi sjúkdóm, naut þess að vera um- kringdur fólkinu sínu, gaf þeim ráð og heilræði í veganesti, á sinn kankvísa og hlýja máta. Þannig minnumst við Arnar bróður og biðjum þess að allar góðar vættir standi vörð um fjölskyldu hans. Björg og Olga Bergljót. Mig langar í fáum orðum að þakka þér, elsku Örn bróðir, samferð okkar. Fyrstu minn- ingar eru úr barnæsku og þú töffarinn stöðugt á ferð út eða að koma heim með útlenskt nammi í poka. Man þig uppá- búinn með brilliant í hárinu, á svörtum támjóum skóm og með svart mjótt bindi og Presley spilaður í botni. Þú varst góður og hlýr við okkur yngri systkinin samfara góðlegri glettni og prakkara- legri stríðni. Mér er minnisstætt er ég strauk úr vistinni í Steinahlíð. Ljúfasta stund dagsins, „drekkutíminn“, var ekki í boði og mér stórlega misboðið. Tók Björgu systur og tvo leikfélaga áleiðis heim á Hrefnugötuna því mamma átti gott rúgbrauð og sultu. Ferðin endaði að kvöldi með akstri heim í lög- reglubíl. Þú lést ekki þitt eftir liggja með glettnislegu spaugi af af- rekum litlu systur og lengi mátti ég búa við tilboð á ólíku rúgbrauði með sultu og gríni vegna heimferðar með „Svörtu Maríu“. Heiðu frænku setti hljóða meðan þú af þinni ein- skæru og litríku frásagnargleði breyttir sögunni í herskáa bylt- ingu, Ídu forstöðukonu geymdri í læstri kompu meðan eldhús- skápar Steinahlíðar tæmdust og barnaskarinn með mig í far- arbroddi hljópst á brott með allt sætabrauðið. Þrátt fyrir glensið skynjaði barnið að við vorum ekki ólík og að ég átti þig líka sem bandamann í réttsýnni afstöðu þinni til lífsins. Ein ferð í Húsey af mörgum góðum stendur þó fremri öðr- um en það var sumarið 1973, ég stödd í vinnu á Eiðum og Lag- arfljótið skildi okkur að. Ferðin hófst með að við vin- kona mín vorum ferjaðar á ára- báti yfir fljótið. Þú beiðst á ár- bakkanum á rauðri dráttarvél og í tíbránni var sem þú sigldir til móts við okkur yfir straum- hart fljótið meðan við upplifð- um kyrrstöðu. Við lendingu horfðir þú sem snöggvast með undran á fóta- búnað okkar, bauðst okkur sæti á brettunum beggja vegna við þig og gafst í. Landið var þýft með mýrarflákum og við hent- umst upp og niður. Hver fugl og hvert smáblóm á vegi okkar átti hug þinn allan og deildir þú með okkur öllu því sem fyrir augu bar. Dyrfjöllin þrengdu bilið í blámanum eftir því sem afstað- an breyttist og við nálguðumst Húsey í sumarsólinni. Eftir útiveru og skoðunar- ferð var snætt með fjölskyld- unni og skrafað í eldhúsinu. Þú spurðir hvort ég vildi mjólk út í kaffið og bauðst mér að fylgja þér fram, tókst fötu og röltir af stað út á tún. Kallaðir blíðlega kusa kus og kom Kusa lullandi á móti þér. Um leið og þú klappaðir henni bak við eyrun mjólkað- irðu dreitil í kaffið. Birtan var tær því sólin rétt kyssti hafflöt- inn við ystu sjónarrönd. Það eina sem heyrðist var þögnin. Ég spurði hvað tímanum liði og með æðruleysi sagðist þú bara ekki vita það. Þegar inn í bæ var komið sýndi veggklukka rúmlega miðnætti. Í Húsey á þessum stundum hætti tíminn að vera til. Takk fyrir allt sem þú gafst mér, elsku Örn bróðir, þín er sárt saknað. Elsku Laufey og frændsystk- in mín, missir ykkar er mikill en ég veit að Örn bróðir vakir Örn Karl Sigfried Þorleifsson

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.