Morgunblaðið - 10.11.2017, Síða 12
Salt og pipar Salt- og
piparstaukar dulbúnir
sem tóbakshorn.
12 DAGLEGT LÍF
MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 10. NÓVEMBER 2017
hafði verið að taka saman og hripa
niður ýmslegt héðan og þaðan mér
til gagns og gamans þegar mér
datt í hug að fóðleiksmolarnir gætu
komið öðrum til góða, sem hefðu
hug á að fást við tréskurð eða
væru komnir eitthvað áleiðis,“ seg-
ir Sigurjón. Hann leggur áherslu á
að bókin flokkist þó hvorki sem
kennslubók né sjálfshjálparbók.
„Verklega þætti tréskurðar er ill-
mögulegt að útskýra með orðum,
enda byggist tréskurður að stórum
hluta á snertingu þar sem saman
fara hugur og hönd. Til þess að
geta nýtt sér bókina þarf fólk að
hafa áður aflað sér grunnþekk-
ingar í skurðlist og notið að ein-
hverju marki leiðsagnar hjá kunn-
áttumanni. Skurðlistin
verður ekki af einni bók-
inni lærð.“
Í bók sinni
fer Sigurjón
engu að síður
býsna ítar-
lega ofan í
saumana á
hvaða
verk-
færi
beri að
nota, með-
höndlun
þeirra, vinnu-
aðferðir og
-aðstöðu, fyrstu
skrefin og síðan
skref fyrir skref. Auk fróðleiks um
sögu og þróun tréskurðar, einkum
á Íslandi, fjallar hann um mismun-
andi stíla og stefnur, myndbygg-
ingu og alls konar hagnýt og oft
tæknileg atriði. Ljósmyndir, teikn-
ingar og skýringarmyndir eftir
höfundinn eru svo til þess fallnar
að taka af allan vafa.
„Heilabrot verða mest við tré-
skurð þegar valið er viðfangsefni.
Hvað á að skera í viðinn? Það þarf
helst að liggja ljóst fyrir því að
auðvitað verður að sníða fjölina
fyrir það sem skera á,“ segir í Tré-
skurði,
Kennir eldri borgurum
Sjálfum finnst Sigurjóni
skemmtilegast að skera út eftir
eigin hugmyndum, þróa þær og
vinna frá grunni. Helst nytjahluti.
Hann hefur t.d. skorið út lampa-
fætur, kaffipokastand með stuðla-
bergsmynstri, aska og er núna að
þróa nóa, eins og litlir askar
eru kallaðir, og sér þá fyr-
ir sér sem ílát fyrir
sykur eða annað mat-
arkyns.
Sigurjón ráð-
leggur byrjendum
samt að skera út
eftir fyrir-
myndum. „Í tré-
skurðarnámi er
yfirleitt byrjað á að
skera út einfaldan
bakka og um leið
kennt að beita verkfær-
unum og að skera út í við-
inn eftir því hvernig liggur í
honum.“
Valgerður Þ. Jónsdóttir
vjon@mbl.is
Þótt Sigurjón Gunnarssonsé einstakur hagleiks-maður á tré og jafnframtmargt annað til lista lagt
kvaðst hann ekki geta lagað nef á
manni þegar hann fékk fyrirspurn
þess efnis á dögunum. Vinnan sem
hann framkvæmir á Skurðstofu
Sigurjóns í Hafnarfirði er enda af
allt öðrum toga og snýst fyrst og
fremst um tréskurð. Allir eru vel-
komnir að ganga í bæinn og skoða
og kaupa tréverkin sem þar eru í
tugavís af öllum gerðum og stærð-
um. Að öðru leyti segist hann gera
lítið af því að koma verkum sínum
á framfæri.
Sigurjón hefur stundað tré-
skurð í yfir tuttugu ár, eða allt frá
því hann tók öll námskeið sem í
boði voru, sjö talsins, í Trélista-
skóla Hannesar Flosasonar. Þá
hefur hann setið í stjórn og um
tíma verið formaður FÁT, Félags
áhugamanna um tréskurð.
„Hannes heitinn var einn fárra
lærðra tréskurðarmeistara á Ís-
landi, sem kenndu almenningi tré-
skurð með markvissum hætti. Slík
menntun er ekki lengur til hér á
landi nema að nafninu til, óvirk
iðngrein, ef svo má segja, því eng-
inn sækir lengur í hana,“ segir Sig-
urjón, sem nýverið gaf út í sam-
starfi við Iðnú upplýsinga- og
fróðleiksbókina Tréskurður.
Hugur og hönd
„Íslenskt lesefni um tréskurð
er af mjög skornum skammti. Ég
Hagleiksmaður
á skurðstofu
Höfundurinn og útgefandinn Sigurjón Gunnarsson tók
saman fróðleik um sögu tréskurðar, einkum á Íslandi, og
leiðbeinir um verkfæri, form, mynstur og alls konar hag-
nýt og oft tæknileg atriði í tréskurði í bókinni Tréskurður.
Þar segir m.a. frá öskum sem féllu í stafi og einstöku höfðaletri.
Askar, nóar og stuðlaberg Litlir askar eru kallaðir nóar. Fyrir neðan er
kaffipokastandur með stuðlabergsmynstri.
Morgunblaðið/Kristinn Magnússon
Rannsóknarsmiðja um myndlist og
vísindi verður í Gerðarsafni og Nátt-
úrufræðistofu kl. 13-15 á morgun,
laugardaginn 11. nóvember. Skoðaðar
verða skissur og rannsóknir lista-
mannanna Einars Garibalda og Krist-
jáns Steingríms á sýningunni Stað-
setningum til að fræðast um hvernig
skissur verða að stórum fullbúnum
málverkum. Vísindamaður í Nátt-
úrufræðistofu sýnir hvernig náttúra
og dýralíf eru rannsökuð. Út frá leið-
angrinum um söfnin búa börnin til
sína eigin skissubók og gera tilraunir
með list úr náttúrunni.
Menningarhúsin í Kópavogi
Fjölskyldustundir Smiðjan er
liður í fjölskyldustundunum.
Smiðja um
myndlist og
vísindi
Hljómsveitirnar
Erics Blues Band
frá Stokkhólmi og
Beebee and the
Bluebirds spila í
kjallara Hard Rock
Cafe kl. 22 í kvöld,
föstudaginn 10.
nóvember, og á
sama tíma á
Græna hattinum á
Akureyri laugar-
dagskvöldið 11. nóv.
Beebee & the Bluebirds er tónlistar-
verkefni Brynhildar Oddsdóttur, söng-
konu, lagahöfundar og gítarleikara.
Tónlistinni hefur verið lýst sem góðri
blöndu af rokki, blús og soul.
Miðasala á tix.is.
Tónlist
Rokk, blús og
sálartónlist
Brynhildur
Oddsdóttir
Minjar og saga, vinafélag Þjóðminja-
safnsins, stendur fyrir fyrirlestri kl.
12 í dag, föstudaginn 10. nóvember, í
tengslum við útgáfu bókarinnar Leit-
in að klaustrunum eftir dr. Steinunni
Kristjánsdóttur fornleifafræðing.
Fyrirlesturinn er í fyrirlestrarsal
Þjóðminjasafns Íslands við Suður-
götu. Í fyrirlestrinum beinir Stein-
unn sjónum sínum sérstaklega að
kenningu um að Valþjófsstað-
arhurðin, einn merkasti forngripur
Íslendinga, hafi upprunalega verið
hurðin að klaustrinu að Keldum. Í lok
fyrirlestursins verður gengið að
hurðinni sem er hluti af grunnsýn-
ingu Þjóðminjasafnsins.
Í bókinni Leitinni að klaustrunum
bregður Steinunn ljósi á sögu
klausturshalds á Íslandi, sem spann-
ar næstum 500 ár, allt frá 1030 og
þar til þau lögðust af í kjölfar sið-
breytingarinnar um 1550. Á þessum
tíma voru starfrækt 14 klaustur á Ís-
landi. Bókin er afrakstur umfangs-
mikilla rannsókna Steinunnar og
samstarfsfólks hennar á árunum
2013 til 2016.
Leitin að klaustrunum - Fyrirlestur í Þjóðminjasafni Íslands
Var Valþjófsstaðarhurðin að
klaustrinu að Keldum?
Morgunblaðið/Árni Sæberg
Við Valþjófsstaðarhurðina Steinunn Kristjánsdóttir fornleifafræðingur hef-
ur á síðustu árum unnið að miklum rannsóknum á löngu horfnum klaustrum.
Sæbjúgu innihalda mikið kollagen og yfir 50
tegundir af næringarefnum sem hafa öll mjög
jákvæð áhrif á lífeðlisfræðilega starfsemi
mannslíkamans
ÍSLENSKA FRAMLEIÐSLA: Framleiðandi sæbjúgna er Arctic Star ehf.
Allar nánari upplýsingar fást á arcticstar.is
.
Arctic Star sæbjúgnahylki fást í flestum apótekum og heilsubúðum og í Hagkaupum.
Arctic Star Sæbjúgnahylki
Sæbjúgu
eru þekkt fyrir:
• Hátt prótíninnihald og lágt fituinnihald
• Að minnka verki í liðum og liðamótum
• Að byggja upp brjósk og draga úr tíðni
liðskemmda
• Að bæta ónæmiskerfið og mótstöðu
líkamans gegn ýmsum sjúkdómum
• Að auka blóðflæði sem minnkar líkur á blóðtappa
• Að koma í veg fyrir æðakölkun
• Að auka orku líkamans, stuðla
að myndun húðpróteins
og insúlíns