Morgunblaðið - 10.11.2017, Qupperneq 11

Morgunblaðið - 10.11.2017, Qupperneq 11
FRÉTTIR 11Innlent MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 10. NÓVEMBER 2017 Guðni Einarsson gudni@mbl.is Veganúmer þjóðvega á Austurlandi breytast á morgun, laugardaginn 11. nóvember. Framvegis mun þjóðvegur 1, hringvegurinn sem sýndur er með rauðri línu á meðfylgjandi korti, liggja um suðurfirðina í stað þess að liggja um Breiðdalsheiði eins og hingað til. Vegagerðin sendi út fréttatilkynningu þessa efnis og seg- ir að þjóðvegur 1 muni eftirleiðis liggja eftir þjóðvegi, sem áður var númer 92, frá Egilsstöðum, framhjá Reyðarfirði, í gegnum Fáskrúðs- fjarðargöng um þjóðveg sem þaðan var númer 96, í gegnum Stöðvar- fjörð og áfram að Breiðdalsvík. Gamli hringvegurinn um Breiðdal og Skriðdal fær nú vegnúmer 95 í stað þess að vera númer 1. Dregur úr villum ferðamanna Vegagerðin kveðst vona að þessi breyting verði til þess að fækka þeim tilvikum sem ferðamenn, sem til dæmis koma með Norrænu, velji að fara um Breiðdalsheiði „þótt hún sé kirfilega lokuð – jafnvel með lok- unarslá. Sem dæmin sanna að gerist ítrekað að vetri til“. Vegvísanir verða mismunandi eft- ir árstíðum. Þannig verður ekki vís- að á Egilsstaði um Breiðdalsheiði að vetri þegar heiðin er lokuð, enda þykir ekki forsvaranlegt að vísa veg- farendum á lokaða fjallvegi. Breytingin á vegnúmerunum mun ekki hafa nein áhrif varðandi fyr- irhugaðar vegaframkvæmdir á Austurlandi, hvort sem þær eru þeg- ar ákveðnar eða eru til skoðunar. Ekki verður heldur nein breyting á þjónustu Vegagerðarinnar, hvorki vetrar- né sumarþjónustu. Breyta þarf mörgum skiltum Að sögn Vegagerðarinnar eru starfsmenn hennar þessa dagana að breyta merkingum og setja upp bráðabirgðaskilti sem sýna breyttar vegmerkingar. Setja þarf upp tvær fjarlægðar- töflur, átta leiðarmerki, fjórtán vegvísa, tuttugu ný vegnúmeraskilti og sex bráðabirgðaskilti. Einnig verður límt yfir 34 skilti vegna nýrra vegnúmera og breyttra vegalengda. Vegagerðin segir ekki víst að öllum þessum breytingum ljúki fyrir morgundaginn en verkinu mun ljúka á fáum dögum. Reiknað er með að kostnaður vegna þessara breytinga nemi 8-12 milljónum króna. Hringvegurinn fær- ist til á Austfjörðum  Liggur nú um suðurfirðina en ekki Breiðdalsheiði Breytt vegnúmer á Austfjörðum Heimild: Vegagerðin Egilsstaðir Sk ri ðd al ur Breiðdalsheiði BreiðdalurÖxi Fa gr id al ur Seyðisfjörður Neskaupstaður Eskifjörður Fáskrúðsfjörður Stöðvarfjörður Breiðdalsvík Djúpivogur Reyðarfjörður BORGARFJARÐARVEGUR94 SEYÐISFJARÐARVEGUR93 95 95 HRINGVEGUR1 AXARVEGUR939 HRINGVEGUR1 ÁÐUR VEGNR.92 SKRIÐDALS- OG BREIÐDALSVEGUR95 ÁÐUR HRINGVEGUR 1 NORÐFJARÐARVEGUR92 NÝR VEGUR/JARÐGÖNG ÁÐUR VEGNÚMER 92 ODDSSKARÐSV.9549 ÁÐUR VEGNR.96 HRINGVEGUR1 HRINGVEGUR1 HRINGVEGUR1 Nýjar vörur frá geoSilica Kísill Íslenskt kísilsteinefni Recover Fyrir vöðva og taugar Renew Fyrir húð, hár og neglur Repair Fyrir bein og liði Fæst í öllum helstu apótekum, heilsuvöruverslunum, Hagkaupum, Nettó, Fjarðarkaupum og vefverslun geoSilica. Nánari upplýsingar má finna á www.geosilica.is Grafinn lax - Láttu það eftir þér Söluaðilar:10-11,Hagkaup,Kostur,Icelandverslanir,Kvosin,Melabúðin, Nettó, Samkaup, Pure Food Hall flugstöðinni Keflavík, Sunnubúðin. Bæjarlind 6, sími 554 7030 Við erum á facebook Str. S XXL Litur: ljósgrátt, svart Rúllukraga- peysur Kr. 4.990 - NÝTT NÝTT Verið velkomin Glæsilegar haust- og vetrarvörur Peysur, blússur, bolir, kjólar, buxur, vesti, ponsjó o.fl. Vorum að fá nýja sendingu af treflum, húfum og töskum. Álfheimum 74, 104 Rvk, sími 568 5170 Hæstiréttur staðfesti dóm Héraðs- dóms Reykjavíkur þar sem Sam- skiptamiðstöð heyrnarlausra og heyrnarskertra og íslenska ríkið voru sýknuð af kröfu Áslaugar Ýrar Hjart- ardóttur, sem stefndi fyrrnefndum aðilum vegna mismununar. Áslaug Ýr er með samþætta sjón- og heyrnarskerðingu og hugðist sækja sumarbúðir fyrir daufblind ungmenni frá Norðurlöndunum. Áslaug Ýr krafðist þess að höfnun Samskiptamiðstöðvarinnar um beiðni hennar um endurgjaldslausa túlka- þjónustu yrði ógilt. Þá krafðist hún einnig milljón króna í miskabætur. Í dóminum kemur fram að Samskipta- miðstöðin taldi sig búa yfir takmörk- uðum fjármunum og þyrfti að láta þá endast út ársfjórðunginn þegar beiðn- in barst. Ef miðstöðin hefði orðið við beiðni Áslaugar hefði hvorki verið gætt jafnræðis milli þeirra sem þarfn- ast túlkaþjónustu né hefðu fjármun- irnir enst til loka ársfjórðungsins. Í dóminum kemur fram að það sé ekki á valdi dómstóla að mæla fyrir um fjárveitingar. Hæstiréttur staðfesti því dóm Héraðsdóms Reykjavíkur. Sýknu- dómur staðfestur  Áslaug Ýr fær ekki greiddar bætur Bílar Atvinna

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.