Morgunblaðið - 10.11.2017, Síða 8

Morgunblaðið - 10.11.2017, Síða 8
8 FRÉTTIRInnlent MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 10. NÓVEMBER 2017 ULLARJAKKAR á alla herramenn Gæðafatnaður á góðu verði HERRAFATAVERSLUN BIRGISFÁKAFENI 11 • 108 REYKJAVÍK • SÍMI 553 1170 Opið mán-fös 10-18 og lau 11-16 Næg bílastæði Styrmir Gunnarsson fyrrv. rit-stjóri svarar spurningunni þannig:    Katrín Jakobs-dóttir og Bjarni Benediktsson hafa verið að tala saman síðustu daga.    Kannski er rétt-ara að segja að þau hafi verið að togast á um forsætisráðuneytið.    VG hefur sett það sem skilyrði fyrir viðræðum við Sjálfstæðis- flokk og Framsóknarflokk að Katrín yrði forsætisráðherra í slíkri stjórn.    Þingflokkur Sjálfstæðisflokksinshefur mjög eindregið verið þeirrar skoðunar að það eigi að koma í hlut formanns Sjálfstæðis- flokksins.    Fari viðræður þessara þriggjaflokka af stað má búast við að VG leggi áherzlu á að Samfylkingin komi inn í þær.    Forysta VG óttast að missa kjós-endur til Samfylkingar verði sá flokkur í stjórnarandstöðu.    En innan VG er líka hópur, semkysi frekar að Samfylkingin yrði utan stjórnar og innan Sam- fylkingar er hópur, sem þolir illa samstarf við Sjálfstæðisflokk.    Það er allt þetta púsluspil semBjarni og Katrín eru að fást við.“    Viðbótarspurningin er þessi: Vantar eitthvað í púslið?    Þá vandast málið. Styrmir Gunnarsson Um hvað snýst það? STAKSTEINAR Veður víða um heim 9.11., kl. 18.00 Reykjavík 0 skýjað Bolungarvík -3 skýjað Akureyri -3 léttskýjað Nuuk -5 skýjað Þórshöfn 5 skýjað Ósló 7 heiðskírt Kaupmannahöfn 8 þoka Stokkhólmur 5 rigning Helsinki 5 súld Lúxemborg 5 þoka Brussel 8 þoka Dublin 9 skýjað Glasgow 9 alskýjað London 12 skýjað París 9 heiðskírt Amsterdam 10 súld Hamborg 8 þoka Berlín 6 alskýjað Vín 9 skýjað Moskva 0 léttskýjað Algarve 20 heiðskírt Madríd 11 léttskýjað Barcelona 13 léttskýjað Mallorca 13 léttskýjað Róm 15 skúrir Aþena 20 léttskýjað Winnipeg -17 léttskýjað Montreal 5 alskýjað New York 9 heiðskírt Chicago 5 skýjað Orlando 26 heiðskírt Hægt er að lýsa skoðun á ritstjórnar- greinum Morgunblaðsins á slóðinni http://mbl.is/mogginn/leidarar/ VEÐUR KL. 12 Í DAG 10. nóvember Sólarupprás Sólsetur REYKJAVÍK 9:42 16:43 ÍSAFJÖRÐUR 10:03 16:31 SIGLUFJÖRÐUR 9:47 16:13 DJÚPIVOGUR 9:15 16:08 Hæstiréttur hefur staðfest úrskurð Héraðsdóms Suðurlands um gæslu- varðhald til 29. nóvember yfir föður sem grunaður er um að hafa beitt ung- ar dætur sínar kynferðislegu ofbeldi árum saman. Talið er að maðurinn sé hættulegur umhverfi sínu. Félagsmálastjóri sveitarfélagsins þar sem fjölskyldan býr óskaði eftir rannsókn lögreglu á málinu. Dóttir mannsins greindi frá því við skýrslu- töku hjá lögreglu að faðir hennar hefði haft samfarir við hana, að minnsta kosti þrisvar, þegar hún var fimm til sex ára. Faðirinn hafði tekið hana með sér í ferðalag til útlanda og þau dvalið á hótelherbergjum. Maðurinn var handtekinn í lok síð- asta mánaðar. Hann neitar sök. Fram kemur í málinu að auk þessa máls sé til ákærumeðferðar hjá héraðs- saksóknara mál þar sem manninum er gefið að sök að hafa ítrekað brotið kyn- ferðislega gegn næstelstu dóttur sinni, fyrst þegar hún var fimm eða sex ára. Í greinargerð lögreglustjóra er einn- ig greint frá því að maðurinn var dæmdur í 10 mánaða fangelsi árið 1991 fyrir ítrekuð kynferðisbrot gegn elstu dóttur sinni þegar hún var fimm til sjö ára. Faðir grun- aður um nauðgun  Sakaður um brot gegn ungum dætrum Kona á þrítugsaldri, Ingibjörg Eva Löve, hefur verið dæmd í fimm ára fangelsi í héraðsdómi fyrir tilraun til manndráps. Hún er fundin sek um að hafa ruðst grímuklædd inn á heimili fyrrverandi kærasta síns, barið hann með hafnaboltakylfu í höfuðið og stungið með hnífi í hægra brjóst. Maðurinn hlaut þriggja sentimetra langan skurð á hnakka, marga minniháttar ákverka á lík- ama og djúpan skurð í brjóstholi. Árásin var gerð í júní, að kvöld- lagi. Konan hafði þá ítrekað hringt í fyrrverandi kærasta sinn en hann nennti ekki að tala við hana. Þegar hann fékk stúlku sem stödd var á heimilinu til að svara skellti hún á. Skömmu síðar kom konan við annan mann, bæði með klút fyrir andliti, og réðust á brotaþola og gesti hans og ógnuðu þeim með hnífum. Dómnum þótti ósannað að ásetn- ingur hefði vaknað hjá konunni á fyrri stigum um að ráða fyrrver- andi kærasta sínum bana. Eigi að síður hefði atlaga hennar verið heiftúðug. Hún hefði ekki linnt lát- um þó að brotaþoli stæði vopnlaus frammi fyrir henni, þá þegar sár eftir höfuðhögg sem hún veitti hon- um, og lagt til hans með flugbeitt- um hnífi. „Gat henni ekki dulist á verknaðarstundu að mannsbani gæti hlotist af atlögu í brjóstkassa með svo hættulegu vopni,“ segir í dómnum. Fimm ára fangelsi fyrir manndrápstilraun  Kona réðst að fyrrverandi kærasta sínum með hafnaboltakylfu og hnífi Morgunblaðið/Ernir Dómur Úr dómsal héraðsdóms.

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.